DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Horizon Highlights

Prjónuð húfa og handstúkur úr DROP BabyAlpaca Silk með gatamynstri, röndum og garðaprjóni.

DROPS 192-18
DROPS Design: Mynstur bs-145
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

GARN Í ALLT STYKKIÐ:
Stærð: S/M – L/XL

Efni:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100 g litur 8465, milligrár
100-100 g litur 3250, ljós bleikfjólublár

HÚFA:
Stærð: S/M – L/XL
Höfuðmál: ca 54/56 - 58/60 cm

Efni:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100 g litur 8465, milligrár
50-50 g litur 3250, ljós bleikfjólublár

HANDSTÚKUR:
Stærð: S/M – L/XL
Mál lengd: ca18-20 cm. Ummál: ca 17-19 cm.

Efni:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50 g litur 8465, milligrár
50-50 g litur 3250, ljós bleikfjólublár

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 48 umferðir á hæð með garðaprjóni = 10 x 10 cm.

DROPS PRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 60 cm eða 80 cm.
DROPS PRJÓNAR NR 2,5 fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

RENDUR (á við um húfu):
Prjónið * 2 umferðir garðaprjón með litnum ljós bleikfjólublár, prjónið 2 umferðir garðaprjón með litnum milligrár *, prjónið frá *-* alls 5 sinnum. Prjónið síðan stykkið áfram með litnum milligrár til loka.

ÚTAUKNING (á við um húfu):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið er út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um húfu):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið um 1 lykkju á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman.

MYNSTUR:
Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1.
Handstúkur: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka neðan frá og upp og saumað saman við miðju að aftan í lokin.

HÚFA:
Fitjið laust upp 122-143 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjón 2,5 með litnum milligrár.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) með 1 kantlykkju GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 5 cm, stillið af að næsta umferð sé frá réttu, skiptið yfir á prjón 3 og prjónið 2 umferðir garðaprjón. Skiptið síðan yfir í litinn ljós bleikfjólublár og prjónið þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, endurtakið A.1 (= 2 lykkjur) þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina mælist húfan ca 7 cm. Prjónið nú stykkið áfram með RENDUR – sjá útskýringu að ofan og setjið 5 prjónamerki í stykkið frá réttu þannig: Setjið 1 prjónamerki eftir 1 lykkju, næstu 4 prjónamerki eru sett með 24-28 lykkja millibili, á eftir síðasta prjónamerki eru 25-30 lykkjur eftir.
Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 1 lykkju á eftir öllum prjónamerkjum (= 5 lykkjur fleiri) – sjá ÚTAUKNING. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Aukið svona út í annarri hverri umferð 3 sinnum til viðbótar og síðan í 4. hverri umferð alls 7 sinnum = 177-198 lykkjur. Þegar stykkið mælist 11-12 cm frá stroffi er fækkað um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki í næstu umferð frá réttu (= 5 lykkjur færri) – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 17-19 sinnum = 92-103 lykkjur.
Prjónið allar lykkjur 2 og 2 saman í hverri umferð frá réttu alls 3 sinnum = 12-13 lykkjur. Húfan mælist ca 25-26 cm.
Þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og herðið að. Saumið húfuna saman við miðju að aftan innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið.

------------------------------------------------------

HANDSTÚKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón og saumað saman í lokin.

HANDSTÚKA:
Fitjið upp 22-24 lykkjur á hringprjón 3 með litnum milligrár.
Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur í næstu lykkju (þ.e.a.s. prjónið í framri og aftari lykkjubogann), prjónið upp 1 lykkju yst í garðaprjóni sem var prjónuð frá fyrri umferð, síðan eru prjónaðar upp lykkjur með fram uppfitjunarkanti þannig: Prjónið 2 lykkjur í fyrstu lykkju, prjónið 1 lykkju í hverja og eina af næstu 21-23 lykkjum = 47-51 lykkjur.
UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur til baka yfir allar lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í 23.- 25. lykkju og 25.-.27. lykkju. Aukið síðan út hvoru megin við þessar 2 lykkjur.

