DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13860.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Flamingo Parade

Prjónuð peysa með flamingo fuglum úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 201-11
DROPS Design: Mynstur me-169
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
350-400-450-500-550-600 g litur 19, ljós gráblár
100-100-100-100-100-150 g litur 15, ljós grágrænn
100-100-100-100-100-150 g litur 18, eplagrænn
50-50-50-50-50-50 g litur 01, natur
50-50-50-50-50-50 g litur 17, kirsuberjarauður
50-50-50-50-50-50 g litur 35, dökk fjólublár
50-50-50-50-50-50 g litur13, gallabuxnablár

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni og norrænu mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón og norrænt mynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPSA HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13860.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

UPPHÆKKUN (aftan í hnakka):
Til þess að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (mitt að aftan). Byrjið frá réttu með ljós grágrænn og prjónið 15-15-16-16-18-18 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 30-30-32-32-36-36 lykkjur brugðið. Snúið herðið á þræði og prjónið 45-45-48-48-54-54 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 60-60-64-64-72-72 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 75-75-80-80-90-90 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið brugðið að miðju að aftan. Prjóni síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 108 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 24) = 4,5.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 4. og 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1) A.1 er prjónað í sléttprjóni. Þar sem það eru löng hopp á milli litaskipta, verður að vefja þráðunum um hvern annan á eftir ca 7. hverja lykkju, svo að það verði ekki langir lausir þræðir á bakhlið.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. Eða að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki heldur áfram í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/ stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 108-112-116-120-124-128 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með litnum ljós gráblár. Byrjun á umferð = mitt að aftan. Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir í litinn ljós grágrænn og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í ca 2½-3 cm. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 24-20-27-23-30-26 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 132-132-143-143-154-154 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt). Síðan er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Ef ekki er óskað eftir upphækkun, farðu beint áfram í BERUSTYKKI.

