DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4928.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Back to the Beach

Hekluð taska / net með röndum úr DROPS Paris. Stykkið er heklað í hring neðan frá og upp.

DROPS 200-1
DROPS Design: Mynstur w-767
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
Ein stærð.
Mál: Ummál: 86 cm. Lengd (án axlarólar): 36 cm.

EFNI (í eina tösku/net í hverjum lit):
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
250 g litur 17, natur
150 g litur 41, sinnep
100 g litur 59, bleikfjólublár
100 g litur 101, ljós blár
100 g litur 35, vanillugulur
Í eina tösku/net þá þarf 100 g af lit 17 natur, 50 g litur 41 sinnep og 100 g af lit neðst niðri á töskunni.

Ef óskað er eftir að hafa stykkið í einum lit þá þarf:
250 g Paris fyrir 1 tösku/net.

HEKLFESTA:
16 stuðlar á breidd og 9 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4,5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4928.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er fyrstu fastalykkju skipt út fyrir 1 loftlykkju.
Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á umferð.
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.

HEKLLEIÐBEININGAR (á við um loftlykkjur):
1 loftlykkja á að jafngilda 1 stuðli á breidd. Passið uppá að lykkjan sem er gerð í loftlykkju sé dregin upp smá bút á heklunálinni þannig að hún verði ekki of stíf. Ef loftlykkjurnar eru heklaðar of fast þá kemur mynstrið til með að verða of stíft í mynstureiningum þar sem eru margar loftlykkjur.

ÚTAUKNING-1:
Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í 1 stuðul. Aukið út um 1 stuðul í lykkju á undan og á eftir báðum prjónamerkjum (= 4 stuðlar fleiri í umferð).

ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 130 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 16,25.
Í þessu dæmi er aukið út með því að hekla 2 stuðla í ca 16. hverja lykkju.

3 STUÐLAR Í 1 STUÐUL:
Heklið 1 stuðul í fyrstu lykkjuna, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið 1 stuðul til viðbótar alveg eins í næstu 2 lykkjur, en dragið þráðinn í lokin í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TASKA / NET - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring neðan frá og upp. Að lokum er botninn heklaður saman.

TAKA / NET:
Heklið 142 loftlykkjur með heklunál 4,5 með litnum bleikfjólublár og festið í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í umferð.
UMFERÐ 1: Heklið 1 loftlykkju (= 1 fastalykkju) – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 fastalykkju í næstu loftlykkju, * hoppið yfir næstu loftlykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 4 loftlykkjum *, heklið frá *-* alls 28 sinnum = 114 fastalykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð og eitt prjónamerki eftir 57 fastalykkjum (= 57 fastalykkjur eftir í umferð).
UMFERÐ 2-5: Heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju, JAFNFRAMT í hverri umferð er aukið út um 1 lykkjur hvoru megin við bæði prjónamerkin þannig – sjá ÚTAUKNING-1 = 130 lykkjur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
UMFERÐ 6: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul og aukið út um 8 stuðla jafnt yfir í umferð – sjá ÚTAUKNING-2 = 138 stuðlar.
Heklið nú áfram þannig – sjá HEKLLEIÐBEININGAR: Heklið A.1 alls 46 sinnum í umferð. Þegar öll mynsturteikningin hefur verið hekluð til loka á hæðina er síðasta umferðin í mynsturteikningu endurtekin.
Þegar stykkið mælist 18 cm frá uppfitjunarkanti er skipt yfir í natur. Heklið áfram með síðustu umferð í A.1 þar til stykkið mælist 31 cm frá uppfitjunarkanti.

