DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3520.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 186-10
DROPS Design: Mynstur w-720
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Mál:
Þvermál hringur (eftir frágang): ca 20 cm.
Breidd í hlið (eftir frágang): ca 4 cm.

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
100 g litur 06, skærbleikur
50 g litur 01, apríkósa
50 g litur 38, kórall
50 g litur 17, natur
50 g litur 58, púðurbleikur
50 g litur 07, bleikvínrauður
50 g litur 103, dökk þveginn
50 g litur 41, sinnep
50 g litur 102, spray blár
ATH: Ef hekla á töskuna með einum lit þá þarf 200 g Paris.

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 18 stuðlar og 10,5 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3520.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2 (A.2 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar).

LITAMYNSTUR:
Þegar skipt er um lit í byrjun á umferð er keðjulykkjan í lok fyrri umferðar hekluð með nýja litnum.

Þegar heklað er með tveimur litum í einni umferð er heklað þannig: Heklið síðasta stuðulinn með fyrsta litnum, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, skiptið yfir í næsta lit og dragið þráðinn í gegn í lokin með nýja litnum, heklið síðan næsta stuðul.
Þegar heklað er með tveimur litum í einni umferð (þegar heklað er í hring), leggið þráðinn á þeim lit sem ekki er heklað með yfir lykkjurnar frá fyrri umferð og heklið utan um þráðinn þannig að hann sjáist ekki innan í lykkjunum, þráðurinn fylgir þar með áfram hringinn.

RENDUR (hringur):
Uppfit + UMFERÐ 1: apríkósa
UMFERÐ 2: kórall
UMFERÐ 3: natur
UMFERÐ 4: kórall
UMFERÐ 5: apríkósa
UMFERÐ 6: skærbleikur
UMFERÐ 7: púðurbleikur
UMFERÐ 8: bleikvínrauður
UMFERÐ 9: dökk þveginn
UMFERÐ 10: sinnep
UMFERÐ 11: apríkósa
UMFERÐ 12: dökk þveginn
UMFEÐR 13: * 1 stuðull með dökk þveginn, 1 stuðull með natur *, heklið frá *-* hringinn alla umferðina.
UMFERÐ 14: spray blár

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TASKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring frá miðju og út. Heklaðir eru 2 hringir, síðan er hlið á töskunni hekluð fram og til baka. Að lokum er hliðin og hringirnir heklað saman.

HRINGUR:
Heklið 6 loftlykkjur með heklunál 3,5 og litnum apríkósa Paris og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. Heklið RENDUR (hringur) og LITAMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan og mynstur A.1 alls 6 sinnum hringinn í umferð (A.2 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Í 7. og 9. umferð er heklað þannig:
UMFERÐ 7: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hvorn af fyrstu 2 stuðlum, 1 FJÓRBRUGÐINN STUÐULL – sjá útskýringu í mynsturteikningu – í kringum SÍÐUSTU fastalykkju frá 4. umferð, 1 fastalykkja í hvern af næstu 5 stuðlum, 1 fjórbruðinn stuðull í kringum fyrstu fastalykkju frá 4. umferð, * 1 fastalykkja í hvern af næstu 5 stuðlum, 1 fjórbrugðinn stuðull í kringum sömu fastalykkju eins og fyrri fjórbrugðnu stuðlum, 1 fastalykkja í hvern af næstu 5 stuðlum, heklið 1 fjórbrugðinn stuðul í kringum næstu fastalykkju frá 4. umferð, * heklið frá *-* alls 4 sinnum, heklið 1 fastalykkju í hvern af næstu 5 stuðlum, 1 fjórbrugðinn stuðull í kringum sömu fastalykkju eins og fyrri fjórbrugðnu stuðlum, 1 fastalykkja í hvern af næstu 5 stuðlum, 1 fjórbrugðinn stuðull í kringum sömu fastalykkju og FYRSTI fjórbrugðni stuðull í umferð, 1 fastalykkja í hvern af næstu 3 stuðlum, endið með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð = 12 fjórbrugðnir stuðlar og 5 fastalykkjur á milli hverra.
UMFERÐ 9: Heklið 1 loftlykkju, * 1 fastalykkja í hvern af fyrstu/næstu 14 stuðlum, 2 ÞRÍBRUGÐNIR STUÐLAR SAMAN – sjá mynsturteikningu *, heklið frá *-* alls 6 sinnum (síðasti þríbrugðni stuðull er heklaður í kringum fyrsta fjórbrugðna stuðul í umferð), endið með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð = 6 þríbrugðnir stuðlar saman og 14 fastalykkjur á milli þar sem heklað er saman.
Þegar öll mynsturteikning A.1 og A.2 hefur verið hekluð saman eru 120 fastalykkjur í umferð og stykkið mælist ca 20 cm að þvermáli. Klippið frá og festið enda. Heklið 1 hring til viðbótar alveg eins.

