Hring eftir hringNý vísbending er nú tilbúin í litlu ráðgátunni okkar. Í þessari vísbendingu klárum við stóra ferninginn sem við byrjuðum á í síðustu viku. Við eigum eftir 4 umferðir og lykkjurnar eru nánast þær sömu, en það er smá breytileiki sem mynda fallegt form á ferningnum. Eins og áður þá finnur þú alla mynsturteikninguna og myndband neðst á síðunni! LitirFyrstu 6 umferðirnar í A.2 hafa nú þegar verið heklaðar, nú á að hekla 7.-10. umferð með þessum litum: 7. UMFERÐ: fjólublár LEIÐSÖGN VARÐANDI LITI: HEKLLEIÐBEININGAR: Eigum við að byrja?Takið fram fyrsta ferninginn sem við gerðum í vísbendingu #4. 7. UMFERÐ: LITASKIPTI: ![]() HORN: ![]() Heklið * 1 fastalykkju í hverja af næstu 3 lykkjum, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 lykkju, 1 fastalykkja í/um hverja af næstu 5 lykkjum, heklið «1 ÞRÍBRUGÐINN STUÐUL» þannig: Bregðið þræðinum 3 sinnum um heklunálina, færið heklunálina í kringum toppinn á kúlunni frá 5. umferð (sjá í mynsturteikningu hvernig línan liggur), bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn undir kúluna (= 5 lykkjur á heklunálinni), ** bregðið þræðinum um heklunálina, dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu/næstu lykkjur á heklunálinni **, endurtakið frá **-** alls 4 sinnum = 1 lykkja á heklunálinni. Haldið áfram með 1 fastalykkju í hverja af næstu 3 lykkjunum, 1 ÞRÍBRUGÐINN STUÐULL um sama topp á kúlu frá 5. umferð (sjá í mynsturteikningu hvernig línan liggur), 1 fastalykkja í/um hverja af næstu 5 lykkjum, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 lykkjum *. Endurtakið HORN og frá *-* 3 sinnum alls, heklið HORN. ![]() Heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 3 lykkjum, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 lykkju, 1 fastalykkja í/um hverja af næstu 5 lykkjum, heklið 1 ÞRÍBRUGÐINN STUÐULL um toppinn á kúlu frá 5. umferð. Heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 3 lykkjum, 1 ÞRÍBRUGÐINN STUÐULL um sama topp á kúlu frá 5. umferð. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju í umferð. Skiptið yfir í litinn hvítur og klippið frá þráðinn í litnum fjólublár. ![]() 8. UMFERÐ: ![]() HORN: ![]() Heklið * 1 stuðul í hverja af næstu 3 lykkjum, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 lykkju, 1 stuðull í/um hverja af næstu 9 lykkjum, heklið KÚLA í næstu lykkju þannig: Heklið 4 stuðla í sömu lykkju, sleppið lykkju frá síðasta stuðli af heklunálinni, stingið heklunálinni inn framan í toppinn á fyrsta stuðli sem var heklaður, sækið lykkjuna frá síðasta stuðli og dragið hana í gegnum lykkjuna á heklunálinni. Heklið 1 stuðul í/um hverja af 9 næstu lykkjum, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 lykkju, 1 stuðul í hverja af næstu 3 lykkjum *. Endurtakið HORN og frá *-* 3 sinnum alls, heklið HORN. ![]() Heklið 1 stuðul í hverja af næstu 3 lykkjum, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 lykkju, 1 stuðul í/um hverja af næstu 9 lykkjum, heklið KÚLA í næstu lykkju, 1 stuðul í hvora af næstu 2 lykkjum. Endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar. Skiptið yfir í litinn ljós þveginn, ekki klippa frá þráðinn í litnum hvítur. ![]() 9. UMFERÐ: ![]() HORN: Heklið 2 stuðla um loftlykkjubogann, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar um sama loftlykkjuboga. ![]() Heklið * 1 stuðul í hvern af næstu 3 