Vorið er komið!

Í þessari viku heklum við 14 litla ferninga með kúlum í miðju. Við höfum heklað þessar flottu kúlur áður, svo þetta verður auðvelt. Ef þú manst hvernig á að gera, þá getur þú bara byrjað og farið neðst í mynsturteikningu á uppskriftinni, þar finnur þú einnig myndband ef þig vantar aðstoð.

Litir

Vísbending #7 samanstendur af 5 umferðum sem við heklum eftir mynsturteikningu A.5 í eftirfarandi litum:

UPPFITJUN + 1. UMFERÐ: fjólublár
2. UMFERÐ: bleikur
3. UMFERÐ: fjólublár
4.-5. UMFERÐ: hvítur

LEIÐSÖGN VARÐANDI LITI:
Notar þú aðra litasamsetningu en þá sem við notum hér?
Merktu þá hjá þér hvaða litanúmer þú setur í staðin áður en þú byrjar, þú getur fundið yfirlit yfir litanúmerinhér.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Það sem stendur á milli tveggja * á að endurtaka í hvert skipti þar sem stendur frá *-* í uppskrift.
Rauðu táknin í mynsturteikningu eru útskýrð í texta yfir myndum.

UPPFITJUN:
Heklið 4 loftlykkjur með litnum fjólublár, tengið þær í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.

1. UMFERÐ:
Heklið 1 loftlykkju, 6 fastalykkjur um loftlykkjuhringinn.

Endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju frá umferð, jafnframt er skipt yfir í litinn bleikur, ekki klippa frá þráðinn í litnum fjólublár. Lesið LITASKIPTI að neðan.

LITASKIPTI:
Til að fá fallega skiptingu þegar skipt er um lit er síðasta lykkjan í umferð hekluð með nýja litum.

2. OMG:
Heklið «KÚLA Í BYRJUN Á UMFERл þannig: 3 loftlykkjur (jafngildir 1. stuðli), heklið 3 stuðla í 1. fastalykkju, sleppið lykkjunni frá síðasta stuðli af heklunálinni, stingið heklunálinni inn framan við 3. loftlykkju, sækið lykkjuna frá síðasta stuðli og dragið bandið í gegnum lykkjuna á heklunálinni.

Heklið * 3 loftlykkjur, heklið «KÚLA» þannig: Heklið 4 stuðla í næstu lykkju, sleppið lykkjunni frá síðasta stuðli af heklunálinni, stingið heklunálinni inn fyrir framan toppinn á 1. stuðli sem var heklaður, sækið lykkjuna frá síðasta stuðli og dragið þráðinn í gegnum lykkjuna á heklunálinni *, endurtakið frá *-* 5 sinnum alls.

Heklið 3 loftlykkjur og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar, jafnframt er skipt yfir í litinn fjólublár, klippið frá þráðinn í litnum bleikur (= 6 kúlur og 6 loftlykkjubogar í umferð).

3. UMFERÐ:
Heklið 1 loftlykkju.

Heklið 4 fastalykkjur um hvern loftlykkjuboga umferðina hringinn (= 24 fastalykkjur).

Endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju frá byrjun umferðar, jafnframt er skipt yfir í litinn hvítur, klippið frá þráðinn í litnum fjólublár.

4. UMFERÐ:
Heklið 3 loftlykkjur (jafngilda 1. stuðul).

Heklið * 5 loftlykkjur, hoppið yfir 2 lykkjur, 1 stuðull í næstu lykkju, 2 loftlykkjur, hoppið yfir 2 lykkjur, 1 stuðull í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* 3 sinnum alls.

Heklið 5 loftlykkjur, hoppið yfir 2 lykkjur, 1 stuðul í næstu lykkju, 2 loftlykkjur, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar.

5. UMFERÐ:
Haldið áfram með litnum hvítur, heklið 1 loftlykkju.

Heklið * 1 fastalykkju í 3. loftlykkju/stuðul frá fyrri umferð, 3 fastalykkjur um 5-loftlykkjuboga, 2 loftlykkjur, 3 fastalykkjur um sama 5-loftlykkjuboga, 1 fastalykkja í næstu lykkju, 4 fastalykkjur um 2-loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* 4 sinnum alls.

Endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju frá byrjun umferðar. Klippið frá og festið enda.

Tilbúið!

Nú höfum við lokið við einn ferning A.5 sem á að mælast 8 x 8 cm.

Heklið 14 ferninga í sömu litasamsetningu:

Öll mynsturteikning fyrir vísbendingu #7

= 4 loftlykkjur, tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju – sjá punkt í hring, umferðin byrjar og endar hér
= loftlykkja
= keðjulykkja í/um lykkju
= fastalykkja um loftlykkjuhring/loftlykkjuboga
= fastalykkja í lykkju
= stuðull í lykkju
= KÚLA Í BYRJUN Á UMFERÐ: 3 loftlykkjur (jafngilda 1. stuðli), heklið 3 stuðla í 1. fastalykkju, sleppið lykkjunni niður frá síðasta stuðli af heklunálinni, stingið heklunálinni inn fyrir framan 3. loftlykkju, sækið lykkjuna frá síðasta stuðli og dragið í gegnum lykkjuna á heklunálinni
= KÚLA: Heklið 4 stuðla í sömu lykkju, sleppið heklunálinni frá síðasta stuðli af heklunálinni, stingið heklunálinni inn fyrir framan toppinn á fyrsta stuðli sem var heklaður, sækið lykkjuna frá síðasta stuðli og dragið þráðinn í gegnum lykkjuna á heklunálinni.
= 3 loftlykkjur
= 5 loftlykkjur