Nú prjónum við framstykkið!Nú ertu búin með bakstykki og þá er komið að því að prjóna framstykkið. Hér sérðu uppskriftirnar fyrir barnapeysuna og fullorðins peysuna, passaðu þig á að fylgja réttri uppskrift! Hér að neðan er uppskriftin á framstykki bæði fyrir barnapeysuna og fullorðins peysuna og neðst á síðunni finnur þú kennslumyndbönd sem aðstoða þig. BarnapeysaStærð: 2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára Stærð (hæð í cm): 92 - 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152 ![]() UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: FRAMSTYKKI: Mynsturteikning
![]() Tilbúið? Byrjaðu á næstu vísbendingu >> Viltu sjá alla uppskriftina? Þú finnur hanahér! Fullorðins peysaStærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL ![]() UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: FRAMSTYKKI: Fitjið upp 22-24-24-28-30-34 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 8 með litnum milligrár. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Í næstu umferð byrjar útaukning eins og á bakstykki. Haldið síðan áfram með útaukningu eins og á bakstykki – JAFNFRAMT þegar það eru 40-40-44-44-50-56 lykkjur í umferð byrjar mynstur. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig (meðtalin útaukning í hvorri hlið): Lesið MYNSTUR að ofan! Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning), 5-5-7-7-10-13 lykkjur slétt, MYNSTUR A.2 (= 26 lykkjur), prjónið 5-5-7-7-10-13 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning), 1 lykkja slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 42-42-46-46-52-58 lykkjur. Haldið áfram með mynstur, útaukning heldur áfram í hvorri hlið eins og á bakstykki = 48-52-54-60-64-72 lykkjur.
Prjónið 4-4-4-2-2-2 umferðir án útaukninga. Stykkið mælist ca 20-21-23-23-24-27 cm. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Fitjið upp nýjar lykkjur fyrir handveg eins og á bakstykki = 52-56-60-66-72-80 lykkjur.
Haldið áfram í sléttprjóni og mynstur með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar A.2 er lokið á hæðina mælist stykkið ca 29-27-27-27-26-25 cm. Prjónið síðan með litnum milligrár. Haldið áfram eins og áður þar til stykkið mælist 30-29-30-31-32-30 cm. Skiptið yfir á hringprjón 7 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 2-2-2-0-2-2 lykkjur jafnt yfir = 54-58-62-66-74-82 lykkjur. Prjónið síðan þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 (= 4 lykkjur) þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram þar til A.1 er lokið á hæðina. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur.
Mynsturteikning
![]() Tilbúið? Byrjaðu á næstu vísbendingu >> Viltu sjá alla uppskriftina? Þú finnur hanahér! Vantar þig aðstoð?Hér er listi yfir hjálpargögn sem geta leitt þig áfram þegar þú prjónar bakstykki á barnapeysuna eða fullorðins peysuna: |