HLUTI 1 (með garðaprjóni með milligrár):
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið slétt, jafnframt er slegið 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við lykkjur með prjónamerki (= 4 lykkjur fleiri).
UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur til baka, uppsláttur er prjónaður snúinn slétt, svo EKKI myndist gat.
Endurtakið umferð 1 og 2. Í hvert skipti sem aukið er út verða 2 lykkjur fleiri á milli 2 lykkja með prjónamerki í og alls 4 lykkjur fleiri í umferð.
Þegar prjónaðir hafa verið ca 3 cm frá uppfitjunarkanti (þ.e.a.s. 6 cm alls) – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, prjónið gatamynstur þannig:

HLUTI 2 (með gatamynstri með milligrár):
Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1 (= 2 lykkjur ) þar til 1 lykkja er eftir á undan lykkju með prjónamerki, A.2 (= 2 lykkjur), A.3 (= 2 lykkjur), prjónið A.1 (= 2 lykkjur) þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Þegar A.1 til A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 5 cm frá uppfitjunarkanti (þ.e.a.s. 10 cm alls).

HLUTI 3 (með röndum og garðaprjóni):
Prjónið umferð 1 og 2 í garðaprjóni og útaukningu eins og í 1. hluta, en prjónið rendur þannig:
Prjónið 2 umferðir garðaprjón með litnum ljós bleikfjólublár, prjónið 2 umferðir garðaprjónn með litnum milligrár.
Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 8½-9½ cm frá uppfitjunarkanti (þ.e.a.s. 17-19 cm alls). Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.

Brjótið uppá stykkið þannig að uppábrotið liggi meðfram uppfitjunarkanti. Saumið saman í hlið neðst niðri á handstúku og 11-12 cm upp. Saumið eina og eina lykkju saman í affellingarkantinn. Klippið frá og festið enda. Hoppið yfir ca 6-7 cm (nú er eftir 1½ cm efst á handstúkunni), saumið eina og eina lykkju saman í hlið meðfram síðustu 1½ cm. Klippið frá og festið enda.
Prjónið hina handstúkuna á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = slétt frá réttu
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 192-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (16)

country flag Mica wrote:

Buongiorno. Per favore, potreste rispondere alla mia domanda? Ho il progetto in sospeso

15.03.2024 - 10:27

DROPS Design answered:

Buongiorno Mica, abbiamo inoltrato la sua richiesta al settore design: può finire lavorando 1 maglia diritto. Buon lavoro!

19.03.2024 - 16:06

country flag Mica wrote:

Buongiorno, Se non ci sono errori nella seconda sezione, per favore, potreste spiegarmi dove sto sbagliando? Come posso lavorare A1, A2 e A3 su un numero dispari di maglie?

27.02.2024 - 10:53

DROPS Design answered:

Buongiorno Mica, abbiamo inoltrato la sua richiesta al settore design: può finire lavorando 1 maglia diritto. Buon lavoro!

19.03.2024 - 16:06

country flag Mica wrote:

Ciao, per favore potete rispondere? Non riesco a proseguire con il lavoro.

24.02.2024 - 18:28

country flag Mica wrote:

Buongiorno, non riesco a proseguire con la 2' sezione. Mi ritrovo con un numero dispari di m.: partendo da 47 maglie ne aggiungo 4 ad ogni ferro diritto, quindi le m. totali resteranno sempre dispari. Se poi lavoro:2 dir+A1 (2 m) per x volte, +A2 (2m) + A3 (2m) + A1 (2 m) finché nn restano le due maglie del bordo...vuol dire che nn dovrò lavorare l' ultima A1 intero? Dove sto sbagliando? Grazie per chiarire

08.02.2024 - 11:55

DROPS Design answered:

Buonasera Mica, non sono stati riportati errori nella seconda sezione. Buon lavoro!

