DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10164.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Green Envy

Hekluð peysa úr DROPS BabyMerino. Stykkið er heklað í ferning með sólfjöðrum, gatamynstri og röndum. Stærð S - XXXL.

DROPS 196-28
DROPS Design: Mynstur bm-055
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BABYMERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-100-100-100-100-100 g litur 20, dökk grár
500-550-600-650-700-750 g litur 38, ólífa

HEKLFESTA:
20 tvíbrugðnir stuðlar á breidd og 7,5 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.
Mynsturteikning A.4 mælist ca 2½ cm á breidd.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10164.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Hver umferð sem byrjar með 1 stuðli, byrjar með 3 loftlykkjum (þær koma í stað fyrsta stuðul) og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.
Hver umferð sem byrjar með 1 tvíbrugðnum stuðli, byrjar með 4 loftlykkjum (þær koma í stað fyrsta tvíbrugðna stuðli) og endar með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun á umferð.
Hver umferð sem byrjar með 1 fastalykkju, byrjar með 1 loftlykkju (sem kemur í stað fyrstu fastalykkju) og endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á umferð.

RENDUR:
Þegar stykkið mælist 5, 10, 20 og 36 cm frá miðju, stillið af að næsta umferð sé umferð án stuðlahópa, heklið næstu umferð með litnum dökk grár. Klippið frá og festið þráðinn með litnum dökk grár þegar umferðin hefur verið hekluð til loka. Þráðurinn með litnum ólífa er ekki klipptur frá, hann fylgir með stykkinu frá röngu, en passið uppá að þráðurinn herði ekki á stykkinu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fyrst er bakstykkið heklað, í hring frá miðju að aftan og út í ferning. Síðan er heklað fram og til baka yfir hvort framstykki. Ermar eru heklaðar í hring ofan frá og niður og saumaðar á ferninginn.

BAKSTYKKI:
Stykkið er heklað í RENDUR – sjá útskýring að ofan.
Heklið A.1 á heklunál 4 með litnum ólífa. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið heklað 1 sinni, endurtakið 2 síðustu umferðir áfram með útaukningu eins og áður. Haldið áfram þar til ferningurinn mælist alls 36-38-40-42-44-46 cm (þ.e.a.s.18-19-20-21-22-23 cm frá miðju á ferning), stillið af að næsta umferð sé umferð eins og síðasta umferð í mynsturteikningu A.1 (þ.e.a.s. umferð með 1 fastalykkju mitt í hvorri hlið, þetta er til að það verði einfaldara að skipta stykkinu við handveg).
Heklið nú handveg þannig: Heklið yfir fyrstu hlið eins og áður (fram að og með fyrsta horni), heklið 48-52-55-59-62-62 loftlykkjur, hoppið yfir fyrri helminginn á næstu hlið að ermum, heklið seinni helminginn fram að horni, heklið næstu hlið eins og áður fram að næsta horni, heklið fyrri helminginn á næstu hlið eins og áður, heklið 48-52-55-59-62-62 loftlykkjur og hoppið yfir seinni helming á næstu hlið fyrir ermar, heklið hornið eins og áður.
Í næstu umferð er heklað mynstur eins og áður, um loftlykkjur fyrir ermi er heklað mynstur eins og áður (þ.e.a.s. heklaðar eru jafn margar einingar og þær sem hoppað var yfir, meðtaldar útaukningar í horni).
Haldið áfram hringinn þar til stykkið mælist alls 78-80-82-84-86-88 cm, stillið af að endað sé með 1 umferð með tvíbrugðnum stuðlahópum (þ.e.a.s. 39-40-41-42-43-44 cm frá miðju á ferning). Klippið frá.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Byrjið mitt í fyrsta horni.
Fyrsta umferð er hekluð frá röngu þannig: Heklið A.2b (þ.e.a.s. 1 stuðull + 2 loftlykkjur + 1 stuðull er heklað í 4 loftlykkju sem kemur í stað fyrsta tvíbrugðna stuðul í byrjun á fyrri umferð, 4 loftlykkjur, hoppið yfir fyrsta loftlykkjuboga, 1 fastlykkja um næsta loftlykkjuboga) – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, síðan er heklað mynstur eins og áður þar til 2 loftlykkjur eru eftir á undan næsta horni, heklið A.2a yfir hornið (þ.e.a.s. 4 loftlykkjur, 1 stuðull + 2 loftlykkjur + 1 stuðull heklað í tvíbrugðna stuðul í horni).
Haldið áfram með mynstur fram og til baka (þ.e.a.s. 4 umferðirnar í A.2 eru endurteknar). Heklið þar til stykkið mælist 61-63-65-67-69-71 cm frá miðju á ferning, stillið af að endað sé með 1 umferð með tvíbrugðnum stulahópum.
Klippið frá og festið enda.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Heklið á sama hátt og hægra framstykki.

