DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10670.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 201-6
DROPS Design: Mynstur z-847
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-300-300-350-350-400 g litur 4010, perlugrár
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-125-125-150-150-175 g litur 09, perlugrár

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5 – fyrir stroff.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10670.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 25 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 3) = 8,3. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 7. og 8. hverja lykkju saman.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum og saumað saman í lokin. Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 101-113-125-137-149-161 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 3 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 1 lykkja brugðið, (3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) yfir næstu 18-24-30-36-42-48 lykkjur, A.1a yfir næstu 29 lykkjur, A.2a yfir næstu 28 lykkjur, (3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt) yfir næstu 18-24-30-36-42-48 lykkjur, 1 lykkja brugðið, 3 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka þar til 8 fyrstu umferðir í mynsturteikningu hafa verið prjónaðar til loka á hæðina. Næsta umferð er prjónuð þannig: 3 lykkjur garðaprjón, prjónið brugðið yfir næstu 19-25-31-37-43-49 lykkjur og fækkið jafnframt um 0-3-6-8-8-9 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA, prjónið næst, síðustu umferð í A.1a og A.2a, prjónið brugðið yfir næstu 19-25-31-37-43-49 lykkjur og fækkið jafnframt 0-3-6-8-8-9 lykkjur jafnt yfir, 3 lykkjur garðaprjón = 88-94-100-108-120-130 lykkjur. Prjónið næstu umferð til baka frá röngu með 3 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið, prjónið síðustu umferð í A.1a og A.2a og sléttprjón með rönguna út (= sléttar lykkjur frá röngu) yfir þær lykkjur sem eftir eru.
Skiptið yfir á hringprjón 5.
Prjónið nú áfram í mismunandi stærðum þannig: Í stærð S og M er prjónað áfram frá næsta kafla að neðan (hoppið yfir afgang af þessum kafla). Í stærð L, XL, XXL og XXXL er mynstur fyrst prjónað þannig: 3 lykkjur garðaprjón, 25-29-35-40 lykkjur brugðið, A.1b yfir næstu 22 lykkjur, A.2b yfir næstu 22 lykkjur, 25-29-35-40 lykkjur brugðið, 3 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram fram og til baka svona þar til stykkið mælist alls 5-5-6-6 cm frá uppfitjunarkanti – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu.

