DROPS Nord
DROPS Nord
45% Alpakka, 30% Polyamide, 25% Ull
frá 814.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3256.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 197-17
DROPS Design: Mynstur no-019
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

GARN Í ALLT SETTIÐ:
Stærð: S/M – M/L

Efni:
DROPS NORD frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-150 g litur 03, perlugrár
50-100 g litur 13, bleikfjólublár
50-50 g litur 01, natur

HÁLSSKJÓL:
Stærð: S/M – M/L
Mál: Hæð: 30-32 cm. Ummál að neðan: 84-92 cm. Ummál að ofan: 56-60 cm.

Efni:
DROPS NORD frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100 g litur 03, perlugrár
50-50 g litur 13, bleikfjólublár
50-50 g litur 01, natur

VETTLINGAR:
Stærð: S/M - M/L
Lengd: 26 - 27 cm

Efni:
DROPS NORD frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50 g litur 03, perlugrár
50-50 g litur 13, bleikfjólublár
50-50 g litur 01, natur

HÁLSSKJÓL:

PRJÓNFESTA:
23 lykkjur á breidd og 45 umferðir á hæð með garðaprjóni og mosaik mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 60 cm eða 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 60 cm eða 80 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

VETTLINGAR:

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 48 umferðir á hæð með garðaprjóni og mosaik mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN 2,5: lengd 40 cm..
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nord
DROPS Nord
45% Alpakka, 30% Polyamide, 25% Ull
frá 814.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3256.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 122 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 2 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 10.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 10. hverja lykkju.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum er 9. og 10. hver lykkja prjónuð slétt saman.

ÚTAUKNING-2 (á við um op fyrir þumal):
Aukið út fyrir þumal hvoru megin við lykkju með prjónamerki í þannig: Byrjið strax á undan lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með prjónamerki í), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Haldið svona áfram með útaukningu, en í næsta skipti sem aukið er út, er slegið 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við útauknar lykkjur frá fyrri útaukningu, þ.e.a.s. það verða 2 lykkjur fleiri á milli uppsláttar í hvert skipti sem aukið er út.

MOSAIK MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 (hálsskjól) og A.2 (vettlingar) og lesið útskýringu á aðferðinni að neðan.
Hver rönd í mynsturteikningu jafngildir 2 umferðum. Þ.e.a.s. frá réttu er mynsturteikning prjónuð frá hægi til vinstri og frá röngu er sama röð prjónuð frá vinstri til hægri.

Í öllum umferðum frá réttu er þræðinum haldið aftan við stykkið (þ.e.a.s. frá röngu á stykki) þegar lykkjur er lyft af prjóni.
Í öllum umferðum frá röngu er þræðinum haldið framan við stykkið (þ.e.a.s. að þér og ennþá frá röngu á stykki) þegar lykkju er lyft af prjóni. Passið uppá að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki.

Til þess að fá betri yfirsýn yfir mynstur er hægt að setja eitt prjónamerki á milli hverra mynstureininga með A.1B/A.2B.

A.1A/A.2A = Byrjunar lykkja frá réttu og enda lykkja frá röngu (það á að prjóna lykkjuna).
A.1B/A.2B = 1 mynstureining.
A.1C/A.2C = Enda lykkja frá réttu og byrjunar lykkja frá röngu (það á að prjóna lykkjuna).

Í röð sem er alveg einlit í mynsturteikningu eru prjónaðar 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur án þess að lyfta nokkrum lykkjum af prjóni.

Í fyrstu mynsturröð í A.1 og A.2 sem er með auða rúðu í A.1A/A.2A og A.1C/A.2C (litur A – röð er merkt með stjörnu í A.1A/A.2A), eiga allar lykkjur með lit A að prjónast slétt og allar lykkjur með lit C er lyft af prjóni.

