DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5544.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Winter Carnival Set

Prjónuð húfa úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað með uppábroti og norrænu mynstri. Prjónaðir vettlingar úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað með uppábroti og norrænu mynstri.

DROPS 196-8
DROPS Design: Mynstur u-868
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

GARN Í ALLT SETTIÐ:
Stærð: S/M - M/L
Höfuðmál: ca 54/56 - 56/58 cm

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
50-50 g litur 77, ljós eik
50-50 g litur 50, sægrænn
50-50 g litur 01, natur
50-50 g litur 11, appelsínugulur
50-50 g litur 47, skógargrænn
50-50 g litur 48, vínrauður
50-50 g litur 52, sinnepsgulur
50-50 g litur 30, ljós gallabuxnablár
50-50 g litur 33, milliblár

HÚFA:
Stærð: S/M - M/L
Höfuðmál: ca 54/56 - 56/58 cm

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
50-50-50 g litur 77, ljós eik
50-50-50 g litur 50, sægrænn
50-50-50 g litur 01, natur
50-50-50 g litur 11, appelsínugulur
50-50-50 g litur 48, vínrauður
50-50-50 g litur 52, sinnepsgulur
50-50-50 g litur 30, ljós gallabuxnablár
50-50-50 g litur 33, millibleikur

VETTLINGAR:
Stærð: S/M - M/L
Lengd: ca 24-26 cm. Ummál: ca 21-21 cm.

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
50-50 g litur 77, ljós eik
50-50 g litur 50, sægrænn
50-50 g litur 01, natur
50-50 g litur 11, appelsínugulur
50-50 g litur 47, skógargrænn
50-50 g litur 48, vínrauður
50-50 g litur 52, sinnepsgulur
50-50 g litur 30, ljós gallabuxnablár
50-50 g litur 33, milliblár

HÚFA:

PRJÓNFESTA:
22 lykkjur á breidd og 30 umferðir á hæð með sléttprjóni og mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: lengd 40 cm fyrir sléttprjón og mynstur.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 40 cm fyrir uppábrot.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

VETTLINGAR:

PRJÓNFESTA:
23 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni og mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3: fyrir sléttprjón og mynstur.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5544.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1.
Vettlingar: Sjá mynsturteikningu A.2 til A.6.
Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

PRJÓNALEIÐBEININGAR-1:
Ef óskað er eftir að ummálið á vettlingnum verði stærra er hægt að prjóna vettlinginn með hálfu eða einu númeri grófari prjónum. Hálft númer af grófari prjónum gefa 1 cm meira ummál og eitt númer grófari prjónum kemur til með að gefa 2 cm meira í ummáli.

PRJÓNALEIÐBEININGAR-2:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist saman.

PRJÓNALEIÐBEININGAR-3:
Áður en byrjað er á opi fyrir þumal er hægt að stilla lengdina af með því að prjóna fleiri eða færri umferðir áður en prjónað er merki fyrir opi fyrir þumal.

ÚRTAKA-1 (á við um efst á húfu):
Byrjið 2 lykkjur á undan prjónamerki og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).

ÚRTAKA-2 (á við um efst á vettling):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

ÚRTAKA-3 (á við um þumal):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf.

HÚFA:
Fitjið upp 104-112 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með litnum sægrænn. Prjónið 6 umferðir sléttprjón fyrir kant fyrir saum.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið næstu umferð þannig: 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* umferðina hringinn (= uppábrot).
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Prjónið A.1 hringinn (= 13-14 mynstureiningar með 8 lykkjum). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er haldið áfram með litnum ljós eik til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 19-21 cm frá uppábroti eru sett 8 prjónamerki í stykkið þannig:
Fyrsta prjónamerkið er sett í byrjun á umferð. Næstu 7 prjónamerki eru sett með 13-14 lykkjur á milli prjónamerkja.
Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju á undan hverju og einu af 8 prjónamerkjunum – sjá ÚRTAKA-1 = 8 lykkjur færri. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 5 sinnum og síðan í hverri umferð alls 5 sinnum = 24-32 lykkjur eftir á prjóni. Prjónið 2 sléttar umferðir þar sem allar lykkjur eru prjónaðar slétt saman 2 og 2 í báðum umferðum = 6-8 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 24-26 cm ofan frá og niður að uppábroti.
Brjótið uppá kantinn neðst niðri á húfunni að röngu og saumið niður með fallegu smáu spori – passið uppá að saumurinn verði ekki stífur.

-------------------------------------------------------

VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, neðan frá og upp. Vettlingarnir hafa saman ummál í báðum stærðum, en misjafna lengd. Ummálið er hægt að stilla af – sjá PRJÓNALEIÐBEININGAR-1!

VINSTRI VETTLINGUR:
Fitjið upp 48-48 lykkjur á sokkaprjón 3 með litnum sinnepsgulur. Prjónið 6 umferðir sléttprjón fyrir kant fyrir saum. Skiptið yfir í litinn appelsínugulur og prjónið 2 umferðir sléttprjón.
Næsta umferð er prjónuð þannig: * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* umferðina hringinn (= uppábrot). HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Lesið PRJÓNALEIÐBEININGAR-2 og prjónið A.2 hringinn (= 2 mynstureiningar með 24 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT í umferð merktri með ör-1 í A.2 er prjónað að merki fyrir opi fyrir þumal þannig – sjá PRJÓNALEIÐBEININGAR-3: Prjónið 15 lykkjur í sléttprjóni með litnum ljós eik, prjónið 8 lykkjur sléttprjón að opi fyrir þumal með þræði úr öðrum lit sem skilur sig frá afgang af stykki, prjónið síðan afgang af 25 lykkjum í sléttprjóni með litnum ljós eik. Haldið áfram með mynstur eins og áður yfir allar lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónað A.3 hringinn yfir allar lykkjur. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka er prjónað A.2 eins langt það nær að loka máli, en í annað skipti sem A.2 er prjónað er byrjað í umferð merktri með ör-2.
Þegar stykkið mælist 21-23 cm frá uppábroti er sett 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 24 lykkjur (nú eru eftir ca 3 cm til loka lengdar, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd).
Í næstu umferð er lykkjum fækkað hvoru megin við þessi 2 prjónamerki – sjá ÚRTAKA-2 = 4 lykkjur færri. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 10 sinnum í báðum stærðum = 8 lykkjur eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 24-26 cm ofan frá og niður að uppábroti.