Allar stærðir:
Prjónið nú mynstur þannig: 3 lykkjur garðaprjón, 1-4-7-11-17-22 lykkjur brugðið, A.3a yfir næstu 40 lykkjur, A.4a yfir næstu 40 lykkjur, 1-4-7-11-17-22 lykkjur brugðið, 3 lykkjur garðaprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 17 cm er fitjuð upp 1 ný lykkja í lok næstu 2 umferða fyrir kantlykkju (þessi lykkja merkir klauf) = 90-96-102-110-122-132 lykkjur. Nýja lykkjan í hvorri hlið er prjónuð í garðaprjóni (= 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið). Þegar A.3a og A.4a hefur verið prjónað til loka á hæðina er haldið áfram með A.3b yfir A.3a og A.4b yfir A.4a alls 2 sinnum á hæðina. Þegar stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm eru felldar af 2-4-5-5-6-7 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum = 86-88-92-100-110-118 lykkjur. Haldið síðan áfram með mynstur eins og áður og prjónið ystu 3 lykkjur í hvorri hlið í garðaprjóni. Þegar A.3b og A.4b hefur verið prjónað til loka á hæðina 2 sinnum er prjónað A.3c yfir A.3b og A.4c yfir A.4b, síðan eru prjónaðar sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur til loka. Jafnframt þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm fellið af miðju 36-36-38-38-40-40 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Síðan í næstu umferð frá hálsmáli er fækkað um 1 lykkju (fækkið að auki um 1 lykkju í mynsturteikningu A.3c/A.4c) = 23-24-25-29-33-37 lykkjur. Þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm fellið af. Prjónið hina öxlina alveg eins.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið mynstur á sama hátt og bakstykki. Fellið lykkjur af fyrir handveg á sama hátt og á bakstykki = 86-88-92-100-110-118 lykkjur. Þegar A.3b og A.4b hefur verið prjónað til loka á hæðina 2 sinnum er prjónað A.3c yfir A.3b og A.4c yfir A.4b, síðan eru prjónaðar sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur til loka. Jafnframt þegar stykkið mælist 53-54-56-57-59-60 cm setjið miðju 20-20-20-20-22-22 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan lykkjur af í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 4 lykkjur, 1 sinni, 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 3-3-4-4-4-4 sinnum (að auki er fækkað um 1 lykkju í mynsturteikningu A.3c/A.4c) = 23-24-25-29-33-37 lykkjur. Þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjón/stuttan hringprjón í sléttprjóni með réttuna út.
Fitjið upp 36-36-42-42-42-48 lykkjur á sokkaprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (prjónamerki fylgir með í stykkinu). Prjónið stroff (3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 4 cm. Prjónið * 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 54-54-63-63-63-72 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 14 cm er aukið út um 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 14-9-0-10-8-14 cm millibili alls 2-4-1-3-4-2 sinnum = 58-62-65-69-71-76 lykkjur. Haldið síðan áfram í sléttprjóni þar til ermin mælist 47-46-45-44-41-40 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari axla). Haldið nú áfram fram og til baka (þetta er gert til að það sé hægt að sauma ermina við þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg á fram- og bakstykki). Þegar ermin mælist alls 52-52-52-51-49-48 cm fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í við fram- og bakstykki í sléttprjóni (réttan) út – saumið innan við 1 kantlykkju garðaprjón á fram- og bakstykki og innan við affellingarkantinn á ermi. Saumið saum undir ermum og síðan niður yfir hlið á fram- og bakstykki niður þar sem fitjuð var upp 1 lykkja (= ca 17 cm klauf). Endurtakið í hinni hliðinni

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið mitt ofan á annarri öxlinni og prjónið upp 108-108-114-114-120-120 lykkjur frá réttu með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir) á hringprjón 4. Prjónið stroff (3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 18.02.2021
BAKSTYKKI: .. sjá ÚRTAKA, prjónið næstu umferð í A.1 og A.2a (ekki A.2b)...

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð (frá röngu) er uppslátturinn prjónaður slétt eða brugðið – sjá næstu umferð í mynsturteikningu – það eiga að vera göt
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð (frá röngu) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt eða snúinn brugðið – sjá næstu umferð í mynsturteikningu – svo að ekki myndist gat
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = 2 lykkjur brugðið saman
symbols = prjónið 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri)
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt (= 1 lykkja hefur verið færð yfir á hægri prjón), setjið lykkjuna snúna yfir á vinstri prjón og prjónið 3 lykkjur snúnar slétt saman (= 2 lykkjur færri)
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 2 lykkjur færri)
symbols = prjónið 3 lykkjur brugðið saman (= 2 lykkjur færri)
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju þar sem fækkað var um þessa lykkju fyrr í mynstri, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 201-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Helle Madsen wrote:

Tak for dit svar, men det er ikke hvad der står i opskriften. Her står: strik næst sidste pind i A.1a og A.2b, strik vrang over de næste 19-25-31-37-43-49 masker og tag samtidig 0-3-6-8-8-9 masker ind jævnt fordelt, 3 masker retstrik = 88-94-100-108-120-130 masker. Strik næste pind tilbage fra vrangen med 3 masker

18.02.2021 - 14:02

DROPS Design answered:

Hej Helle, det må vi få rettet fra a til b, så man strikker de to første diagrammer færdigt først. Det er dem som indeholder indtagningerne så dem er man nødt til at få færdige inden man fortsætter med næste stykke :)

18.02.2021 - 14:44

country flag Helle Madsen wrote:

Jeg er netop startet på denne smukke bluse, men er løbet ind i et problem, som jeg ikke kan knække. Jeg har slået 113 m op, strikket de 8 omg. Nu skal jeg til at tage ind: strik 3 ret, strik 25 m - og tag 3 m ind (så er der 22m tilbage), strik næstsidste omg. i mønster A.2a - dvs. der tages 7 m ind, strik A.2b, strik 25 m - tag 3 m ind (22m tilbage) osv, osv. Nu har jeg taget 13 m ind på denne omg. og ender op med 100 m på pinden. Der skal være 94 m. Hvad gør jeg galt ???

