DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4312.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Ice Skating Set

Prjónað hálsskjól, vettlingar og húfa úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað með köðlum og kúlum.

DROPS 192-46
DROPS Design: Mynstur u-864
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

GARN Í ALLT SETTIÐ:
Stærð: S/M – L/XL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
350-400 g litur 44, ljós grár

HÁLSSKJÓL:
Stærð: S/M – L/XL
Mál: Ummál að neðan: ca 95-109 cm. Ummál að ofan: ca 49-49 cm.

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
150-150 g litur 44, ljós grár

VETTLINGAR:
Stærð: S/M – L/XL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
100-100 g litur 44, ljós grár

HÚFA:
Stærð: S/M – L/XL
Höfuðmál: 54/56 – 58/60 cm

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
150-150 g litur 44, ljós grár

HÁLSSKJÓL:
PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 40 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: lengd 60 cm.
DROPS KAÐLAPRJÓNN.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

VETTLINGAR:
PRJÓNFESTA:
22 lykkjur á breidd og 30 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS KAÐLAPRJÓNN.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

HÚFA:
PRJÓNFESTA:
22 lykkjur á breidd og 30 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: lengd 40 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm.
DROPS KAÐLAPRJÓNN.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4312.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Hálsskjól: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.
Vettlingar: Sjá mynsturteikningu A.5 til A.7.
Húfa: Sjá mynsturteikningu A.8 og A.9. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

ÚTAUKNING (á við um vettlinga):
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um vettlinga):
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja) takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón neðan frá og upp.

HÁLSSKJÓL:
Fitjið upp 210-240 lykkjur á hringprjón 3,5 með Karisma.
Prjónið stroff (= 4-5 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt) í 4 cm.
Prjónið síðan þannig: Prjónið * A.1 (= 14-16 lykkjur), A.2 (= 21-24 lykkjur) *, prjónið frá *-* alls 6 sinnum. Þegar A.1/A.2 hefur verið prjónað til loka eru 174-198 lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið síðan A.3 (= 12-14 lykkjur) yfir A.1 og A.4 (= 17-19 lykkjur) yfir A.2. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 8 cm fækkið um 1 lykkju í vinstri hlið í hverri brugðinni einingu, fækkið lykkjum með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman (= 12 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona til skiptis hægra og vinstra megin við hverja brugðnu einingu með 4-3 cm millibili alls 5-7 sinnum = 114-114 lykkjur. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist ca 25-28 cm – stillið af að þetta sé ekki umferð með kaðli í A.4, þ.e.a.s. ekki 3. til 5. umferð.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið 1 umferð með úrtöku þannig: * 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 3 lykkjur brugðið, 9 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* alls 6 sinnum = 108-108 lykkjur. Prjónið síðan stroff (= 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt) þar til stykkið mælist 30-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

-------------------------------------------------------

VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.

HÆGRI VETTLINGUR:
Fitjið upp 48-48 lykkjur á sokkaprjón 3 með Karisma.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5-6 cm.
Prjónið síðan þannig: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir fyrstu 24 lykkjur, 2 lykkjur slétt, A.5 (= 18 lykkjur), 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka eru 55-55 lykkjur í umferð.
Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 26 lykkjur slétt (= í lófa), A.5 (= 25 lykkjur) og 4 lykkjur slétt. Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 13-14 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við fyrstu lykkju í umferð fyrir þumal – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út hvoru megin við útauknar lykkjur í annarri hverri umferð alls 5-6 sinnum = 65-67 lykkjur. Nú eru settar 11-13 þumallykkjur á þráð.
Haldið áfram hringinn eins og áður JAFNFRAMT er fitjuð upp 1 ný lykkja aftan við þumal í næstu umferð = 55-55. Haldið áfram þar til vettlingurinn mælist 25-27 cm – stillið af að þetta sé ekki umferð með snúningi í kaðli í A.6, þ.e.a.s. ekki í 3. til 5. umferð (mátið e.t.v. vettlinginn, nú eru eftir ca 3 cm til loka). Prjónið nú A.7 yfir A.6, aðrar lykkjur halda áfram eins og áður. Þegar A.7 hefur verið prjónað til loka eru 47-47 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki eftir fyrstu lykkju í umferð og 1 prjónamerki eftir 24 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki eftir fyrstu lykkju í umferð og 1 prjónamerki eftir 24 lykkjur. Fækkið nú um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 3 sinnum og síðan í hverri umferð alls 3 sinnum = 23-23 lykkjur. Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið síðan lykkjurnar slétt saman 2 og 2 = 12 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel.