Í öðrum mynsturröðum sem hafa auða rúðu eða rúðu með stjörnu í A.1A/A.2A og A.1C/A.2C (lit A eða C), eiga allar lykkjur með lit A eða C að prjónast slétt og allar lykkjur með lit B er lyft af prjóni.

Í hverri mynsturröð sem hefur svarta rúðu í A.1A/A.2A og A.1C/A.2C (litur B), eiga allar lykkjur með lit B að prjónast slétt og allar lykkjur með lit A eða C er lyft af prjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður og saumað saman í lokin.
Fyrst er prjónaður kantur efst, síðan er prjónað mosaik mynstur.
Mikilvægt er að fylgja mynsturteikningu vel. Allt litamynstrið er prjónað í garðaprjóni, en ekki er prjónað mynstur í venjulegar lykkjur í garðaprjóni. Litamynstur er fengið með því að lyfta lykkjum af prjóni. Sjá útskýringu á mosaik mynstri áður en byrjað er að prjóna!

HÁLSSKJÓL:
Fitjið upp 128-140 lykkjur á hringprjón 2,5 með litnum bleikfjólublár.
Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið slétt yfir allar lykkjur.
UMFERÐ 2 (ranga): 1 lykkja slétt, * 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til eftir eru 2 lykkjur á prjóni, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 1 lykkju slétt.
Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stykkið mælist 3 cm frá uppfitjunarkanti.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið MOSAIK MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan. Þ.e.a.s. A.1A er prjónað yfir fyrstu lykkju, A.1B er endurtakið þar til 1 lykkja er eftir á prjóni (= 21-23 mynstureiningar með 6 lykkjum), endið með A.1C yfir síðustu lykkju. Haldið svona áfram með mynstur, en munið eftir að 1 röð í mynsturteikningu = 2 umferðir. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT í hverri röð merktri með ör í A.1B er aukið út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA.
Í röð merktri með ör-1 er aukið út um 18-24 lykkjur jafnt yfir = 146-164 lykkjur (nú er pláss fyrir 24-27 mynstureiningar A.1B með 6 lykkjum).
Í röð merktri með ör-2 er aukið út um 18-18 lykkjur jafnt yfir = 164-182 lykkjur.
Í umferð merktri með ör-3 er aukið út um 18-18 lykkjur jafnt yfir = 182-200 lykkjur.
Í röð merktri með ör-4 er aukið út um 12-14 lykkjur jafnt yfir = 194-214 lykkjur.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er prjónað garðaprjón jafnt yfir = 194-214 lykkjur.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er prjónað garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur með perlugrár þar til stykkið mælist 26-28 cm. JAFNFRAMT í síðustu umferð frá réttu er aukið út um 18-19 lykkjur jafnt yfir = 212-233 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið slétt yfir allar lykkjur.
UMFERÐ 2 (ranga): 1 lykkja slétt, * 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á prjóni og endið með 1 lykkju slétt.
Endurtakið umferð 1 og 2 þar til kanturinn mælist 3 cm. Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Hálsskjólið mælist ca 30-32 cm ofan frá og niður.

FRÁGANGUR:
Saumið stykkið saman í hlið innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.

-------------------------------------------------------

VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Vettlingarnir eru prjónaðir fram og til baka á hringprjón, neðan frá og upp og saumaðir saman í hlið í lokin. Fyrst er prjónaður kantur neðst. Síðan er prjónað mosaik mynstur, áður en haldið er áfram í garðaprjóni með litnum perlugrár.
Mikilvægt er að fylgja mynsturteikningu vel. Allt litamynstrið er prjónað í garðaprjóni, en ekki er prjónað mynstur í venjulegar lykkjur í garðaprjóni. Litamynstur er fengið með því að lyfta lykkjum af prjóni. Sjá útskýringu á mosaik mynstri áður en byrjað er að prjóna! Þumlar eru prjónaðir í hring á sokkaprjóna.

