DROPS Nord
DROPS Nord
45% Alpakka, 30% Polyamide, 25% Ull
frá 814.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8140.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Hint of Heather

Prjónuð peysa og húfa úr DROPS Nord. Peysa prjónuð ofan frá og niður með hringlaga berustykki, garðaprjóni og mosaik mynstri. Stærð S - XXXL. Húfa prjónuð neðan frá og upp í garðaprjóni, mosaik mynstri og opi fyrir tagl.

DROPS 197-18
DROPS Design: Mynstur no-022
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

GARN Í ALLT SETTIÐ
Stærð: S - M - L - XL - XXL – XXXL
Höfuðmál: ca 54/56 - 54/56 - 56/58 - 56/58 - 58/60 - 58/60 cm

Efni:
DROPS NORD frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
350-350-400-450-500-550 g litur 03, perlugrár
100-100-100-100-100-150 g litur 13, bleikfjólublár
50-50-50-50-50-50 g litur 01, natur

PEYSA:
Stærð: S - M - L - XL - XXL – XXXL

Efni:
DROPS NORD frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-350-400-400-450-500 g litur 03, perlugrár
50-100-100-100-100-100 g litur 13, bleikfjólublár
50-50-50-50-50-50 g litur 01, natur

HÚFA:
Stærð: S/M - M/L - L/XL
Höfuðmál: ca 54/56 - 56/58 - 58/60 cm

Efni:
DROPS NORD frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50-50 g litur 03, perlugrár
50-50-50 g litur 13, bleikfjólublár
50-50-50 g litur 01, natur

PEYSA:

PRJÓNFESTA:
23 lykkjur á breidd og 45 umferðir á hæð með garðaprjóni og mosaik mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 80 cm fyrir stykkið með garðaprjóni og mosaik mynstri.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 80 cm fyrir kanta.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.
DROPS TALA, Hringlaga (silfur) NR 529: 6-6-6-7-7-7 st.

HÚFA:

PRJÓNFESTA:
23 lykkjur á breidd og 45 umferðir á hæð með garðaprjóni og mosaik mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir stykkið með garðaprjóni og mosaik mynstri.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir kanta.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nord
DROPS Nord
45% Alpakka, 30% Polyamide, 25% Ull
frá 814.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8140.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MÆLING:
Vegna garðaprjóns er stykkinu haldið uppi þegar öll mál eru tekin til að koma í veg fyrir að stykkið verði of langt þegar það er mátað.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 113 lykkjur), mínus kant að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 30) = 3,4.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 3. og 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ekki er aukið út yfir kanta að framan.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA-1 (á við um miðju undir ermum):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan kantlykkju og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).

ÚRTAKA-2 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 110 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 12) = 9.
Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna 8. og 9. hverja lykkju slétt saman. Ekki er lykkjum fækkað yfir kantlykkjur.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = Prjónið frá réttu þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og endið með 1 lykkju slétt. Í næstu umferð (frá röngu) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur í hálsmáli mælist ca 2 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8-8-8½-8-8-8½ cm millibili.

MOSAIK MYNSTUR PEYSA:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2 og sjá útskýringu á aðferð að neðan. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.
Hver umferð í mynsturteikningu jafngildir 2 umferð. Þ.e.a.s. frá réttu er mynsturteikning prjónuð frá hægri til vinstri og frá röngu er sama umferð prjónuð frá vinstri til hægri.

Í öllum umferðum frá réttu er þræðinum haldið aftan við stykkið (þ.e.a.s. frá röngu á stykki) þegar lykkju er lyft af prjóni.
Í öllum umferðum frá röngu er þræðinum haldið framan við stykkið (þ.e.a.s. að þér og ennþá frá röngu á stykki) þegar lykkju er lyft af prjóni. Passið uppá að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki.

Til þess að fá betri yfirsýn yfir mynstur er hægt að setja prjónamerki á milli hverra mynstureininga með A.1A/A.2A.

