DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5544.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Little Missy

Prjónuð peysa fyrir börn með hringlaga berustykki úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með norrænu mynstri. Stærð 12 mán – 12 ára.

DROPS Children 32-7
DROPS Design: Mynstur me-043-bn
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

Stærð: 12/18 mán (2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12) ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
80/86 (92 - 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152)

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
200 (200-200-250-250-250-300) g litur 30, sinnep
100 (100-100-150-150-150-150) g litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4 – fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3 – fyrir stroff á ermum.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 60 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5544.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING:
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 72 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 12.
Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna 11. og 12. hverja lykkju saman, eða aukið út á eftir 12. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn (uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð svo að ekki myndist gat).

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út við bæði prjónamerkin (= 4 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

UPPHÆKKUN (aftan í hnakka):
Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir að hafa upphækkun. Setjið 1 prjónamerki ca við miðju að framan (þ.e.a.s. á eftir 33 (36-38-42-42-46-46) lykkjum).
Prjónið slétt þar til eftir eru 8 (8-8-10-10-12-12) lykkjur á undan prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið brugðið þar til eftir eru 8 (8-8-10-10-12-12) lykkjur í hinni hliðinni, snúið, herðið á þræði og prjónið slétt þar til eftir eru 16 (16-16-18-18-20-20) lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið brugðið þar til eftir eru 16 (16-16-18-18-20-20) lykkjur í hinni hliðinni. Haldið áfram að prjóna yfir 8 lykkjur færri í hvert skipti sem snúið er við 2 sinnum til viðbótar í hvorri hlið, herðið á þræði og prjónið slétt að miðju að aftan.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring, ofan frá og niður. Fyrst er berustykkið prjónað sem síðan skiptist fyrir ermar og fram- og bakstykki. Umferðin byrjar ca við miðju að aftan. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 72 (76-80-84-88-96-100) lykkjur á sokkaprjóna/hringprjón 3 með litnum sinnep (í 2 minnstu stærðunum verður að fitja upp og prjóna með sokkaprjónum áður en lykkjum fjölgar, í hinum stærðunum er hægt að fitja upp og prjóna með stuttum hringprjón).
Prjónið 1 umferð slétt. Síðan er prjónað stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið).
Haldið svona áfram með stroff í 3 cm.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á sokkaprjóna/hringprjón 4.
Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 6 (4-3-0-4-5-9) lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 66 (72-77-84-84-91-91) lykkjur.
Nú er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka þannig að berustykki verði aðeins hærra á bakstykki. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – prjónið UPPHÆKKUN – sjá útskýringu að ofan, eða haltu áfram áfram.
Prjónið mynstur eftir A.1 - ATH: Veldu mynsturteikningu fyrir rétta stærð (= 11 (12-11-12-12-13-13) mynstureiningar með 6 (6-7-7-7-7-7) lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 176 (192-209-228-240-260-260) lykkjur í umferð.
Prjónið síðan sléttprjón með litnum sinnep. Í næstu umferð er aukið út um 7 (7-10-7-3-0-11) lykkjur jafnt yfir = 183 (199-219-235-243-260-271) lykkjur.
Þegar stykkið mælist 13 (14-15-16-17-18-19) cm mælt við miðju að framan (mælt án kants í hálsmáli), skiptist stykkið þannig: Prjónið 25 (27-30-32-34-36-38) lykkjur, setjið næstu 42 (46-50-54-54-58-60) lykkjur á þráð fyrir ermi (án þess að prjóna þær fyrst), fitjið upp 8 nýjar lykkjur á prjóninn, prjónið 49 (53-59-63-67-72-75) lykkjur, setjið næstu 42 (46-50-54-54-58-60) lykkjur á þráð fyrir ermi (án þess að prjóna þær fyrst), fitjið upp 8 nýjar lykkjur á prjóninn og prjónið þær 25 (27-30-32-34-36-38) lykkjur sem eftir eru eins og áður = 115 (123-135-143-151-160-167) lykkjur.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8 lykkja sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi (= 57 (61-67-71-75-80-83) lykkjur á milli prjónamerkja á framstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar stykkið mælist 3 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum, aukið út hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING.
Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 6 og 9 cm frá skiptingu = 127 (135-147-155-163-172-179) lykkjur. Þegar stykkið mælist 11 (13-16-19-22-25-28) cm frá skiptingu, aukið út um 9 (9-9-9-9-8-9) lykkjur í næstu umferð = 136 (144-156-164-172-180-188) lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3.
Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Öll peysan mælist ca 34 (37-41-45-49-53-57) cm, mælt frá öxl.

ERMI:
Setjið lykkjur af þræði á sokkaprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 50 (54-58-62-62-66-68) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8 lykkjur (= mitt undir ermi). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón hringinn með litnum sinnep. Þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 1½ (2-2-2½-3-3½-3½) cm millibili alls 6 (6-8-8-8-8-9) sinnum = 38 (42-42-46-46-50-50) lykkjur. Þegar ermin mælist 14 (16-21-24-28-31-35) cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur jafnt yfir = 36 (40-40-44-44-48-48) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm eða að óskaðri lengd.
Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist alls ca 18 (20-25-28-32-35-39) cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = sinnep
symbols = natur
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn með grunnlit í mynsturrönd, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Little Missy

Minna, Sweden

Little Missy

Amma Knitwear, Netherlands

Little Missy

ammaknitwear, Netherlands

Little Missy

Alyssa, Canada

Little Missy

Léa, France

Little Missy

Naomi, United Kingdom

Little Missy

DonaLenka, Czech Republic

Little Missy

anasboutique, Romania

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 32-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (86)

country flag LABERNIA wrote:

J'ai tricoté ce pull en 2 ans. Mon tour premier pull en top down circulaire. J'ai beaucoup apprécié vos explications pour la rehausse à l allemande, (sinon j avais des trous) . Je voulais vous montrer la photo mais je ne sais pas comment faire.