HLIÐ Á TÖSKU:
Heklið 78 loftlykkjur með heklunál 3,5 með litnum spray blár Paris. Loftlykkjuumferð á að mælast 43 cm. Heklið síðan rendur og mynstur þannig:
UMFERÐ 1: Heklið með litnum spray blár: 1 loftlykkja til að snúa við með, heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju (= 78 fastalykkjur + 1 loftlykkja).
UMFERÐ 2: Heklið með litnum dökkur þveginn: 1 loftlykkja til að snúa við með, heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju.
UMFERÐ 3: Heklið með litnum bleikvínrauður: 3 loftlykkjur til að snúa við með, heklið 1 stuðul í næstu fastalykkju, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 lykkju, * heklið 1 stuðul með litnum sinnep í næstu fastalykkju, 1 stuðull með litnum bleikvínrauður í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* þar til eftir eru 2 fastalykkjur í umferð. Skiptið yfir í litinn sinnep og heklið 1 loftlykkju, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 stuðull í síðustu fastalykkju. Síðar á að þræða tvinnuðu snúruna í gegnum götin í hvorri hlið.
UMFERÐ 4: Heklið með litnum bleikvínrauður: 3 loftlykkjur til að snúa við með, heklið 1 stuðul í næsta stuðul, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 loftlykkju, * heklið 1 stuðul með litnum sinnep í næsta stuðul, 1 stuðull með litnum bleikvínrauður í næsta stuðul *, heklið frá *-* fram að næstu loftlykkju í umferð. Skiptið yfir í litinn sinnep og heklið 1 loftlykkju, hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í síðasta stuðul. Síðar á að þræða tvinnuðu snúruna í gegnum götin í hvorri hlið.
UMFERÐ 5: Heklið með litnum dökkur þveginn: 1 loftlykkja til að snúa við með, 1 fastalykkja í hverja lykkju (heklið 1 fastalykkju um 2 loftlykkjur í umferð).
UMFERÐ 6: Heklið með litnum spray blár: 1 loftlykkja til að snúa við með, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju. Klippið frá.

Heklið meðfram annarri skammhliðinni með litnum spray blár frá réttu þannig: Festið enda með 1 fastalykkju, heklið 3 loftlykkjur, heklið 7 stuðla meðfram kanti. Heklið alveg eins meðfram hinni skammhliðinni. Klippið frá og festið enda.

