DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12320.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 198-4
DROPS Design: Mynstur e-288
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
Breidd (meðtalinn kantur): ca 165 cm. Lengd (meðtalinn kantur): ca 208 cm. Kantur = ca 18 cm.

EFNI:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
1400 g litur 17, hvítur

HEKLFESTA:
22 stuðlar á breidd og 12 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.
1 heklaður ferningur á að mælast ca 21,5 x 21,5 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að einn heklaður ferningur verði 21,5 x 21,5 cm.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12320.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8.

HEKLLEIÐBEININGAR (á við um kant):
Fyrsta umferðin á kanti endar með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð, síðan eru heklaðar keðjulykkjur fram að fyrsta loftlykkjuboga í horni.
Í byrjun á hverri og einni af þeim umferðum sem eftir eru í mynsturteikningu A.4 eru heklaðar 3 loftlykkjur (koma í stað fyrsta stuðul), endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í umferð, heklið síðan keðjulykkjur fram að fyrsta loftlykkjuboga í horni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Það eru heklaðir 48 ferningar sem saumaðir eru saman. Síðan er heklaður kantur í kringum allt teppið

HEKLAÐUR FERNINGUR:
Heklið 5 loftlykkjur með heklunál 3,5 með Safran og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið síðan áfram með mynstur í hring þannig: A.1 (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), * A.2, A.3 *, heklið frá *-* alls 3 sinnum, endið með A.2 en hoppið yfir síðustu 3 stuðlana (þetta á einungis við um fyrsta skipti) = 24 ferningar og 8 loftlykkjubogar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA. Þegar allt A.1 til A.3 hefur verið heklað til loka á hæðina mælist ferningurinn ca 21,5 x 21,5 cm. Heklið alls 48 ferninga.

FRÁGANGUR:
Saumið teppið saman með 6 ferninga á breidd og 8 ferninga á hæð. Saumið saman á lengdina í ystu lykkjubogana eina og eina lykkju saman, fyrst á lengdina, síðan á breiddina.

KANTUR:
Byrjið um loftlykkjuboga í einu af hornunum á teppinu og heklið kantinn þannig – sjá HEKLLEIÐBEININGAR: Heklið *A.4 um loftlykkjuboga í horni, heklið A.5 fram að næsta horni, en í skiptingunni á milli hverra ferninga er hekluð 1 fastalykkja í sauminn eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.6 (sjá svarta stjörnu), heklið A.7 *, heklið frá *-* alls 4 sinnum í umferð.
Þegar mynsturteikningin hefur verið hekluð til loka á hæðina er mynstrið endurtekið frá ör með hvítri stjörnu einu sinni til viðbótar alveg þar til ein umferð er eftir í mynsturteikningu. Síðasta umferðin (= næst síðasta umferð í mynsturteikningu) endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Klippið frá.

Heklið nú kant í lokin þannig:
Byrjið í fyrsta loftlykkjuboga í einu af hornunum og heklið A.8a um fyrsta loftlykkjubogann, * heklið A.8b fram að næsta horni, heklið A.8c í hornið *, heklið frá *-* alls 4 sinnum í umferð og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð.
Klippið frá og festið enda. Þegar kanturinn hefur verið heklaður til loka mælist kanturinn ca 18 cm.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 28.01.2019
Leiðrétting: HEKLAÐUR FERNINGUR:..heklið frá *-* alls 3 sinnum, endið með A.2 en hoppið yfir síðustu 3 stuðlana (þetta á einungis við um fyrsta skipti) = 24 ferningar og 8 loftlykkjubogar.

