DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Wistful

Peysa með blaðamynstri og röndum, prjónuð úr 2 þráðum DROPS Air eða 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með ¾ löngum ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 201-9
DROPS Design: Mynstur ai-194
Garnflokkur C + C eða E
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
250-250-300-300-350-350 g litur 15, fjólublá þoka
200-250-250-250-300-300 g litur 01, natur

Eða notið:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
125-150-150-175-175-200 g litur 17, ljós fjólublár
100-125-125-150-150-175 g litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
10 lykkjur á breidd og 14 umferðir á hæð með sléttprjóni og 2 þráðum = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 9.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 9: lengd 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 8: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Hringlaga (fjólublár) NR 609: 5-5-6-6-6-6 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 57 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 8 lykkjur) og deilið þeim 49 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 4,1.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftri 4. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1 til A.3). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

RENDUR:
Allt stykkið er prjónað í 2 þráðum Air eða 2 þráðum Brushed Alpaca Silk. Á berustykki er prjónað með 2 þráðum í litnum natur þar til stykkið mælist ca 23-23-23-23-28-28 cm frá uppfitjunarkanti – endið eftir heilt/hálft blað á hæðina. Á fram- og bakstykki, prjónið með 1 þræði í litnum natur + 1 þræði í litnum fjólublá þoka/ljós fjólublár þar til stykkið mælist ca 34-34-34-34-39-39 cm frá uppfitjunarkanti – endið eftir heilt/hálft blað á hæðina. Prjónið síðan með 2 þráðum í litnum fjólublá þoka/ljós fjólublár til loka á fram- og bakstykki.
Á ermum er prjónað með 1 þræði í litnum natur + 1 þræði í litnum fjólublá þoka/ljós fjólublár þar til röndin mælist alls ca 15-14-14-14-12-12 cm. Prjónið síðan með 2 þráðum í litnum fjólublá þoka/ljós fjólublár til loka.

LASKALÍNA:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: byrjið beint yfir lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið lykkju með prjónamerki í slétt frá réttu/brugðið frá röngu (= laskalykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki og alls 8 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður við fram- og bakstykki slétt frá röngu og uppslátturinn við ermar brugðið frá röngu (það eiga að myndast göt).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroffið í kraga mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 4-4-5-5-5-5 næstu með ca 9-9-8-8-9-9 cm millibili.

------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að frama, ofan frá og niður. Berustykki skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki heldur áfram fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 57-57-61-61-65-65 lykkjur (meðtaldar 4 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 8 með 2 þráðum í litnum natur Air eða 2 þráðum í litnum natur Brushet Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff svona í 4 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 12-12-8-8-8-8 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 69-69-69-69-73-73 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 9. Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Prjónamerkin eru notuð síðar þegar aukið er út fyrir laskalínu.
Teljið 15-15-15-15-16-16 lykkjur (= framstykki), setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 6 lykkjur (= ermi), setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 23-23-23-23-25-25 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 6 lykkjur (= ermi) og setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju. Það eru 15-15-15-15-16-16 lykkjur á eftir síðasta prjónamerki á framstykki.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1A (= 11-11-11-11-12-12 lykkjur), aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við lykkju með prjónamerki í (sem er kölluð síðar laskalykkja) – sjá útskýringu að ofan, prjónið sléttprjón með réttuna út yfir lykkjur á ermi fram að næstu laskalykkju, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkju, prjónið A.1B (= 11-11-11-11-12-12 lykkjur), prjónið 1 lykkju sléttprjón með rönguna út, prjónið A.1A (= 11-11-11-11-12-12 lykkjur), aukið svona út hvoru megin við laskalykkju, prjónið sléttprjón með réttuna út yfir lykkjur á ermi fram að næstu laskalykkju, aukið út hvoru megin við laskalykkju, prjónið A.1B (= 11-11-11-11-12-12 lykkjur) og endið með 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni við miðju að framan.
Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 9-9-12-12-13-13 sinnum (meðtaldar útaukningar í fyrstu umferð) - útauknar lykkjur á fram- og bakstykki eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur eins og A.1 sýnir. Á ermum eru útauknar lykkjur prjónaðar inn í sléttprjón með réttuna út. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og lesið RENDUR!
Þegar útaukning fyrir laskalínu er lokið eru 161-161-185-185-205-205 lykkjur í umferð. Haldið síðan áfram með mynstur eins og mynsturteikning sýnir, en til að koma í veg fyrir að gatumferð hvoru megin við laskalínu endar þegar útaukningum er lokið, prjónið A.4 við 1. og 3. prjónamerki og A.5 við 2. og 4. prjónamerki (lykkja með prjónamerki á að passa við miðju lykkjuna í A.4/A.5).
Prjónið þar til síðasta umferð í A.1 er eftir. Nú skiptist berustykki fyrir fram- og bakstykki og ermar og umferðin er prjónuð þannig: Prjónið 29-29-32-32-36-36 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 26-26-32-32-34-34 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-6-4-8-6-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 51-51-57-57-65-65 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 26-26-32-32-34-34 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-6-4-8-6-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 29-29-32-32-36-36 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= framstykki). Berustykki mælist ca 20-20-23-23-26-26 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 117-121-129-137-149-157 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 31-32-34-36-39-41 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 55-57-61-65-71-75 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki). Prjónamerki merkir hliðar á fram- og bakstykki.
Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig (með 1 þræði natur + 1 þræði fjólublá þoka/ljós fjólublár):
STÆRÐ S, M, L og XL: Prjónið 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.2A (= 24 lykkjur), prjónið 6-8-12-16 lykkjur sléttprjón með rönguna út (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), prjónið A.2B (= 24 lykkjur), prjónið 1 lykkju sléttprjón með rönguna út, prjónið A.2A (= 24 lykkjur), prjónið 6-8-12-16 lykkjur sléttprjón með rönguna út (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), prjónið A.2B (= 24 lykkjur) og endið með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni við miðju að framan. Haldið svona áfram með mynstur – munið eftir RENDUR. Þegar A.2 hefur verið prjónað alls 2 sinnum á hæðina, prjónið A.3A yfir A.2A og A.3B yfir A.2B (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður). Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið sléttprjón með rönguna út og 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan þar til stykkið mælist 28-30-29-31 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, þar til ca 4 cm eru til loka). Prjónið síðan stroff fram- og til baka eins og útskýrt er að neðan.

