DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8976.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Daily Wonder

Peysa prjónuð frá hlið úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað í klukkuprjóni með uppslætti. Stærð S - XXXL.

DROPS 201-7
DROPS Design: Mynstur sk-034
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
300-350-350-400-450-500 g litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
15 lykkjur á breidd og 42 umferðir á hæð með klukkuprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8976.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LEIÐBEININGAR:
Passið uppá að flíkin liggi flöt þegar málin eru tekin. Þar sem þessi flík er prjónuð frá hlið er mjög mikilvægt að málin sem tekin eru jafnóðum séu mjög nákvæm og tekin á tilnefndum stöðum. Sjá teikningu með máli og mynsturteikningu A.4. Sjá mynsturteikningu A.1 þar sem er teiknað inn hvar prjónamerkin á fram- og bakstykki á að vera og hvar prjónamerki fyrir hálsmáli á að vera. Öll mál sem varða fram- og bakstykki og háls eru gerð mitt á stykkinu og ekki við hálsinn, til að koma í veg fyrir að hálsinn/breiddin á fram- og bakstykki verði ekki röng.

KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI :
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, * 1 lykkja slétt, sláið uppá prjóninn, takið næstu lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, endið með 1 lykkju slétt og 1 lykkju garðaprjóni .

UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, * sláið uppá prjóninn, takið næstu lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið uppá prjóninn, takið næstu lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið og prjónið 1 lykkju garðaprjón.

UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, * prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman, sláið uppá prjóninn, takið næstu lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman og 1 lykkju garðaprjón.

Endurtakið umferð 2-3 – ATH: Frá 2. umferð eru lykkjur með uppslætti alltaf slétt lykkja. Uppslátturinn liggur yfir lykkjuna og er prjónaður slétt saman með lykkju.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón í eitt stykki frá ermi og fram að hálsmáli, þar skiptist stykkið og framstykki og bakstykki er prjónað hvort fyrir sig þar til op í hálsmáli hefur verið prjónað til loka. Stykkið er sett aftur saman og síðan er það prjónað í eitt stykki. Mjög mikilvægt er að taka nákvæm mál á meðan prjónað er, sjá LEIÐBEININGAR í útskýringu að ofan.

PEYSA:
Fitjið upp 39-41-43-43-45-45 lykkjur á hringprjón 4,5 með Sky (= neðst niðri á ermi). Prjónið KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 12 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið innan við 1 lykkju með 3-2½-2½-2-2-1½ cm millibili alls 10-11-11-13-13-15 sinnum = 59-63-65-69-71-75 lykkjur – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í klukkuprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 44-43-42-41-39-37 cm, fitjið laust upp lykkjur í hvorri hlið í lok hverrar umferðar þannig: 2 lykkjur 2 sinnum, 4 lykkjur 6 sinnum, síðan eru fitjaðar upp 30-30-32-32-36-36 lykkjur 1 sinni. Nú hafa verið fitjaðar upp lykkjur fyrir fram- og bakstykki, setjið eitt prjónamerki í miðju á síðustu lykkjum sem fitjaðar voru upp, þetta er hliðin á fram- og bakstykki og mælt héðan – sjá LEIÐBEININGAR í útskýringu að ofan og sjá mynsturteikningu A.1 punkt A!
Það eru 175-179-185-189-199-203 lykkjur í umferð. Haldið áfram í klukkuprjóni. Þegar stykkið mælist 13-15-17-19-22-25 cm frá prjónamerki í hlið (frá punkti A til punkt B sjá mynsturteikningu A.1), prjónið næstu umferð þannig (stillið af þannig að þessi umferð sé prjónuð frá röngu): Prjónið 87-89-92-94-99-101 lykkjur (= bakstykki) og setjið síðan þessar lykkjur á þráð, fellið af 5 lykkjur fyrir hálsmáli, prjónið 83-85-88-90-95-97 lykkjur (= framstykki). Setjið merkiþráð mitt í stykkið hér, hér á að mæla hálsmál frá (staðsetjið merkiþráðinn þannig að það sé beint ofan við prjónamerki í hlið, sjá mynsturteikningu A.1, það eru 13-15-17-19-22-25 cm á milli prjónamerkis (punktur A) og merkiþráðar (punktur B).

FRAMSTYKKI:
Það eru 83-85-88-90-95-97 lykkjur í umferð. Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsi þannig: 1 lykkja 8 sinnum = 75-77-80-82-87-89 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist ca 15-15-15-16-16-16 cm frá prjónamerki (punktur B) og það eru 28-30-32-35-38-41 cm frá prjónamerki í hlið á fram- og bakstykki (punktur A). Fitjið laust upp fyrir hálsmáli í hverri umferð við háls þannig: 1 lykkja 8 sinnum og 5 lykkjur 1 sinni = 88-90-93-95-100-102 lykkjur. Hálsinn mælist ca 19-19-19-20-20-20 cm frá merkiþræði (frá punkti B til punkts C). Setjið síðan allar lykkjur á þráð, nú á að prjóna áfram yfir bakstykki. Klippið frá.

