DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9856.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Serena

Heklað poncho úr DROPS Nepal. Stykkið er heklað með hekluðum ferningum, gatamynstri og röndum. Stærð S - XXXL.

DROPS 195-35
DROPS Design: Mynstur ne-281
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S/M – L/XL – XXL/XXXL

EFNI:
DROPS NEPAL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
450-500-550 g litur 517, milligrár
150-150-150 g litur 501, grár
100-100-100 g litur 506, dökk grár

HEKLFESTA:
13 stuðlar á breidd og 8 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.
1 heklaður ferningur mælist ca 40-44-48 x 40-44-48 cm.

DROPS HEKLUNÁL NR 5,5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9856.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3.

RENDUR-1 (á við um heklaðan ferning framan og aftan):
Loftlykkjurhringur í byrjun á hekluðum ferningi + UMFERÐ 1-2: milligrár.
UMFERÐ 3-4: dökk grár
UMFERÐ 5-6: grár
UMFERÐ 7: milligrár
UMFERÐ 8: dökk grár
UMFERÐ 9: milligrár
UMFERÐ 10: grár
UMFERÐ 11: milligrár
UMFERÐ 12: grár
UMFERÐ 13: dökk grár
UMFERÐ 14: milligrár
UMFERÐ 15: grár
Stærð S/M er nú lokið, í stærð L/XL og XXL/XXXL er haldið áfram með milligrár.

RENDUR-2 (á við um kant neðst niðri):
UMFERÐ 1: milligrár
UMFERÐ 2: dökk grár
UMFERÐ 3: milligrár
UMFERÐ 4: milligrár

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Heklið 4 ferninga sem saumaðir eru saman. Heklið 2 einlita ferninga og 2 ferninga með röndum. Síðan er heklaður kantur neðst niðri á poncho og kragi efst á stykkinu.

HEKLAÐUR FERNINGUR:
Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 5,5 með litnum milligrár og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. Heklið RENDUR-1 – sjá útskýringu að ofan og mynstur hringinn þannig: Heklið A.1a – byrjið við ör – (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), A.1b alls 4 sinnum hringinn í umferð. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar allur ferningurinn hefur verið heklaður til loka mælist hann ca 40 x 40 cm. Stærð S/M er nú lokið. Í stærð L/XL og XXL/XXXL er heklað áfram þannig: Heklið A.2a (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), * heklið A.2b þar til 1 loftlykkja er eftir á undan horni. A.2c (= horn) *, heklið frá *-* alls 4 sinnum í umferð, heklið A.2b fram að lok í umferð. Þegar hekluð hefur verið 1 umferð er stærð L/XL lokið og ferningurinn mælist ca 44 x 44 cm. Í stærð XXL/XXXL er síðasta umferð í mynsturteikningu hekluð. Þegar síðasta umferðin hefur verið hekluð til loka mælist ferningurinn ca 48 x 48 cm.

Heklið annan ferning alveg eins = 2 ferningar.
Heklið nú einlita ferninga alveg eins með litnum milligrár.
Nú hafa verið heklaðir alls 4 ferningar.

FRÁGANGUR:
Leggið ferningana eins og útskýrt er í mynsturteikningu – sjá að neðan við hlið á mynsturteikningu og mynsturteikningu með máli.
1 = heklaður ferningur með röndum og 2 = einlitur heklaður ferningur.
Heklið ferningana saman í gegnum bæði lögin frá röngu þannig: 1 fastalykkja um loftlykkjuboga í horni, * heklið 3 loftlykkjur, hoppið yfir 3 stuðla, 1 fastalykkja um næstu loftlykkju *, heklið frá *-* meðfram allri hliðinni og endið með 1 fastalykkju í næsta horni. Heklið saman hina ferningana alveg eins. Að lokum er hliðin hekluð sama merkt með stjörnu í mynsturteikningu.

KANTUR NEÐST NIÐRI:
Heklið nú kant neðst niðri þannig:
Byrjið með litnum milligrár í skiptingunni á milli einlita fernings og fernings með röndum – sjá svartan punkt í mynsturteikningu, heklið RENDUR-2 og mynstur hringinn þannig: Heklið A.3a (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), heklið A.3b fram að horni við miðju að framan, heklið A.3c um loftlykkjuboga í horni, heklið A.3b fram að næsta horni við miðju að aftan, heklið A.3c, heklið A.3b fram að byrjun á umferð. Haldið svona áfram hringinn þar til allt A.3a til A.3c hefur verið heklað til loka á hæðina. Klippið frá og festið enda.