A.X/A.Y = hjálpar rúða – þessi rúða er ekki prjónuð, en sýnir hvernig á að prjóna mynsturrönd (sjá útskýringu aðeins neðar).
A.1A/A.2A = 1 mynstureining
A.1B/A.2B = síðasta lykkja á undan kanti að framan, þessi lykkja gerir það að mynstrið byrjar og endar alveg eins innan við kant að framan í hvorri hlið (það á að prjóna lykkjuna)

Í þeim umferðum sem eru alveg einlitar í mynsturteikningu eru prjónaðar 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur án þess að lyfta lykkjum af.

Í mynsturrönd í A.1 sem er með auða rúðu í A.X (litur A), eiga allar lykkjur með lit í A í A.1/A.1B að prjónast slétt og allar lykkjur með lit C er lyft af prjóni.

Í hinum mynsturröðum sem hafa auða rúðu eða rúðu með stjörnu í A.3Y (litur A eða C), eiga allar lykkjur með lit A eða C í A.2A/A.2B að prjónast slétt og allar lykkjur með lit B er lyft af prjóni.

Í hverri mynsturrönd sem hafa svarta rúðu í A.Y (litur B), eiga allar lykkjur með lit B í A.2A/A.2B að prjónast slétt og allar lykkjur með lit A eða C er lyft af prjóni.

MOSAIK MYNSTUR HÚFA:
Sjá mynsturteikningu A.3 og sjá útskýringu á aðferð að neðan.
Hver umferð í mynsturteikningu jafngildir 2 umferð. Þ.e.a.s. frá réttu er mynsturteikning prjónuð frá hægri til vinstri og frá röngu er sama umferð prjónuð frá vinstri til hægri.

Í öllum umferðum frá réttu er þræðinum haldið aftan við stykkið (þ.e.a.s. frá röngu á stykki) þegar lykkju er lyft af prjóni.
Í öllum umferðum frá röngu er þræðinum haldið framan við stykkið (þ.e.a.s. að þér og ennþá frá röngu á stykki) þegar lykkju er lyft af prjóni. Passið uppá að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki.

Til þess að fá betri yfirsýn yfir mynstur er hægt að setja prjónamerki á milli hverra mynstureininga með A.3B.

A.3A = byrjunar lykkja frá réttu og enda lykkja frá röngu (það á að prjóna lykkjuna)
A.3B = 1 mynstureining
A.3C = enda lykkja frá réttu og byrjunar lykkja frá röngu (það á að prjóna lykkjuna)

Í þeim umferðum sem eru alveg einlitar í mynsturteikningu eru prjónaðar 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur án þess að lyfta lykkjum af.

Í fyrstu mynsturrönd í A.3 sem er með auða rúðu í A.3A og A.3C (litur A- umferð er merkt með stjörnu í A.3A), eiga allar lykkjur með lit A að prjónast slétt og allar lykkjur með lit C er lyft af prjóni.

Í hinum mynsturröðum sem hafa auða rúðu eða rúðu með stjörnu í A.3A og A.3C (litur A eða C), eiga allar lykkjur með lit A eða C að prjónast slétt og allar lykkjur með lit B er lyft af prjóni.

