DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8976.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Rosewood Jacket

Prjónuð peysa úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, norrænu mynstri, A-formi og ¾ ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 201-3
DROPS Design: Mynstur sk-021
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-250-300-350-350-400 g litur 14, ljós fjólublár
50-50-50-50-50-50 g litur 01, hvítur

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni og norrænu mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón og norrænt mynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Blóm (hvít) NR 600: 7-7-7-7-8-8 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8976.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 107 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 38) = 2,6.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca aðra hverja og 3. hverja lykkju. Ekki er aukið út yfir kanta að framan.
Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 8 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 8 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki og alls 4 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚTAUKNING-3 (á við um mitt undir ermar):
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn(= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermar):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar eftir eru 3 lykkjur á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkjuna slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroffið í kanti í hálsi mælist ca 1½-2 cm.
Fellið síðan af fyrir 6-6-6-6-7-7 næstu hnappagötum með ca 8-8-8½-8½-8-8 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykki skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er síðan prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 107-112-112-117-122-127 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3,5 með litnum ljós fjólublár. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Þegar stroffið er lokið er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 38-40-42-42-44-46 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 145-152-154-159-166-173 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni). Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Prjónið sléttprjón fram og til baka með litnum ljós fjólublár og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 5-5-5-5-5-6 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 44-46-50-50-52-52 lykkjur jafnt yfir = 189-198-204-209-218-225 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 7-7-7-7-7-9 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 38-41-47-40-42-44 lykkjur jafnt yfir = 227-239-251-249-260-269 lykkjur. Útaukning hefur nú verið gerð til loka í S, M og L.
XL, XXL og XXXL: Þegar stykkið mælist 9-10-12 cm frá uppfitjunarkanti er aukið út um 38-39-42 lykkjur jafnt yfir = 287-299-311 lykkjur.
ALLAR STÆRÐIR:
= 227-239-251-287-299-311 lykkjur. Prjónið síðan án útaukninga þar til stykkið mælist 8-9-10-11-13-15 cm frá uppfitjunarkanti.
Nú byrjar mynstur á berustykki – sjá LEIÐBEININGAR!
Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 18-19-20-23-24-25 mynstureiningar með 12 lykkjum), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1A er aukið út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan.
Í umferð merktri með ör-1 í A.1A er aukið út um 24-36-36-36-48-48 lykkjur jafnt yfir = 251-275-287-323-347-359 lykkjur (nú er pláss fyrir 20-22-23-26-28-29 mynstureiningar með 12 lykkjum).
Í umferð merktri með ör-2 í A.1A er aukið út um 24-24-36-36-36-48 lykkjur jafnt yfir = 275-299-323-359-383-407 lykkjur (nú er pláss fyrir 22-24-26-29-31-33 mynstureiningar með 12 lykkjum).
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón með ljós fjólublár og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan þar til stykkið mælist 21-23-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið fyrstu 46-49-51-57-62-67 lykkjur í garðaprjóni og sléttprjóni eins og áður (= framstykki), setjið næstu 50-56-64-70-72-74 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 83-89-93-105-115-125 lykkjur sléttprjón eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 50-56-64-70-72-74 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 46-49-51-57-62-67 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni og garðaprjóni eins og áður (= framstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 191-203-215-239-263-287 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 50-53-56-62-68-74 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 91-97-103-115-127-139 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki).
Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð síðar þegar auka á út í hliðum.
Prjónið sléttprjón fram og til baka með litnum ljós fjólublár og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 2-2-2-1-1-1 cm frá skiptingu, prjónið gatamynstur borða frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.2A þar til 18 lykkjur eru eftir á prjóni (= 14-15-16-18-20-22 mynstureiningar með 12 lykkjum), prjónið A.2B (= 12 lykkjur), prjónið A.2C (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur.
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, haldið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan.
Þegar stykkið mælist 5 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 5 cm millibili alls 5 sinnum í hvorri hlið = 211-223-235-259-283-307 lykkjur. Prjónið nú áfram þar til stykkið mælist 27 cm frá skiptingu í öllum stærðum (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 3 cm að loka máli).
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 51-54-57-63-69-75 lykkjur jafnt yfir = 262-277-292-322-352-382 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið laust af með garðaprjóni yfir garðaprjón og sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 50-56-64-70-72-74 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón eða stuttan hringprjón 4,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 58-64-74-80-84-88 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar lykkjum er fækkað undir ermi.
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn með litnum ljós fjólublár.
Þegar stykkið mælist 2-2-2-1-1-1 cm frá skiptingu, prjónið næstu umferð þannig: 4-1-0-3-5-1 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2A yfir næstu 36-48-60-60-60-72 lykkjur (= 3-4-5-5-5-6 mynstureiningar með 12 lykkjum), prjónið A.2B (= 12 lykkjur), prjónið A.2C (= 1 lykkja) og endið með 5-2-1-4-6-2 lykkjur sléttprjón.
Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, haldið áfram í sléttprjóni.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3-3-3-2-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 3-2-1-1-1-1 cm millibili alls 4-6-10-11-11-11 sinnum = 50-52-54-58-62-66 lykkjur. Þegar ermin mælist 15-15-15-14-14-14 cm frá skiptingu, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING-3. Aukið svona út með 3-3-2½-2½-2½-2 cm millibili alls 5 sinnum í öllum stærðum = 60-62-64-68-72-76 lykkjur.
Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 32-30-29-28-27-25 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis).
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 15-13-16-17-18-19 lykkjur jafnt yfir = 75-75-80-85-90-95 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 3 cm.
Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Ermin mælist ca 35-33-32-31-30-28 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 13.09.2021
FRAM- OG BAKSTYKKI:..Þegar stykkið mælist 2-2-2-1-1-1 cm frá skiptingu, prjónið gatamynstur borða frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.2A þar til 18 lykkjur eru eftir á prjóni (= 14-15-16-18-20-22 mynstureiningar með 12 lykkjum), prjónið A.2B (= 12 lykkjur), prjónið A.2C (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur...
ERMI:..Þegar stykkið mælist 2-2-2-1-1-1 cm frá skiptingu, prjónið næstu umferð þannig: 4-1-0-3-5-1 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2A yfir næstu 36-48-60-60-60-72 lykkjur (= 3-4-5-5-5-6 mynstureiningar með 12 lykkjum), prjónið A.2B (= 12 lykkjur), prjónið A.2C (= 1 lykkja) og endið með 5-2-1-4-6-2 lykkjur sléttprjón. + ný mynsturteikning A.2A, A.2B, A.2C

