DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Benedicte

Prjónuð peysa með blöðruermum, gatamynstri og klauf í hliðum. Stykkið er prjónað úr DROPS Air. Stærð S - XXXL.

DROPS 200-13
DROPS Design: Mynstur ai-185
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-350-350-400-450-450 g litur 22, gulur

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff og kanta með garðaprjóni.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA-1 (á við um hálsmál):
Öll úrtaka er gerð frá réttu og lykkjum er fækkað fyrir hálsmáli innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni við háls.
Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni (= 1 lykkja færri).

ÚRTAKA-2 (á við um úrtöku mitt í stykki á ermum):
Þegar fækka á 3-3-3-4-4-4 lykkjur jafnt yfir er fallegra ef úrtökurnar deilast þannig að fækkað er um 1 lykkju yfir hverja og eina af miðju 3-3-3-4-4-4 mynstureiningum með A.1. Fækkið um 1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman.

ÚRTAKA-3 (á við um ermar):
Öll úrtaka er gerð frá réttu og lykkjum er fækkað innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á hvorri hlið:
Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni (= 1 lykkja færri).

ÚTAUKNING-1 (á við um neðst niðri á ermum):
Prjónið 2 lykkjur í sömu lykkju með því að prjóna 1 lykkju bæði framan í og aftan í sömu lykkju (= 1 lykkja fleiri).

ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir neðst niðri á ermum):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 62 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 17) = 3,5.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 3. og 4. hverja lykkju. Í næstu umferð (rétta) er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Allt stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón í stykkjum, neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman og í lokin er prjónaður kantur í hálsmáli í hring.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 81-87-93-102-113-121 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið sléttprjón með 3 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið fyrir klauf. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10 cm endar klaufin. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 30-32-34-31-33-35 cm byrjar gatamynstrið og næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 1-4-7-6-6-10 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 þar til eftir eru 2-5-8-7-7-11 lykkjur á prjóni (= 7-7-7-8-9-9 mynstureiningar með 11 lykkjum), prjónið 1-4-7-6-6-10 lykkjur sléttprjón og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram svona með mynstur.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 32-34-35-36-37-38 cm fellið af 1-2-4-4-6-6 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 79-83-85-94-101-109 lykkjur eftir í umferð. Haldið áfram með mynstur með 1 kantlykkju í garðaprjóni og 0-2-3-2-0-4 lykkjur sléttprjón í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 40-42-43-45-46-48 cm setjið miðju 25-25-25-28-31-31 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli = 27-29-30-33-35-39 lykkjur eftir á hvorri öxl. Axirnar eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig.
Haldið áfram með mynstur eins og áður. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 4 sinnum = 23-25-26-29-31-35 lykkjur eftir – ATH: Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri þegar lykkjum er fækkað fyrir hálsmáli eru prjónaðar í sléttprjóni (á við um XL, XXL og XXXL).
Haldið áfram með mynstur eins og áður þar til stykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 81-87-93-102-113-121 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið síðan sléttprjón með 3 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið fyrir klauf. Þegar stykkið mælist 10 cm endar klaufin. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 30-32-34-31-33-35 cm byrjar gatamynstur og næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 1-4-7-6-6-10 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 þar til eftir eru 2-5-8-7-7-11 lykkjur á prjóni (= 7-7-7-8-9-9 mynstureiningar með 11 lykkjum), prjónið 1-4-7-6-6-10 lykkjur sléttprjón og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 32-34-35-36-37-38 cm fellið af 1-2-4-4-6-6 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 79-83-85-94-101-109 lykkjur eftir í umferð. Haldið áfram með mynstur með 1 kantlykkju í garðaprjóni og 0-4 lykkjum í sléttprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm fellið af miðju 31-31-31-34-37-37 lykkjurnar fyrir hálsmáli = 24-26-27-30-32-36 lykkjur eftir á hvorri öxl. Axlirnar eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig.
Haldið áfram með mynstur eins og áður. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli – sjá ÚRTAKA-1 = 23-25-26-29-31-35 lykkjur eftir – ATH: Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri þegar lykkjum er fækkað fyrir hálsmáli eru prjónaðar í sléttprjóni (á við um XL, XXL og XXXL). Haldið áfram með mynstur eins og áður þar til stykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 32-32-36-36-40-40 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Í 2 næstu umferðum er aukið út eins og útskýrt er að neðan.
Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið 2 lykkjur í hverja lykkju þar til eftir er 1 lykkja á prjóni – sjá ÚTAUKNING-1, endið með 1 kantlykkju garðaprjón = 62-62-70-70-78-78 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið brugðið þar til 1 lykkja er eftir á prjóni og aukið JAFNFRAMT úr 17-17-9-20-12-12 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – sjá ÚTAUKNING-2, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 79-79-79-90-90-90 lykkjur.
Prjónið 2 umferðir garðaprjón án útaukningar, með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið síðan frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir á prjóni (= 7-7-7-8-8-8 mynstureiningar með 11 lykkjum), endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til A.1 hefur verið prjónað alls 5 sinnum á hæðina. Stykkið mælist ca 31 cm frá uppfitjunarkanti í öllum stærðum og þar til eftir eru ca 23-23-23-21-20-18 cm til loka.
Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist alls 32 cm í öllum stærðum, fækkið um 3-3-3-4-4-4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með 4 cm millibili alls 3 sinnum = 70-70-70-78-78-78 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón án úrtöku.
Þegar stykkið mælist 41 cm í öllum stærðum, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA-3. Fækkið lykkjum svona með 1½-2-2-1-1-1 cm millibili alls 7-6-5-7-5-4 sinnum = 56-58-60-64-68-70 lykkjur. Haldið áfram með sléttprjón án úrtöku þar til stykkið mælist 53-53-51-49-47-45 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, prjónamerkin merkja hvar sauma á ermina í handveg. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 54-54-54-52-51-49 cm. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum frá réttu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið hliðarsauma frá handveg og niður að klauf – saumið í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur.
Saumið ermasauma neðan frá og upp að prjónamerki – saumið í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur.
Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið á fram- og bakstykki. Prjónamerkin á ermum eiga að passa við botn á handveg.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp frá réttu ca 104 til 116 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur á þræði að framan) á stutta hringprjón 4,5 með Air – lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í ca 3-3½ cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Benedicte in DROPS Air

