10 litlar vísbendingarÍ vísbendingu #3 skulum við hekla nýjan ferning. Ferningurinn er ekki stór en við gerum 10 stk af þessum ferningi. Mynsturteikningin sem við heklum eftir köllum við A.4. Þú finnur mynsturteikningu fyrir hvert skref þar sem útskýrðar lykkjur eru merktar með rauðu og mynd sem sýnir hvernig þetta kemur til með að líta út. Ef þig langar heldur til að fylgja kennslumyndböndunum okkar eftir þá eru þau neðst á síðunni. Nú er að hefjast handa og byrja!Við heklum 4 umferðir í ferning A.4 í eftirfarandi litum: UPPFITJUN + 1. UMFERÐ: 16 fjólublár LEIÐSÖGN VARÐANDI LITI: UPPFITJUN: ![]() 1. UMFERÐ: ![]() Heklið * 2 loftlykkjur, 2 fastalykkjur um hringinn *, endurtakið frá *-* 3 sinnum alls. Heklið 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja um hringinn. ![]() Endið umferðina með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju frá byrjun umferðar, ekki skipta um lit. ![]() Heklið 1 keðjulykkju um loftlykkjubogann, jafnframt er skipt yfir í litinn bleikur, lesið LITASKIPTI að neðan. Klippið frá þráðinn í litnum fjólublár. LITASKIPTI: ![]() 2. UMFERÐ: ![]() Heklið * 2 stuðla um næsta loftlykkjuboga, 2 loftlykkjur, 2 stuðlar um sama loftlykkjuboga, 1 loftlykkja *, endurtakið frá *-* 3 sinnum alls. ![]() Endið umferðina með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar. ![]() 3. UMFERÐ: ![]() Heklið * 3 stuðla um næsta loftlykkjuboga, 2 loftlykkjur, 3 stuðlar um sama loftlykkjuboga, 1 loftlykkja *, endurtakið frá *-* 3 sinnum alls. ![]() Endið umferðina með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar, lesið LITASKIPTI að ofan. Skiptið yfir í litinn hvítur og klippið frá þráðinn í litnum bleikur. ![]() 4. UMFERÐ: HEKLLEIÐBEININGAR: ![]() Heklið * 1 fastalykkju í hverja af næstu 3 lykkjum, 2 fastalykkjur um loftlykkjuboga, 2 loftlykkjur, 2 fastalykkjur um sama loftlykkjuboga, 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 lykkjum, 2 hálfir stuðlar í kringum loftlykkjur frá 2. og 3. umferð *, endurtakið frá *-* 4 sinnum alls. ![]() Endið þessa umferð með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju frá byrjun umferðar. Klippið frá og festið enda! ![]() Tilbúið!Nú höfum við lokið við ferning A.4, sem á að vera 8 x 8 cm. Heklið 10 svona ferninga með sömu litasamsetningu eins og sjá má hér: ![]() Öll mynsturteikningin fyrir vísbendingu 3
![]() |