DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8976.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sjøbris

Prjónuð peysa með laskalínu og röndum úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 199-1
DROPS Design: Mynstur sk-023
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
100-100-150-150-150-150 g litur 12 gallabuxnablár
200-200-200-250-250-250 g litur 01 hvítur

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með A.1 = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sjálft stykkið.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8976.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 96 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 12.
Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna 11. og 12. hverja lykkju slétt saman.
Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 12. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Aukið út um 4 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig:
Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur mynstur (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í rendur og mynstur.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur mynstur (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í rendur og mynstur.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

RENDUR OG MYNSTUR:
* Prjónið 5 cm með litnum hvítur (metalinn kantur í hálsmáli) og síðan 3 cm með litnum gallabuxnablár * - endurtakið þessar litarendur jafnframt því sem allt stykkið er prjónað í mynstur – sjá mynsturteikningu A.1 og þegar aukið er út fyrir laskalínu eru útauknar lykkjur prjónaðar jafnóðum inn í mynstur.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður.
Eftir berustykki er fram- og bakstykki prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 96-100-104-112-120-124 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum hvítur.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 8-8-8-12-12-12 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 88-92-96-100-108-112 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið nú RENDUR OG MYNSTUR - lesið útskýringu að ofan.

BERUSTYKKI:
Setjið 1 prjónamerki hér - HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið jafnframt því sem prjónað er RENDUR OG MYNSTUR hringinn frá réttu þannig: Prjónið 3 lykkjur slétt (= 3 lykkjur á bakstykki), setjið 1 prjónamerki hér, prjónið næstu 12-12-14-14-16-16 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki hér, prjónið næstu 32-34-34-36-38-40 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki hér, prjónið 12-12-14-14-16-16 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki hér, prjónið síðustu 29-31-31-33-35-37 lykkjur (= bakstykki) eftir síðasta prjónamerki (það eru 3 lykkjur eftir að fyrsta prjónamerki).
Næsta umferð er prjónuð þannig: 6 lykkjur mynstur (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4-4-6-6-8-8 lykkjur mynstur (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 lykkjur mynstur (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 24-26-26-28-30-32 lykkjur mynstur (= framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 lykkjur mynstur (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4-4-6-6-8-8 lykkjur mynstur (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 lykkjur mynstur (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 24-26-26-28-30-32 lykkjur mynstur (= bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fyrsta útaukning fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan, er nú lokið (= 16 lykkjur fleiri í umferð). Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í 4. hverri umferð alls 11-13-14-16-17-19 sinnum (meðtalin fyrsta útaukning eins og útskýrt er að ofan) = 264-300-320-356-380-416 lykkjur í umferð.
Stærð XL og XXL: Útaukning fyrir laskalínu er nú lokið.
Stærð S, M, L og XXXL: Næsta umferð er prjónuð þannig: 6 lykkjur mynstur (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið mynstur fram að 3 lykkjum á undan næsta prjónamerki (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 lykkjur mynstur (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið mynstur fram að 3 lykkjum á undan næsta prjónamerki (= framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 lykkjur mynstur (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið mynstur fram að 3 lykkjum á undan næsta prjónamerki (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 lykkjur mynstur (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið mynstur fram að 3 lykkjum á undan næsta prjónamerki (= bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 8 lykkjur fleiri).
Allar stærðir: Á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 272-308-328-356-380-424 lykkjur í umferð. Haldið áfram með Rendur og Mynstur án útaukningar þar til stykkið mælist 20-22-23-26-28-31 cm frá prjónamerki í byrjun á berustykki.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 4-3-4-5-7-7 lykkjur (= á bakstykki), setjið næstu 56-66-70-74-76-86 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóni (= í hlið undir ermi), prjónið yfir næstu 80-88-94-104-114-126 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 56-66-70-74-76-86 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 76-85-90-99-107-119 lykkjur (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 176-192-208-228-252-276 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið. Byrjið umferð við eitt af prjónamerkjunum og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu sem heldur áfram í röndum og mynstri.
Þegar stykkið mælist 8 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 17 cm frá skiptingu = 184-200-216-236-260-284 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 27-27-28-26-26-25 cm frá skiptingu (ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl) prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 36-40-44-48-52-56 lykkjur jafnt yfir = 220-240-260-284-312-340 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, er hægt að fella af með prjóni 4,5. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl.

