Blómaferningur 6 Vannlilje

Hér er 8. vísbendingin fyrir Mystery Blanket CAL – með auðveldum leiðbeiningum skref fyrir skref – allir geta verið með! Þú finnur einnig 2 kennslumyndbönd neðst sem geta hjálpað þér!

Heklið 5 ll með heklunál nr 3 með litnum ljós turkos.

Tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll.

UMFERÐ 1: Heklið 1 ll (= 1 fl).

UMFERÐ 1: Heklið 17 fl um hringinn, endið með 1 kl í 1. ll í umf – LESIÐ LITASKIPTI = 18 fl. Klippið frá.

LITASKIPTI:

Þegar skipt er um lit er heklað þannig: Þegar draga á þráðinn í gegnum síðustu l á heklunálinni, skiptið um lit, dragið þráðinn í gegnum síðustu l á heklunálinni með nýja litum.

UMFERÐ 2: Skiptið yfir í litinn turkos. Heklið 1 ll (= 1 fl).

UMFERÐ 2: Heklið 1 picot – LESIÐ PICOT-2.

PICOT-2:

3 ll, 1 st í 1. ll.

UMFERÐ 2: Hoppið yfir 2 fl, 1 fl í næstu fl.

Útskýring á allri UMFERÐ 2:

UMFERÐ 2: Skiptið yfir í litinn turkos. Heklið 1 ll (= 1 fl), * 1 picot – LESIÐ PICOT-2, hoppið yfir 2 fl, 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum og endið með 1 kl í 1. fl í umf = 6 lítil krónublöð.

UMFERÐ 3: Snúið stykkinu og frá röngu er hekluð 1 fl um 1. fl frá 2. umf.

UMFERÐ 3: Heklið * 4 ll, 1 fl um næstu fl frá 2. umf *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum og endið með 1 kl í 1. fl frá umf = 6 ll-bogar.

UMFERÐ 4: Snúið stykkinu og frá réttu er hekluð 1 ll. Í hvern ll-boga er heklað þannig: * 1 fl, 4 hst, 1 fl *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum og endið með 1 kl í 1. ll í umf – LESIÐ LITASKIPTI.

UMFERÐ 4: = 6 stór krónublöð. Klippið frá.

UMFERÐ 5: Skiptið yfir í litinn ópalgrænn. Snúið stykkinu og frá röngu er hekluð 1 fl um 1. fl frá 3. umf.

UMFERÐ 5: Heklið * 5 ll, 1 fl um næstu fl frá 3. umf *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum og endið með 1 kl í 1. fl í umf = 6 ll-bogar.

UMFERÐ 6: Snúið stykkinu og frá réttu er hekluð 1 kl um fyrsta ll-boga, 1 hst, 6 st um fyrsta ll-boga.

UMFERÐ 6: Heklið 6 st og 1 hst um næsta ll-boga.

Útskýring á allri UMFERÐ 6:

UMFERÐ 6: Snúið stykkinu og frá réttu er hekluð 1 kl um fyrsta ll-boga, * 1 hst, 6 st um fyrsta ll-boga, 6 st og 1 hst um næsta ll-boga *, endurtakið alls 3 sinnum og endið með 1 kl í 1. hst í umf – LESIÐ LITASKIPTI = 3 stór blöð á 6 ll-bogum. Klippið frá.

Blómið er nú tilbúið og ferningur heklaður.

UMFERÐ 1: Skiptið yfir í litinn hvítur. Snúið stykkinu og frá röngu er heklað: 1 kl í aftari lið á fyrstu fl frá 5. umf á blómi.

UMFERÐ 1: Heklið 4 ll, 1 kl í aftari lið á næstu fl frá 5. umf á blómi.

Útskýring á allri UMFERÐ 1:

UMFERÐ 1: Skiptið yfir í litinn hvítur. Snúið stykkinu og frá röngu er heklað: * 1 kl í aftari lið á fyrstu/næstu fl frá 5. umf á blómi, 4 ll * endurtakið frá *-* yfir alla umf og endið með 1 kl í fyrstu fl í umf = 6 ll-bogar.

UMFERÐ 2: Snúið stykkinu og frá réttu er hekluð 1 kl í fyrsta ll-boga, 3 ll (= 1 st), 3 st í sama ll-boga.

UMFERÐ 2: Heklið * (2 st, 2 ll, 4 st) í næsta ll-boga, (4 st, 2 ll, 2 st) í næsta ll-boga *, 4 st í næsta ll-boga endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar og endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 32 st, 4 ll-bogar .

UMFERÐ 3: 3 ll (= 1 st), heklið 1 st í hvern st að 2 ll-boga í hverju horni, heklið (2 st, 2 ll, 2 st) í hvert horn yfir alla umf og endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 48 st, 4 ll-bogar.

UMFERÐ 4: 3 ll (= 1 st), heklið 1 st í hvern st að 2 ll-boga í hverju horni, heklið (2 st, 2 ll, 2 st) í hvert horn yfir alla umf og endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 64 st, 4 ll-bogar.

UMFERÐ 5. 1 ll (= 1 fl), hoppið yfir 1. st, heklið 1 fl í hvern st að 2 ll-boga í hverju horni, heklið (1 fl, 1 hst, 1 fl) í hverju horni yfir alla umf. Endið með 1 kl í fyrstu fl frá byrjun umf = 72 fl og 4 hst um allan ferninginn. Klippið frá.

Bakhlið:

Tilbúið!

Nú er eitt blóm Vannlilje tilbúið, mál ca 9,5 x 9,5 cm.

Festið alla enda og heklið alls 5 ferninga með blómum á sama hátt eða með litum að eigin ósk.