Heklið A.2 yfir hverja mynstureiningu A.1 – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR.
Skiptið yfir í litinn sinnep og heklið kantinn og axlarólina þannig:
UMFERÐ 1: Heklið * 1 stuðul í hvern af fyrstu 23 stuðlum, heklið 72 loftlykkjur – passið uppá að loftlykkjurnar séu ekki heklaðar of fast (loftlykkjuumferð á að mælast 45 cm), hoppið yfir 23 stuðla, heklið 1 stuðul í hvern af næstu 23 stuðlum *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð = 2 axlarólar.
UMFERÐ 2: Heklið * 1 stuðul í hvern af fyrstu 21 stuðlum, heklið 3 STUÐLAR Í 1 STUÐUL – sjá útskýringu að ofan, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 70 loftlykkjum (nú er eftir 1 loftlykkja á undan næsta stuðul í umferð), heklið 3 STUÐLAR Í 1 STUÐUL, heklið 1 stuðul í hvern af næstu 21 stuðlum *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð = 228 stuðlar.
UMFERÐ 3: * Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul fram að 3 stuðlum sem voru heklaðir í 1 stuðul innan við axlarólina, heklið 1 loftlykkju, hoppið yfir það sem var heklað saman, heklið 1 stuðul í hvern stuðul fram að 3 stuðlum sem voru heklaðir í 1 stuðul í hinni hliðinni á axlarólinni, heklið 1 loftlykkju, hoppið yfir það sem var heklað saman *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð og endið með 1 fastalykkju í hvern stuðul út umferðina.
Klippið frá og festið enda. Snúið stykkinu þannig að réttan liggi að réttu og heklið botninn saman neðst meðfram fyrstu loftlykkjuumferð sem var hekluð. Heklið með þeim lit sem heklað var með neðst niðri á töskunni og heklið í gegnum bæði lögin með byrjun frá prjónamerki í byrjun á umferð þannig: Heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju, en hoppið yfir sömu loftlykkju og hoppað var yfir í byrjun á stykki. Klippið frá og festið enda.
Heklið 2 töskur til viðbótar á sama hátt, en byrjið með litinn ljós blár eða vanillugulur í staðinn fyrir ljós bleikfjólublár.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 02.05.2019
Leiðrétting - UMFERÐ 2: Heklið * 1 stuðul í hvern og einn af fyrstu 21 stuðlum, heklið 3 STUÐLAR Í 1 STUÐUL – sjá útskýringu að ofan, heklið 1 stuðul í hverja og eina af næstu 70 loftlykkjum (nú er eftir 1 loftlykkja á undan næsta stuðul í umferð), heklið 3 STUÐLAR Í 1 STUÐUL, heklið 1 stuðul í hvern og einn af næstu 21 stuðlum *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð = 228 stuðlar.
Yfirfarið á vefsvæði: 30.09.2021
UMFERÐ 3 á axlarólinni hefur verið leiðrétt.

Mynstur

symbols = 1 loftlykkja
symbols = 1 stuðull í lykkju
symbols = 1 stuðull um loftlykkjuboga
symbols = byrjið í þessari umferð – fyrri umferð hefur nú þegar verið hekluð
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Back to the Beach

Dorota Poprzeplatana, Poland

Back to the Beach

Elina, Estonia

Back to the Beach

Elisabeth, Norway

Back to the Beach

Aleksandra, Norway

Back to the Beach

Jana, Czech Republic

Back to the Beach

Kaderus, Czech Republic

Back to the beach

Julia, Sweden

Back to the Beach

Aleksandra, Norway

Skrifaðu athugasemd um DROPS 200-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (83)

country flag Manon wrote:

Pour le sac, les tours 2 à 5 une maille de chaque côté du fil, Ça veut dire 1 maille 1 bride 1maille ?

02.04.2024 - 02:24

DROPS Design answered:

Bonjour, crochetez de chaque côté du sac ainsi: 2 brides dans la bride après le marqueur du début du tour, 1 bride dans chaque bride jusqu'à ce qu'il reste 1 bride avant le marqueur de l'autre côté du sac, 2 brides dans la bride avant le marqueur, 2 brides dans la bride après le marqueur, 1 bride dans chaque bride jusqu'à ce qu'il reste 1 bride avant le marqueur, 2 brides dans la bride avant le marqueur (dernière maille du tour). Bon crochet!

03.04.2024 - 08:04

country flag Line wrote:

- Dans les diagrammes, qu' est-ce qui. nous dit que l'on doit sauter des brides ? - Qu' est-ce que l'arceau ?

17.02.2024 - 03:39

DROPS Design answered:

Bonjour Line, lorsqu'il n'y a pas de mailles crochetées dans la maille du rang précédent, cela indique que l'on ne va pas la crocheter = on va donc la sauter; autrement dit dans A.1, crochetez: *1 bride dans la bride, 2 mailles en l'air, sautez 2 brides*, et répétez de *-*. Bon crochet!

19.02.2024 - 08:44

country flag Line wrote:

Donc, si j'ai bien compris :lorsqu'on commence A1, la 1ere maille on fait 5 mailles en l'air, on saute 2 brides et on fait 1 bride, 2 mailles en l'air.... A la fin du rang on fait quoi ?