Mynstur

symbols = byrjið hér – þessi loftlykkjuhringur er útskýrður í uppskrift (= 5 loftlykkjur + 1 keðjulykkja í fyrstu loftlykkju). Haldið áfram frá tákni yfir punkti á hring og heklið til vinstri
symbols = 1 loftlykkja
symbols = 4 loftlykkjur
symbols = 3 loftlykkjur
symbols = 5 loftlykkjur
symbols = umferðin byrjar með 3 loftlykkjum og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð, heklið síðan keðjulykkjur fram að fyrsta loftlykkjuboga
symbols = 1 stuðull um loftlykkjuhring/loftlykkjuboga
symbols = 1 stuðull í lykkju
symbols = 1 fastalykkja um loftlykkjuboga
symbols = 1 fastalykkja í lykkju
symbols = Y = fjöldi loftlykkja í loftlykkjuboga
symbols = byrjið hér!
symbols = þegar mynstrið í kanti er endurtekið á hæðina er byrjað í þessari umferð
symbols = 1 fastalykkja í saum á milli ferninga
symbols = 6 loftlykkjur
symbols = heklið 1 fastalykkju um fyrri loftlykkjuhring sem var heklaður
symbols = 1 keðjulykkja í 4. loftlykkju frá heklunálinni (ATH: Heklið í sömu loftlykkju 2 sinnum til viðbótar), 2 stuðlar í sömu loftlykkju
symbols = 1 keðjulykkja í fyrstu loftlykkju á eftir síðustu fastalykkju þannig að það verði einn loftlykkjuhringur
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 198-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (16)

country flag Caroline wrote:

Bonjour J'ai 2 questions Je viens de commencer la bordure mais je ne comprend pas ou se crochète A7. Avant l'arceau du coin? Dans l'arceau du coin? Et pour A4, au premier tour de bordure il faut juste faire une maille serrée et 5 mailles en l'air? Sur les 4 coins du 1er tour de bordure? Merci d'avance

23.03.2023 - 17:55

DROPS Design answered:

Bonjour Caroline, on commence dans un coin de la couverture par *A.4 (=1 ms, 5 ml, 1 ms au 1er rang), puis on crochète A.5 jusqu'au coin suivant de la couverture, et là on va crocheter A.7 (=1 ms, 2 ml au 1er rang)*, et on répète de *à*, ainsi chaque coin commence par A.4 (arceau au milieu du coin + mailles suivantes) et se termine par A.7 (mailles avant le coin) puis on ferme le tour par 1 mc dans la ms de A.4. Bon crochet!

24.03.2023 - 08:22

country flag Jeanne Mooren wrote:

IK kan de start van het patroon niet maken. Loopt steeds vast bij de eerste toer vanaf het begin. Na de lus begin ik met 3 losse, 2 sokjes, 3 lossen (A1). Dan 3x A2 en A3 (is 3 stokjes, 3 lossen, 3 stokjes is 18 stokjes!! in patroon staat 24 stokjes en 8 lossenlussen??? Dan vervolgens in eerste toer de laatste 3 stokjes overslaan?????? Ik begrijp er geen snars van!!

05.04.2022 - 14:09

DROPS Design answered:

Dag Jeanne,

In de eerste toer van A.3 zitten zo te zien geen stokjes (wel 3 lossen). Dus het komt er op neer dat je 3 keer A.2 haakt en dat zijn in totaal 18 stokjes. Maar voordat je 3 keer A.2 haakt, haak je eerst 1 keer A.1 en op het eindig nog een keer met1 keer A.2 waarbij je op d eerste toer de laatste 3 stokjes van A.2 overslaat. Samenvattend: 3 stokjes van A.1, 3 keer A.2 = 18 stokjes, en 3 stokjes van A.2. In totaal dus 24 stokjes.

07.04.2022 - 23:37

country flag ANITA wrote:

Sorry kan iemand mij helpen bij de opstart van dit patroon ???

26.10.2021 - 17:34

DROPS Design answered:

Dag Anita,

Heb je een proeflapje gehaakt om de stekenverhouding te controleren en eventueel de naalddikte aangepast om op de juiste stekenverhouding te krijgen? Dan kun je beginnen bij 'Begin het werk hier' en beginnen met het haken van een vierkant. Je haakt eerst 5 lossen en deze vorm je tot een ring met 1 halve vaste. Vervolgens haak je de telpatronen. Bekijk ook de video's en de lijst met veel gestelde vragen.

29.10.2021 - 13:21

country flag El Achkar wrote:

Hallo Dropsteam,könnten Sie mir sagen wieviel Garn ich für eine Tagesdecke in den Massen 180cm×200 plus Rand 25cm brauche. Lg.

