DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Lemon Pie Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 195-11
DROPS Design: Mynstur u-855
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-450-450-500-550-600 g litur 79, sítróna
150-150-150-200-200-200 g litur 01, natur
50-50-50-50-50-50 g litur 72, ljós perlugrár

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni og mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón og mynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

DROPS STÁLTALA, Hringlaga (silfur) NR 533: 7-7-7-8-8-8 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Til þess að reikna út hvernig fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 108 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 31) = 3,2
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ekki er aukið út yfir kanta að framan.

UPPHÆKKUN (aftan í hnakka):
Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir að hafa upphækkun.
Setjið 1 merkiþráð í miðju lykkju í umferð. Byrjið frá réttu með litnum ljós perlugrár og prjónið 15-16-17-18-19-20 lykkjur slétt framhjá lykkju með merkiþræði, snúið, herðið á þræði og prjónið 31-33-35-37-39-41 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 46-49-52-55-58-61 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 61-65-69-73-77-81 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 76-81-86-91-96-101 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið út umferðina (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni).
Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1, A.3, A.4, A.5 og A.6).
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR-1 (á við um kanta að framan):
Í umferðum þar sem mynsturborði er með 2 litum er einnig prjónað með grunnlit yfir 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað.
Mikilvægt er að prjónfestan haldist einnig á hæðina, annars kemur berustykkið til með að verða of stutt og handvegur of þröngur!

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 2 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki í, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með prjónamerki), prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar stykkið er mátað). 1 hnappagat = Prjónið frá réttu þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm.
Fellið síðan af fyrir 6-6-6-7-7-7 næstu hnappagötum með ca 8-8½-9-8-8½-8½ cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Eftir kant í hálsmáli er prjónuð upphækkun aftan í hnakka þannig að berustykkið verði aðeins hærra á bakstykki. Hægt er að sleppa þessari upphækkun og þá verður hálsmál alveg eins að framan og að aftan – sjá útskýringu í uppskrift.
Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 108-112-116-120-124-132 lykkjur meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju) á hringprjón 3,5 með litnum ljós perlugrár.
Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 31-33-35-37-37-39 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 139-145-151-157-161-171 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð brugðið (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni).
Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka - sjá útskýringu að ofan, eða farið beint áfram í BERUSTYKKI.

BERUSTYKKI:
Lesið LEIÐBEININGAR-1 og LEIÐBEININGAR-2!
Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1A (= 2 lykkjur) þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með mynstur þar til A.1 hefur verið prjónað til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið 2-2-2-2-4-8 umferðir sléttprjón með litnum sítróna og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 34-36-38-48-52-58 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 173-181-189-205-213-229 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.2A þar til 8 lykkjur eru eftir á prjóni (= 20-21-22-24-25-27 mynstureiningar með A.2A með 8 lykkjum), prjónið A.2B (= 3 lykkjur) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör er aukið út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan:
Í umferð með ör-1 er aukið út um 34-42-50-50-58-58 lykkjur jafnt yfir = 207-223-239-255-271-287 lykkjur (nú er pláss fyrir 24-26-28-30-32-34 mynstureiningar A.2A með 8 lykkjum).
Í umferð með ör-2 er aukið út um 32-40-48-48-56-56 lykkjur jafnt yfir = 239-263-287-303-327-343 lykkjur (nú er pláss fyrir 28-31-34-36-39-41 mynstureiningar A.2A með 8 lykkjum og A.2B er nú 5 lykkjur).
Í umferð með ör-3 er aukið út um 24-36-36-44-44-52 lykkjur jafnt yfir = 263-299-323-347-371-395 lykkjur.
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónað frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan með garðaprjóni, prjónið A.3A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 21-24-26-28-30-32 mynstureiningar með A.3A með 12 lykkjum), prjónið A.3B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur.
JAFNFRAMT í umferð með ör-4 er aukið út um 20-16-16-20-20-20 lykkjur jafnt yfir = 283-315-339-367-391-415 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til síðasta umferð í A.3 er eftir. Prjónið síðustu umferðina frá réttu þannig: Prjónið 47-51-54-59-64-69 lykkjur eins og útskýrt er í síðustu umferð í A.3 (= framstykki), setjið næstu 52-60-66-70-72-74 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 85-93-99-109-119-129 lykkjur eins og síðasta umferð í A.3 sýnir (= bakstykki), setjið næstu 52-60-66-70-72-74 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 47-51-54-59-64-69 lykkjur sem eftir eru eins og síðasta umferð í A.3 sýnir (= framstykki).
Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 195-211-227-247-271-295 lykkjur. Í stærð S og M er fyrst prjónað A.4 og A.5 eins og útskýrt er að neðan og í L er prjónað A.5 eins og útskýrt er að neðan. Í öðrum stærðum (XL, XXL og XXXL) er A.4 og A.5 nú þegar prjónað (í A.3), farið því beint áfram í ALLAR STÆRÐIR í þremur stærstu stærðunum.
Fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu þannig (mynsturteikning er lesin frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu):

STÆRÐ S og M: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.4B (= 1 lykkja), prjónið A.4A þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni (= 46-50 mynstureiningar með 4 lykkjum) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka er prjónað A.5 alveg eins JAFNFRAMT í umferð með ör-5 í A.5 er aukið út um 16 lykkjur jafnt yfir í báðum stærðum = 211-227 lykkjur. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka er prjónað áfram eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR!

