Eigum við að klára?Nú erum við komin að allra síðustu vísbendingunni í DROPS-Along – vísbending #9 og við ætlum að hekla tvöfalda umferð með sólfjöðrum sem verður fallegur endir á þessu yndislega sjali. Við erum svo glöð yfir því að þú hefur verið með í því að hekla þetta fallega sumarsjal! Ekki gleyma að senda okkur myndir þegar þú ert tilbúin með sjalið þitt, skrifaðu einnig þínar framtíðar óskir um Crochet-Along í athugasemdadálkinn neðst á síðunni. ![]() Fyrst smá upplýsingarLITUR: MYNSTUR: Ef þú ert vön/vanur þá getur þú lesið stuttu útskýringuna og fylgt eftir mynsturteikningunni hér að neðan, en ef þig vantar frekari aðstoð við að byrja, þá getur þú lesið það sem stendur fyrir neðan í þessari vísbendingu. Stutt útskýringEndið síðustu umferð 2 loftlykkjum og 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju frá fyrri umferð. Klippið frá og festið enda. Mynsturteikning fyrir vísbendingu #9
![]() Vantar þig aðstoð við að byrja?Hér eru nánari útskýringar á hvernig þú byrjar á vísbendingu #9. Við höfum merkt hvar við vinnum með rauðum í mynsturteikningu. Byrjið frá röngu og heklið 55. umferð. ![]() Eftir það er 56. umferð hekluð frá réttu, endið með 2 loftlykkjum og 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju frá fyrri umferð. Klippið frá og festið enda. ![]() Tilbúið!Nú höfum við klárað vísbendingu #9 og sjalið er nú tilbúið – þetta var skemmtilegt! Þegar sjalið er alveg tilbúið mælist það ca 76 cm frá byrjun og niður mitt í sjali. Við vonumst til að þú hafir haft eins gaman af þessu verkefni og við. Deildu myndunum þínum af sjalinu á samfélagsmiðlum – mundu að merkja myndirnar með #DROPSAlong og #MagicSummerCAL svo að við getum líka séð þær! ![]() Kennslumyndband |