BERUSTYKKI:
Sjá LEIÐBEININGAR og prjónið A.1 hringinn (= 12-12-13-13-14-14 mynstureiningar með 11 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1 er aukið út þannig – sjá ÚTAUKNING:
ÖR-1: Aukið út 33-44-44-44-44-44 lykkjur jafnt yfir = 165-176-187-187-198-198 lykkjur (nú er pláss fyrir 15-16-17-17-18-18 mynstureiningar með 11 lykkjum).
ÖR-2: Aukið út 33-33-44-44-44-44 lykkjur jafnt yfir = 198-209-231-231-242-242 lykkjur (nú er pláss fyrir 18-19-21-21-22-22 mynstureiningar með 11 lykkjum).
ÖR-3: Aukið út 22-22-22-33-44-44 lykkjur jafnt yfir = 220-231-253-264-286-286 lykkjur (nú er pláss fyrir 20-21-23-24-26-26 mynstureiningar með 11 lykkjum).
ÖR-4: Aukið út 22-33-33-33-33-44 lykkjur jafnt yfir = 242-264-286-297-319-330 lykkjur (nú er pláss fyrir 22-24-26-27-29-30 mynstureiningar með 11 lykkjum).
ÖR-5: Aukið út 11-11-11-22-33-33 lykkjur jafnt yfir = 253-275-297-319-352-363 lykkjur (nú er pláss fyrir 23-25-27-29-32-33 mynstureiningar með 11 lykkjum).
ÖR-6: Aukið út 11-21-23-25-24-29 lykkjur jafnt yfir = 264-296-320-344-376-392 lykkjur (nú er pláss fyrir 33-37-40-43-47-49 mynstureiningar með 8 lykkjum).
ÖR-7: Aukið út 12-16-19-22-20-25 lykkjur jafnt yfir = 276-312-339-366-396-417 lykkjur (nú er pláss fyrir 92-104-113-122-132-139 mynstureiningar með 3 lykkjum).
Í síðustu umferð í A.1, aukið út 0-0-1-2-2-1 lykkjur jafnt yfir (aukið út í grunnlit) = 276-312-340-368-398-418 lykkjur.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 23-23-23-27-27-27 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan. Afgangur af stykkinu er prjónaður með litnum ljós gráblár. Prjónið síðan sléttprjón þar til stykkið mælist 23-23-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan (þ.e.a.s. ca 0-0-2-0-2-4 cm áfram eftir A.1). Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 41-46-50-55-61-65 lykkjur sléttprjón (= ½ bakstykki), setjið næstu 56-64-70-74-76-78 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 82-92-100-110-123-131 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 56-64-70-74-76-78 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 41-46-50-55-62-66 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (= ½ bakstykki). Klippið frá. Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 180-200-220-240-270-290 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur undir ermi í annarri hlið á stykki. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar prjónaðir hafa verið alls 3-3-3-4-4-5 cm með litnum ljós gráblár eftir A.1 á berustykki (þ.e.a.s. á eftir grindverki), byrjar gatamynstur á fram- og bakstykki. Prjónið A.2A hringinn (= 18-20-22-24-27-29 mynstureiningar með 10 lykkjum). A.2A er prjónað alls 3 sinnum á hæðina í öllum stærðum, en síðasta endurtekningin endar eftir umferð merktri með stjörnu í A.2A. Prjónið síðan sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 23-25-25-25-25-25 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 4 cm að loka máli).
Í næstu umferð er aukið út um 36-40-44-48-54-58 lykkjur jafnt yfir = 216-240-264-288-324-348 lykkjur. Þetta er gert til að koma í veg fyrir að stroffið dragist saman. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 56-64-70-74-76-78 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 64-72-80-84-88-92 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu, það er notað síðar þegar lykkjum er fækkað mitt undir ermi. Lesið afgang af kafla um ermi áður en prjónað er áfram!
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn (með litnum ljós gráblár).
Þegar stykkið mælist 2-2-3-3-3-3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA!
Fækkið lykkjum svona með 4-3-2-2-1½-1½ cm millibili alls 10-13-16-17-18-19 sinnum = 44-46-48-50-52-54 lykkjur.
JAFNFRAMT þegar prjónaðir hafa verið alls 3-3-3-4-4-5 cm með litnum ljós gráblár eftir A.1 á berustykki (þ.e.a.s. á eftir grindverki), byrjar gatamynstur á ermi.
Fyrsta umferðin er prjónuð þannig (reiknað er með að fyrsta úrtakan undir ermi er gerð í S, M og XL og að það séu 62-70-80-82-88-92 lykkjur í umferð þegar gatamynstrið byrjar): Prjónið 0-4-4-0-3-0 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2A yfir næstu 60-60-70-80-80-90 lykkjur (= 6-6-7-8-8-9 mynstureiningar með 10 lykkjum), prjónið A.2B (= 2 lykkjur) og endið með 0-4-4-0-3-0 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur, en passið uppá að götin í A.2 séu staðsett beint yfir hvert annað þegar lykkjum er fækkað mitt undir ermi. A.2 er prjónað alls 2 sinnum á hæðina í öllum stærðum, en síðasta endurtekningin endar eftir umferð merktri með stjörnu í A.2A. Prjónið síðan sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist ca 39-39-38-36-35-33 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir 4 cm að loka máli – ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis).
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-2-0-2-0-2 lykkjur jafnt yfir = 48-48-48-52-52-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Ermin mælist ca 43-43-42-40-39-37 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = ljós grágrænn
symbols = natur
symbols = kirsuberjarauður
symbols = dökk fjólublár
symbols = gallabuxnablár
symbols = eplagrænn
symbols = ljós gráblár
symbols = útaukningsumferð
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn með litnum ljós gráblár
symbols = 2 lykkjur slétt saman með litnum ljós gráblár
symbols = síðasta endurtekningin endar eftir þessa umferð
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Flamingo Parade

Mary Janne, Norway

Flamingo Parade

Mari, Norway

Flamingo Parade

Gillian Johnstone, Cyprus

Flamingo Parade

Olga, Czech Republic

Flamingo parade

Olga, Czech Republic

Flamingo Parade

Annalisa, Italy

Flamingo Parade

Dea, Italy

Flamingo Parade

Ina, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 201-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (24)

country flag Gisela Bongart wrote:

Für die Flamingo-Parade gibt es leider die Farbe 17, Pink, von DROPS Merino Extra Fine nicht mehr. Was empfehlen Sie als Ersatz?

06.12.2022 - 18:09

DROPS Design answered:

Liebe Frau Bongart, gerne wird Ihnen Ihr DROPS Händler damit helfen, die beste passende Farbe zu wählen (und auch per Telefon oder per E-Mail). Viel Spaß beim stricken!

07.12.2022 - 07:58

country flag Audrey Wilson wrote:

Can you give me the sizes in inches or dress size. Don’t know how big s, m anl etc are.