Alexandra, Canada

Benedicte

Zoë Crouse, United Kingdom

Benedicte

Dorka, Hungary

Benedicte

Elly'sKnittingDays, Bulgaria

My Benedicte

Katja, United States

Benedicte

Joe, France

Skrifaðu athugasemd um DROPS 200-13

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (33)

country flag Stella Willmott wrote:

I am wondering if this jumper can be knitted on straight needles ( apart from the neck) as it is not knitted in the round . Is this possible?

09.10.2023 - 18:24

DROPS Design answered:

Hi Stella, We recommend using circular needles because of the number of stitches. However, if you wish to use straight needles, of course this is possible. Happy knitting!

10.10.2023 - 06:48

country flag Myriam Gaubert wrote:

Bonjour, Je ne comprends pas à quoi correspond de faire 1 maille jersey? Est ce une maille a l'endroit ou maille a l'envers ?

21.11.2022 - 01:44

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gaubert, 1 maille jersey va se tricoter à l'endroit sur l'endroit et à l'envers sur l'envers, comme par ex dans cette vidéo. Bon tricot!

21.11.2022 - 10:29

country flag Greetje Bekker wrote:

Ik kom niet uit met t patroon.Moet je in de eerste pen ,tussen de 2 omslagen,1 steek recht doen.? Bij voorbaat mijn dank.