25.02.2024 - 21:37

country flag Bar wrote:

Hi. I wanted to knit with "Baby alpaca silk". It was a fantastic yarn. It is GONE. WHEN WILL IT BE BACK? .. No!! I am not interested in "fuzzling yarns" (like this new one). .. next year? thank you

22.11.2022 - 11:34

DROPS Design answered:

Dear Mrs Bar, please use our yarn converter to see all suggested alternatives. Your DROPS store will also help you finding the best matching yarns if you need help (eve per mail or telephone). Happy knitting!

22.11.2022 - 15:56

country flag Ingegerd Wallin wrote:

Jag förstår inte ökningen från 21 till 47 maskor? Jag har lyckats få 33 maskor.- "sticka 1 maska i var och en av de nästa 21-23 maskorna = 47-51 maskor. VARV 2: Sticka rätmaskor tillbaka.."

14.01.2021 - 00:54

DROPS Design answered:

Hej Ingegerd. Se videon vi har gjort till pulsvärmarna: Pulsvärmarna DROPS 192-18

20.01.2021 - 08:42

country flag Rigmor wrote:

Hej, inte heller jag kommer förbi rad 3 av pulsvärmarna. När jag följer instruktionen hamnar nålarna på var sin sida och pekar åt var sitt håll om det lilla 2radiga arbetet; det hela sitter fast! Hur får jag upp de 21-23 nya maskorna från uppläggningskanten på samma sticka som rad 2 redan sitter på?

10.01.2020 - 21:27

DROPS Design answered:

Hej Rigmor, du stickar runt om de førsta 2 varven, alltså i varje maska av uppläggningskanten. När du har kommit varvet runt, vänder du och stickar tillbaka varvet runt.

How to begin working the wrist warmers in DROPS 192-18 from Garnstudio Drops design on Vimeo.

Lycka till :)

10.02.2020 - 15:53

country flag Marion wrote:

Bonjour. Pour le rang 1 des mitaines, une fois qu'on a tricoté 2 fois l'avant dernière maille et relevé 1 maille dans la cote de mousse dessous, comment relever les mailles du rang de montage alors que toutes les mailles sont sur l'aiguilles? J'avoue que je suis perdue... Merci pour votre aide.

15.11.2019 - 14:33

DROPS Design answered:

Bonjour Marion, vous tournez l'ouvrage (car vous tricotez en rangs) et vous tricotez le rang suivant (= sur l'envers) à l'endroit. Vous continuez ensuite en allers et retours en suivant les sections, vous allez augmenter le nombre de mailles de chaque côté des marqueurs. Bon tricot!

15.11.2019 - 14:46

country flag Bodil wrote:

Hei! Forstår oppskriften slik at i 2. parti (med hullmønster i mellomgrå) på pulsvantene skal diagram A2 og A3 kun skal strikkes en gang, stemmer det?

30.10.2019 - 12:14

DROPS Design answered:

Hei Bodil, Ja det er riktig. A.2 og A.3 skal strikkes 1 gang i høyden. God fornøyelse!

31.10.2019 - 07:50

country flag Vibe Dahlmoes wrote:

Jeg er færdig med Hue. Jeg kan simpelthen ikke finde ud af pulsvarmere, hverken det med at slå op, eller de tre partier, håber jeg kan få hjælp

19.08.2019 - 12:55

DROPS Design answered:

Hei Vibe. Når du har lagt opp og strikket 2 pinner, skal du øke i siste maske på 2. pinne ved å strikke 2 masker i 1 maske. Se evnt video under oppskriften: Udtagning - strik 2 m i 1 m. Deretter vri du arbeidet litt (ikke snu som vanlig), men strikk i ytterste maske/rille i den 2. pinne du strikket (kortsiden av arbeidet ditt), vri arbeidet litt mer (nå skal du strikke i oppleggskanten). Strikk slik: strikk 2 masker i første maske, strikk 1 maske i hver av de neste 21-23 maskene = 47-51 masker. God Fornøyelse!

20.08.2019 - 13:51