STÆRÐ XXL og XXXL: Prjónið 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1-1 lykkja sléttprjón með rönguna út, prjónið A.2 (= 29 lykkjur), prjónið 11-15 lykkjur sléttprjón með rönguna út (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja með 6-8 lykkjur brugðið að bakstykki og 5-7 lykkjur brugðið að framstykki), prjónið A.2 (= 29 lykkjur), prjónið 1 lykkju sléttprjón með rönguna út, prjónið A.2 (= 29 lykkjur), prjónið 11-15 lykkjur sléttprjón með rönguna út (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), prjónið A.2 (= 29 lykkjur), prjónið 1-1 lykkju sléttprjón með rönguna út og endið með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni við miðju að framan. Haldið svona áfram með mynstur – munið eftir RENDUR. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.3 yfir A.2 (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður). Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið sléttprjón með rönguna út og 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 30-32 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 4 cm að loka máli). Prjónið síðan stroff fram- og til baka eins og útskýrt er að neðan.

STROFF FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 117-121-129-137-149-157 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu yfir allar lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 8.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið laust af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 26-26-32-32-34-34 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 9 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 4-6-4-8-6-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi með 1 þræði í litnum natur + 1 þræði í litnum fjólublá þoka/ljós fjólublár (= 2 þræðir) = 30-32-36-40-40-44 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn með réttuna út. Þegar röndin með litnum natur + fjólublá þoka/ljós fjólublár mælist ca 15-14-14-14-12-12 cm, skiptið yfir í 2 þræði í litnum fjólublá þoka/ljós fjólublár. Haldið áfram í sléttprjóni hringinn þar til stykkið mælist 25-26-23-24-21-22 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 4 cm að loka máli. ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir á sokkaprjón 8 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm.
Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Ermin mælist ca 29-30-27-28-25-26 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 27.01.2023
Leiðrétting A.3A S-M og A.1A XXL-XXXL

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður brugðið svo að það myndist gat
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af próni eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru slétt saman
symbols = 2 lykkjur brugðið saman
symbols = berustykki skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar í þessari umferð
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 201-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (16)

country flag Nathalie wrote:

Bonsoir, Je fais le modèle en XXL mais dans la légende il manque une explication concernant le triangle rectangle avec la pente noire descendante vers la droite. Je suppose donc que c'est un surjet. Ai-je raison ? Merci d'avance. Cordialement PS : J'en profite pour vous remercier pour tous ces modèles .

12.12.2022 - 22:08

DROPS Design answered:

Bonjour Nathalie, le surjet étant le 6ème symbole, je pencherai plutôt pour 2 mailles ensemble à l'envers - ce qui colle avec le nombre de mailles envers au rang suivant, nos stylistes vont vérifier et faire une correction, merci pour votre retour. Bon tricot!

13.12.2022 - 08:13

country flag Marina Druzhkova wrote:

Hello! Are there any knit stitches at the sides of the body? I see ones by the photo, where the marker thread sits.

29.07.2021 - 20:46

DROPS Design answered:

Dear Mrs Druzhkova, the stitches cast on mid under each sleeve are worked in reversed stocking stitch (purl from right side and knit from wrong side), the knit stitch you can see on the photo is the first stitch in A.2B (at the beg of pattern on back piece, size S/M/L/XL - Happy knitting!

