Nú klárum við að hekla fyrsta litinnNú klárum við fyrsta litakaflann í sjalinu. Eins og áður þá getur þú séð kennslumyndbönd neðst í hverri vísbendingu. Ef þú hefur einhverjar spurningar eða athugasemdir, þá getur skrifað þær í dálkinn neðst á síðunni. Stutt útskýringÍ vísbendingu #3 vinnum við frá umferð 9 til umferð 14. Nú heklum við eftir mynsturteikningu A.3 þannig: Heklið A.3a um fyrsta loftlykkjuboga, A.3b um hvern og einn af 7 næstu loftlykkjubogum, A.3c um næsta loftlykkjuboga (= miðju loftlykkjubogi í sjalinu), A.3b um hvern og einn af næstu 7 loftlykkjubogum, A.3d um síðasta loftlykkjuboga. Þegar allar 3 mynsturteikningarnar hafa verið heklaðar til loka á hæðina eru 48 loftlykkjubogar í umferð. Stykkið mælist ca 19 cm frá byrjun og niður mitt á sjali. Mynsturteikning fyrir vísbendingu #3
![]() Vantar þig aðstoð við að byrja?Hér er nánari útskýring á hvernig þú byrjar vísbendingu #3. Við höfum merkt hvar við vinnum með rauðum í mynsturteikningu. UMFERÐ 1: ![]() ![]() Heklið A.3b: 2 tvíbrugðnir stuðlar, 1 loftlykkja, 2 tvíbrugðnir stuðlar um sama loftlykkjuboga, 1 loftlykkja, heklið svona um hvern og einn af næstu 7 loftlykkjubogum. ![]() ![]() Í miðju loftlykkjuboga á sjali er heklað A.3c: 2 tvíbrugðnir stuðlar, 1 loftlykkja, 2 tvíbrugðnir stuðlar um sama loftlykkjuboga, 1 loftlykkja. ![]() ![]() Nú er A.3b heklað aftur: 2 tvíbrugðnir stuðlar, 1 loftlykkja, 2 tvíbrugðnir stuðlar um sama loftlykkjuboga, 1 loftlykkja, heklið svona um hvern og einn af næstu 7 loftlykkjubogum. ![]() ![]() Heklið A.3d um síðasta loftlykkjuboga: 2 tvíbrugðnir stuðlar, 1 loftlykkja, 2 tvíbrugðnir stuðlar um sama loftlykkjuboga, 3 loftlykkjur og 1 tvíbrugðinn stuðull um sama loftlykkjuboga, snúið stykkinu. ![]() ![]() UMFERÐ 2: ![]() ![]() UMFERÐ 3: ![]() ![]() UMFERÐ 4: ![]() ![]() UMFERÐ 5: ![]() ![]() UMFERÐ 6: ![]() ![]() Tilbúið!Nú ertu tilbúin með síðustu vísbendingu í þessari viku! Ekki gleyma að deila myndunum þínum með okkur í dropsalong gallery! Þegar allar 3 mynsturteikningarnar hafa verið heklaðar til loka á hæðina eru 48 loftlykkjubogar í umferð. Þegar þú er tilbúin með vísbendingu #3 mælist stykkið ca 19 cm frá byrjun og niður mitt á sjali. Kennslumyndband |