Sjalið vexNú höldum við áfram með sjalið! Eins og áður þá getur þú séð kennslumyndbönd neðst í hverri vísbendingu. Ef þú hefur einhverjar spurningar eða athugasemdir, þá getur skrifað þær í dálkinn neðst á síðunni. Stutt útskýringÍ þessari vísbendingu þá heklum við frá umferð 5 til umferð 8. Þegar mynsturteikningin hefur verið hekluð til loka á hæðina eru 17 loftlykkjubogar í umferð. Stykkið mælist ca 10 cm frá fyrsta loftlykkjuhring og niður mitt á sjalinu. Mynsturteikning fyrir vísbendingu #2
![]() Vantar þig aðstoð við að byrja?Hér er nákvæmari útskýring á hvernig þú byrjar á vísbendingu #2. Við höfum merkt hvar við vinnum með rauðum í mynsturteikningu. UMFERÐ 1: Eftir þetta er heklað eftir mynsturteikningu A.2b þannig: 6 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga, 6 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga, 6 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga, 6 loftlykkjur. Að lokum er heklað eftir mynsturteikningu A.2c þannig: 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga, 6 loftlykkjur, 1 fastalykkja um sama loftlykkjuboga, 6 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga, 6 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga, 3 loftlykkjur og 1 tvíbrugðinn stuðull um síðasta loftlykkjuboga, snúið stykkinu. ![]() ![]() UMFERÐ 2: Heklið eftir mynsturteikningu A.2c, A.2b og A.2a. ![]() ![]() UMFERÐ 3: Heklið eftir mynsturteikningu A.2a, A.2b og A.2c. ![]() ![]() UMFERÐ 4: Heklið eftir mynsturteikningu A.2c, A.2b og A.2a. ![]() ![]() Tilbúið!Nú ertu tilbúin með vísbendingu #2! Ekki gleyma að deila myndunum þínum með okkur í dropsalong gallery! Kennslumyndband |