KRAGI.
Allur kraginn er heklaður með litnum milligrár.
Byrjið með litinn milligrár í loftlykkjuboga í horni á ferningi sem er í miðju (= miðja að aftan), heklið A.3a (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), heklið A.3b um sama loftlykkjuboga í horni, * hoppið yfir loftlykkjuboga í horni á næsta ferningi, heklið A.3b fram að næsta horni, hoppið yfir loftlykkjuboga í horni, heklið A.3b um loftlykkjuboga í ferning fyrir miðju að framan *, heklið frá *-* sinni til viðbótar í umferð, en endið eins og útskýrt er í A.3a. Þegar allt A.3a og A.3b hefur verið heklað til loka á hæðina, endurtakið 4 síðustu umferðirnar 2 sinnum til viðbótar (= alls 3 sinnum á hæðina). Klippið frá og festið enda.
Gerið tvinnaða snúru þannig:

TVINNUÐ SNÚRA OG SKÚFAR:
Klippið 4 þræði með litnum dökk grár ca 5 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á hvorn enda þannig að snúran haldist tvinnuð. Þræðið snúruna upp og niður í 3. umferð í kraga, byrjið og endið við miðju að framan.
Gerið 1 skúf á hvorn enda á tvinnuðu snúrunni:
1 skúfur = klippið 11 þræði með litnum dökk grár ca 24 cm. Leggið þá í gegnum enda á tvinnuðu snúrunni og brjótið þá saman þannig að allir þræðirnir liggi saman (= 24 þráðar endar). Klippið einn þráð til viðbótar ca 20 cm og vefjið utan um þráðar endana ca 1 cm niður frá brotinu og hnýtið hnút. Klippið þráðar endana þannig að skúfurinn verði jafn neðst. Gerið annan skúf alveg eins á gagnstæðum enda á snúru.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 26.01.2021
Nýtt mynsturtákn í A.1a, umferð 6

Mynstur

symbols = byrjið hér – þessi loftlykkjuhringur er útskýrður í uppskrift. Haldið áfram með tákn yfir punkti á hring og heklið til vinstri
symbols = 1 loftlykkja
symbols = 3 loftlykkjur
symbols = 4 loftlykkjur
symbols = 1 fastalykkja um loftlykkjuhring/loftlykkjuboga
symbols = 1 fastalykkja í lykkju
symbols = 1 stuðull um loftlykkjuboga
symbols = 1 tvíbrugðinn stuðull um loftlykkjuboga
symbols = 1 þríbrugðinn stuðull um loftlykkjuboga
symbols = 1 fjórbrugðinn stuðull um loftlykkjuboga: Bregðið þræðinum 4 sinnum um heklunálina, stingið heklunálinni um loftlykkjuboga, sækið þráðinn, * bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar (= alls 5 sinnum)
symbols = 3 stuðlar um loftlykkjuboga
symbols = heklið 2 stuðla saman þannig: * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni um loftlykkjubogann, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = heklið 2 tvíbrugðna stuðla saman þannig: * bregðið þræðinum 2 sinnum um heklunálina, stingið heklunálinni í lykkjuna, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 næstu lykkjur á heklunálinni *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni

symbols = heklið 2 þríbrugðna stuðla saman þannig: * bregðið þræðinum 3 sinnum um heklunálina, stingið heklunálinni um loftlykkjuboga, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 næstu lykkjur á heklunálinni *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = heklið 2 fjórbrugðna stuðla saman þannig: * bregðið þræðinum 4 sinnum um heklunálina, stingið heklunálinni um loftlykkjuboga, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 næstu lykkjur á heklunálinni, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 næstu lykkjur á heklunálinni, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 næstu lykkjur á heklunálinni *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = í byrjun á umferð er hekluð 1 loftlykkja. Loftlykkjan kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju í umferð. Endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð, heklið síðan keðjulykkjur fram að miðju á fyrsta loftlykkjuboga
symbols = í byrjun á umferð er hekluð 1 loftlykkja, endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju
symbols = í byrjun á umferð er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð, heklið síðan keðjulykkjur fram að miðju á fyrsta loftlykkjuboga
symbols = í byrjun á umferð er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.
symbols = í byrjun á umferð er fyrsta tvíbrugðna stuðli skipt út fyrir 4 loftlykkjur. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun á umferð, heklið síðan keðjulykkjur upp að fyrsta loftlykkjuboga
symbols = í byrjun á umferð eru heklaðar 3 loftlykkjur, endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð
symbols = byrjið í skiptingunni á milli þessa 2 ferninga þegar hekla á kantinn neðst niðri
symbols = byrjið hér! Fyrsta umferð hefur nú þegar verið hekluð og er með til að sýna hvernig hekla á næstu umferð
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 195-35

