Autumn Flowers |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Heklað sjal með stuðlahópum. Stykkið er heklað úr DROPS Delight.
DROPS 197-32 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2 fyrir fimmhyrning, sjá mynsturteikningu A.3, A.4, A.5 og A.6 fyrir hliðar. Teikning sýnir form á sjali og númer á hornum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað frá miðju og út í fimmhyrning. Síðan er heklað áfram meðfram 2 af hliðunum. Að lokum er heklaður kantur í kringum allt sjalið. FIMMHYRNINGUR: Notið heklunál 3,5 með Delight. Heklið mynsturteikningu A.1. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka eru 5 stuðlahópar með 2 loftlykkjum á milli stuðlahópa. Heklið síðan mynsturteikningu A.2, mynsturteikning er endurtekin alls 5 sinnum í umferð. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð 1 sinni á hæðina er haldið áfram með mynstur og útaukningar alveg eins, þ.e.a.s. aukið út um 2 stuðla og 2 loftlykkjur í hverri umferð. Stykkið formast þá í fimmhyrning, með 5 sléttar hliðar með stuðlahópum á hverju horni. Haldið áfram að hekla og auka út svona þar til hvor hlið mælist ca 42 cm (mælt meðfram 1 af hliðunum á milli 2 horna). Klippið frá og festið enda. Nú er heklað áfram fram og til baka á milli horna 1 og 2 og horna 5 og 4, sjá mynsturteikningu sem sýnir í hvaða horn á að hekla í. HLIÐ 1: Á milli horna 1 og 2 er heklað frá réttu á stykki þannig: ATH! Að umferð merkt með stjörnu í mynsturteikningu hefur nú þegar verið hekluð, þetta sýnir einungis hvernig hekla á næstu umferð. UMFERÐ 1: Heklið A.3, endurtakið A.4 þar til 5 loftlykkjubogar eru eftir (meðtalinn loftlykkjubogi í stuðlahópi í horni) og endið með að hekla A.5. UMFERÐ 2: Heklið A.5, endurtakið A.4 þar til 1 loftlykkjubogi er eftir og endið með að hekla A.3. UMFERÐ 3: Heklið A.3, endurtakið A.4 þar til 4 loftlykkjubogar eru eftir (meðtaldar loftlykkjur í lok umferðar) og endið með að hekla A.5. UMFERÐ 4: Heklið A.5, endurtakið A.4 þar til 1 loftlykkjubogi er eftir og endið með A.3. Endurtakið síðan UMFERÐ 3 og UMFERÐ 4, fækkið þá um 2 stuðla + 1 loftlykkjuboga á vinstri hlið á stykki (séð frá réttu) í hvert sinn sem umferðin er endurtekin. Haldið áfram að hekla og fækka lykkjum svona þar til einungis 4 loftlykkjubogar eru eftir (meðtaldar loftlykkjur í lok umferðar). Umferðin er nú alveg eins og umferð sem merkt er með stjörnu í A.6. Heklið mynsturteikningu A.6 einu sinni til viðbótar á hæðina. Klippið frá og festið enda. HLIÐ 2: Á milli horna 5 og 4 er heklað frá röngu á stykki. UMFERÐ 1: Heklið A.3, endurtakið A.4 þar til 5 loftlykkjubogar eru eftir (meðtalinn loftlykkjubogi í stuðlahóp í horni) og endið með að hekla A.5. UMFERÐ 2: Heklið A.5, endurtakið A.4 þar til 1 loftlykkjubogi er eftir og endið með að hekla A.3. UMFERÐ 3: Heklið A.3, endurtakið A.4 þar til 4 loftlykkjubogar eru eftir (meðtaldar loftlykkjur í lok umferðar) og endið með að hekla A.5. UMFERÐ 4: Heklið A.5, endurtakið A.4 þar til 1 loftlykkjubogi er eftir og endið með A.3. Endurtakið síðan UMFERÐ 3 og UMFERÐ 4, það fækkar um 2 stuðla + 1 loftlykkjuboga á hægri hlið á stykki (séð frá réttu) í hvert sinn sem umferðirnar eru endurteknar. Haldið síðan áfram að hekla og fækka lykkjum svona þar til einungis 4 loftlykkjubogar eru eftir (meðtaldar loftlykkjur í lok umferðar). Umferðin er nú eins og umferð merkt með stjörnu í A.6. Heklið mynsturteikningu A.6 einu sinni á hæðina, en klippið ekki frá á eftir síðustu umferð, snúið stykkinu þannig að hægt sá að hekla héðan frá réttu. KANTUR: Heklið nú 1 umferð í kringum allt stykkið: * Heklið 2 loftlykkjur, hoppið yfir í næstu umferð/loftlykkjuboga og heklið 1 fastalykkju um umferð/loftlykkjuboga *, heklið frá *-* meðfram öllum hliðum á sjali. Endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju í umferð. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (5)
María José wrote:
Me podrían decir cuántos ovillos necesito para hacer el chal, gracias
31.03.2019 - 21:37DROPS Design answered:
Hola Maria Jose! Necessitas 5 ovillos (50 g cada uno). Buen trabajo!
02.04.2019 - 08:27Justine wrote:
Hi, is the pentagon worked without turning at the end of the round? The sides seem to be worked by turning the piece at the end of each row. Will the two parts look mismatched? Thanks
31.03.2019 - 17:31DROPS Design answered:
Dear Justine, pentagon is worked in the round, then the sides will be worked back and forth. Happy crocheting!
01.04.2019 - 13:46AVERAIL wrote:
Ha jól látom, hogy akkor nem jó leírás szerepel ennél a modellnél. A rajz is horgolást mutat, hogy illetve képről is úgy látom. Megnéznék, hogy valóban így van, vagy én értelmeztem félre valamit? Nagyra értékelem a munkájukat. Köszönöm!
18.03.2019 - 22:04DROPS Design answered:
Kedves Averail, valóban a minták feltöltés közben megcserélődhettek, igyekszünk rövid időn belül rendbe tenni, és a helyes számokkal újra feltölteni a leírásokat, addig kis türelmét kérjük. Köszönjük.
20.03.2019 - 11:43Paola wrote:
Buongiorno. Credo sia sbagliata la traduzione del penultimo punto. Dovrebbe essere 3 catenelle invece di 3 archi di catenelle. Almeno cosi interpreto dall'inglese. Grazie.
04.01.2019 - 20:10DROPS Design answered:
Buonasera Paola, abbiamo corretto la legenda, grazie per la segnalazione. Buon lavoro!
04.01.2019 - 21:56Nolf wrote:
Bonjour,impossible d'imprimer le modèle en entier,que la page1 s'imprime.
01.09.2018 - 09:23DROPS Design answered:
Bonjour Mme Nolf, vérifiez bien les paramètres de votre imprimante et vérifiez bien le nombre de pages à imprimer pour que toutes les pages sortent bien . Bon crochet!
06.09.2018 - 09:41