ÞUMALL:
Setjið 11-13 þumallykkjur á þráð yfir á sokkaprjón 3,5.
Prjónið að auki upp 4-3 lykkjur aftan við þumal = 15-16 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til þumallinn sjálfur mælist ca 4½-5 cm (mátið e.t.v. vettlinginn, nú er eftir ca ½ cm til loka). Prjónið 1-0 lykkju slétt, prjónið síðan lykkjur slétt saman 2 og 2 = 8 lykkjur. Prjónið síðan lykkjur slétt saman 2 og 2 = 4 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel.

VINSTRI VETTLINGUR:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægri vettlingur, en aukið út fyrir þumal hvoru megin við 22. lykkju í umferð.

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjón eftir þörf.

HÚFA:
Fitjið upp 136-144 lykkjur á hringprjón 3 með Karisma.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff þannig: * A.8A (= 19 lykkjur), A.9A (= 15-17 lykkjur) * , prjónið frá *-* alls 4 sinnum í umferð. Endurtakið A.8A og A.9A á hæðina þar til stroffið mælist 3 cm.
Aukið nú út í mynstri með því að prjóna næstu umferð þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið A.9B yfir A.9A, aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður = 140-148 lykkjur.
Prjónið síðan A.8B (= 19 lykkjur) yfir A.8A og A.9C (= 16-18 lykkjur) yfir A.9B. Endurtakið síðan A.8B og A.9C á hæðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið þar til stykkið mælist ca 20-23 cm – stillið af eftir heila mynstureiningu á hæðina. Nú fækkar lykkjum í topp á húfunni með því að prjóna þannig: A.8C (= 19 lykkjur) yfir A.8B og A.9D (= 16-18 lykkjur) yfir A.9C. Prjónið þar til A.8C og A.9D er búið á hæðina = 20-20 lykkjur. Prjónið allar lykkjur slétt saman 2 og 2 = 10-10 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Stykkið mælist ca 25-28 cm ofan frá og niður.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu
symbols = brugðið frá réttu
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni

symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = 2 lykkjur brugðið saman
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = KÚLA: Prjónið 1 lykkju slétt bæði framan og aftan í sömu lykkju þar til 5 lykkjur eru eftir, snúið og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu yfir þessar 5 lykkjur, snúið og prjónið 1 umferð slétt frá réttu. Notið vinstri prjón og lyfti annarri lykkjunni á hægri prjóni yfir fyrstu lykkjuna og af prjóni, lyftið þriðju lykkjunni yfir fyrstu lykkjuna, lyftið fjórðu lykkjunni yfir fyrstu lykkjuna og síðan fimmtu lykkju yfir fyrstu lykkju (= 1 lykkja eftir)
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 192-46

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Anna wrote:

Dzień dobry, Prosiłabym o przesłanie wzoru DROPS 192-46. Z góry dziekuje i pozdrawiam Anna

11.12.2022 - 12:17

DROPS Design answered:

Witaj Aniu, klikając na ikonę drukarki we wzorze (pod materiałami) otrzymasz możliwość zapisania wzoru jako pdf na swoim komputerze. Pozdrawiamy!

12.12.2022 - 08:39

country flag Hofmann Alfa wrote:

Model 192-46 Kragenschal Auf der Anleitung habe ich dieses Muster nicht gefunden. Wie strickt man im Diagramm A.3 die letzten 4 Maschen. Dach oben und unten. Freundliche Grüsse Alfa Hofmann

29.04.2022 - 07:59

DROPS Design answered:

Liebe Frau Hofmann, die letzten 4 Maschen in A.3 werden mit den Zöpfen von 4. + 3. Symbol gestrickt, dh bei der 1. Reihe stricken Sie zuerst 4. dann 3. Symbol, bei der3. Reihe stricken Sie 3. dann 4. Symbol. Viel Spaß beim stricken!

