Blómaferningur 6 KornblomstHér er 6. vísbendingin fyrir Mystery Blanket CAL – með auðveldum leiðbeiningum skref fyrir skref – allir geta verið með! Þú finnur einnig 2 kennslumyndbönd neðst sem geta hjálpað þér! Heklið 5 ll með heklunál nr 3,0 með litnum turkos. Tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 1: Heklið 1 st = 3 ll. UMFERÐ 1: Heklið 1 st í ll-hringinn, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið 1 st til viðbótar í sama hring alveg eins. UMFERÐ 1: Dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. UMFERÐ 1: Heklið 3 ll. UMFERÐ 1: Heklið 1 st-hóp – Lesið ST-HÓPUR. ST-HÓPUR: Heklið 1 st í ll-hringinn, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið 2 st í sama hring alveg eins. UMFERÐ 1: Dragið þráðinn í gegnum allar 4 l á heklunálinni. Útskýring á allri UMFERÐ 1: UMFERÐ 1: Heklið alla umf þannig: * 1 st-hópur – lesið ST-HÓPUR – (1. st = 3 ll), 3 ll *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum og endið með 1 kl í toppinn á fyrsta st-hóp í umf – LESIÐ LITASKIPTI = 6 st-hópar með 3 ll á milli hverra. Klippið frá. ST-HÓPUR: Heklið 1 st í ll-hringinn, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið 2 st í sama hring alveg eins, dragið þráðinn í gegnum allar 4 l á heklunálinni LITASKIPTI: Þegar skipt er um lit er heklað þannig: Þegar draga á þráðinn í gegnum síðustu l á heklunálinni, skiptið um lit, dragið þráðinn í gegnum síðustu l á heklunálinni með nýja litum. UMFERÐ 2: Skiptið yfir í ópalgrænt. Heklið 1 kl í fyrsta ll-boga. UMFERÐ 2: Heklið 4 hst um fyrsta ll-boga (1 hst = 2 ll). UMFERÐ 2: Snúið stykkinu, 2 ll. UMFERÐ 2: Heklið 1 hst í fyrsta hst, 2 hst í hvern af næstu 3 hst. UMFERÐ 2: Snúið stykkinu, 2 ll. UMFERÐ 2: Brettu blaðinu að þér, 4 hst um sama ll-boga. UMFERÐ 2: Snúið stykkinu, 2 ll. UMFERÐ 2: Heklið 1 hst í fyrsta hst, 2 hst í hvern af næstu 3 hst. UMFERÐ 2: Snúið stykkinu, 2 ll (= 2 blöð um sama ll-boga). UMFERÐ 2: Heklið 4 hst um næsta ll-boga. Útskýring á allri UMFERÐ 2: UMFERÐ 2: Skiptið yfir í litinn ópalgrænn. Heklið 1 kl í fyrsta ll-boga, * 4 hst um fyrsta/næsta ll-boga (1. hst = 2 ll), snúið stykkinu, 2 ll, 1 hst í fyrsta hst, 2 hst í hvern af næstu 3 hst, snúið stykkinu, 2 ll, (brettu blaðinu að þér) 4 hst um sama ll-boga, snúið stykkinu, 2 ll, 1 hst í fyrsta hst, 2 hst í hvern af næstu 3 hst, snúið stykkinu, 2 ll *, endurtakið frá *-* í hvern ll-boga í umf og endið með 1 kl í fyrstu kl í byrjun umf – LESIÐ LITASKIPTI = 12 blöð um 6 ll-boga. Klippið frá. Blómið er nú tilbúið og ferningur heklaður. UMFERÐ 1: Skiptið yfir í litinn hvítur. Snúið stykkinu og frá röngu er heklað: 1 kl um toppinn á fyrsta st-hóp frá 1. umf á blómi. UMFERÐ 1: Heklið 4 ll, 1 kl í toppinn á næsta st-hóp frá 1. umf á blómi. Útskýring á allri UMFERÐ 1: UMFERÐ 1: Skiptið yfir í litinn hvítur. Snúið stykkinu og frá röngu er heklað þannig: 1 kl í toppinn á fyrsta st-hóp frá 1. umf á blómi, * 4 ll, 1 kl í toppinn á næsta st-hóp frá 1. umf á blómi *, endurtakið frá *-* yfir alla umf og endið með 1 kl í fyrstu kl í umf = 6 ll-bogar. UMFERÐ 2: Snúið stykkinu. Frá réttu er hekluð 1 kl í fyrsta ll-boga, 3 ll (= 1 st), 3 st í sama ll-boga, * (2 st, 2 ll, 4 st) í næsta ll-boga, (4 st, 2 ll, 2 st) í næsta ll-boga *, st í næsta ll-boga endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar og endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 32 st, 4 ll-bogar. UMFERÐ 3: 3 ll (= 1 st), heklið 1 st í hvern st að 2 ll-boga í hverju horni, heklið (2 st, 2 ll, 2 st) í hvert horn yfir alla umf og endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 48 st, 4 ll-bogar. UMFERÐ 4: 3 ll (= 1 st), heklið 1 st í hvern st að 2 ll-boga í hverju horni, heklið (2 st, 2 ll, 2 st) í hvert horn yfir alla umf og endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 64 st, 4 ll-bogar. UMFERÐ 5: 1 ll (= 1 fl), hoppið yfir 1 st, heklið 1 fl í hvern st að 2 ll-boga í hverju horni, heklið (1 fl, 1 hst, 1 fl) í hvert horn yfir alla umf. Endið með 1 kl í fyrstu fl frá byrjun umf = 72 fl og 4 hst yfir allan ferninginn. Klippið frá. Bakhlið: Tilbúið!Nú er eitt Kornblomst tilbúið, mál ca 9,5 x 9,5 cm. Festið alla enda og heklið alls 5 ferninga með blómum á sama hátt eða með litum að eigin ósk. |