Í hverri mynsturrönd sem hafa svarta rúðu í A.3A og A.3C (litur B), eiga allar lykkjur með lit B að prjónast slétt og allar lykkjur með lit A eða C er lyft af prjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Í berustykki er prjónað mosaik mynstur. Það er mikilvægt að fylgja mynsturteikningu vandlega. Allt litamynstrið er prjónað í garðaprjóni, en ekki er prjónað mynstur í venjulegum lykkjum í garðaprjóni. Litamynstur næst með því að lyfta lykkjum af prjóni. Lesið alla útskýringuna með mosaik mynstri áður en byrjað er að prjóna! Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður og saumaðar saman í lokin.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 113-116-122-128-131-137 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3 með litnum bleikfjólublár. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið slétt yfir allar lykkjur.
UMFERÐ 2 (ranga): 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni * 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stykkið mælist 3 cm frá uppfitjunarkanti – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 6 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 143-149-155-161-167-173 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið MOSAIK MYNSTUR PEYSA – sjá útskýringu að ofan, þ.e.a.s. sjá rúðu í A.X (rúðan er einungis til útskýringar á umferð og er ekki prjónuð), prjónið A.1A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 22-23-24-25-26-27 mynstureiningar A.1A með 6 lykkjum), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur, en munið eftir að 1 röð í mynsturteikningu = 2 umferðir og að kantur að framan er prjónaður með grunnlit í mynsturröð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT í hverri röð merktri með ör í A.1A er aukið út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚTAUKNING-1.
Í röð merktri með ör-1 er aukið út um 48-48-48-54-54-60 lykkjur jafnt yfir = 191-197-203-215-221-233 lykkjur (nú er pláss fyrir 30-31-32-34-35-37 mynstureiningar A.1A með 6 lykkjum).
Í röð merktri með ör-2 er aukið út um 36-42-48-54-60-60 lykkjur jafnt yfir = 227-239-251-269-281-293 lykkjur (nú er pláss fyrir 36-38-40-43-45-47 mynstureiningar A.1A með 6 lykkjum).
Þegar A.1A hefur verið prjónað til loka er prjónað A.2 alveg eins, þ.e.a.s. fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, sjá rúðu í A.Y (rúðan er einungis til útskýringar á umferð og er ekki prjónuð), prjónið A.2A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 36-38-40-43-45-47 mynstureiningar A.2A með 6 lykkjum), prjónið A.2B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
JAFNFRAMT í hverri röð merktri með ör í A.2A er aukið út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan:
Í röð merktri með ör-3 er aukið út um 42-42-48-48-48-48 lykkjur jafnt yfir = 269-281-299-317-329-341 lykkjur (nú er pláss fyrir 43-45-48-51-53-55 mynstureiningar A.2A með 6 lykkjum).
Í röð merktri með ör-4 er aukið út um 30-42-48-42-42-48 lykkjur jafnt yfir = 299-323-347-359-371-389 lykkjur (nú er pláss fyrir 48-52-56-58-60-63 mynstureiningar A.2A með 6 lykkjum).
Í röð merktri með ör-5 er aukið út um 24-32-40-42-42-48 lykkjur jafnt yfir = 323-355-387-401-413-437 lykkjur (nú er pláss fyrir 78-86-94-65-67-71 mynstureiningar A.2A með 4-4-4-6-6-6 lykkjum). Útaukningu er nú lokið í stærð S, M og L.
Í röð merktri með ör-6 (á einungis við um stærð XL, XXL og XXXL) aukið út um 18-34-38 lykkjur jafnt yfir (nú er pláss fyrir 102-109-116 mynstureiningar A.2A með 4 lykkjum) = 419-447-475 lykkjur í umferð í stærð XL, XXL og XXXL.
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónað garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur með perlugrár þar til stykkið mælist 22-24-26-28-30-32 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan – sjá MÆLING, en stillið af að síðasta umferð sé prjónuð frá réttu.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 52-57-61-66-72-78 lykkjur slétt (= framstyki), setjið næstu 63-69-77-83-85-87 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 93-103-111-121-133-145 lykkjur slétt (= bakstykki), setjið næstu 63-69-77-83-85-87 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 52-57-61-66-72-78 lykkjur slétt (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvort fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 213-233-253-273-301-329 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 56-61-66-71-78-85 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 101-111-121-131-145-159 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki). Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur (fyrsta umferð er prjónuð frá réttu).
Þegar stykkið mælist 8 cm frá skiptingu – munið eftir MÆLING, aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 8 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 225-245-265-285-313-341 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 32 cm frá skiptingu í öllum stærðum. Prjónið 2 umferðir garðaprjón þar sem aukið er út um 11-12-13-14-16-18 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð – munið eftir ÚTAUKNING-1 = 236-257-278-299-329-359 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið síðan kant þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið slétt yfir allar lykkjur.
UMFERÐ 2 (ranga): 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni * 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt * , prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Endurtakið umferð 1 og 2 þar til sjálfur kanturinn mælist 3 cm (peysan mælist ca 36 cm frá skiptingu í öllum stærðum). Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum frá réttu (skiptið e.t.v. yfir í hálfu númeri grófari prjóna þegar fellt er af til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur). Peysan mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Byrjið frá réttu með hringprjón 3,5 með litnum perlugrár, mitt á milli nýrra lykkja sem fitjaðar voru upp á fram- og bakstykki undir ermi, prjónið upp 1 lykkju í hverja og eina af 4-4-5-5-6-7 lykkjum, prjónið slétt yfir 63-69-77-83-85-87 lykkjur af þræði og prjónið síðan upp 1 lykkju í hverja og eina af þeim 4-4-5-5-6-7 lykkjum sem eftir eru undir ermi = 71-77-87-93-97-101 lykkjur. Prjónið garðaprjón fram og til baka frá miðju undir ermi. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu – munið eftir MÆLING, fækkið um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona með 1 cm millibili alls 0-0-3-7-9-13 sinnum og síðan með 2 cm millibili alls 3-2-15-12-11-7 sinnum. Fækkið síðan alls 8-12-0-0-0-0 sinnum með 4-2½-0-0-0-0 cm millibili = 49-49-51-55-57-61 lykkjur eftir á prjóni. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 39-38-36-34-33-31 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 2 umferðir garðaprjón þar sem fækkað er 1-1-0-1-0-1 lykkja í fyrstu umferð = 48-48-51-54-57-60 lykkjur í umferð.
Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið kant þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið slétt yfir allar lykkjur.
UMFEÐR 2 (ranga): 1 lykkja slétt, * 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju brugðna og endið með 1 lykkju slétt.
Endurtakið umferð 1 og 2 þar til kanturinn sjálfur mælist 3 cm (ermin mælist ca 42-41-39-37-36-34 cm frá skiptingu). Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur.
Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum (skiptið e.t.v. yfir í hálfu númeri grófari prjóna þegar fellt er af til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur).
Ermin mælist ca 43-42-40-38-37-35 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið ermasauma frá skiptingu undir ermi og út – saumið í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur.
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