29.04.2022 - 08:30

country flag Susanne wrote:

Ich freue mich sehr über diese schöne Anleitung, glaube aber, einen Fehler gefunden zu haben. Im Diagramm A.9 M/L müsste in der ersten Zeile von D eine Abnahme erfolgen, tut es aber nicht. Ich arbeite einfach so, als wäre es unterhalb des ersten Diagonalstrichs schwarz schraffiert und stricke 2 Maschen zusammen.

08.01.2022 - 18:31

country flag Giovanna wrote:

Ho realizzato lo scaldacollo nella taglia L/XL ma le misure indicate sono un po’ piccole anche se ho usato lane Karisma e aghi indicati; comunque è venuto molto bene e comodo da usare

17.12.2020 - 18:23

DROPS Design answered:

Buongiorno Giovanna, aveva lavorato il campione prima di cominciare? Corrispondeva a quello indicato? Buon lavoro!

18.12.2020 - 09:03

country flag Gianna wrote:

Ho realizzato lo scaldacollo con la lana Karisma nuova nella taglia L/ XL ma è ancora un po’ stretto di spalle,forse perché quando lavoro ho il punto un po’ stretto Vorrei rifarlo più grande di quante maglie devo ingrandirlo per mantenere lo schema.?di trenta? Per fortuna ho comprato un gomitolo in più Grazie

22.11.2020 - 14:52

DROPS Design answered:

Buonasera Gianna, per un aiuto così personalizzato può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!

22.11.2020 - 17:41

country flag Ilona wrote:

Moi! Aloitin tekemään lapasta tällä ohjeella. En ole ennen neulonut neulepiirroksesta mitään. Miten A.5 piirros tehdään?

12.09.2020 - 18:30

DROPS Design answered:

Hei, piirrosten yläpuolelta löydät merkkien selitykset. Esim. tyhjä ruutu on oikea silmukka oikealta puolelta ja ruutu, jossa on musta ympyrä neulotaan nurin oikealta puolelta. Suljettua neuletta neulottaessa kaikki piirroksen kerrokset luetaan oikealta vasemmalle. Piirros luetaan alhaalta ylös.

22.09.2020 - 17:25

country flag Danielle wrote:

Thank-you for the response, I basically wanted to know if it would be possible to make this with the 3 repeats instead of 4 and if I would be ok for the rest of the pattern keeping with the 3 only. I Have made several Drops patterns and I love them. Also you are the best in answering questions and for help so thank-you.

21.11.2019 - 17:44

country flag Danielle wrote:

Hello the # of sts to cast on for the hat 136 = 24.5 “ I need a true small 18-19” hat I calculated 102 sts for a 3 repeat ** of the pattern however I need help with the rest of the pattern. Can you help with what to do next? My daughter fell in love with this hat I’d hoped to make it for Christmas. Thanks so much for your help.

21.11.2019 - 05:05

DROPS Design answered:

Dear Danielle, we are unfortunately not able to adjust every pattern to every request, but if working over 3 repeats might fit, then you can just continue working the pattern as explained, you will simply work over less stitches/repeats in width. Do not hesitate to contact the store where you bought the yarn for any further individual assistance (even per mail). Happy knitting!

21.11.2019 - 09:28

country flag Jolyane wrote:

Je veux savoir si dans le diagramme A3 il faut faire les torsade avec 2 mailles sur l\'aiguille auxiliaire et on tricote deux mailles ou juste une maille sur l\'aiguille auxiliaire et on tricote une maille ?

24.11.2018 - 02:06

DROPS Design answered:

Bonjour Jolyane, les torsades de A.3 se font chacune sur 2 mailles - cf 3ème et 4ème symbole de la légende. Bon tricot!

26.11.2018 - 11:10

country flag Monique wrote:

Sehr schöne Kombination. Hätte ich gerne.

13.07.2018 - 15:05