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (36)

country flag Silvia wrote:

No entiendo bien el comienzo de la 6a vuelta en el diagrama. Según A.1a se debe "sustituir el primer punto alto con 3 puntos de cadena", sin embargo según A.1.b la fila comienza con 4 puntos de cadena seguido de 1 punto alto doble. ¿Cómo se debe comenzar? ¿ Serían en total 3+ 4 puntos de cadena? Muchas gracias por su ayuda

06.02.2023 - 14:58

DROPS Design answered:

Hola Silvia, las cadenetas iniciales son 3 puntos de cadeneta (el símbolo a la derecha en el diagrama). Después, trabajar 4 puntos de cadeneta más y después trabajar el punto alto doble.

07.02.2023 - 11:50

country flag Daniela Balanza wrote:

Me gustaría mucho que todos sus patrones tengan videos serian de mucha ayuda especialmente para principiantes también por el tema de los símbolos q son diferentes en cada país y confunden. Gracias

21.05.2022 - 16:59

country flag Carol wrote:

How do I crochet the neck, the 4 squares are together now, please help me

17.04.2022 - 19:49

DROPS Design answered:

Dear Carol, you can see the instructions for the neck after the bottom edge. If you have problems with a concrete section, please tell us what you don't understand so we may help you better. Happy crocheting!

18.04.2022 - 20:16

country flag Amanda wrote:

I just downloaded the Serena poncho and I have no clue how to read a chart. Is there any way you have the rounds for the squares written out? Thank you.

23.01.2022 - 01:48

DROPS Design answered:

Dear Amanda, unfortunately, this pattern is written as a combination of written instructions and charts for the pattern, so we don't have each round written out. But you can read the following lesson; it should help you better understand crochet diagrams: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=69&cid=19 Happy crocheting!

23.01.2022 - 20:59

country flag Tisa wrote:

I love patterns. My first crochet lace shawl was from a Italian pattern. Going from Europe to America isn’t easy to convert. Patterns can be used for everybody in every country.

04.12.2021 - 14:22

country flag Tisa wrote:

How do I increase it for a larger person?

04.12.2021 - 14:14

DROPS Design answered:

Dear Tisa, you need to increase the size of the square by repeating the last rows of the square, but you need to make the calculations yourself; you can also work the edge around the poncho wider to make the square larger. Happy crochetting!

05.12.2021 - 16:39

country flag Jeanne wrote:

Do you have a written pattern for this piece? I really struggle with diagrams.

31.10.2021 - 13:05

DROPS Design answered:

Dear Jeanne, our patterns are made in a mixed format, with both diagrams and written instructions, to cater to all types of people. You can check the following lesson regarding reading diagrams: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=69&cid=19. Happy crochetting!

31.10.2021 - 19:46

country flag Joan Carney wrote:

Diagrams make my head spin. Are there written directions for this poncho anywhere?

29.10.2021 - 18:49

DROPS Design answered:

Dear Joan, we do not have written out explanations for the pattern, not only because they are available in several languages, but also, because we believe that with diagram you can not only see the very next step (like with written diagrams) but the "bigger picture " as well, like how stitches and rows relate to each other en large. We do have a lesson here on how to read diagrams, and you can always ask for help (in person, or over the phone) in the store you Bought your DROPS yarn from. Happy Stitching!

30.10.2021 - 03:32

country flag Patricia Aillapan wrote:

Hola, me encanto este poncho, alguna posibilidad de ver este mismo trabajo pero en video tutorial, porque igual me complica el leerlo, y los tejido que he hecho los veo a través de video, se lo agradecería mucho.

19.04.2021 - 02:08

country flag Marilu wrote:

Buon giorno, non capisco il passaggio seguente nella descrizione del digramma A1a : all’inizio del giro lavorare 1 catenella. Questa catenella non sostituisce la 1° maglia bassa sul giro. Finire il giro con 1 maglia bassissima nella 1° catenella all’inizio del giro, poi lavorare a maglie bassissime fino al centro del 1° arco di catenelle? anche sopra dove dice uguale, non capisco le maglie basissime dove e quante e se si fa nella maglia o a torno? molte grazie!

20.01.2021 - 12:54

DROPS Design answered:

Buonasera Marilu, abbiamo sistemato la descrizione del simbolo a crocetta. Ci riscriva se incontra ulteriori difficoltà. Buon lavoro!

20.01.2021 - 19:16