-------------------------------------------------------

HÚFA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón, neðan frá og upp. Fyrst er prjónaður kantur neðst. Síðan er prjónað mosaik mynstur. Mikilvægt er að fylgja mynsturteikningu vel. Allt litamynstrið er prjónað í garðaprjóni, en ekki er prjónað mynstur í venjulegum lykkjum í garðaprjóni. Litamynstur næst með því að lyfta lykkjum af prjóni eins og útskýrt er að ofan. Lesið alla útskýringuna með mosaik mynstri áður en byrjað er að prjóna! Að lokum er prjónaður kantur efst á húfunni áður en stykkið er saumað saman við miðju að aftan. Húfan er opin efst fyrir tagl.

HÚFA:
Fitjið upp 110-116-122 lykkjur á hringprjón 3 með litnum bleikfjólublár. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið slétt yfir allar lykkjur.
UMFERÐ 2 (ranga): 1 lykkja slétt, * 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til eftir eru 2 lykkjur á prjóni, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 1 lykkju slétt.
Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stykkið mælist 2-2-3 cm frá uppfitjunarkanti.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið MOSAIK MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan. Þ.e.a.s. A.3A er prjónað yfir fyrstu lykkju, A.3B er endurtekið þar til 1 lykkja er eftir á prjóni (= 18-19-20 mynstureiningar með 6 lykkjum), endið með A.3C yfir síðustu lykkju. Haldið svona áfram með mynstur, en munið eftir 1 umferð í mynsturteikningu = 2 umferðir. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.3B er fækkað jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – sjá ÚRTAKA.
Í umferð merktri með ör-1 er fækkað um 12-10-12 lykkjur jafnt yfir = 98-106-110 lykkjur í umferð (nú er pláss fyrir 24-26-27 mynstureiningar með 4 lykkjum).
Í umferð merktri með ör-2 er fækkað um 24-26-24 lykkjur jafnt yfir = 74-80-86 lykkjur í umferð.
A.3 hefur nú verið prjónað til loka. Haldið áfram fram og til baka yfir allar lykkjur með perlugrár þar til stykkið mælist 15-16-17 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið slétt yfir allar lykkjur.
UMFERÐ 2 (ranga): 1 lykkja slétt, * 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju brugðin og endið með 1 lykkju slétt.
Endurtakið umferð 1 og 2 þar til prjónaðar hafa verið jafn margar umferðir í kanti neðan á húfu, þ.e.a.s. ca 2-2-3 cm.
Prjónið síðan 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjurnar JAFNFRAMT er fækkað um 24-26-28 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 50-54-58 lykkjur. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Stykkið mælist ca 18-19-21 cm ofan frá og niður.