10.04.2021 - 09:28

DROPS Design answered:

Liebr Frau El Achkar, leider können wir jeder Anleitung nach jedem individuellen Frage anpassen und einzelne Modelle auf individuellen Wunsch hin umrechnen. Wenn sie Hilfe damit brauchen, wenden Sie sich bitte an Ihrem DROPS Laden - auch telefonisch oder per E-Mail, dort hilft man Ihnen gerne weiter. Viel Spaß beim häkeln!

12.04.2021 - 07:45

country flag Randi Lauridsen wrote:

Er i gang med at hækle tæppet til et diamant bryllup. Har I et forslag til hvordan jeg hækle eller på anden måde inddrage diamanter på tæppet

24.10.2020 - 16:02

DROPS Design answered:

Hei Randi. Du kan f.eks før du begynner ditt arbeid, trer du så mange perler inn på garnet som du vil bruke med hjelp av en synål. Skyv perlene inn på tråden og hekle luftmasker som vanlig. Hekle til du vil begynne å sette perler inn i arbeidet. Se evnt video: "Hvordan hekle perler inn i arbeidet" mvh DROPS design

26.10.2020 - 09:00

country flag Gabi Reinhold wrote:

Hallo, kann ich die Anleitung auf meine e_mail Adresse gesendet bekommen? Vielen Dank und liebe grüße von Gabi

29.08.2020 - 19:53

DROPS Design answered:

Liebe Frau Reihnhold, unsere Anleitungen können nur gedruckt werden, wenn Sie aber mit einer virtuellen Drucker wählen, dann können Sie die Anleitung als .PDF speichern. Viel Spaß beim häkeln!

31.08.2020 - 09:29

country flag Maureen wrote:

Hello. I have just opened a Faebook page for The Cape Guild of Weavers Crocheters to encourage members to make something amazing for our Guild's 70th anniversary in September. Are you alright with me putting a link to your website for them to get inspiration?

17.01.2020 - 13:28

DROPS Design answered:

Dear Maureen, you are welcome to link our website and/or our patterns - should you need any further informations about the copyright, you'll find them at the bottom of the page. Thank you, enjoy!

17.01.2020 - 14:32

country flag Aase wrote:

Hjælp - Jeg kan ikke finde ud af skabelonen til denne opskrift. A1 viser, hvordan omgangen starter - men den starter også med 3 stangmasker - og så kommer A2 -stangmaskerne i ringen (24 stk) - hvorefter den slutter med 6 stangmasker - A3. Det er vildt ærgerligt, den er så svær, for det er et virkeligt flot tæppe.

15.11.2019 - 11:15

DROPS Design answered:

Hej, du starter med 24 st (den første af de 24 = 3lm) med 3 lm efter hver 3.st. På næste omgang hækler du 3st-3lm-3st i hvert af de 4 "lm-hjørner". Prøv om du kan få hjælp hos din DROPS forhandler, har du først hæklet en rude, så er det enkelt :)

21.11.2019 - 15:38

country flag Cecile wrote:

Ik loop bij derde toer al vast bij patroon 198-4. Bij A1 moeten de stokjes in de lossenlus, maar dat lukt niet, als ik de drie losse heb gemaakt moet ik twee stokjes overslaan alvorens ik bij de lossenlus ben, hierdoor wordt er een extra gaatje gecreëerd, dit is dan bij alle volgende toeren zo. Ik heb het inmiddels al meerdere malen uitgehaald en op andere manier geprobeerd, maar ik blijf er steeds tegenaan lopen. Wat doe ik verkeerd?

15.07.2019 - 12:21

DROPS Design answered:

Dag Cecile,

Heb je ook halve vasten gehaakt tot de eerste lossenlus voordat je de 3 lossen (welke het eerste stokje vervangt) haakt? Zie ook laatste zin bij 'INFORMATIE VOOR HET HAKEN'

15.07.2019 - 13:49

country flag Aase wrote:

Synes jeres design er flotte. Men det er godt nok ikke let med opskrifterne. Fx 198-4. Det er sørme svært at overskue.

28.04.2019 - 18:31