17.02.2024 - 02:05

DROPS Design answered:

Bonjour Line, effectivement, on commence le tour ainsi, les 3 premières de ces 5 mailles en l'air remplacent la 1ère bride, à la fin du tour, on termine par 1 maille coulée dans la 3ème maille en l'air du début du tour. Bon crochet!

19.02.2024 - 08:43

country flag Line wrote:

Je suis seulement au 1er tour, je ne comprends pas, est-ce que l'on fait une maille en l'air et 4 mailles serrées sur tout le rang ou ???

10.02.2024 - 23:22

DROPS Design answered:

Bonjour Line, comme la chaînette de base est souvent trop serrée, on crochète ici plus de mailles en l'air que l'on a besoin de mailles au 1er tour, autrement dit, au 1er tour, vous allez sautez 1 maille en l'air sur 5, crochetez ainsi: 1 maille serrée dans la maille en l'air suivante, *sautez 1 maille en l'air, crochetez 1 maille serrée dans chacune des 4 mailles en 'lair suivantes*, répétez de *-* tout le tour = vous avez désormais 114 mailles serrées. Bon crochet!

12.02.2024 - 07:34

country flag Hanne Sørensen wrote:

Hej forstår ikke diagram 1og 2 vil I skrive hvad jeg gør med hver diagram

11.10.2023 - 13:53

country flag Katja Schmidtpott wrote:

Ik vind het resultaat erg leuk. Maar het patroon volgens mij erg ingewikkeld opgeschreven helaas. Ik heb net aardig wat tijd verloren naar het zoeken of ik na iedere toer deze moet laten aansluiten op de vorige door een halve vaste. Want alleen in bij de eerste toer staat dit expliciet geschreven, maar in geen van de andere toeren. Dat brengt mij aan het twijfelen: waarom staat het er niet in. En moet het dan wel of niet? M.vr.gr. Katja Schmidtpott

14.05.2023 - 17:44

DROPS Design answered:

Dag Katja,

Bovenaan bij 'informatie voor het haken' staat beschreven dat je de toer eindigt me t1 halve vaste vaste of 3e losse op het begin van de toer.

15.05.2023 - 20:22

country flag Beth wrote:

ROUND 1: Work 1 chain stitch (= 1 single crochet) – read CROCHET INFORMATION, work 1 single crochet in the next chain stitch, * skip the next chain stitch, work 1 single crochet in each of the next 4 chain stitches *, I’m curious …in Round 1, why do you skip chain stitches?

02.05.2023 - 00:32

DROPS Design answered:

Dear Beth, most of the time the foundation chain is too tight, and tighten then piece, to avoid this, you will here cast on more chain stitches you need single crochets on first row and skip chain stitches evenly to get the correct width. Happy crocheting!

02.05.2023 - 09:52

country flag Helene wrote:

Je ne comprends pas le diagramme A2 pouvez vous m aider . Merci

10.04.2023 - 00:42

DROPS Design answered:

Bonjour Hélène, le rang avant la flèche représente le dernier rang de A.1, au rang suivant (1er rang de A.2) crochetez: *1 bride dans la bride suivante, 2 brides autour de l'arceau*, répétez de *-*; au 2ème tour, crochetez 1 bride dans chaque bride. Répétez ces 2 tours. Bon crochet!

11.04.2023 - 12:33

country flag Claudia wrote:

Gibt es die Anleitung auch auf Deutsch?

22.10.2022 - 09:57

DROPS Design answered:

Liebe Claudia, die Anleitung ist hier: https://www.garnstudio.com/pattern.php?id=8970&cid=9 Viele Spaß zum häkeln.

23.10.2022 - 12:20

country flag Sylvie wrote:

Bonjour, J'ai un soucis de taille. Je ne suis ni une experte, ni une débutante. En suivant le modèle avec un crochet n°4, j'arrive à une circonférence de 115 au lieu de 84 ... et du coup, je n'ai pas assez de coton pour finir la première partie (première couleur de coton). Faut-il que je prenne encore un crochet plus petit ? C'est la première fois que j'ai ce genre de problème. Merci d'avance pour votre réponse.

20.04.2022 - 09:03

DROPS Design answered:

Bonjour Sylvie, ce modèle est calculé sur la base d'un échantillon de 16 brides x 9 rangs = 10 x 10 cm; si vous n'avez pas le même échantillon, les mesures et la quantité nécessaire de coton s'en verront modifiés. Retrouvez plus d'infos ici. Bon crochet!

20.04.2022 - 13:27