HEKLAÐ SAMAN:
Þegar heklað er saman er það gert með litnum spray blár. Heklið nú stykkin saman í gegnum bæði lögin í síðustu umferð á hringnum og síðustu umferð í hlið á tösku. Leggið 2 stykkin með rönguna að hvorri annarri. Heklið frá réttu og byrjið í hringnum sem snýr að þér:

* Heklið 1 fastalykkju í fyrust/næstu fastalykkju í hringinn og í hlið í ysta stuðul (sem var heklaður á öðrum enda í hlið á töskunni) *, heklið frá *-* alls 3 sinnum (þ.e.a.s. heklaðar hafa verið 3 fastalykkjur um sama stuðul og 1 fastalykkja í fyrstu af 3 fastalykkjum á hringnum), heklið síðan 1 fastalykkju í næstu fastalykkju í hringnum og fyrstu/næsta fastalykkju í hlið á tösku. Heklið svona fram og til baka í næsta stuðul í hinni hliðinni á töskunni. * Heklið 1 fastalykkju í næstu fastalykkju í hringnum og um hlið á ysta stuðul (sem var heklaður á hinum endanum á hlið á tösku) *, heklið frá *-* alls 3 sinnum (þ.e.a.s. það hafa verið heklaðar 3 fastalykkjur um sama stuðul og 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 fastalykkjum á hringnum). Nú hafa allar lykkjur verið heklaðar meðfram hlið á tösku og nú eru eftir 36 fastalykkjur í hringinn. Haldið síðan áfram með 1 fastalykkju í hverja af þeim 36 fastalykkjum sem eftir eru í hringnum. Klippið frá og festið enda.

Heklið nú hinn hringinn á töskunni alveg eins, nema nú er heklað í fyrstu loftlykkjuumferð sem var hekluð í hlið á tösku.

ATH. Passið uppá að 2 hringirnir séu staðsettir samhverft miðað við hvorn annan, þannig að mynstrið verði alveg eins í báðum hliðum á töskunni.

TVINNUÐ SNÚRA OG SKÚFAR:
Klippið 4 þræði ca 2 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á hvorn enda. Gerið 3 tvinnaðar snúrur til viðbótar = 4 tvinnaðar snúrur.
Þræðið 2 snúrur frá ytri hlið á tösku og í gegnum eitt af götum á annarri hlið á töskunni. Hnýtið stóran hnút til að festa snúrurnar á innanverðri töskunni. Endurtakið í hinni hliðinni og festið 2 síðustu tvinnuðu þræðina alveg eins í hinum tveimur götunum.

Gerið 1 stóran og þykkan skúf í litnum skær bleikur og annan stóran skúf í litnum bleikvínrauður.
Klippið 60 þræði ca 18 cm langa, hnýtið einn þráð (ca 20 cm langan) um miðjuna og leggið alla þræðina saman tvöfalda við hnútinn, vefjið með nýjum þræði (ca 20 cm langan) 3 sinnum utan um alla þræðina ca 2 cm niður frá miðju. Hnýtið þráðinn og stingið þræðinum með niður í skúfinn, klippið frá. Heklið með 2 þráðum þannig: Festið 2 þræði með fastalykkju um þráðinn á toppnum á skúfnum, heklið loftlykkjur í 6 cm. Klippið frá.
Gerið hinn skúfinn alveg eins. Festið skúfana í aðra hlið á töskunni með því að þræða hekluðu loftlykkjuumferðina í gegnum töskuna og hnýtið hnút.