STÆRÐ L: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.5B (= 1 lykkja), prjónið A.5A þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni (= 54 mynstureiningar með 4 lykkjum) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur JAFNFRAMT í umferð með ör-5 er aukið út um 16 lykkjur jafnt yfir = 243 lykkjur.
Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka er prjónað áfram eins og útskýrt er í ALLAR STÆRÐIR!

ALLAR STÆRÐIR:
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.6B (= 1 lykkja), prjónið A.6A þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni (= 50-54-58-59-65-71 mynstureining með A.6A með 4 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur.
JAFNFRAMT í umferð merktri með ör-5 í A.6A er aukið út um 16 lykkjur jafnt yfir (á einungis við stærð XL, XXL og XXXL og á einungis við í fyrsta skipti sem A.6 er prjónað á hæðina í þessum stærðum) = 211-227-243-263-287-311 lykkjur í umferð.
Haldið áfram með A.6 þar til stykkið mælist ca 31 cm frá skiptingu í öllum stærðum, en stillið af þannig að næsta umferð sé prjónuð frá röngu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með litnum sítróna þar sem aukið er út um 53-57-61-65-69-77 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 264-284-304-328-356-388 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff frá réttu þannig (með litnum sítróna): 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið síðan laust af með garðaprjón yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).
Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 52-60-66-70-72-74 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4,5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 60-68-76-80-84-88 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur undir ermi, þ.e.a.s. setjið prjónamerki í fyrstu lykkju eftir miðju, teljið 29-33-37-39-41-43 lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= miðjulykkja). Nú eru 29-33-37-39-41-43 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónamerki undir ermi á að nota síðar þegar lykkjum er fækkað og prjónamerki mitt ofan á ermi á að nota til að telja hvar mynstrið byrjar.
LESIÐ AFGANG AF KAFLA UM ERMI ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Prjónið síðustu umferð í A.3A þannig að A.3 endi á sama stað eins og á fram- og bakstykki.
STÆRÐ S og M: Prjónið A.4A hringinn (= 15-17 mynstureiningar með 4 lykkjum), teljið út frá miðju – miðjulykkjan í A.4A á að passa við lykkju með prjónamerki í mitt ofan á ermi. Þegar A.4A hefur verið prjónað til loka er prjónað A.5A hringinn. Eftir A.5A er prjónað A.6A hringinn. A.6A er endurtekið alveg niður að stroffi.
STÆRÐ L: Prjónið A.5A hringinn (= 19 mynstureiningar með 4 lykkjum), en teljið út frá miðju – miðjulykkjan í A.5A á að passa við lykkju með prjónamerki mitt ofan á ermi. Eftir A.5A er haldið áfram með A.6A alveg niður að stroffi.
STÆRÐ XL, XXL og XXXL: Prjónið A.6A hringinn (= 20-21-22 mynstureiningar með 4 lykkjum), en teljið út frá miðju – miðjulykkja í A.6A á að passa við lykkju með prjónamerki mitt ofan á ermi. Haldið áfram með A.6A alveg niður að stroffi.
ÚRTAKA:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2-2-2-2-3-3 cm fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 6 -4-2½-2½-2-1½ cm millibili alls 7-10-13-14-15-16 sinnum = 46-48-50-52-54-56 lykkjur.
Þegar ermin mælist ca 40-39-37-35-34-32 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis) prjónið 1 umferð slétt með sítróna þar sem aukið er út um 2-0-2-0-2-0 lykkjur jafnt yfir = 48-48-52-52-56-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur (ef affellingarkanturinn verður stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 8. hverri lykkju jafnframt því sem fellt er af – uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 45-44-42-40-39-37 cm frá skiptingu og niður.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = ljós perlugrár
symbols = sítróna
symbols = natur
symbols = útauknings umferð
symbols = miðjulykkja á ermi
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 195-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag RIGMOR wrote:

Hei dere! Jeg synes denne oppskriften er forklart/satt sammen på en veldig forvirrende måte. Med 18 forskjellige diagramdeler, er det etter min mening 17 for mye. Jeg sitter og ser på Setesdal med rundfelling i boka "42 norske kofter", og der er det 1 diagram til hele bærestykket med fellingene skrevet inn ved siden av aktuell rad. Selve mønsterteksten er bare på 1 side. Det går også fram av tidligere spørsmål at en del er uklart. Håper dere kan forenkle mer i framtida. Takk!

30.01.2023 - 20:52

country flag Suzanne Crosier wrote:

Hi I'm working on size XL and getting to end if row on 4th increase on A3A. And I don't have 12 stitches left to make complete pattern repeat I only have 8 stitches.