ÞUMALL:
Dragið úr þráðinn sem prjónaður var yfir 8 lykkjur fyrir op fyrir þumal. Prjónið upp 8 lykkjur hvoru megin við op fyrir þumal með litnum ljós eik = 16 lykkjur. Deilið þessum 16 lykkjum á sokkaprjóna 3. Prjónið A.6 hringinn. Þegar þumallinn mælist ca 5-5½ cm er sett 1 prjónamerki í hvora hlið á þumli (nú er eftir ca 1 cm til loka lengdar á þumli, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd).
Í næstu umferð er lykkjum fækkað hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA-3 = 4 lykkjur færri. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 3 sinnum = 4 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Þumallinn mælist ca 6-6½ cm ofan frá og niður.

HÆGRI VETTLINGUR:
Fitjið upp 48-48 lykkjur á sokkaprjón 3 með litnum sinnepsgulur. Prjónið 6 umferðir sléttprjón fyrir kant fyrir saum. Skiptið yfir í litinn appelsínugulur og prjónið 2 umferðir sléttprjón.
Næsta umferð er prjónuð þannig: * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* umferðina hringinn (= uppábrot). HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Lesið PRJÓNALEIÐBEININGAR-2 og prjónið A.2 hringinn (= 2 mynstureiningar með 24 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT í umferð merktri með ör-1 í A.4 er prjónað að merki fyrir opi fyrir þumal þannig – sjá PRJÓNALEIÐBEININGAR-3: Prjónið 25 lykkjur með sléttprjóni með litnum ljós eik, prjónið 8 lykkjur sléttprjón að opi fyrir þumal með þræði úr öðrum lit sem skilur sig frá afgang af stykki, prjónið síðan afgang af 15 lykkjum í sléttprjóni með litnum ljós eik. Haldið áfram með mynstur eins og áður yfir allar lykkjur. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka er prjónað A.5 hringinn yfir allar lykkjur. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka er prjónað A.4 eins langt það nær að loka máli, en í annað skipti sem A.4 er prjónað er byrjað í umferð merktri með ör-2.
Þegar stykkið mælist 21-23 cm frá uppábroti er sett 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 24 lykkjur (nú eru eftir ca 3 cm til loka lengdar, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd).
Í næstu umferð er lykkjum fækkað hvoru megin við þessi 2 prjónamerki – sjá ÚRTAKA-2 = 4 lykkjur færri. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 10 sinnum í báðum stærðum = 8 lykkjur eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 24-26 cm ofan frá og niður að uppábroti.
Prjónið þumal á sama hátt og á vinstri vettlingi.

Mynstur

symbols = ljós eik
symbols = sinnepsgulur
symbols = appelsínugulur
symbols = sægrænn
symbols = natur
symbols = vínrauður
symbols = millibleikur
symbols = skógargrænn
symbols = ljós gallabuxnablár
symbols = lykkjur fyrir op fyrir þumal - þessar lykkjur eru prjónaðar í öðrum lit eins og útskýrt er í uppskrift
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 196-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (6)

country flag Thérèse Robinson wrote:

Why am I seeing ‘symbols’ instead of the symbol signifying a colour? I have updated my iPad but it’s still the same. Thank you for advice.

01.03.2022 - 19:16

DROPS Design answered:

Dear Mrs Robinson, this might have been due to a temporary bug, the symbols appear now properly. Happy knitting!

02.03.2022 - 09:28

country flag Maggie wrote:

Would it be possible to knit two hats with the amount of wool given for the hat??

13.02.2021 - 18:17

DROPS Design answered:

Dear Maggie, yes, in theory it is possible, but it always depends on the exact size, and especially the gauge each knitter knits with . Happy Knitting!

13.02.2021 - 21:49

country flag Helma wrote:

Kan drops karisma ook gebruikt worden voor het vilten?

01.11.2019 - 20:42

DROPS Design answered:

Dag Helma,

Jazeker, DROPS Karisma kan je vilten. Via deze link vind je een lijst van alle viltbare garens.

05.11.2019 - 10:25

country flag Tammy Valentine wrote:

Hello, I am going to make both the hat and mittens for Happy Winter. I am confused and need to know how many skeins of Karisma to get for each color. The pattern says 2 for both and 3 for the hat only, so I got a little confused. Can you help? Thanks! Tammy

10.05.2019 - 20:00

DROPS Design answered:

Dear Mrs Valentine, you need 50 g (= 1 ball Karisma) in each of the 9 color = 50 g each colour are required in all sizes for hat and for mittens. (color 47 is used only for mittens). Happy knitting!

13.05.2019 - 08:41

country flag Tina Møller wrote:

Jeg synes ikke det er helt nemt at forstå hvordan man påbegynder tommelfinger og hvordan der tages masker ud til tommelfingeren

20.12.2018 - 16:14

country flag Monique wrote:

Die Mütze hat einen tollen Schnitt und sehr schöne Farben. Die würde ich gerne stricken.

12.07.2018 - 14:10