BAKSTYKKI:
Setjið 87-89-92-94-99-101 lykkjur af þræði á hringprjón. Prjónið síðan bakstykki þar til op í hálsi mælist 19-19-19-20-20-20 cm (sjá mynsturteikningu A.1 punktur C) – stillið af að prjónað sé jafn langt eins og á framstykki. Nú er hægt að setja stykkin á sama prjón og prjóna í eitt stykki héðan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Setjið 88-90-93-95-100-102 lykkjur af þræði á sama hringprjón og bakstykki = 175-179-185-189-199-203 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til framstykki/bakstykki mælist 45-49-53-58-64-70 cm frá prjónamerki í hlið á fram- og bakstykki (frá punkt A til punkt D).
Fellið nú laust af í hvorri hlið í byrjun á hverri umferð þannig: 30-30-32-32-36-36 lykkjur 1 sinni, 4 lykkjur 6 sinnum og 2 lykkjur 2 sinnum = 59-63-65-69-71-75 lykkjur. Setjið 1 nýtt prjónamerki hér, héðan er nú mælt. Prjónið alveg sömu lengd yfir lykkjur á þessari ermi eins og fyrri ermi á eftir síðustu útaukningu, síðan er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið innan við 1 lykkju með 3-2½-2½-2-2-1½ cm millibili alls 10-11-11-13-13-15 sinnum = 39-41-43-43-45-45 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 44-43-42-41-39-37 cm frá prjónamerki og fellið laust af. ATH! Þegar fellt er af, prjónið uppslátturinn saman með lykkjum sem liggja yfir JAFNFRAMT því sem fellt er af.

FRÁGANGUR:
Brjótið stykkið þannig að stykkið liggi með röngu að röngu. Byrjið að sauma lengst út á ermi. Saumið í ystu lykkjubogana meðfram allri erminni og síðan niður meðfram hlið á framstykki/bakstykki. Endurtakið í hinni hliðinni.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Nú á að prjóna upp lykkjur í kringum allt hálsmál innan við 1 kantlykkju (passið uppá að prjónað sé upp í brugðnu lykkjurnar við miðju að framan og meðfram hálsmáli á bakstykki). Prjónið upp ca 90-106 lykkjur frá réttu með stuttum hringprjóni 4,5 og Sky. Prjónið 8 umferðir sléttprjón og fellið laust af. Kanturinn á að rúllast upp.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 21.09.2020
Nýtt efnismagn: EFNI: DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B) 300-350-350-400-450-500 g litur 01, natur

Mynstur

symbols = prjónstefna
symbols = prjónamerki er sett í hér, héðan er fram- og bakstykki mælt
symbols = merkiþráður er settur hér, héðan er breidd á hálsmáli mæld
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 201-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (81)

country flag Genevieve wrote:

Bonjour à vous Pourrai-je tricoter ce pull en côte anglaise bicolore et si oui quelle serait les quantités de laine qui seraient nécessaires. Merci

20.12.2023 - 21:56

DROPS Design answered:

Bonjour Geneviven, comme nous avons tricoté ce pull avec une seule couleur, nous ne pouvons malheureusement pas vous dire avec exactitude combien il faudrait en 2 couleurs. Votre magasin saura vous aider et vous conseiller, même par mail ou téléphone. Bon tricot!

21.12.2023 - 08:29

country flag Sonja wrote:

Schönen guten Abend, wenn ich 39 m anschlagen und die 1. Reihe im patentmuster stricke, hab ich schon 59 m auf der Nadel .Jetzt soll ich 12 cm stricken und dann jeweils 1m zunehmen = 59 Maschen. Die habe ich aber schon seit der 1.reihe. und dann ist mir das viel zu klein. Ich habe aber die sky wolle gekauft. Ich komm überhaupt nicht rein, ich finde den Fehler nicht . Bitte helfen Sie mir,würde den Pulli sehr gern stricken. Frdl. Grüße Sonja

14.12.2023 - 16:57

DROPS Design answered:

Liebe Sonja, die Umschläge im Patent werden nicht als Maschen gezählt, jeder Umschlag wird mit seiner abgehobenen Maschen zusammen als 1 Masche gezählt. Viel Spaß beim stricken!