21.07.2022 - 17:29

DROPS Design answered:

Hi Suzanne, sometimes the stitch count is not divisible with full/whole repeats of the diagram in width. This is usually the case where the diagram is a repetitive pattern, so that regardless of working full repeats, the pattern will still be consistent. Please also see the lesson Drops HERE. Happy knitting!

22.07.2022 - 22:22

country flag Ella wrote:

Hello, When knitting a size Small, and looking at the A.3A pattern, I understand that I need to stop after I knit 12 rows, is that correct? So I wouldn’t knit the top 8 rows, those are for larger sizes?

20.03.2022 - 23:05

DROPS Design answered:

Dear Ella, yes, that's correct, you don't need to knit the top 8 rows. Happy knitting!

26.03.2022 - 20:01

country flag Anna wrote:

So “completed” means two rows: one RS and one WS? I’m just trying to make sure that the next time I see “ work pattern until completed” I know what it means. Thank you for all your help,

11.03.2022 - 04:13

DROPS Design answered:

Dear Anna, correct, "completed" means here until the diagrams are done, so 2 rows in your size. Happy knitting!

11.03.2022 - 09:57

country flag Anna wrote:

Thank you for being so patient with me, I figured out that the pattern just didn't mention the WS directions and I had to use my own judgement to make the ribbing work. I did exactly how you wrote and it looks great. I have a question regarding the yoke. It says "Continue this patterns until A.1 has been completed." I'm not sure what "completed" means. The directions are for one row. What do I do after I complete one row of A.1? Do I do it again?

10.03.2022 - 17:25

DROPS Design answered:

Dear Anna, it means you now just work following diagram A.1 (= 2 rows): ie from RS: 5 sts in garter st, repeat A.1A and end with A.1B (1 st) and 5 sts in garter st. From WS work: 5 sts in garter st, A.1B , repeat A.1A (reading left towards right) and 5 sts in garter stitch. Happy knitting!

10.03.2022 - 18:35

country flag Anna wrote:

I don’t know what I am doing wrong but I do 5 stitches in garter (which is all knit) then I knit 2 and purl 2. So stitch 7 and 8 are knits. When I get to the 9th stitch, I purl, but the stitch below is not a purl, it’s a knit so I am not getting a rib.

09.03.2022 - 19:52

DROPS Design answered:

Dear Anna, from WS work: 5 sts in garter stitch, *purl 2, knit 2*, repeat from *-* until 7 sts remain, finish with purl 2, 5 sts in garter stitch. Happy knitting!

10.03.2022 - 10:07

country flag Anna wrote:

For the small size, do I cast on 108 stitches total, or 118 (108+5+5 for the band stitches?) when I cast on 108 and follow the pattern, my ribbing is totally off, my knit and purl stitches do not line up across rows. When I do the math, 108-5-5=98 and you can’t divide 98 by 4 (2 knit and 2 purl) when I do the math with 118 stitches, it’s 118-5-5=108 then 108 divides into 4 so I’m guessing the 2 knit+2 purl=4 stitches would mean by purls and knits line up

09.03.2022 - 04:16

DROPS Design answered:

Dear Anna, cast on 108 sts and work: 5 sts in garter stitch, *knit 2, purl 2* a total of 24 times , 7 sts remain, knit 2 and 5 sts in garter stitch so that = 5+ 4x24 + 2+5= 108 - and the ribbing will look the same on each side (starting and ending with K2). Happy knitting!

09.03.2022 - 19:08

country flag Mia Merethe wrote:

Strikker denne i str s, men så lurer jeg litt på mønster diagrammet; er det så at i denne str ikke skal strikke den øverste delen av diagram A.3A?

30.09.2019 - 09:37

DROPS Design answered:

Hej Mia, ja det stemmer, du strikker kun det i rammen for størrelse S. God fornøjelse!

01.10.2019 - 15:18

country flag Tone wrote:

Hei. I introen står det at vi trenger 80 cm rundpinne str 4,5, mens i selve oppskriften finner jeg bare 80cm str.3,5. Eneste stedet jeg ser 4,5 er på settpinner/liten rundpinne på ermene. Når skal jeg bytte til 80 cm 4,5 og skal settpinner/liten rundpinne 3,5 brukes nederst på ermene? Annet i forhold til hvilke pinner når?

07.08.2019 - 21:14

DROPS Design answered:

Hej Tone, du bytter til pind 4,5 lige efter halskanten. Se her: .... Strikk 1 pinne rett fra retten der det økes 31-33-35-37-37-39 masker jevnt fordelt – les ØKETIPS = 139-145-151-157-161-171 masker. Bytt til rundpinne 4,5. .... God fornøjelse!

09.08.2019 - 10:36

country flag Annelie Saxvold wrote:

Stickar i baby palett som har en sträckning på 27 m stickor 3,5

20.07.2019 - 14:18

DROPS Design answered:

Hei Annelie. Ønsket du hjelpe med det du skrev og evnt hva? mvh Drops design

02.09.2019 - 11:00