ERMI:
Heklið 97-104-111-118-125-125 loftlykkjur með heklunál 4 með litnum ólífa og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.
Heklið 4 loftlykkjur (= 1 tvíbrugðinn stuðull), hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 tvíbrugðinn stuðull í hverja af 5 næstu loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja af 6 næstu loftlykkjum *, heklið frá *-* og endið með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun á umferð = 84-90-96-102-108-108 tvíbrugðnir stuðlar.
Heklið nú mynstur hringinn þannig: Heklið A.3 (= 6 lykkjur) og endurtakið A.4 yfir þær lykkjur sem eftir eru (= 13-14-15-16-17-17 sinnum á breidd).
Haldið svona áfram með mynstur.
Þegar ermin mælist 4 cm, stillið af að næsta umferð sé 3. umferð í A.3, fækkið lykkjum þannig:
Heklið 1 loftlykkju, hoppið yfir fyrstu 4 loftlykkjur (= koma í stað fyrsta tvíbrugðna stuðul frá fyrri umferð) og 2 tvíbrugðnir stuðlar frá fyrri umferð, heklið síðan mynstur eins og áður þar til 3 loftlykkjur eru eftir og 1 keðjulykkja, hoppið yfir 3 tvíbrugðna stuðla frá fyrri umferð og endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju (= 3 stuðlar færri á hvorri hlið = 6 stuðlar færri alls).
Næsta umferð er hekluð eins og 2. umferð (þetta er gert til að loftlykkjubogarnir haldi áfram að færast til).
Haldið áfram með umferð 1 til 4 eins og áður. Fækkið lykkjum svona með 10-8-8-7-7-7 cm millibili alls 5-6-6-7-7-7 sinnum = 54-54-60-60-66-66 lykkjur (í umferð með tvíbrugðnum stuðlum). Þegar ermin mælist 53 cm, stillið af að endað sá með umferð með loftlykkjum og fastalykkjum, klippið frá og festið enda.
Heklið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið ermar í ferning með litnum ólífa í ystu lykkjubogana.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 12.11.2019
Nýr texti undir BAKSTYKKI og HÆGRA FRAMSTYKKI + ný mynsturteikning A.2a og A.2b

Mynstur

symbols = 2 loftlykkjur
symbols = 3 loftlykkjur
symbols = 4 loftlykkjur
symbols = 6 loftlykkjur
symbols = fastalykkja um loftlykkjuboga
symbols = stuðull um loftlykkjuhring
symbols = tvíbrugðinn stuðull í lykkju
symbols = tvíbrugðinn stuðull um loftlykkjuboga
symbols = tvíbrugðinn stuðlahópur: (3 tvíbrugðnir stuðlar + 2 loftlykkjur + 3 tvíbrugðnir stuðlar) um loftlykkjuboga
symbols = (1 stuðull + 6 loftlykkjur + 1 stuðull) um loftlykkjuboga/í tvíbrugðin stuðul
symbols = umferð byrjar með 3 loftlykkjur, síðan eru heklaðar 6 loftlykkjur + 1 stuðull í 4. loftlykkju í byrjun á fyrri umferð. Umferð endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð, síðan eru heklaðar keðjulykkjur fram að miðju á fyrsta loftlykkjuboga
symbols = umferðin byrjar með 3 loftlykkjur og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð
symbols = umferðin byrjar með 4 loftlykkjur og endar með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun á umferð
symbols = heklstefna
symbols = heklið 5 loftlykkjur og tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju – sjá punkt í hring, umferðin byrjar og endar hér
symbols = umferðin hefur nú þegar verið hekluð, þetta sýnir bara hvernig hekla á næstu umferð á milli lykkja – byrjið á næstu umferð!
symbols = stuðull í lykkju

symbols = fastalykkja á milli 2 tvíbrugðna stuðla
symbols = umferðin byrjar með 1 loftlykkju (kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju) og endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á umferð
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 196-28

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (45)

country flag Lisa wrote:

A.1 is wrong on how to start some of the rounds, noticed the problem on the 4th round(not counting the inner ring of chain stitches), according to your diagram I should start the round with the 13th symbol(in your symbols list) , however to make it look right you need to start the round with the first treble crochet group to go into the corner.

17.09.2023 - 21:58

DROPS Design answered:

Dear Lisa, on round 2, 4 and 6 in A.1 you will start the rounds as shown in diagram with the 13th symbol: work 4 chains (= 1st double treble crochet (UK-English)) , then continue working in the round (=2 chain stitches etc..) and end with 1 slip stitch in the 4th chain from beginning of the round. Happy crocheting!

