DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 21824.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Comfort Zone

Prjónuð ermalaus peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað úr 4 þráðum með gatamynstri og sjalkraga. Stærð S - XXXL.

DROPS 196-21
DROPS Design: Mynstur ai-145
Garnflokkur C + C + C + C eða F
-------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL – XXXL
Vegna þyngdar á stykkinu kemur það til með að teygjast á lengdina um ca 6-8 cm miðað við mál á teikningu þegar stykkið er mátað.

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
800-850-950-1050-1150-1250 g litur 10, þoka

PRJÓNFESTA:
7 lykkjur á breidd og 8 umferðir á hæð með 4 þráðum og sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 15: lengd 80 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 21824.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

30% AFSLÁTTUR á 6 tegundum af bómullargarni!
Tilboðið gildir til 12.04.2024

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

MÆLING:
Öll mál á lengdina eru gerð þegar stykkið liggur flatt, en vegna þyngdar á stykkinu kemur lengdin til með að teygjast um ca 6-8 þegar flíkin er mátuð.
Þú getur valið að gera öll mál þegar stykkinu er haldið uppi til að stilla af lengdina, en athugaðu að þú færð kannski ekki eins margar mynstureiningar á hæðina með A.1 eins og á myndinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón neðan frá og upp, í stykkjum. Fitjaðar eru upp lykkjur fyrir ermar í hliðum og prjónað áfram til loka. Síðan eru stykkin saumuð saman.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 43-45-47-51-55-59 lykkjur á hringprjón með 4 þráðum Air. Prjóni 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan 2 umferðir sléttprjón með 2 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið, 15-16-17-18-20-22 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 (= 9-9-9-11-11-11 lykkjur), prjónið 15-16-17-18-20-22 lykkjur sléttprjón og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 44-45-46-47-48-49 cm – lesið MÆLING, fitjið upp 16-16-16-14-13-12 nýjar lykkjur fyrir ermar í lok 2 næstu umferða = 75-77-79-79-81-83 lykkjur í umferð.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, 30-31-32-31-32-33 lykkjur sléttprjón, haldið áfram með A.1 yfir næstu 9-9-9-11-11-11 lykkjurnar, prjónið 30-31-32-31-32-33 lykkjur sléttprjón og endið með 3 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 71-73-75-77-79-81 cm – munið eftir MÆLING og stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Í næstu umferð (rétta) fellið af miðju 7-7-7-9-9-9 lykkjurnar fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 34-35-36-35-36-37 lykkjur eftir á hvorri öxl. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið síðan laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. Bakstykkið mælist ca 74-76-78-80-82-84 cm frá öxl og niður, mælt flatt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 25-26-27-30-32-34 lykkjur (meðtaldar 7-7-7-9-9-9 kantlykkjur við miðju að framan) á hringprjón 15 með 4 þráðum Air. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Prjónið síðan 2 umferðir sléttprjón með 2 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá miðju að framan): 2 kantlykkjur í garðaprjóni, 5-5-5-7-7-7 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 (= 9-9-9-11-11-11 lykkjur), prjónið 7-8-9-8-10-12 lykkjur sléttprjón og endið með 2 kantlykkjum í garðaprjóni að hlið. Haldið svona áfram með mynstur.
Þegar stykkið mælist 44-45-46-47-48-49 cm eru fitjaðar upp 16-16-16-14-13-12 nýjar lykkjur fyrir ermi í lok næstu umferðar frá réttu = 41-42-43-44-45-46 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, 22-23-24-21-22-23 lykkjur sléttprjón, haldið áfram með A.1 yfir næstu 9-9-9-11-11-11 lykkjurnar, prjónið 5-5-5-7-7-7 lykkjur sléttprjón og endið með 2 kantlykkjum í garðaprjóni við miðju að framan.
Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist ca 72-74-76-78-80-82 cm (þ.e.a.s. þar til fram stykkið mælist jafnt langt og bakstykki eftir að lykkjur voru felldar af fyrir hálsmáli aftan í hnakka). Prjónið 1 umferð slétt frá röngu yfir allar lykkjurnar.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 7-7-7-9-9-9 lykkjur slétt (= kragi), fellið laust af þær 34-35-36-35-36-37 lykkjur sem eftir eru á öxl. Klippið frá.

HÆGRI KRAGI:
= 7-7-7-9-9-9 lykkjur á prjóni. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan garðaprjón þannig: * Prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjurnar, prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir fyrstu 5-5-5-7-7-7 lykkjurnar við miðju að framan *, prjónið frá *-* alls 4-4-4-5-5-5 sinnum. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 25-26-27-30-32-34 lykkjur (meðtaldar 7-7-7-9-9-9 kantlykkjur við miðju að framan) á hringprjón 15 með 4 þráðum Air. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Prjónið síðan 2 umferðir sléttprjón með 2 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá hlið): 2 kantlykkjur í garðaprjóni, 7-8-9-8-10-12 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 (= 9-9-9-11-11-11 lykkjur), prjónið 5-5-5-7-7-7 lykkjur sléttprjón og endið með 2 kantlykkjum í garðaprjóni við miðju að framan. Haldið svona áfram með mynstur.
Þegar stykkið mælist 44-45-46-47-48-49 cm eru fitjaðar upp 16-16-16-14-13-12 nýjar lykkjur fyrir ermi í lok næstu umferðar frá röngu = 41-42-43-44-45-46 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, 22-23-24-21-22-23 lykkjur sléttprjón, haldið áfram með A.1 yfir næstu 9-9-9-11-11-11 lykkjurnar, prjónið 5-5-5-7-7-7 lykkjur sléttprjón og endið með 2 kantlykkjum í garðaprjóni við miðju að framan.
Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist ca 72-74-76-78-80-82 cm (þ.e.a.s. þar til fram stykkið mælist jafnt langt og bakstykki eftir að lykkjur voru felldar af fyrir hálsmáli aftan í hnakka). Prjónið 1 umferð slétt frá röngu yfir allar lykkjurnar.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Fellið laust af 34-35-36-35-36-37 lykkjur á öxl, prjónið síðan 7-7-7-9-9-9 lykkjur slétt (= kragi), klippið ekki frá .