30.07.2021 - 08:14

country flag Kathi wrote:

Auf den Fotos sind die Ärmel glatt rechts gestrickt. In der Anleitung schreiben Sie glatt links. Lese ich das nicht richtig? Wie sieht denn der Rücken aus?

12.10.2020 - 05:54

DROPS Design answered:

Liebe Kathi, die Ärmel werden glatt rechts gestrickt (Anleitung wird angepasst,danke fûr den Hinweis) - Rückenteil wird mt A.1B, 1 M glatt links und A.1A gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

12.10.2020 - 08:55

country flag Marina wrote:

Hello! I don't understand, neck is finished: "purl 1 row from the right side where you increase stitches ...." And Yoke starts from the right side, after we insert all markers. Where is the row from the wrong side between them?

16.04.2020 - 02:40

DROPS Design answered:

Hi Marina, The instructions should be 'purl 1 row from the wrong side....'. Apologies and happy knitting!

16.04.2020 - 07:16

country flag Anne wrote:

Bonjour, Je fais le gilet en taille XL. Après les augmentations du dernier rang d'encolure , il y a 69 mailles. Problème : la mise en place des marqueurs (15 +6+23+6+15) donne un total de 65 mailles. Il faut répartir différemment ... mais comment ?

31.10.2019 - 19:36

DROPS Design answered:

Bonjour Anne, les marqueurs doivent chacun être placés dans une maille, vous aurez ainsi: 15 + 1 + 6+ 1 + 23 +1 + +6 + 1 +15 = 69 mailles. Bon tricot!

04.11.2019 - 14:20

country flag Maike wrote:

Das Diagramm für Grösse L-XL scheint ab Reihe 12 nicht zu stimmen. Nach der gestrickten Reihe 11 stimmt es, ab 12 nicht mehr...

03.03.2019 - 09:11

DROPS Design answered:

Liebe Maike, bei der 11. Reihe in A.1B/A.1A nehmen Sie 2 Maschen (1 für Raglan + 1 im Diagram) = dann haben Sie 2 Maschen mehr bei der 12. Reihe. Viel Spaß beim stricken!

04.03.2019 - 09:57

country flag Nashwa Sakr wrote:

Ok, thanks alot for your help, one last thing,on row 16 of diagram A1.A, it's shown as k6,p6,k5,p3,k4, shouldn't it be k6, p7, k4, p3, k4 instead ? because after i worked as shown i felt that the leaf pattern was broken

21.02.2019 - 10:40

DROPS Design answered:

Dear Mrs Sakr, it looks like you are right, our design team will check diagram, thank you. Happy knitting!

21.02.2019 - 11:20

country flag Nashwa Sakr wrote:

Ok so this means that i will replace last 2 sts of A1.A with the first 2 sts of A.4, and the first 2 sts of A1.B with the last 2 sts of A.5? and if this is the case how will i do it on row 21 for size s/m, as the last 2 sts of A1.A is k1,p1

20.02.2019 - 18:28

DROPS Design answered:

Dear Mrs Sakr, the first 2 sts in A.1 will be worked as the first 2 sts of A.4 = instead of working K1, P1, work P2 tog, YO. Happy knitting!

21.02.2019 - 09:49

country flag Nashwa Sakr wrote:

For example, i am starting to work row 19 of diagram A1.A size s/m, so i will work (4 garter sts, 3 purl sts, p2tog, yo, k1, yo, p2tog, p2, yo, sl,k,psso,k5, k2tog, yo,p6) so these will be 29 sts of the left front, now i should work diagram A.4 which requires 5 sts but i can't find these 5 sts in my actual work as the next st to be worked after working the 29 sts of the left front is the raglan st, so how can i make it?

20.02.2019 - 16:16

DROPS Design answered:

Dear Mrs Sakr, instead of the P6 at the end of A.1A work P4 and work the first 2 sts in A.4 (= P2 tog, YO), then work the 3rd stitch in A.4 (= K1 = stitch with marker), and work the last 2 sts in A.4 over sleeve. Same on each raglan. Happy knitting!

20.02.2019 - 16:30

country flag Nashwa Sakr wrote:

But if i did so and started 3 sts before the raglan st, i will work these 3 sts from the left front piece? which will make the remaining number of sts not equal to the 25 sts in the A1.A diagram

20.02.2019 - 14:24

DROPS Design answered:

Dear Mrs Sakr, oops you start 2 sts before the stitch with marker (= the raglan stitch) and work the first 2 sts in A.1A as shown in the first 2 sts in A.4 and work the last 2 sts in A.1B as shown in the first 2 sts in A.5 (2 sts from A.4/A.5 are worked on the sleeves and 2 sts are worked on front/back pieces). Happy knitting!

20.02.2019 - 16:23