Mynstur

symbols = heklið 6 loftlykkjur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð
symbols = 1 loftlykkja
symbols = 1 fastalykkja í lykkju
symbols = 1 fastalykkja í lykkju (setjið eitt prjónamerki í þessa lykkju svo að auðvelt verði að sjá þegar heklað er í þessa fastalykkju í 4. umferð)
symbols = 1 fastalykkja í lykkju (setjið eitt prjónamerki í þessa lykkju svo að auðvelt verði að sjá þegar heklað er utan um þessa fastalykkju í 7. umferð)
symbols = 1 stuðull í lykkju/um loftlykkju/loftlykkjuhring
symbols = heklið FJÓRBRUGÐINN STUÐUL: Bregðið þræðinum 4 sinnum um heklunálina, stingið heklunálinni undir fastalykkjuna sem á að hekla utan um, sækið þráðinn, * bregðið þræðinum um heklunálina, dragið þráðinn í gegnum 2 næstu lykkjur á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 5 sinnum = 1 lykkja á heklunálinni
symbols = HEKLIÐ 2 ÞRÍBRUGÐNA STUÐLA SAMAN: Heklið 1 þríbrugðinn stuðul utan um fyrsta/næsta fjórbrugðna stuðul frá 7. umferð, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina í lokin og að draga þráðinn í gegn, heklið 1 þríbrugðinn stuðul utan um næsta fjórbrugðna stuðul alveg eins, en nú er síðasti uppslátturinn dreginn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni = 1 þríbrugðinn stuðull.
1 ÞRÍBRUGÐINN STUÐULL: Bregðið þræðinum 3 sinnum um heklunálina, stingið heklunálinni niður og undir fyrsta/næsta fjórbrugðna stuðul í 7. umferð, það á að hekla í utan um í hring, sækið þráðinn, * bregðið þræðinum um heklunálina, dragið þráðinn í gegnum 2 næstu lykkjur á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 4 sinnum = 1 lykkja á heklunálinni.
symbols = Heklið KÚLU: Heklið 2 tvíbrugðna stuðula og 1 fastalykkju saman við 1 lykkju þannig: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul til viðbótar alveg eins í sömu lykkju, heklið 1 fastalykkju í sömu lykkju, en nú er síðasti uppslátturinn dreginn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni = 1 lykkja
symbols = ( 1 tvíbrugðinn stuðull, 3 stuðlar, 1 tvíbrugðinn stuðull) í fastalykkju sem er teiknuð eins og kross í 2. umferð (heklað er utan um loftlykkju frá 3. umferð).
symbols = sýnir stefnu á lykkju sem er hekluð í utan um aðra lykkju
symbols = umferðin byrjar með 1 loftlykkju og endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð
symbols = umferðin byrjar með 3 loftlykkjum og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð
symbols = umferðin byrjar með 4 loftlykkjum og endar með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun á umferð
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 186-10

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (32)

country flag Dolfin wrote:

Bonjour, J'ai fait l'échantillon et j'obtiens toujours plus que 10 cm, même avec un crochet 3 je suis à 12,5 cm de large... je ne comprends pas pourquoi j'ai autant d'écart. Pouvez-vous m'aider parce que du coup mon sac va être, encore une fois, trop grand.

11.11.2023 - 18:10

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Dolfin, essayez avec un crochet 2,5 et/ou bien essayez de resserrer vos mailles un peu plus, on a toutes une façon différente de crocheter, mais si vous n'avez pas l'échantillon, vous ne pourrez pas avoir les bonnes mesures finales, et votre sac sera toujours trop grand (pensez à vérifier la hauteur aussi, essayez de "tirer" un peu moins vos brides en hauteur si c'est un problème). Bon crochet!

13.11.2023 - 07:44

country flag Dolfin wrote:

Bonjour, J'utilise la même laine et le même crochet qu'indiqués et mon cercle fait 26cm et non pas 20, cela me semble un gros écart. Le sac fait-il vraiment 20 cm ? Mon échantillon est bon. Merci pour votre réponse.

15.09.2023 - 07:46

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Dolfin, aviez-vous bien le bon échantillon? Vous devez avoir 18 brides en largeur et 10,5 rangs de brides en hauteur pour 10 x 10 cm - pensez à bien resserrer vos mailles en hauteur ou essayez de moins les étirer si besoin. Bon crochet!

15.09.2023 - 08:32

country flag Loretta wrote:

Buongiorno volevo chiedere se le prime tre catenelle sostituiscono la prima magia alta e una catenella sostituisce la prima maglia bassa dei giri.grazie

06.06.2023 - 22:45

DROPS Design answered:

Buongiorno Loretta, se necessario, queste indicazioni vengono riportate direttamente nelle spiegazioni. Buon lavoro!

