BerustykkiNú erum við með hálsmálið klárt á peysunni okkar, næsta skref er berustykkið! Fylgdu þessari vísbendingu til að bæta við jólasveinum eða jólatrjám á berustykkið – passaðu bara uppá að fylgja réttri mynsturteikningu! ![]() UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): ÚTAUKNING fyrir dömur/herra (jafnt yfir): MYNSTUR: LEIÐBEININGAR: Nú byrjum við að prjónaBörn:Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð; berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Skiptið yfir á prjóna í stærð 5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-8-14-10-16-12-14 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA börn = 66-72-78-78-84-84-90 lykkjur. Prjónið nú eftir mynsturteikningu A.1 (jólasveinn = 6 lykkjur) eða A.4 (jólatré = 6 lykkjur) endurtakið mynsturteikningu 11-12-13-13-14-14-15 sinnum hringinn á berustykki. ATH! Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Lestu LEIÐBEININGAR! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNAI! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 176-192-208-208-224-224-240 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt með grunnlit, þar sem fækkað er um 4-8-12-8-12-4-8 lykkjur jafnt yfir = 172-184-196-200-212-220-232 lykkjur. Haldið áfram með sléttprjón og grunnlit þar til stykkið mælist ca 15-15-16-17-18-19-20 cm frá prjónamerki. Mynsturteikning (barnastærð)
![]() Dömur:Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð mitt að aftan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Skiptið yfir á hringprjón í stærð 5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-16-18-26-28-30 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING dömur = 84-96-102-114-120-126 lykkjur. Prjónið nú eftir mynsturteikningu A.2 (jólasveinn = 6 lykkjur) eða A.5 (jólatré = 6 lykkjur) endurtakið mynsturteikningu 14-16-17-19-20-21 sinni hringinn á berustykki. ATH! Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð og lestu LEIÐBEININGAR! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2 eða A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 224-256-272-304-320-336 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt með grunnlit þar sem aukið er út um 8-0-0-0-4-8 lykkjur jafnt yfir = 232-256-272-304-324-344 lykkjur. Haldið áfram með sléttprjón og grunnlit þar til berustykkið mælist 20-22-23-25-27-29 cm frá prjónamerki. Mynsturteikning (dömustærð)
![]() Herrar:Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð mitt að aftan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Skiptið yfir á hringprjóna í stærð 5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-18-26-28-30-34 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING herrar = 96-102-114-120-126-138 lykkjur. Prjónið nú eftir mynsturteikningu A.3 (jólasveinn = 6 lykkjur) eða A.6 (jólatré = 6 lykkjur) endurtakið mynsturteikningu 16-17-19-20-21-23 sinnum hringinn á berustykki. ATH! Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð og lestu LEIÐBEININGAR! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.3 eða A.6 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 256-272-304-320-336-368 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt með grunnlit þar sem aukið er út um 0-0-0-4-8-0 lykkjur jafnt yfir = 256-272-304-324-344-368 lykkjur. Haldið áfram með sléttprjóni og grunnlit þar til stykkið mælist ca 26-28-29-31-33-35 cm frá prjónamerki. Mynsturteikning (herrastærð)
![]() Þetta er allt um berustykkið!![]() Hér getur þú séð hvernig við mælum frá prjónamerki í stærðinni sem við erum að prjóna (dömur XS) ![]() Nú þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, þá er vísbending #2 í þessu KAL klár. Ertu tilbúin að halda áfram? Smelltu þá að neðan á Næsta > til að byrja á næsta skrefi á peysunni. Ekki gleyma að senda okkur myndir af árangrinum til okkar. Smelltu hér til að samþykkja linkinn! Vantar þig aðstoð?Hér að neðan þá finnur þú lista með upplýsingum til aðstoðar við að prjóna berustykkið á jólapeysunni þinni. Ertu enn í vandræðum? Þú getur sent spurningar til okkar með því að skrifa í reitina neðst á síðunni og þá munu prjónasérfræðingarnir okkar reyna að aðstoða þig! |