HÆGRI VETTLINGUR:
Fitjið upp 48-51 lykkjur á hringprjón 2,5 með litnum bleikfjólublár. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið slétt yfir allar lykkjur.
UMFERÐ 2 (ranga): 1 lykkja slétt, * 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju brugðna og endið með 1 lykkju slétt. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stykkið mælist 3 cm í báðum stærðum.
Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið 2 umferðir garðaprjón með litnum bleikfjólublár þar sem fækkað er um 2-1 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 46-50 lykkjur í umferð.
Prjónið síðan MOSAIK MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan. Þ.e.a.s. A.2A er prjónað yfir fyrstu lykkju, A.2B er endurtekið þar til eftir er 1 lykkja á prjóni (= 11 mynstureiningar A.2B með 4 lykkjum), endið með A.2C yfir síðustu lykkju. Haldið svona áfram með mynstur, en munið eftir að 1 röð í mynsturteikningu = 2 umferðir. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónað garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur með litnum perlugrár – JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu eftir A.2 er fækkað um 2-4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 44-46 lykkjur. Þegar stykkið mælist 9-10 cm er sett 1 prjónamerki í 23.-24. lykkju í umferð (frá réttu).
Í næstu umferð frá réttu er aukið út fyrir op fyrir þumal hvoru megin við lykkju með prjónamerki í – sjá ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 7-8 sinnum = 58-62 lykkjur.
Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 15½-16½ cm. Setjið nú 15-17 þumal lykkjur á þráð. Í næstu umferð er fitjuð upp 1 ný lykkja aftan við þumallykkjur = 44-46 lykkjur í umferð.
Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 23-24 cm. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 4 lykkjur jafnt yfir = 40-42 lykkjur. Prjónið 3 umferðir slétt. Í næstu umferð er fækkað um 4 lykkjur jafnt yfir = 36-38 lykkjur. Endurtakið úrtöku með 4 lykkjum í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 7 sinnum = 12-14 lykkjur eftir á prjóni. Prjónið 1 umferð slétt. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 6-7 lykkjur eftir á prjóni. Klippið frá. Þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 26-27 cm ofan frá og niður.

ÞUMALL:
Deilið 15-17 lykkjum af þræði á sokkaprjón 3 og prjónið að auki upp 2 lykkjur í kanti á bakhlið á þumallykkjum = 17-19 lykkjur. Prjónið GARÐAPRJÓN hringinn á sokkaprjóna – sjá útskýringu að ofan. Þegar þumallinn mælist 5½-6 cm prjónið allar lykkjur slétt saman 2 og 2 = 9-10 lykkjur. Prjónið 1 umferð án úrtöku. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 5-5 lykkjur. Klippið frá. Þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Þumallinn mælist ca 5½-6 cm ofan frá og niður.

FRÁGANGUR:
Saumið vettlinginn saman í hlið – saumið kant í kant í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur.

VINSTRI VETTLINGUR:
Fitjið upp 48-51 lykkjur á hringprjón 2,5 með litnum bleikfjólublár. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið slétt yfir allar lykkjur.
UMFERÐ 2 (ranga): 1 lykkja slétt, * 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju brugðna og endið með 1 lykkju slétt. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stykkið mælist 3 cm í báðum stærðum.
Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið 2 umferðir garðaprjón með litnum bleikfjólublár þar sem fækkað er um 2-1 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 46-50 lykkjur í umferð.
Prjónið síðan MOSAIK MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan. Þ.e.a.s. A.2A er prjónað yfir fyrstu lykkju, A.2B er endurtekið þar til eftir er 1 lykkja á prjóni (= 11 mynstureiningar A.2B með 4 lykkjum), endið með A.2C yfir síðustu lykkju. Haldið svona áfram með mynstur, en munið eftir að 1 röð í mynsturteikningu = 2 umferðir. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónað garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur með litnum perlugrár – JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu eftir A.2 er fækkað um 2-4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 44-46 lykkjur. Þegar stykkið mælist 9-10 cm er sett 1 prjónamerki í 21.-22. lykkju í umferð (frá réttu).
Í næstu umferð frá réttu er aukið út fyrir op fyrir þumal hvoru megin við lykkju með prjónamerki í – sjá ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 7-8 sinnum = 58-62 lykkjur.
Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 15½-16½ cm. Setjið nú 15-17 þumal lykkjur á 1 band. Í næstu umferð er fitjuð upp 1 ný lykkja aftan við þumal lykkjur = 44-46 lykkjur í umferð.
Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 23-24 cm. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 4 lykkjur jafnt yfir = 40-42 lykkjur. Prjónið 3 umferðir slétt. Í næstu umferð er fækkað um 4 lykkjur jafnt yfir = 36-38 lykkjur. Endurtakið úrtöku með 4 lykkjum í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 7 sinnum = 12-14 lykkjur eftir á prjóni. Prjónið 1 umferð slétt. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 6-7 lykkjur eftir á prjóni. Klippið frá. Þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þráði og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 26-27 cm ofan frá og niður.
Prjónið þumal á sama hátt og á hægri vettlingi.