15.12.2023 - 08:08

country flag Kim Simpkin wrote:

Unfortunately, this pattern and your comments are as clear as mud and NOT easy to follow as ‘Jeanette’ claims on on this pattern. It’s awful and difficult to follow and your reply to my last message does not explain clearly at all so I will search for another pattern to use the Drops Air wool that I purchased as I am unable to follow your pattern!!!!!!!!!

18.10.2023 - 15:42

country flag Kim Simpkin wrote:

Sk-034. Piece measures 39cm, 71 sts, pattern says loosely cast on 2 sts 2 times, 4 sts 4 times and 36 one time and according to your pattern there should be 199 sts! No matter which way you lol at this the is NOT 199 sts on the needle with this increase. Maybe you could tell me how you arrive at this number of sts because I have bought wool for this jumper and the pattern is garbage. I would appreciate you letting me know where the extra stitches come from please I would hate to waste the wool

27.09.2023 - 15:46

DROPS Design answered:

Dear Kim, you cast on at the end of each row from each side ("on both sides"). So, when it says 2 times it means twice from the right side and twice from the wrong side (so twice on each side, but in 4 rows in total). Therefore, you cast on 64 x2 stitches = 128 stitches. Which, when added to the 71 initial stitches, it gives you 199 stitches. Happy knitting!

30.09.2023 - 20:43

country flag Kim Simpkin wrote:

I am struggling BG TIME with this pattern and I have been knitting g for over 50 years and so is my sister in law. I have the 71 stitches on my needles after the increase rows and the work measures 39 cm, I do not understand the increase after that? 2 stitches 2 times and the four stitches 6 times I think I understand because you are increasing at the end of the row but the pattern then says 36 stitches one time??? If you are only casting on one side does this mean you you only knit the front?

19.09.2023 - 10:34

DROPS Design answered:

Dear Mrs Simpkin, you have now to cast on new stitches at the end of each row on each side as follows: cast on 2 sts at the end of next 4 rows (2 sts 2 times on each side), then 4 sts at the end of next 12 rows (4 sts 6 times on each side) and 36 sts at the end of next 2 rows (36 sts on each side). Happy knitting!

19.09.2023 - 15:54

country flag Liz wrote:

On row three of English rib there appears to be three stitches left at the end of the row - not two as in pattern

11.07.2023 - 18:39

DROPS Design answered:

Dear Liz, the yarn overs are not included in the stitch count; therefore you have 2 stitches and 1 yarn over. These yarn overs are not increases; they are worked together with their respective stitches to create the English rib effect. Happy knitting!

17.07.2023 - 10:16

country flag Konstanze Burger wrote:

Mein Daily Wonder ist mir gut gelungen, allerdings habe ich ein anderes Garn der Gruppe B gewählt mit kürzerer Lauflänge, was zur Folge hatte, dass ich gegen Ende fast 700 g an der Nadel hängen hatte, was das Stricken erschwerte und unhandlich werden ließ. Der Vorteil dieser Anleitung "an einem Stück" hat sich mir nicht erschlossen.

23.06.2022 - 16:13

country flag Tanja wrote:

Hallo,Ich habe nun für Gr. S 12 cm gestrickt und nun kommt die Zunahme bei den Ärmel. Es wird doch nur auf einer Seite zugenommen und die andere läuft gerade weiter. Ich verstehe die Anleitung nicht .

19.03.2022 - 21:00

DROPS Design answered:

Liebe Tania, die Zunahmen sollen Sie beidseitig stricken, dh nach der 1. Masche und vor der letzten Masche; dieses Video zeigt, wie am im Vollpatent beidseitig zunimmt und sollte Ihnen behilflich sein. Viel Spaß beim stricken!

21.03.2022 - 08:22

country flag Françoise wrote:

Bonjour, Pouvez vous m'aider à compter les mailles sur l'aiguille. Quand je ne compte pas les jetés, je n'ai pas assez de mailles mais quand je les compte j'en ai trop. Merci pour votre aide

10.03.2022 - 19:25

DROPS Design answered:

Bonjour Françoise, on ne compte pas les jetés dans le nombre de mailles, car ils appartiennent à la maille glissée, on compte 1 maille pour (1 jeté + 1 m glissée ). Peut-être que cette vidéo pourra vous aider?

11.03.2022 - 09:45

country flag Wenche Rummelhoff wrote:

Nå har jeg startet og rekt opp mange ganger. Min strikkefasthet stemmer overens med strikkefastheten på anbefalt garn SKY. Begynte på str. small og den blir ikke i nærheten av hvordan den er på modellen. Bildet må være av en størrelse som er mye større enn damen på bildet skulle tilsi å bruke. Har også byttet pinner og økt maskeantall., da blir ikke genseren seende ut som på bilde!

05.01.2022 - 09:47