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu með litnum hvítur
symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu með litnum ljós fjólublár
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn með litnum ljós fjólublár
symbols = 2 lykkjur slétt saman með litnum ljós fjólublár
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt með litnum ljós fjólublár, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = útauknings umferð
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 201-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag Diana wrote:

I’m sorry I did t specify which pattern I’m doing. I m doing the rosewood cardigan pattern and doing it in the round. I’m making an xl and am at the point of the yolk colorwork design. With 359 stitches on the needles the pattern does not work evenly for me doing 12 section repeats. What am I doing wrong?

11.10.2022 - 20:48

DROPS Design answered:

Hi Diana, In size XL, you have 287 stitches on the needle, after all the increases and before starting the pattern. You start the row with 5 band stitches, repeat A.1a 23 times (12 x 23 = 276 stitches), work A.1b (1 stitch) and 5 band stitches. 5+276+1+5 = 287 stitches. Hope this helps and happy knitting!

12.10.2022 - 07:07

country flag Diana wrote:

I am making the xl and have 359 stitches now. The design on the yolk ends in only 11 stitches instead of 12. What am I doing wrong?

11.10.2022 - 19:57

DROPS Design answered:

Dear Diana, diagram A.1A is worked over 12 stitches all the way - even after arrow-2. Happy knitting!

12.10.2022 - 08:45

country flag Benedetta wrote:

Buonasera,ho cominciato il grafico e non capisco come mai si lavora il primo ferro della prima"stellina" a rovescio.Ma il grafico comprende anche i giri a rovescio o tutti i ferri sono da leggere sul diritto del lavoro?Vi ringrazio per l'aiuto

06.01.2020 - 21:40

DROPS Design answered:

Buongiorno Benedetta. Nel grafico trova tutti i ferri, sia quelli lavorati sul diritto che quelli lavorati sul rovescio del lavoro. Il motivo jacquard, in una lavorazione in ferri di andata e ritorno, presenta maglie lavorate con i diversi colori sia sul sia diritto che sul rovescio del lavoro. Buon lavoro!