stuðlum, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 lykkju, 1 stuðul í/um hvern af næstu 3 stuðlum, 2 loftlykkjur, hoppið yfir 2 lykkjur, 1 stuðul í næstu lykkju, 2 loftlykkjur, hoppið yfir 2 lykkjur, 1 stuðul í næstu lykkju, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 lykkju, 1 stuðul í næstu lykkju. Heklið 1 FJÓRBRUGÐINN STUÐUL þannig: Bregðið þræðinum 4 sinnum um heklunálina, færið heklunálina í kringum þríbrugðna stuðulinn frá 7. umferð (sjá í mynsturteikningu hvernig línan liggur), bregðið þræðinum um heklunálina og dragið uppsláttinn undir þríbrugðna stuðulinn (= 6 lykkjur á heklunálinni), ** bregðið þræðinum um heklunálina, dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu/næstu lykkjur á heklunálinni **, endurtakið frá **-** alls 5 sinnum = 1 lykkja á heklunálinni. Heklið enn einn FJÓRBRUGÐINN STUÐUL í kringum hina þríbrugðnu stuðlana frá 7. umferð (sjá í mynsturteikningu hvernig lína liggur), hoppið yfir KÚLA, 1 stuðull í næstu lykkju, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 lykkju, 1 stuðul í næstu lykkju, 2 loftlykkjur, hoppið yfir 2 lykkjur, 1 stuðul í næstu lykkju, 2 loftlykkjur, hoppið yfir 2 lykkjur, 1 stuðul í/um hverja af 3 næstu lykkjum, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 lykkju, 1 stuðul í hverja af 3 næstu lykkjum *. Heklið HORN og frá *-* 3 sinnum alls, heklið HORN. ![]() Heklið 1 stuðul í hverja af næstu 3 lykkjum, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 lykkju, 1 stuðul í/um hverja af næstu 3 stuðlum, * 2 loftlykkjur, hoppið yfir 2 lykkjur, 1 stuðul í næstu lykkju, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 lykkju, 1 stuðul í næstu lykkju, heklið 1 FJÓRBRUGÐINN STUÐUL í kringum þríbrugðna stuðulinn frá 7. umferð (sjá í mynsturteikningu hvert línan liggur). Hoppið yfir KÚLA, heklið enn einn FJÓRBRUGÐINN STUÐUL í kringum þríbrugðna stuðulinn frá 7. umferð (sjá í mynsturteikningu hvernig línan liggur), 1 stuðul í næsta stuðul, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 lykkju og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð. Skiptið yfir í litinn hvítur og klippið frá þráðinn í litnum ljós þveginn. ![]() 10. UMFERÐ: Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur um loftlykkjubogann, 1 fastalykkja í næstu lykkju, 2 fastalykkjur um næsta loftlykkjuboga, 1 fastalykkja í/um hverja af næstu 9 lykkjum. ![]() HORN: ![]() Heklið * 1 fastalykkju í/um hverja af næstu 9 lykkjum, 2 fastalykkjur um loftlykkjuboga, 1 fastalykkja í næstu lykkju, 2 fastalykkjur um næsta loftlykkjuboga, 1 fastalykkja í/um hverja af næstu 8 lykkjum, 2 fastalykkjur um loftlykkjuboga, 1 fastalykkja í næstu lykkju, 2 fastalykkjur um næsta loftlykkjuboga, 1 fastalykkja í/um hverja af næstu 9 lykkjum *, endurtakið HORN og frá *-* 3 sinnum alls. ![]() Heklið 1 fastalykkju í/um hverja af næstu 9 lykkjum, 2 fastalykkjur um loftlykkjubogann, 1 fastalykkja í næstu lykkju, 2 fastalykkjur um næsta loftlykkjuboga, 1 fastalykkja í/um hverja af næstu 7 lykkjum, 1 keðjulykkja í loftlykkju frá byrjun umferðar. Klippið frá og festið alla enda. ![]() Nú þarft þú bara að hekla 7.-10. umferð á hinum ferningunum frá vísbendingu #4 í eftirfarandi litum: 7. UMFERÐ: bleikur Tilbúið!Hér séðu hvernig báðar þessar litasamsetningar með mynsturteikningu A.2 líta út. Ferningarnir eiga að vera 25 x 25 cm. ![]() Öll mynsturteikningin fyrir vísbendingu #5
![]() |