18.09.2023 - 15:57

country flag Brigitte wrote:

Re-bonjour, J'ai une autre question pour ce modèle. Lorsque je l'ai enregistré en favori, il me semble qu'il y avait un diagramme pour début de A1 (rond central sur lequel se raccrochait le 1er rang du grand carré). Ai-je rêvé ? Dois-je commencer directement par un rond de 5 mailles en l'air fermé par une maille coulée puis 3 mailles en l'air (=bride), 4 mailles en l'air, 1 bride... etc.Par ailleurs, n'y a-t-il pas un problème dans la fin de diagramme. Merci de vos réponses.

05.12.2022 - 15:41

DROPS Design answered:

Bonjour Brigitte, quel problème avez-vous repéré dans la fin de diagramme? Je n'en vois à priori aucun, mais n'hésitez pas à nous dire ce à quoi vous pensez que nous puissions vérifier. Merci d'avance!

06.12.2022 - 10:40

country flag Brigitte wrote:

Re-bonjour, J'ai une autre question pour ce modèle. Lorsque je l'ai enregistré en favori, il me semble qu'il y avait un diagramme pour début de A1 (rond central sur lequel se raccrochait le 1er rang du grand carré). Ai-je rêvé ? Dois-je commencer directement par un rond de 5 mailles en l'air fermé par une maille coulée puis 3 mailles en l'air (=bride), 4 mailles en l'air, 1 bride... etc.Par ailleurs, n'y a-t-il pas un problème dans la fin de diagramme. Merci de vos réponses.

05.12.2022 - 14:56

DROPS Design answered:

Bonjour Brigitte, A.1 commence par le milieu (rond de 5 ml), puis vous crochetez en commençant par la maille au-dessus du point noir sur le cercle = 12ème symbole = 3 mailles en l'air, et vous lisez ainsi tous les tours de droite à gauche en terminant avant la ligne noire par 1 maille coulée dans la 3ème de ces 3 ml du début du tour. Bon crochet!

06.12.2022 - 10:30

country flag Brigitte wrote:

Bonjour, Pour le devant, il est mentionné : "continuer ainsi en allers et retours ( c'est-à-dire répéter les 4 rangs de A2 )". Mais je ne trouve pas le diagramme A2. Que dois-je faire ? Je suis débutante en crochet et il est possible que j'aie raté une explication. De même, toujours pour le devant, après A2b, la directive est : " continuer ensuite comme avant ". Pouvez-vous préciser ce que cela implique ?

04.12.2022 - 13:47

DROPS Design answered:

Bonjour Brigitte, vous allez maintenant commencer les rangs par A.2a (pour que le côté soit droit) et les terminer par A.2b (pour que le 2ème côté soit également droit), et, en même temps, continuez le point fantaisie comme vous les faisiez dans A.1. Vous continuez comme avant entre les coins, mais avec les 2 diagrammes A.2a et A.2b de chaque côté, et alternativement sur l'endroit et sur l'envers. Bon crochet!

06.12.2022 - 09:55

country flag Kiss Györgyi wrote:

Az A.3-as minta 3. sorát (1rp,3lsz,1rp) nem látom a kész kardigán fényképén. Az ujj mintája nem 4, hanem csak 2 sorból áll a fénykép szerint. Így van? Szükséges a 3. sor?

31.01.2022 - 23:20

DROPS Design answered:

Hi Kiss, if you could write your question in English, we will try to answer :)

22.04.2022 - 11:46

country flag Denise M Severson wrote:

What is the size range, in inches or cm? Please provide more definition than S-M-L... Thank you; the design is lovely!

28.10.2021 - 01:50

DROPS Design answered:

Dear Denise, you can find the measurements of the finished piece (in cm) on the shcematic drawing, just below the pattern. Happy Stitching!

28.10.2021 - 02:46

country flag Pia Andreassen wrote:

Hvad er bryst målet på denne cardigan i str. Xxxl?

16.08.2021 - 20:12

country flag Justine Wilkinson wrote:

When work the rows on a.2b and a.2a patterns on the corners, do you alternate between the to or put one pattern on one side and one on the other side? Thank you

21.07.2021 - 14:39

DROPS Design answered:

Dear Mrs Wilkinson, on the front pieces, you start the rows from wrong side with A.2b and end them with A.2a and on the rows from right side, you start with A.2a and end with A.2b. Happy crocheting!

21.07.2021 - 16:44

country flag Alicja Zawistowska wrote:

Dzień dobry :) Czy wiadomo, ile włóczki potrzeba na kwadrat a ile na rękawy? W moim projekcie rękawy byłyby z innego koloru.

06.04.2021 - 09:09

DROPS Design answered:

Witaj Alicjo, niestety nie wykonywałam tego wzoru i trudno mi powiedzieć.

06.04.2021 - 14:29

country flag Mona Larsen wrote:

Hvorfor i all verden bruker dere ikke de vanlige tegnene for maskene?

01.01.2021 - 11:22