FRÁGANGUR:
Saumið húfuna saman við miðju að aftan innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.

Mynstur

symbols = litur A - natur
symbols = litur B - bleikfjólublár
symbols = litur C - perlugrár
symbols = í fyrsta skipti sem litur A er sýndur í A.3, á litur A að prjónast slétt (í A.3A, A.3B og A.3C) og litur C er lyft af prjóni (í A.3B)
symbols = útauknings umferð
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 197-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (6)

country flag Anjo wrote:

Looking at the photo, the number of ridges in the button band next to the mosaic pattern is less than expected. This evens out the tighter row tension of the slipped stitch rows and is correct. To do this, you slip the button band stitches on the rows where the colour to be slipped is the same as the colour of the button band, and knit the button band stitches on rows where the other colour is slipped. The slipped colour is always left behind with no need to carry the 2nd colour. It works!

17.11.2022 - 10:30

country flag Anjo wrote:

I understand how to knit the mosaic pattern for the Hint of Heather jacket, but cannot work out how to get the right colour for the button bands without joining on an extra ball of yarn. Because one colour is always left behind at the beginning of each pair of rows, this results in stripes at each end rather than the block of colour as in the photo. How can this be achieved?

02.11.2022 - 17:53

DROPS Design answered:

Hi Anjo, You carry the second strand with you, back and forth on each set of 2 rows (see Mosaic Pattern in Explanations at the top of the pattern). You then use the background colour for the bands. Happy knitting!

03.11.2022 - 07:00

country flag Camilla Aarseth wrote:

Jeg forstår ikke hva jeg gjør med den tråden som jeg ikke strikker med. På filmen ligger den igjen på egne siden, men jeg må jo ha den til stolpen på motsatt side. ? Jeg forstår ikke mosaikk mønster kanskje,? Har sett på filmen flere ganger.

14.10.2020 - 21:41

DROPS Design answered:

Hei Camilla. Prøv å se videoen til luen til denne jakken, kanskje det vil være lettere å forstå. "Hvordan strikke mosaikkmønster til luen i DROPS 197-19" mvh DROPS design

19.10.2020 - 10:56

country flag Cathy wrote:

Bonjour, Peut on tricoter le tricot mosaïque sur des aiguilles droite ? Bien à vous

02.01.2020 - 14:47

DROPS Design answered:

Bonjour Cathy, tout à fait, il sera toutefois plus facile d'utiliser une aiguille circulaire car les mailles seront moins serrées. Bon tricot!

02.01.2020 - 16:15

country flag Hourdebaigt wrote:

Bonjour. Peut on tricoter des poches invisibles sur un top down? Quelle serait la technique? Merci

11.08.2019 - 17:54

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Houdebaigt, cette vidéo montre comment faire une poche dans un modèle top down, sur la base d'un modèle différent. Il vous faudra probablement faire quelques ajustements en fonction du modèle tricoté. Bon tricot!

12.08.2019 - 08:31

country flag Lucie Hardy wrote:

Comment faire suivre la 2e laine sur le rang envers du motif jaquard au point mousse ?

05.12.2018 - 15:44

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Hardy, on tricote toujours 1 couleur par rang, et donc la même couleur au rang sur l'envers qu'au rang sur l'endroit (pas comme du jacquard) - les autres mailles sont seulement glissées. Vous pouvez trouver ici la vidéo de cette technique. Bon tricot!

05.12.2018 - 15:54