Gleym-mér-eiNú er kominn tími til að hekla aftur litla ferninga – og nú er ekkert leyndarmál hvernig við förum að því við höfum heklað þessa í vísbendingu #3. Munurinn er sá að nú heklum við 28 ferninga í tveimur litasamsetningum. Ertu orðin CAL sérfræðingur? Þá getur þú hoppað yfir myndirnar og farið beint inn í mynsturteikningu (eða myndband) neðst á síðunni. LitirVið heklum 4 umferðir af ferning A.4B í eftirfarandi litum: UMFERÐ + 1.UMFERÐ: 06 ljós gallabuxnablár Nú er bara að byrja!UPPFITJUN:
1.UMFERÐ:
Heklið * 2 loftlykkjur, 2 fastalykkjur um hringinn *, endurtakið frá *-* 3 sinnum alls.
Heklið 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja um hringinn og endið umferð með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju frá byrjun umferðar, ekki skipta um lit.
Heklið 1 keðjulykkju um 1. loftlykkjuboga jafnframt er skipt yfir í litinn ljós þveginn, lesið LITASKIPTI að neðan. Klippið frá þráðinn í litnum ljós gallabuxnablár. LITASKIPTI:
2.UMFERÐ:
Heklið * 2 stuðla um næsta loftlykkjuboga, 2 loftlykkjur, 2 stuðlar um sama loftlykkjuboga, 1 loftlykkja *, endurtakið frá *-* 3 sinnum alls.
Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar.
3.UMFERÐ:
Heklið * 3 stuðla um næsta loftlykkjuboga, 2 loftlykkjur, 3 stuðlar um sama loftlykkjuboga, 1 loftlykkja *, endurtakið frá *-* 3 sinnum alls.
Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar, jafnframt er skipt yfir í litinn hvítur. Klippið frá þráðinn í litnum ljós þveginn.
4. UMFERÐ: LEIÐBEININGAR:
Heklið * 1 fastalykkju í hverja af næstu 3 lykkjum, 2 fastalykkjur um loftlykkjuboga, 2 loftlykkjur, 2 fastalykkjur um sama loftlykkjuboga, 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 lykkjum, 2 hálfa stuðla í kringum loftlykkju frá 2. og 3. umferð *, endurtakið frá *-* 4 sinnum alls.
Endið umferð með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju frá byrjun umferðar. Klippið frá og festið enda!
Tilbúið!Nú höfum við lokið við ferning A.4B, sem á að vera 8 x 8 cm. Heklið 14 svona ferninga í sömu litasamsetningu og þú sérð hér:
Nú er bara eftir að hekla 14 st í annarri litasamsetningu (eins og þú sérð á mynd að neðan). UPPFITJUN +1. UMFERÐ: ljós fjólublár
Allt mynstur fyrir vísbendingu #8
Vantar þig aðstoð við hekl aðferðirnar? Skoðaðu myndbandið fyrir vísbendingu #3. |