Hvernig á að hekla kúlur sem eru í 4. vísbendingu í DROPS Mystery blanket Spring Lane

Keywords: teppi,

Í þessu DROPS myndbandi sýnum við hvernig hekla á kúlur sem notaðar eru í 4. vísbendingu í DROPS ráðgátu teppinu Spring Lane. Þetta teppi er heklað úr DROPS ♥ You #8, en í myndbandinu heklum við með grófara garni; DROPS Snow.
1= KÚLA Í BYRJUN UMFERÐAR: 3 loftlykkjur (jafngilda 1 stuðli), heklið 3 stuðla í sömu lykkju, sleppið niður lykkju frá síðasta stuðli af heklunálinni, stingið heklunálinni inn framan í þriðju loftlykkju á toppnum á fyrsta stuðli sem var heklaður, sækið lykkjuna frá síðasta stuðli og dragið hana í gegnum lykkjuna á heklunálinni.
2= KÚLA: Heklið 4 stuðla í næstu loftlykkju, sleppið niður lykkjunni frá síðasta stuðli og dragið í gegnum lykkjuna á heklunálinni.
Til að lesa meira um DROPS CAL Spring Lane sjá: Vertu með í DROPS Along

Skrifa athugasemd við þetta myndband

Netfangið þitt verður ekki birt. Dálkar sem verður að fylla út eru merktir með *.