Kantur 2 = 4 heklaðar umferðir af kanti, sem eru heklaðar utan um blómaferninganaNú erum við komin í vísbendingu 10 í Mystery Blanket CAL teppinu okkar og erum á góðri leið með kantinn! Kantur 2 samanstendur af 4 umferðum með mismunandi litum og aðferðum sem ramma inn fallegu blómaferningana okkar! Kantur 2 - stuðlar: UMFERÐ 1: Skiptið yfir í litinn turkos (nr 19) – Lesið LITASKIPTI og heklið 3 ll (= 1 st). LITASKIPTI: Þegar skipt er um lit er heklað þannig: Þegar draga á þráðinn í gegnum síðustu l á heklunálinni, skiptið um lit, dragið þráðinn í gegnum síðustu l á heklunálinni með nýja litum. Heklið 1 st í hverja fl, 1 st um hverja ll og 1 st um ll-boga á hlið umf hringinn, EN heklið 2 st í eina ll-bogann á hvorri skammhlið (= aukið út um 1 st á hvorri skammhlið). Í hornið er heklað í ll-bogann þannig: 2 st, 3 ll, 2 st. Útskýring á allri umferð 1: UMFERÐ 1: Skiptið yfir í litinn turkos (nr. 19) og heklið 3 ll (= 1 st). Heklið 1 st í hverja fl, 1 st um hverja ll og 1 st um ll-bogann á hlið umf hringinn, EN heklið 2 st í eina ll-bogann á hvorri skammhlið (= aukið út um 1 st á hvorri skammhlið), í hornin er heklað í ll-boga þannig: 2 st, 3 ll, 2 st. Endið umf með 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 516 st, 4 3-ll-bogar í hverju horni, - Lesið LITASKIPTI. Ekki klippa frá. Festið enda með litnum ópalgrænn (nr. 17), frá síðustu umf í 1. kant. Lítið brot af mynstri, umferð 1, í rauðu.
UMFERÐ 2: Blómhnappar. 1. Langhlið: 1 BLÓMHNAPPUR: Heklið 3 st saman í sömu l þannig: Heklið 1 st en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið 2 st til viðbótar í sömu l en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 4 l á heklunálinni) og dragið nú síðasta uppsláttinn í gegnum allar 4 l á heklunálinni. Í hornin er heklað þannig: Útskýring á allri umferð 2: UMFERÐ 2: Blómhnappar. 1.Horn: 1. Skammhlið: 2. Horn: 2. Langhlið: 3. Horn: 2. Skammhlið: 4. Horn + endir: Lítið brot af mynstri, umferð 2, í rauðu.
UMFERÐ 3: - stuðlar: Skiptið yfir í litinn ljós turkos (nr. 19) og heklið 3 ll (= 1 st). Heklið 1 st í hverja fl, 1 st um hverja ll og 1 st í toppinn á blómhnöppum umf hringinn. Í hornin er heklað í ll-boga þannig: 2 st, 3 ll, 2 st. Útskýring á allri umferð 3: UMFERÐ 3: - stuðlar: Skiptið yfir í litinn ljós turkos (nr. 19) og heklið 3 ll (= 1. st). Heklið 1 st í hverja fl, 1 st um hverja ll og 1 st í toppinn á blómhnöppum umf hringinn, í hornin er heklað í ll-boga þannig: 2 st, 3 ll, 2 st. Endið umf með 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 540 st, 12 ll – Lesið LITASKIPTI.
UMFERÐ 4 – fl og ll: HEKLLEIÐBEININGAR-1: Ekki hekla of fast í umf með fl + 1 ll. Heklið í 1. Horn þannig: 1 fl, 3 ll, 1 fl. Útskýring á allri umferð 4: UMFERÐ 4 – fl og ll: Heklið í ll-boga í horni þannig: 1 fl, 3 ll, 1 fl og 1 fl í næsta st. Endið eftir síðasta horn þannig: * 1 fl í næsta st, 1 ll, hoppið yfir 1 st *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar og endið með 1 kl í 1. l í umf = 280 fl, 276 ll. Ekki klippa frá ópalgræna þráðinn (nr. 17, en klippið frá og festið aðra enda.
KennslumyndbandATHUGIÐ: Myndirnar og kennslumyndbandið sýnir bara dæmi hvernig við heklum kantinn í kringum bara 1 blómaferning. Þú verður að hekla kant 2 í kringum allt teppið þitt (40 ferningar). |