07.01.2020 - 06:45

country flag Anna wrote:

Buongiorno, non mi trovo con il numero di maglie per la taglia M. Dopo il il terzo aumento per lo sprone a cm 7 bisogna aumentare 42 maglie quindi il totale fa 241 e non 239 come da voi indicato. Quante maglie quindi bisogna aumentare. Grazie. Buona giornata. Anna

15.09.2019 - 17:20

DROPS Design answered:

Buongiorno Anna. Abbiamo corretto il testo: gli aumenti da fare sono 41. Prima degli aumenti c'erano 198 maglie. Alla fine degli aumenti avrà: 198 + 41 = 239 maglie. La ringraziamo per la segnalazione. Buon lavoro!

15.09.2019 - 17:39

country flag Mylene wrote:

J’ai commencé ce modèle et j’ai de la difficulté à comprendre ce que je dois faire à l’envers dans la section du jacquard. Est-ce que je dois répéter la ligne à l’envers ou dois-je faire seulement un rang envers? Les motifs ne sont pas similaires à la photo.\r\nMerci

17.07.2019 - 17:00

DROPS Design answered:

Bonjour Mylène, sur l'endroit vous lisez les diagrammes de droite à gauche ainsi: 5 m de bordure devant, vous répétez A.1A jusqu'à ce qu'il reste 6 m, vous tricotez A.1B et terminez par 5 m de bordure devant. Sur l'envers, tricotez 5 m point mousse, puis A.1B, et répétez A.1A en lisant le diagramme de gauche à droite, et terminez par 5 m point mousse. Le diagramme se lit de bas en haut, et comme le gilet se tricote de haut en bas, le diagramme est inversé par rapport à la photo. Bon tricot!

18.07.2019 - 10:14

country flag Kristina wrote:

Hur gör man om man inte vill ha så vid halsringning

03.04.2019 - 13:16

country flag Dominique wrote:

Je ne trouve pas d'explications ,sur les sigles au début du diagramme A.1A et A.2B et A-2A. si je me refaire à la légende ,je déduis que le rond,correspond à un jetée,et que les 2carrés barrés,correspondes à 2 mailles tricotées ensemble .N'aurait il pas été plus clair,de mettre ceci dans la légende.pour moi qui fait mon premier jacquard,c'est pas clair... Merci d'avance de votre réponse. dom.

02.04.2019 - 11:27

DROPS Design answered:

Bonjour Dominique, vous retrouvez les 2 carrés barrés dans la légende = 4ème symbole et le jeté est le 3ème symbole de la légende. Tous les symboles du diagramme sont donc bien répertoriés. Bon tricot!

02.04.2019 - 12:42

country flag Elvia McCormack wrote:

Thank you for your beautiful free patterns.\r\n\r\nI’m about to the start Chart 1. The instructions say “pattern seen from the right side.”. I understand this to mean when I’m knitting the wrong side, I still read it from right side. How does this work for A1.b? On the wrong side, this is the first stitch after the 5 garter stitch. Am I understanding correctly? Thanks.

31.03.2019 - 14:41

DROPS Design answered:

Dear Mrs McCormack, when reading the diagram from the RS you will repeat A.1A then finish with A.1B (before the 5 front band sts). When working from WS, work the 5 front band sts, then work A.1B, and repeat A.1A (reading diagram from the left towards the right). Read more about diagrams here. Happy knitting!

01.04.2019 - 13:11

country flag Elvia McCormack wrote:

Hello. Thank you for all your free patterns. I have several in mind to make. Are you done publishing all the Spring & Summer collection? I didn’t see the blue with bell cream/blue striped sleeves or the multicolor poncho. Will these and others be published soon? Thank you.

02.03.2019 - 16:27

DROPS Design answered:

Dear Mrs McCormack, more patterns from our Spring & Summer collection will be published in the next weeks/months until approximately July. Happy knitting!

04.03.2019 - 08:35

country flag Hennion wrote:

Très beau modèle

31.01.2019 - 16:36