Við erum næstu því búin!Í vísbendingu #8 ætlum við að hekla 7 nýjar umferðir – njóttu, því þegar við erum búin með þær þá förum við aftur í vísbendingu 1! Ertu með einhverjar spurningar? Neðst á síðunni þá finnur þú dálk þar sem þú getur lagt inn spurningar eða athugasemdir. ![]() Fyrst smá upplýsingarRENDUR: 48.UMFERÐ: gallabuxnablár (litur i) MYNSTUR: LITASKIPTI: Ef þú ert vön/vanur þá getur þú lesið stuttu útskýringuna og fylgt eftir mynsturteikningunni hér að neðan, en ef þig vantar frekari aðstoð við að byrja, þá getur þú lesið það sem stendur fyrir neðan í þessari vísbendingu. Stutt útskýringUmferð 48, 49, 53 og 54 eru heklaðar frá réttu. Byrjið umferð 49 með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju frá fyrri umferð og byrjið umferð 54 með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju frá fyrri umferð. Mynsturteikning fyrir vísbendingu #8
![]() Vantar þig aðstoð við að byrja?Hér er nánari útskýring á hvernig þú byrjar á vísbendingu #8. Við höfum merkt hvar við vinnum með rauðum í mynsturteikningu. Heklið 48. umferð í A.6a og A.6b frá réttu, klippið frá og heklið 49. umferð frá réttu, þannig að 48. umferð og 49. umferð verði báðar heklaðar frá réttu. Byrjið 49. umferð með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju frá fyrri umferð. Þegar 49. umferð hefur verið hekluð til loka eru 68 sólfjaðrir (= 34 mynstureiningar A.6b) í umferð. Stykkið mælist ca 69 cm frá byrjun og niður mitt í sjali. ![]() Heklið nú A.7b (A.7a sýnir hvernig hver umferð byrjar og er hekluð sem viðbót við A.7b). 50. umferð er hekluð frá röngu þannig: Leggið 49. umferð (umferð með vínrauðum sólfjöðrum – litur j) niður þannig að rétta liggi að réttu og heklið um 48. umferð (gallabuxnablár – litur i) frá bakhlið á sjali þannig: (4 loftlykkjur, 1 fastalykkja um fyrsta/næsta hálfa stuðul) heklið svona meðfram öllu sjalinu og endið með 1 fastalykkju um síðasta hálfa stuðulinn í umferð = 136 loftlykkjubogar. Munið LITASKIPTI! ![]() ![]() Heklið umferð 51 þannig: ![]() Þegar 52. og 53. umferð hefur verið hekluð til loka, klippið frá og 54. umferð er hekluð frá réttu, þannig að 53. umferð og 54. umferð verði báðar heklaðar frá réttu. Byrjið 54. umferð með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju frá fyrri umferð. Munið LITASKIPTI! ![]() Tilbúið!Nú erum við tilbúin með vísbendingu #8 og þegar allar 54 umferðirnar í sjali hafa verið heklaðar mælist stykkið ca 73 cm frá byrjun og niður mitt í sjali. Á myndinni sérðu hvernig umferðirnar í þessari vísbendingu líta út þegar þær eru tilbúnar. Nú getur þig farið að hlakka til síðustu vísbendingarinnar – hún kemur í næstu viku! ![]() Kennslumyndband |