Málið er leyst!Nú er komið að síðustu vísbendingunni í CAL Mystery blanket og þegar þú hefur lokið við að hekla tvær síðustu umferðirnar ertu komin með teppi tilbúið til notkunar – og ráðgátan er leyst! Takk fyrir að hafa verið með okkur og deilt athugasemdum þínum og árangri með okkur. Nú þegar er okkur farið að hlakka til næsta ráðgátuverkefnis! Ertu nú þegar orðin CAL sérfræðingur? Þá getur þú hoppað yfir myndirnar og farið beint í mynsturteikningu (eða myndbönd) neðst á síðunni. LitirVið notuðum þessa liti í 2 síðustu vísbendingarnar: 1. UMFERÐ: 05 ljós þveginn Síðasta vísbendingin!1. UMFERÐ: HEKLLEIÐBEININGAR: ![]() Nú er heklað meðfram allri langhliðinni þannig: 2 loftlykkjur, hoppið yfir 2 lykkjur, heklið 1 stuðul í næstu lykkju, en passið uppá að það verði 62 loftlykkjubogar meðfram langhliðinni og að endað sé með 2 loftlykkjum, hoppið yfir 2 lykkjur. ![]() HORN: ![]() Heklið 1. Skammhlið eins og 1. Langhlið, en passið uppá að það verða 48 loftlykkjubogar meðfram skammhlið og að endað sé með 2 loftlykkjum, hoppið yfir 2 lykkjur. Eftir það eru hekluð horn, næsta langhlið og skammhlið eins og útskýrt er að ofan. ![]() Endið umferðina með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar, lesið HEKLLEIÐBEININGAR að ofan, ekki klippa frá. ![]() 2. UMFERÐ: LITASKIPTI: ![]() Hoppið yfir 2 lykkjur og heklið 1 fastalykkju í næstu lykkju, hoppið yfir 2 lykkjur og í næstu lykkju er heklað þannig: * 3 stuðlar, 1 loftlykkja og 3 stuðlar, hoppið yfir 2 lykkjur, 1 fastalykkja í næstu lykkju, hoppið yfir 2 lykkjur *, endurtakið frá *-* alla hliðina þannig að það verða 31 sólfjaðrir meðfram langhlið. ![]() HORN: ![]() Heklið 1. Skammhlið eins og 1. Langhlið þannig að það verða 24 sólfjaðrir meðfram skammhlið. Eftir þetta eru hornin hekluð, næsta langhlið og skammhlið eins og útskýrt er að ofan. ![]() Endið umferðina með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar, klippið frá og festið alla enda. ![]() Tilbúið!Teppið á nú að mælast ca. 115 x 90 cm. Við vonumst til að þú hafir haft eins gaman af að hekla þetta teppi og okkur! Ekki gleyma að senda okkur myndir af teppinu þínu til galleriet! ![]() Öll mynsturteikningin fyrir vísbendingu#8
![]() |