11.04.2024 - 09:40

DROPS Design answered:

Bonjour! Vous pouvez envoyer le lien a votre projetICI. Vous pouvez aussi ajouter la photo sur notre page facebook ICI.

11.04.2024 - 10:07

country flag Emmy wrote:

Is there a matching adults pattern?

01.04.2024 - 19:53

DROPS Design answered:

Dear Emmy, unfortunately we do not have pattern for an adult sweater that would be an exact match, but HERE are all our nordic pattern sweaters, look through them, maybe you find something that catches your eye. Mybe THIS one could be made to look a bit like that children's sweater, with some modifications. Happy Knitting!

01.04.2024 - 20:26

country flag Emmy wrote:

Hello, I am currently working this in size 2 - for the YO increases, which colour is the background colour? Thank you?

30.03.2024 - 06:45

DROPS Design answered:

Dear Emmy, the background color is the mustard color (DROPS Merino Extrafine, no.30 mustard). Happy Knitting!

30.03.2024 - 10:01

country flag Marie wrote:

Vilken färg ska man göra ökningsomslaget i, bottenfärgen, är det senap i detta fallet?

19.02.2024 - 21:13

DROPS Design answered:

Hej Marie, du laver omslaget i samme farve som den farve du skal strikke næst :)

22.02.2024 - 12:08

country flag Cecilie Krüger wrote:

Det mangler informasjon om hvor lang bolen skal være før det strikkes vrangbord nederst. Hvis du følger oppskriften, skal du i minste størrelse begynne på vrangborden når arbeidet måler 11 cm fra delingen, det stemmer ikke med hel lengde på 34 cm.

19.02.2024 - 13:44

country flag Anja wrote:

Wenn man von Children 32-7 einen Link verschickt, wird ein Foto mit einem anderen nordischen Muster gezeigt. Es ist anders als das in der Anleitung. Im Untertitel steht "ammaknitwear, netherlands". Ich würde gerne dieses Muster nachstricken. Aber in der Anleitung findet man diese Alternative nicht.

09.02.2024 - 08:02

DROPS Design answered:

Liebe Anja, so hat eine Strickerin dieses Modell gestrickt; klicken Sie auf dem Bild um dieses Projekt in die Galerie zu sehen, dann wieder auf dem Foto klicken, und "Projekt ansehen" wählen, so lesen Sie mehr über dieses Projekt. Viel Spaß beim stricken!

09.02.2024 - 08:24

country flag Anja wrote:

Der Pullover in Senf auf dem Fell hat ein anderes Zählmuster, das mir noch besser gefällt. Könnt ihr das auch zur Verfügung stellen?

08.02.2024 - 17:18

DROPS Design answered:

Liebe Anja, das ist ja die Anleitung für den Pullover in Senf mit nordischen Muster in Natur, oder meinten Sie ein anderes Modell?

09.02.2024 - 07:39

country flag Diane Chidzey wrote:

I have just knitted this pattern in size 3/4. I am a very experienced knitter so was surprised when it didn’t work out from the chart. Size 3/4 has a 6 stitch repeat but on your chart it is given as a 7 stitch repeat along with age 5/6. When I followed the age 2 diagram which has 6 stitch repeat, the pattern worked perfectly. I thought you would like to know so you can put an errata for that size. I love your patterns! Thanks.

28.12.2023 - 18:37

country flag Toran wrote:

Hallo :) gibt es von dem Muster her auch eine Anleitung für Erwachsenen Pullover? Ich würde mir den gerne stricken, brauche allerdings eine detaillierte Anleitung. Wäre super wenn es eine Anleitung gibt für eine Erwachsenen Version mit genau diesem Muster :) Vielen Dank schon mal!

26.12.2023 - 21:41

DROPS Design answered:

Liebe Toran, hier finden Sie alle unsere Anleitungen für nordische Pullover, vielleicht wird Ihnen ein davon gefallen. Viel Spaß beim stricken!

02.01.2024 - 08:38

country flag Margrit Thüring wrote:

Guten Tag Ich habe nach anfänglichen Schwierigkeiten, aber Dank Ihrer kompetenten raschen Antwort den Pullover Little Missy 32-7 in Grösse 110/116 , fertig gestrickt. Ich hätte nun gerne noch die dazu passende Pommel-Mütze in Grösse 110/116 gestrickt. In Ihren Anleitungen fand ich leider nichts. Ist es evt. garnicht möglich mit diesem Muster, da im Rapport zugenommen wird ? Für Ihre Antwort danke ich Ihnen und grüsse Sie freundlich

17.12.2023 - 14:08

DROPS Design answered:

Liebe Frau Thüring, leider haben wir kein passendes Modell, aber vielleicht kann Ihnen ein von diesen Modellen inspirieren. Viel Spaß beim stricken!

18.12.2023 - 08:44