DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5984.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 192-40
DROPS Design: Mynstur sk-001
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

GARN Í ALLT SETTIÐ:
Stærð: S/M – M/L
Höfuðmál: 54/56 - 56/58 cm.

Efni:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
200-200 g litur 13, ljós gallabuxnablár

EYRNABAND:
Stærð: S/M - M/L
Mál:
Höfuðmál: ca 54/56 - 56/58 cm.
Ummál ca 49-51 cm. Hæð: ca 12 cm.

Efni:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
50-50 g litur 13, ljós gallabuxnablár

HÁLSSKJÓL:
Stærð: S/M – M/L
Mál:
Ummál að ofan: ca 61-66 cm.
Ummál að neðan: ca 92-96 cm.
Hæð: ca 28-30 cm.

Efni:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
100-100 g litur 13, ljós gallabuxnablár

HANDSTÚKUR:
Stærð: S/M – M/L
Mál:
Ummál: ca 19-20 cm.
Hæð ca 19-20 cm.

Efni:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
50-50 g litur 13, ljós gallabuxnablár

EYRNABAND:
PRJÓNFESTA:
23 lykkjur á breidd og 48 umferðir á hæð með garðaprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS PRJÓNAR NR 3.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

HÁLSSKJÓL:
PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 60 cm.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

HANDSTÚKUR:
PRJÓNFESTA:
23 lykkjur á breidd og 48 umferðir á hæð með garðaprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS PRJÓNAR NR 3.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5984.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Eyrnaband: Sjá mynsturteikningu A.1.
Hálsskjól: Sjá mynsturteikningu A.2 til A.11.
Handstúkur: Sjá mynsturteikningu A.12 og A.13.
Þar sem lykkjum er fækkað og aukið út í mynsturteikningu A.1b, A.3b, A.4b, A.6b, A.7b, A.12 og A.13 getur lykkjufjöldinn orðið misjafn miðað við þetta, sérstaklega ef lykkjufjöldi hefur fækkað.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

EYRNABAND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka og saumað saman við miðju að aftan í lokin.

EYRNABAND:
Fitjið upp 32 lykkjur á prjón 3 með Sky.
Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan A.1a (= 32 lykkjur). Þegar A.1a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 37 lykkjur í umferð. Prjónið A.1b yfir A.1a. Mynstrin eru prjónuð mismunandi yfir umferðir á hæðina.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 48-50 cm, prjónið A.1c yfir A.1b. Þegar A.1c hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 32 lykkjur í umferð. Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Fellið síðan af með sléttum lykkjum.

FRÁGANGUR:
Saumið saman uppfitjunarkantinn við affellingarkantinn í ystu lykkjubogana.

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður, á hringprjón.

HÁLSSKJÓL:
Fitjið upp 130-140 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja með garðaprjóni í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 4 með Sky.
Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan mynstur þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.2 (= 2 lykkjur) yfir fyrstu 20-26 lykkjur, A.3a (= 42 lykkjur), 1 lykkja garðaprjón, 1 lykkja sléttprjón (= miðju lykkja), 1 lykkja garðaprjón, A.4a (= 42 lykkjur), A.5 (= 2 lykkjur) yfir næstu 21-25 lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Þegar A.3a og A.4a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 140-150 lykkjur í umferð.
Prjónið A.3b og A.4b yfir A.3a og A.4a. Haldið svona áfram með mynstur. Mynstrin eru prjónuð mismunandi yfir umferðir á hæðina.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 8 cm, byrjar útaukning við miðju að framan frá réttu þannig:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.2 yfir 20-26 lykkjur eins og áður, A.3b heldur áfram eins og áður (= 47 lykkjur), A.6a yfir næstu lykkju, 1 lykkja sléttprjón (= miðju lykkjan), A.7a yfir næstu lykkju, A.4b heldur áfram eins og áður (= 47 lykkjur), A.5 yfir 21-25 lykkjur eins og áður og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Þegar A.6a og A.7a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið áfram frá réttu þannig:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.2 og A.3b eins og áður, A.6b yfir fyrstu 21 lykkjur af A.6a, A.8a yfir næstu lykkju, 1 lykkja sléttprjón (= miðju lykkja), A.9a yfir næstu lykkju, A.7b yfir síðustu 21 lykkjur af A.7a, A.4b og A.5 eins og áður og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Þegar A.8a og A.9a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina (mynstrin sem eftir eru halda áfram á hæðina), prjónið frá réttu þannig:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.2, A.3b og A.6b eins og áður, A.8b yfir fyrstu 14 lykkjur af A.8a, A.10a yfir næstu lykkju, 1 lykkja sléttprjón (= miðju lykkja), A.11a yfir næstu lykkju, A.9b yfir síðustu 14 lykkjur af A.9a, A.7b, A.4b og A.5 eins og áður, endið með 1 kantlykkju garðaprjón. Haldið svona áfram með mynstur. Endurtakið A.10a og A.11a hvoru megin við miðju lykkju á hæðina þar til stykkið mælist alls 28-30 cm mælt meðfram fyrstu lykkju (= A.10b og A.11b er prjónað yfir A.10a og A.11a á hæðina þegar mynstrið er endurtekið).
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur, brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón.