ERMI:
Setjið 56-66-70-74-76-86 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjón/sokkaprjóna 4,5, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 64-74-80-84-88-98 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi og byrjið umferð hér. Prjónið RENDUR OG MYNSTUR hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 7.-5.-4.-4.-3.-3. hverri umferð alls 13-17-19-20-21-25 sinnum = 38-40-42-44-46-48 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 39-37-37-35-33-31 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-4-6-8-6-8 lykkjur jafnt yfir = 44-44-48-52-52-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Ermin mælist ca 44-42-42-40-38-36 cm frá skiptingu. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, er hægt að fella af með prjón 4,5.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 12.02.2019
Leiðrétting: LASKALÍNA: Aukið út um 4 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig:
Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur mynstur (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í Rendur og Mynstur.
Yfirfarið á vefsvæði: 18.03.2019
Leiðrétting - BERUSTYKKI... sláið 1 sinni uppá prjóninn, 24-26-26-28-30-32 lykkjur mynstur (= framstykki)...sláið 1 sinni uppá prjóninn, 24-26-26-28-30-32 lykkjur mynstur (= bakstykki)...

Mynstur

symbols = 1 lykkja slétt
symbols = 1 lykkja brugðið
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Sjøbris

Heike Mitteregger, Germany

Sjøbris

Angelica Svanbro, Sweden

Sjöbris

Andrea Huisman, Netherlands

Skrifaðu athugasemd um DROPS 199-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (122)

country flag Ute Schmitt wrote:

Hallo liebes Drops-Team, diese Anleitung gab es auch mal als Jacke. Ich habe sie vor ca. 2 Jahren gestrickt und würde sie gerne mit einer anderen Farbe nochmals stricken. Damals war sie unter 199-1 zu finden. Darunter finde ich jetzt leider nur noch den Pullover. Gibt es die Anleitung für die Jacke noch? Liebe Grüße Ute

14.01.2024 - 16:44

DROPS Design answered:

Liebe Frau Schmitt, dieses Modell ist nur als Pullover - aber hier finden Sie eine ähnliche Jacke, vielleicht kann das Ihnen helfen. Viel Spaß beim stricken!

15.01.2024 - 09:41

country flag Isabelle Francesconi wrote:

Suite de mon message. Autrement dit, après les 6 m du raglan, il y aura (avec le nouveau jeté) forcément 2 mailles end ou 2 m envers qui se suivent Quand j'ai tricoté ma 14 ème aug, faut-il faire 3 autres rgs avant de commencer à augmenter les 8 mailles ? J'espère que vous comprenez mes explications pas forcément très claires ! Merci beaucoup de m'aider....

04.09.2023 - 14:16

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Francesconi, le point fantaisie du devant /du dos et des manches va s'élargir, autrement dit, tricotez les nouvelles mailles en point fantaisie en lisant le diagramme de gauche à droite au début du dos/devant/manches (= comme les mailles précédentes) et celles de la fin du devant/dos/manches comme les mailles suivantes - vous devez toujours avoir les 6 mailles (3 m avant + 3 m après le marqueur) tricotées telles quelles sans augmentations et les mailles du devant/du dos et des manches qui s'élargissent en incorporant les nouvelles mailles dans le point fantaisie. J'espère être claire car je ne vois pas la difficulté. Bon tricot!

04.09.2023 - 15:28

country flag Isabelle Francesconi wrote:

Oui mais : La je viens de faire mon dernier rg d'aug. On est bien d'accord qu'il s'agit d'un rg en point fantaisie + aug. de 16 m. en tout sur ce dernier rang.A partir d'ici, il faudrait que je fasse un rang en point endroit comme indiqué sur A1.Or, il est indiqué de faire 8 aug. et faire ce rg avec des points fantaisie.il y a 2 rgs en point fantaisie qui se suivent et si je rajoute une augm (1 jeté) avant et après les 3 mailles de chaque marqueur, ca decale les points end. et env.

04.09.2023 - 11:00

country flag Isabelle Francesconi wrote:

Bonjour, EMPIECEMENT : Taille M, donc j'ai réalisé les 14 augmentations raglan. Je termine donc sur le rang avec le point fantaisie. La suite me parait bizarre. on refait le point fantaisie et on augmente en tout 8 mailles. Mais cela décale le point fantaisie. (avec 16 mailles d'augmentations on retombe sur le point fantaisie d'une façon juste mais pas avec 8) Me comprenez-vous ? Comment faire ? Merci d'avance pour votre réponse Bonne journée...

