Hvernig á að hekla puff lykkjur sem eru hjartalaga

Keywords: hálsklútur, húfa, kúla, peysa, pufflykkjur, áferð,

Í þessu DROPS myndbandi sýnum við hvernig við heklum í hring með puff lykkjum formuð eins og hjörtu. Fallegt mynstur sem hægt er að nota í húfu eða í kraga. Við höfum nú þegar heklað band með 32 loftlykkjum (deilanlegt með 4). Tengt loftlykkjurnar saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju.
UMFERÐ 1: * Bregðið bandinu um heklunálina, stingið heklunálinni í 1. loftlykkju/næstu loftlykkju, sækið bandið og dragið bandið í gegn og gerið hana langa *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar = 9 lykkjur á heklunálinni, bregðið bandi um heklunálina og dragið bandið í gegnum allar 9 lykkjurnar, 1 loftlykkja. Endurtakið frá *-* 4 sinnum í sömu loftlykkju, 1 loftlykkja, hoppið yfir 3 lykkjur = 1 hjarta.
Heklið þetta hjarta umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju á toppnum á 1. Hluta á hjartanu.
UMFERÐ 2: * Bregðið bandi um heklunálina, stingið heklunálinni í næstu loftlykkju, sækið bandið og dragið bandið í gegn og gerið hana langa *. Endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar = 9 lykkjur á heklunálinni, bregðið bandi um heklunálina og dragið bandið í gegnum allar 9 lykkjurnar, 1 loftlykkja. Endurtakið frá *-* 4 sinnum í sömu loftlykkju, 1 loftlykkja = 1 hjarta.
Heklið þetta hjarta umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í toppinn á 1. hluta á hjartanu. Endurtakið umferð 2 að óskaðri lengd.
Í myndbandinu notum við garnið DROPS Snow. Þessi litla dúkkuhúfa er hekluð úr DROPS Merino Extra Fine. Við byrjuðum með 32 loftlykkjur með heklunál 3,5 (ummál: 22 cm) og í þremur síðustu umferðunum eru öll puff hjörtun hekluð minni (endurtakið bara frá *-* 3 sinnum). Kvisturinn er úr DROPS Kid-Silk.

Myndbandið að ofan er hægt að nota í eftirfarandi mynstrum

Athugasemdir (2)

Tina wrote:

Im Video werden 2x 9 Schlingen in derselben Masche gearbeitet. Was ist mit 4x wiederholen gemeint?

07.01.2020 - 23:55

DROPS Design answered:

Liebe Tina, Text von dem ersten * bis zum nächsten * wiederholen Sie 4 x - für jedes Herz haben Sie 4 x von *-*, 1 Lm, 4 x von *-* in der selben Maschen. Viel Spaß beim häkeln!

08.01.2020 - 09:32

Chris Cappo wrote:

Do you have a hat pattern using the puff stitch?

30.01.2018 - 18:03

Skrifa athugasemd við þetta myndband

Netfangið þitt verður ekki birt. Dálkar sem verður að fylla út eru merktir með *.