ErmiVið nálgumst endalokin á jólapeysunni og nú prjónum við ermarnar! Nú höldum við áframERMI: ![]() Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi – þ.e.a.s. mitt í 8 lykkjurnar. Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu, það á að nota hann þegar fækka á lykkjum. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2-3-4-4-4-4-4 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA að neðan. ![]() ÚRTAKA (á við um mitt undir ermi): Fækkið lykkjum svona í 4.-4½.-6.-7.-8.-8½.-9. hverjum cm alls 4 sinnum = 42-44-46-48-50-52-54 lykkjur. ![]() Prjónið þar til ermin mælist 18-22-26-30-34-38-41 cm frá skiptingu. Það eru eftir ca 4 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. ![]() Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-4-4-4-6-6-6 lykkjur jafnt yfir = 46-48-50-52-56-58-60 lykkjur. ![]() Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4 cm. ![]() Fellið af aðeins laust, með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 22-26-30-34-38-42-45 cm frá skiptingu. ![]() Prjónið hina ermina á sama hátt. Nú ermin tilbúin og það þýðir að #4 vísbendingin í þessu KAL hefur verið leyst. Nú eru bara nokkrir þræðir sem þarf að festa áður en hægt er að nota peysuna. ![]() Tilbúin? Okkur hlakkar til að sjá allar frábæru peysurnar ykkar! Endilega sýndu okkur myndir með því að merkja myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsalong og #DROPSChristmasKAL og ekki gleyma að senda inn myndir af peysunni þinni í myndasafnið okkar #dropsfan galleriet! ![]() Þarftu aðstoð?Hér fyrir neðan finnurðu lista yfir úrræði til að hjálpa þér að klára hálsmálið á jólapeysunni þinni. Ertu enn í vafa? Þú getur skilið eftir spurningar með því að nota eyðublaðið neðst á síðunni og einn af prjónasérfræðingum okkar mun þá reyna að aðstoða þig! |