FRÁGANGUR:
Saumið hálsskjólið saman við miðju að aftan innan við 1 kantlykkju.

-------------------------------------------------------

HANDSTÚKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.

HANDSTÚKA:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 44-46 lykkjur á prjón 3 með Sky. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 8-9 lykkjur garðaprjón, A.12 (= 29 lykkjur) og endið með 7-8 lykkjur garðaprjón. Mismunandi mynstrin eru prjónuð yfir mismunandi umferðir á hæðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 18-19 cm, prjónið 4 umferðir garðaprjón. Fellið af með sléttum lykkjum.

FRÁGANGUR:
Saumið handstúkurnar saman í ystu lykkjubogana.
Prjónið aðra handstúku á sama hátt , en prjónið A.13 í stað A.12.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt
symbols = prjónið 3 lykkjur, takið fyrstu lykkjuna sem var prjónuð yfir 2 síðustu lykkjur þannig að þessi lykkja liggi utan um hinar tvær lykkjurnar (= 1 lykkja færri)
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 192-40

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (8)

country flag Bertineke wrote:

*kabelnaald

11.05.2021 - 16:18

country flag Bertineke wrote:

Bij A1b missen twee naalden. Ik neem aan dat het patroon zo verder gaat als daarvoor, of moet je de kabelaars nog een keer gebruiken?

11.05.2021 - 14:57

DROPS Design answered:

Dag Bertineke,

Ja, de naalden kun je inderdaad zo voortzetten in de hoogte als hiervoor; het linker deel van A.1b heeft minder naalden in de hoogte, dus je begint eerder dan het rechter deel, opnieuw met een herhaling in de hoogte.

12.05.2021 - 21:00

country flag Anne-Claire wrote:

Hallo, In diagram A4.a en A4b mist het middelste deel van de laatste twee pennen. Brei je die door zoals in voorgaande regels of sla je deze steken over? Alvast bedankt!

02.01.2021 - 18:32

DROPS Design answered:

Dag Anne-Claire,

Ja, breit inderdaad door zoals hiervoor. Het middelste deel heeft zeg maar een ander herhalingsritme, dus minder aantal naalden in de hoogte.

09.01.2021 - 18:24

country flag Pascale wrote:

Hello. Could you explain in pattern A.1b (for the head band) how to work the last two rows of the pattern, since one side has 10rows, and the other half has 12 rows. I couldn’t find a video explaining this either. Thank you

30.06.2019 - 04:58

DROPS Design answered:

Dear Pascale, all cables and lace patterns are not repeated over the same number of rows, when you have finished 2nd part of diagram (= over 10 rows), repeat from row 1 over these stitches, at the same time, continue the first half of diagram as before until it has been finished, then start again from row 1. You will then follow both parts of diagram separately, making sure cables are crossing on correct rows. Happy knitting!

01.07.2019 - 07:13

country flag Rosanna Kinloch wrote:

Please help me on how should I read the graphs\r\nDo I read it as rows 1, 3, and 5\r\ndo I see it as only the right side of knitting

24.04.2019 - 14:58

DROPS Design answered:

Dear Mrs Kinloch, read more how to read diagrams here . Happy knitting!

24.04.2019 - 16:02

Oksana wrote:

Because you increase and decrease in diagrams A.1b, A.3b, A.4b, A.6b, A.7b, A.12 and A.13, the number of stitches can vary in relation to this, if you have just decreased - PLEASE EXPLAIN. THANKS

20.08.2018 - 14:07

DROPS Design answered:

Hi Oksana, This sentence is a bit confusing, I agree. It just means that the number of stitches stated could be affected by which row you are on in the diagrams, especially after a row of decreases. I hope this helps and happy knitting!

21.08.2018 - 07:22

country flag Margaretha wrote:

Snygg!

14.06.2018 - 16:20

country flag Sigrid wrote:

Gefällt mir sehr gut

08.06.2018 - 21:54