03.09.2023 - 09:17

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Francesconi, le point fantaisie ne doit pas être décalé, les 6 mailles point fantaisie sont les mailles des raglans (vous augmentez de part et d'autre de ces 6 mailles) et elle doivent toujours être tricotées de la même façon, les mailles du devant, du dos et des manches augmentent au début et à la fin de chaque partie, et ces nouvelles mailles vont être progressivement intégrées dans le point fantaisie, mais vous devez toujours tricotez les mailles endroit à l'endroit (1ère m de A.1) et les mailles point mousse (2ème m de A.1) alternativement à l'endroit et à l'envers. Bon tricot!

04.09.2023 - 08:28

country flag Isabelle Francesconi wrote:

Pour faire le raglan, faut-il faire les 6 mailles (avec le marqueur au milieu) a l'endroit ou en point fantaisie ? Il y a contradictions avec les explications indiquées dans "RAGLAN" et "EMPIECEMENT" Merci d'avance pour votre réponse. Bien cordialement

29.08.2023 - 21:43

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Francesconi, effectivement, les 6 mailles du raglan doivent être tricotées en point fantaisie et non à l'endroit, ainsi vous augmenterez ainsi: 1 jeté, 1 m end, 1 jeté, 6 m point fantaisie (le fil marqueur est au milieu), 1 jeté, 1 m end, 1 jeté - répétez ces augmentations à chaque marqueur. La correction a été faite, merci pour votre retour. Bon tricot!

30.08.2023 - 08:37

country flag Jane wrote:

Hallo liebes Drops-Team! Ehe man am Rumpfteil das Bündchen strickt, nimmt man ja noch mal ordentlich Maschen zu. Passiert das, damit der Rand schön locker bleibt und sich nicht zusammenzieht? Kann es sein, dass der Pullover auf den Fotos mit einem völlig anderen Garn gestrickt ist? Ich stricke ihn mit Sky, aber er sieht komplett anders aus. Liebe Grüße, Jane

28.05.2023 - 11:15

DROPS Design answered:

Liebe Jane, ja genauso wird man vor Bündchen am Rumpfteil zugenommen; der photographierte Pullover wurde mit Sky gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

30.05.2023 - 10:43

country flag Pontiggia Maria Raffaella wrote:

Buona sera. Non capisco la correzione. È per caso già stata inserita nel testo ?

10.03.2023 - 19:33

DROPS Design answered:

Buonasera Maria Raffaella, le correzioni vengono integrate direttamente nelle spiegazioni. La descrizione delle correzioni viene aggiunta per chi ha stampato il modello prima delle correzioni. Buon lavoro!

10.03.2023 - 21:47

country flag Virginia wrote:

Ho difficoltà nel capire come lavorare le maglie degli aumenti del raglan perché secondo le indicazioni andrebbero lavorate con le strisce motivo, ma così facendo si sfalsa la sequenza del motivo stesso e non si ha più l'incolonnamento delle maglie rovesce. Mi potreste gentilmente spiegare come fare. Grazie per l'aiuto

26.02.2023 - 23:38

DROPS Design answered:

BuonaseraVirginia, deve mantenere la lavorazione del motivo in essere e aggiungere le maglie aumentate. Buon lavoro!

08.03.2023 - 17:09

country flag Giuliana wrote:

Buona sera! Vorrei confezionare questo modello con il filato Karisma, filato del gruppo B, ma lana. In genere mi affido alla taglia M, per la lana e la S per i capi in cotone. Mi potete consigliare gentilmente, quale taglia seguire, per avere una buona vestibilità, considerando anche il motivo. Grazie infinite per la risposta.

23.01.2023 - 15:28

DROPS Design answered:

Buonasera Giuliana, per trovare la taglia più adatta, in fondo alla pagina può trovare uno schema con le misure finali da confrontare con un capo simile in suo possesso. Buon lavoro!

23.01.2023 - 21:47

country flag Krista wrote:

Ik maak de trui in L maar geraak niet uit het patroon na de raglan meerderingen. Bij mij verspringt het patroon bij de 3de naald. Moet ik de omslagen reeds meerekenen in het patroon? Maar dan nog klopt het niet bij mij... wat doe ik verkeerd?

20.12.2022 - 23:02

DROPS Design answered:

Dag Krista,

De omslagen komen op de mouwen en de panden en de markeerdraad blijft steeds op dezelfde plek zitten. De volgende keer dat je meerdert, begin je opnieuw 3 steken voor de markeerdraad, (De meerderingen zijn gewoon steken geworden.)

22.12.2022 - 08:07