07.06.2023 - 08:23

country flag Loretta wrote:

Buongiorno non capisco il giro 4 dove devo lavorare le 5 maglie nel punto basso segnalato nel rigo 2 o attorno alle catenelle del rigo 3 e allora perché ho messo un segnapunti nel rigo 2. Grazie

05.06.2023 - 16:39

DROPS Design answered:

Buongiorno Loretta, nel giro 3 deve lavorare 5 maglie nella magliadel giro precedente; il segnapunti al giro 2 serve ad indicare dove lavorare il simbolo a "rombo" del giro 4. Buon lavoro!

07.06.2023 - 08:32

country flag Marie wrote:

Merci pour tous ces tutos très bien expliqués, votre site est une mine d'or. Jusqu'ici je suis parvenue à venir à bout de toutes les difficultés mais j'ai un problème avec le rang 7 du côté du sac. Si je suis les explications écrites, il ne me reste que 2 mailles serrées à la fin du rang et non 3. Si on compte la 1ere en l'air au début, ne faut-il pas faire 1 seule maille serrée et non 2 avant la 1ere quadruple bride ?

03.06.2022 - 19:01

DROPS Design answered:

Bonjour Marie, le 7ème tour est le même que celui dessiné dans le diagramme; chaque diagramme à répéter commence par 2 mailles serrées et se termine par 3 mailles serrées, autrement dit, vous devez toujours avoir 5 mailles serrées entre les quadruples brides: 2 ms au début du tour, 5 ms entre chaque et 3 ms à la fin du tour, avant la maille coulée. Peut-être que ce rang sur le diagramme pourra mieux vous aider? Bonne continuation!

07.06.2022 - 08:07

country flag Anna Maria wrote:

Non capisco bene il giro 4.ho capito che devo fare 5 punti alti nella m. bassa segnata nel secondo giro, ma cosa significa anche di lavorare attorno alla catenella del terzo giro? Grazie

21.12.2021 - 16:09

DROPS Design answered:

Buonasera Anna Maria, in quel punto deve lavorare ATTORNO alla maglia e non NELLA maglia. Buon lavoro!

05.03.2022 - 22:22

country flag Luna wrote:

Ik kan het patroon niet meer vinden van de tas, hoe moet ik dit nu doen?

16.03.2021 - 07:51

DROPS Design answered:

Je kunt het patroon uitprinten met de knop 'Afdrukken' onderaan de materialenlijst. (p.s.: Vorige week was er een probleem met het laden van afbeeldingen op de site, wellicht was dat de reden dat je het patroon even niet kon vinden...)

22.03.2021 - 20:58

country flag Sara wrote:

Scusatemi, ho capito come fare. Non occorre rispondere alla mia domanda precedente. Grazie

03.01.2021 - 10:13

country flag Sara wrote:

Non capisco il giro 4: in particolare, nella descrizione dice di lavorare le varie maglie nella maglia indicata nel secondo giro (capisco di lavorare le 5 maglie indicate tutte in questa maglia del secondo giro) , ma poi dice anche di lavorare attorno alla catenella del terzo giro: cosa vuol dire in termini pratici? Cosa devo lavorare attorno alla catenella del terzo giro? Grazie.

03.01.2021 - 08:30

country flag Anke wrote:

Die Kordel sind fertig und von der Aussenseite gefädelt und verknotet. Aber was mache ich mit den anderen Ende der Kordel,werden diese auch verknotet?

25.11.2020 - 21:14

DROPS Design answered:

Liebe Anke, die Anleitung wurde soeben etwas umformuliert, um es deutlicher zu machen, wie die Kordeln befestigt werden. Sie haben ja pro Seite 2 Löcher. Es werden jeweils 2 Kordeln pro Loch von außen nach innen durchgefädelt und auf der Innenseite verknotet. Das machen Sie an beiden Seiten der Tasche. Viel Spaß mit dieser schönen Tasche!

27.11.2020 - 09:02