18.02.2021 - 09:31

DROPS Design answered:

Hej Helle, du tager 13 masker ind ifølge A.1a og A.2a. Det vil sige 113-3-3-13 = 94 masker. God fornøjelse!

18.02.2021 - 13:35

country flag Clawur wrote:

Am Ende des Ärmels soll hin und zurück weitergestrickt werden, wie soll ich das verstehen?

08.10.2020 - 22:41

DROPS Design answered:

Liebe Frau Clawur, die Ärmel werden (am Ende) gestrickt und dann eingenäht wie in diesem Video gezeigt; Viel Spaß beim stricken!

09.10.2020 - 07:58

country flag Judy Schulte wrote:

Gauge: should it be worked on size 6 or 8 needles? I got gauge on size 8 needles. Should I use that size to knit the sweater and not size 6 as instructed?

02.08.2019 - 15:37

DROPS Design answered:

Dear Judy, you're right: you should use the needle you reach the gauge with. Happy crafting!

02.08.2019 - 15:46

country flag Caroline wrote:

In de uitleg staat volgens mij een fout. Bij het Achterpand staat (boord naald 9) :brei de volgende tot de laatste naald in A.1a en A.2b, Volgens mij moet dit zijn A.1a en A.2a.

25.03.2019 - 19:17

country flag Silvia wrote:

Posso fare questo modello con i ferri dritti? Se la risposta è si, vorrei chiedervi come devo regolarmi per i diagrammi...considero sempre che rappresentano il diritto del lavoro e quindi quando lavoro il rovescio devo cambiare i punti ? Grazie mille

04.02.2019 - 15:10

DROPS Design answered:

Buongiorno Silvia, come può leggere nelle spiegazioni questo modello è lavorato in piano in parti separate e poi cucito alla fine, per cui può lavorarlo con i ferri dritti seguendo le istruzioni. Buon lavoro!

04.02.2019 - 15:50

country flag Sarah wrote:

Bonjour, je souhaiterais tricoter ce modèle en employant le coloris Bruyère pour le Kid Silk. Pouvez-vous m'indiquer quelle est la couleur correspondante pour l'alpaga ? c'est difficile à voir sur l'ordinateur. merci et bonne journée

29.01.2019 - 08:54

DROPS Design answered:

Bonjour Sarah, pour toute assistance au choix des couleurs, merci de bien vouloir directement contacter votre magasin DROPS, même par mail ou téléphone, on saura vous y conseiller. Bon tricot!

29.01.2019 - 09:25

country flag Tanja wrote:

Sorry... der Fehler ist beim Rückenteil in Reihe 9 zu finden.

28.01.2019 - 21:38

DROPS Design answered:

Liebe Tanja, danke für den Hinweis, deutsche Anleitung wird angepasst. Viel Spaß beim stricken!

29.01.2019 - 09:30

country flag Tanja wrote:

"die vorletzte Reihe von A.1a und A.2b stricken" Dieser Part enthält einen Fehler. Es muss heißen A.1a und A.2a. Wunderschönes Modell! Ich bin gerade an dieser Stelle. :-)

28.01.2019 - 21:36

country flag Sylvie wrote:

Comment faire pour avoir le modèle en explication? Merci d'avance

24.01.2019 - 19:24

DROPS Design answered:

Bonjour Sylvie, ce modèle n'est pas encore disponible, revenez régulièrement pour voir s'il a été publié. Bon tricot!

25.01.2019 - 08:48