Mynstur

symbols = litur A - natur
symbols = litur B - bleikfjólublár
symbols = litur C - perlugrár
symbols = Í fyrsta skipti litur A í A.1 og A.2, á litur A að prjónast slétt (í A.1A/A.2A, A.1B/A.2B og A.1C/A.2C) og litur C er lyft af (í A.1B/A.2B)
symbols = útauknings umferð
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 197-17

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (7)

country flag Kellie Meade wrote:

When knitting the yarn over on the wrong side, it there supposed to be a hole after knitting it? Or am I supposed to knit like it is a twisted yarn over? Thanks very much.

07.02.2021 - 02:34

DROPS Design answered:

Dear Mrs Meade, yarn overs are worked knitted twisted to avoid holes. Happy knitting!

08.02.2021 - 11:35

country flag Kellie Meade wrote:

When working the mosaic pattern, is the wrong side a knit row following the mosaic pattern?

30.11.2020 - 13:24

DROPS Design answered:

Dear Mrs Meade, from WS work all rows in garter stitch as shown in the diagram (= read now diagram from the left towards the right) holding yarn in front of piece (i.e. towards you and still on wrong side of piece) when slipping a stitch. Make sure that the yarn is not too tight on wrong side of piece. See also that video. Happy knitting!

30.11.2020 - 16:11

country flag Gingras Suzanne wrote:

Bonjour POUR LE PATRON DROPS design: Modèle n°-019 \r\nHINT OF HEATHER SET\r\nJe voudrai avoir des explications supplémentaires entre les lignes 9, 10, 11 pour le changement de couleur du diagramme A1B

17.01.2019 - 21:21

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gingras, les rangs 9 et 10 se tricotent en coloris A, seules les mailles indiquées en coloris A sont tricotées, les autres sont glissées. Au rang 10, vous tricotez en coloris B et glissez les mailles représentées en coloris A dans le diagramme. Bon tricot!

18.01.2019 - 08:54

country flag Gingras Suzanne wrote:

Bonjour POUR LE PATRON DROPS design: Modèle n°-019 \r\nHINT OF HEATHER SET\r\nJe voudrai avoir des explications supplémentaires entre les lignes 9, 10, 11 pour le changement de couleur du diagramme A1B

17.01.2019 - 21:15

country flag Irmgard wrote:

Brauche dringend die Anleitung zu diesem Modell!!!Danke

10.08.2018 - 15:06

country flag Ilse wrote:

Würde gern dieses Modell Stricken, kann aber die Anleitung nicht aufmachen! Was soll ich tun? Danke

23.07.2018 - 17:45

country flag Ilse wrote:

Würde gern dieses Modell Stricken, kann aber die Anleitung nicht aufmachen! Hab keinen passenden Namen gefunden! Danke

23.07.2018 - 17:20