25.02.2021 - 16:52

DROPS Design answered:

Dag Greetje,

Ja, dat klopt. Er zit 1 steek recht tussen de 2 omslagen in de eerste naald van het patroon.

26.02.2021 - 11:43

country flag Glenys wrote:

I dont know how to read diagram for pattern , A1 to make holes in jumper

27.08.2020 - 10:57

DROPS Design answered:

Dear Glenys, this lesson explains how to read knitting diagrams - you will find diagram key for each symbol used in the diagram just above the chart. Happy knitting!

27.08.2020 - 13:16

country flag Louise wrote:

Jeg har problemer med at få de 4 indtagninger til at gå op med maskeantallet- indtagningerne kommer til at “gå ind” i mønsteret...efter 2. pind med mønster...Gir det mening..?

29.04.2020 - 09:01

country flag Louise wrote:

Hej, jeg strikker str M. jeg har problemer med at få indtagning til halsen til at passe med diagrammet? Når skuldrene skal strikkes hver for sig.(De 4 masker, der skal tages ind efter at have sat masker af på tråd) Er der evt rettelser til str M? Det er en supersød model, så håber at kunne få hjælp til at knække koden 😊

29.04.2020 - 06:16

DROPS Design answered:

Hej Louise, nej der er ikke nogle rettelser til denne, hvad er det du ikke får til at stemme?

29.04.2020 - 08:34

country flag Kaja wrote:

Hei, Hvordan kan man gjøre det dersom man ønsker å ha kortere?

21.04.2020 - 19:45

DROPS Design answered:

Hej Kaja, da må du kort af inden du starter på selve mønsteret. Følg evt en mindre størrelse i højden. God fornøjelse! :)

22.04.2020 - 11:22

country flag Michèle Leijten wrote:

Ik heb een vraag. Kan deze trui gebreid worden met alle garens van categorie C? Ik heb namelijk een mooie kleur gezien van drops brushed alpaca silk, maar daar zit maar 25 gram op een bol ipv 50 gram. Echter is de looplengte bijna gelijk (150m t.o.v. 140 meter). Dus moet je dan het dubbel aantal bollen hebben of gewoon een paar bollen extra?

12.01.2020 - 14:19

DROPS Design answered:

Dag Michèlle,

Als je kijkt naar de stekenverhouding kan je inderdaad met alle garens uit categorie C breien. (Katoen zou ik overigens niet adviseren, omdat het model dan wat meer gaat hangen.) Voor de benodigde hoeveelheid garen, kijk je naar de totale looplengte die je nodig hebt. Voor Brushed Alpaca Silk heb je dus dan inderdaad hetzelfde aantal bollen nodig.

14.01.2020 - 20:52

country flag Laura wrote:

Non capisco le istruzioni per le diminuzioni delle maniche, dopo aver lavorato il diagramma 5 volte in verticale il lavoro dovrebbe misurare 31 cm, e dai 32 cm si deve diminuire (per la taglia la S) di 3 maglie ogni 4 ferri per 3 volte, e i suggerimenti per le diminuzioni dicono di diminuire 1 maglia in ognuna delle 3 ripetizioni del diagramma... ma il diagramma è finito... quindi non capisco, dove devo diminuire? Nella maglia rasata o nel diagramma? (E come si fa a diminuire nel diagramma?)

27.11.2019 - 15:13

DROPS Design answered:

Buongiorno Laura. Abbiamo modificato leggermente il testo nelle diminuzioni. Deve diminuire nella parte a maglia rasata, lavorando due maglie insieme a diritto. Il suggerimento consiglia di individuare le ripetizioni centrali del diagramma (anche se ha già finito di lavorarlo) e di diminuire le maglie sopra a queste ripetizioni. Buon lavoro!

27.11.2019 - 15:46

country flag Nichole wrote:

I found this pattern on pinterest and someone is selling this pattern on their own website in case you wanted to know: ht_tps://w_ww.strikkemekka.no/prod.php?id=5182

05.09.2019 - 14:28