08.01.2022 - 19:55

DROPS Design answered:

Dear Mrs Wilson, you will find all finished measurements for each size in the chart; compare a similar garment you have and like the shape to find out the matching size. Read more here. Happy knitting!

10.01.2022 - 08:16

country flag Julie wrote:

Hi, I am having a little problem with the sleeves when it come to the lace pattern. It said A2:::A2 A or A2B as from there I read it so many times but still very confused. It will be nice if you can post a short video for the instructions from the lace part. Otherwise I just knit a normal sleeves without doing the lace pattern. Thank you

17.10.2021 - 20:13

DROPS Design answered:

Dear Julie, A.2A is the main diagram, which is worked in the whole sleeve, while A.2B is worked 2 stitches before the end of the round. All of the videos that can help you make this pattern can be found below the diagrams. If the diagrams still give you trouble, you can knit normal sleeves without the lace pattern perfectly as well. Happy knitting.

17.10.2021 - 20:20

country flag Carolina Scanzani wrote:

Buongiono, sono una nonna e vorrei realizzare la maglia del modello Flamingo Parade Drops per la mia nipotina mi occorre la taglia 7/8anni

23.01.2021 - 11:29

DROPS Design answered:

Buongiorno Carolina, purtroppo questo modello è disponibile solo per adulti. Guardi questo maglione per bambini che è molto simile. Buon lavoro!

23.01.2021 - 16:07

country flag Arianna Gianneramo wrote:

Buongiorno, chiedo cortesemente lo schema del modello DROPS Flamingo Parade per una bambina di sei anni spero di averlo il prima possibile Grazie

23.01.2021 - 11:21

DROPS Design answered:

Buongiorno Arianna, purtroppo questo modello è disponibile solo per adulti. Guardi questo maglione per bambini che è molto simile. Buon lavoro!

23.01.2021 - 16:07

country flag Jill Scheetz wrote:

I'm enjoying knitting Flamingo Parade but need help with A;2A and A.2B. I cannot find an explanation for the 'tick' symbol on those graphs. The text of the pattern refers to 'the lace pattern on the body'. Your help would be appreciated.

22.11.2020 - 10:31

DROPS Design answered:

Dear Jill. it's not a tick, it's a combination of the circle and the diagonal line. You first work the diagonal line, in which you knit 2 together and then the circle, in which you make a yarn over with light grey blue. Happy knitting!

22.11.2020 - 11:37

country flag Orysia wrote:

Thanks for ur reply. I like the dezign of flamingos yoke. I know u have lots of patterns but none like Flamingo one bottom up.. I will study top down down tech, can't be too hard Anyway I have got the wool.

05.10.2020 - 11:47

country flag Orysia wrote:

I have never knitted a top down jumper before, is it very hard to knit it Is there any chance your Designer could reverse jumper? I read the pattern its very complicated. I don’t like a wide neckline, I prefer a snug fit to keep my neck warm. The wool came today but it looks like I have to return it if there is no bottom up version.

03.10.2020 - 16:28

DROPS Design answered:

Hi Orysia, You can search for other patterns that use Merino extra fine; there are many patterns available, both with a tighter neck and worked bottom up. Happy knitting!

05.10.2020 - 09:24

country flag Doreen Daniel wrote:

Will there be a children's version of flamingo parade?

02.01.2020 - 18:06

DROPS Design answered:

Dear Mrs Daniel, nothing is planned yet, sorry. Happy knitting!

03.01.2020 - 09:55

country flag Dea wrote:

Avrei bisogno un chiarimento. Perchè dice "Passare al colore verde/grigio chiaro e lavorare a coste (= 2 maglie diritto / 2 maglie rovescio) per circa 2½-3 cm. " senza specificare a che taglie corrisponde la differenza di centimetri? Visto che faccio la M cosa devo prendere in esame? Grazie.

11.10.2019 - 20:16

DROPS Design answered:

Buongiorno Dea. È un suggerimento sull’altezza del bordo a coste intorno allo scollo, altezza che non è vincolante, ma che può essere regolata in base al suo gusto personale. A seconda se preferisce un bordo leggermente più alto o meno. Può lavorare fino a 2,5 cm e se le sembra un bordo troppo basso può aggiungere uno o più giri a coste. Buon lavoro!

12.10.2019 - 09:42