VINSTRI KRAGI:
= 7-7-7-9-9-9 lykkjur á prjóni. Byrjið frá röngu og prjónið garðaprjón þannig: * Prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjurnar, prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir fyrstu 5-5-5-7-7-7 lykkjurnar við miðju að framan *, prjónið frá *-* alls 4-4-4-5-5-5 sinnum. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið síðan laust af með sléttum lykkjum frá réttu.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt – hliðarsaumar eru saumaðir í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur, en endið sauminn þegar eftir eru ca 25-30 cm í hvorri hlið (= klauf).
Saumið kraga saman við miðju að aftan með lykkjuspori, en passið uppá að saumurinn snúi inn þegar kraginn er brotinn niður. Saumið kraga við hálsmál aftan í hnakka.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 196-21

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (8)

country flag Mary wrote:

Thanks but it is still unclear to me. Does this mean that I just keep working the 5 stitches (I am working an S size) and the 2 last stitches will be remain undone? I do not understand what I will have to do then with these 2 stitches once I am done with the whole work for those 5 stitches.

16.11.2023 - 10:53

DROPS Design answered:

Dear Mary, that's the technique of the short rows, you work the first 5 stitches, leaving the last 2 sts unworked, turn and work the 5 sts, then work the 7 sts for 2 rows. In this video we show how to work short rows (with a different number of stitches, but technique is the same). Happy knitting!

17.11.2023 - 07:46

country flag Mary wrote:

Hi! I am working on the collar and I am unclear about the instructions: when it says "Work 1 ridge back and forth over all stitches, 1 ridge back and forth over the first 5-5-5-7-7-7 stitches towards mid front *" what about the 2 remaining stitches? It asks me to work the first 5 stitches towards mid front but what should I do with the 2 last stitches?

15.11.2023 - 22:11

DROPS Design answered:

Dear Mary, you need to work now short rows so that the outermost edge on collar will be longer than the innerside (which is sewn along neckline on back piece), this means, when you work the first 5 or 7 sts only, just leave the last 2 sts unworked, turn and work return row, then work all sts on next row. Happy knitting!

16.11.2023 - 10:17

country flag Mary wrote:

Hi, Two things are not clear to me: when I start, it says that I have to cast 43 stitches and then, when I move to the sleeve I have to cast 16 stitches. The instructions say I end up with 75 stitches but actually 43+16=59 What am I missing? Plus, in A1 how do I work the yarn over in the next row?

07.11.2023 - 13:12

DROPS Design answered:

Dear Mary, when working back piece you have to cast on the 16 sts on each side, ie at the end of next 2 rows, so that you will have (seen from RS): 16+43+16=75 sts. Diagrams shows all rows, seen from right side, this means that the yarn overs will be purled from wrong side to make holes. Happy knitting!

08.11.2023 - 07:43

country flag Jutta wrote:

The instruction on how to complete and assemble the collar is not clear to me. I will find a solution that will be different but ok. I wish there were clearer images of how to assemble the pieces.

30.01.2023 - 21:48

country flag Veronica wrote:

Lavorare con 4 capi significa usare 4 fili di 4 gomitoli?

03.10.2021 - 15:53

DROPS Design answered:

Buonasera Veronica, si, vanno usati 4 fili. Buon lavoro!

04.10.2021 - 00:22

country flag Trine Pedersen wrote:

Drops air, ved at strikke comfort zone trøje. Problemet er at garnet fælder/ nuller så meget at man er helt overfyldt med det. Er der nogen der ved hvad man kan gøre ved det?, kan man vaske det eller ??

04.07.2019 - 09:45

DROPS Design answered:

Hej Trine, Der vil altid være lidt løse fibre i garn og særligt i garn hvor tråden er børstet (altså langhårede garner). Garnet kan også fælde om det bruges under eller over andet tøj som trækker i fibrene, det er derfor ikke muligt at garantere at tøjet bliver helt fri for at fælde. Ryst tøjet godt før du tager det i brug. NB! Brug hverken tøjrulle eller andre metoder som trækker fibrene ud. Eller læg det i en plasticpose og put det ind i fryseren et par timer - ved at udsætte tøjet for frost vil fibrene ikke længere klistre sig så godt sammen og det vil være lettere at ryste løse fibre af.

05.07.2019 - 12:23

country flag HERVE Nelly wrote:

Bonjour Quel fil pourriez vous me conseiller pour un pull réalisé en cachemire échantillon 21met 28rgs Merci

18.11.2018 - 12:33

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Hervé, Nous sommes en mesure de pouvoir proposer des modèles gratuits grâce à nos fils à tricoter et à crocheter vendus dans le monde entier. Vous comprendrez ainsi que nous ne pouvons que vous recommander d’utiliser l’une de nos qualités. N’hésitez pas à contacter votre magasin DROPS en France pour toute assistance. Merci pour votre compréhension.

19.11.2018 - 08:58

country flag Tine wrote:

Superflot

01.08.2018 - 14:59