DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 18920.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Magic Summer

Heklað sjal með áferð og röndum, heklað ofan frá og niður. Stykkið er heklað úr DROPS Cotton Merino.

DROPS 190-1
DROPS Design: Mynstur cm-093
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Mál:
Lengd fyrir miðju: ca 76 cm
Breidd efst: ca 180 cm

Efni:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
300 g litur 28, púður
150 g litur 15, sinnep
100 g litur 13, kórall
100 g litur 03, beige
100 g litur 16, gallabuxnablár
50 g litur 06, rauður
50 g litur 14, kirsuber
50 g litur 29, sægrænn
50 g litur 09, ísblár
50 g litur 07, vínrauður

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 18 stuðlar og 9 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 18920.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7.
A.4a, A.5a, A.6a og A.7a sýnir hvernig umferðin byrjar. ATH: Byrjun á umferð er teiknuð yfir hverja aðra í sömu mynsturteikningu þó að það sé heklað til skiptis í hægri og vinstri hlið á sjali og ekki fyrir ofan hverja aðra.

LITASKIPTI:
Þegar skipt er um lit er heklað þannig: Heklið síðustu lykkjuna í umferð með fyrsta lit, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, skiptið yfir í næsta lit og dragið þráðinn í gegnum síðustu lykkju með nýja litnum, eftir þetta er næsta umferð hekluð.

RENDUR:
Klippt er frá eftir hverja umferð, ef næsta umferð er ekki hekluð í sama lit. Endar eru festið í hlið í lokin.
UMFERÐ 1-3: púður
UMFERÐ 4: sinnepsgulur
UMFERÐ 5-7: beige
UMFERÐ 8-9: púður
UMFERÐ 10-12: beige
UMFERÐ 13: sinnep
UMFERÐ 14-15: púður
UMFERÐ 16-18: beige
UMFERÐ 19: sinnep
UMFERÐ 20: púður
UMFERÐ 21: kórall
UMFERÐ 22: kirsuber
UMFERÐ 23: kórall
UMFERÐ 24: púður
UMFERÐ 25-27: sægrænn
UMFERÐ 28: púður
UMFERÐ 29: sinnep
UMFERÐ 30: rauður
UMFERÐ 31: púður
UMFERÐ 32: gallabuxnablár
UMFERÐ 33: vínrauður
UMFERÐ 34: ísblár
UMFERÐ 35: kórall
UMFERÐ 36: ísblár
UMFERÐ 37-39: púður
UMFERÐ 40: sinnep
UMFERÐ 41: beige
UMFERÐ 42: ísblár
UMFERÐ 43: kirsuber
UMFERÐ 44: púður
UMFERÐ 45: rauður
UMFERÐ 46: kórall
UMFERÐ 47: rauður
UMFERÐ 48: gallabuxnablár
UMFERÐ 49: vínrauður
UMFERÐ 50: gallabuxnablár
UMFERÐ 51-54: púður
Umferð 55-56: sinnep

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka ofan frá og niður.

SJAL:
Heklið 5 loftlykkjur með heklunál 4 með litnum púður og tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. Byrjið í umferð með stjörnu og heklið MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, eftir mynsturteikningu A.1. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka, heklið áfram þannig: A.2a, A.2b og A.2c. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina eru 17 loftlykkjubogar í umferð. Stykkið mælist ca 10 cm frá fyrsta loftlykkjuhring, mælt mitt í sjali. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Heklið nú mynstur þannig: Heklið A.3a um fyrsta loftlykkjuboga, A.3b um hvern af næstu 7 loftlykkjubogum, A.3c um næsta loftlykkjuboga (= miðju loftlykkjurbogi á sjali), A.3b um hvern og einn af næstu 7 loftlykkjubogum, A.3d um síðasta loftlykkjuboga. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina eru 48 loftlykkjubogar í umferð. Stykkið mælist ca 19 cm frá fyrsta loftlykkjuhring, mælt mitt í sjali.

Heklið nú áfram RENDUR – sjá útskýringu að ofan, og mynstur A.4b (A.4a sýnir nú hvernig hver umferð byrjar og heklað er sem viðbót við lykkjurnar í A.4b. Lesið LITASKIPTI! ATH: Til að það verði auðveldara að sjá yfir hvaða umferð er hekluð í mynstri og rendur, setjið eitt prjónamerki í þessa umferð og næsta umferð er talin sem 1. umferð. Þ.e.a.s. fyrsta umferð í A.4b = 1. umferð í röndum.
UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið * 2 stuðla um fyrsta/næsta loftlykkjuboga, 3 stuðlar um næsta loftlykkjuboga *, heklið frá *-* út umferðina = 120 stuðlar.
Setjið 12 prjónamerki í stykkið án þess að hekla þannig: Setjið eitt prjónamerki eftir fyrstu 5 stuðla, síðan er hvert af næstu 11 prjónamerkjum sett með 10 lykkju millibili, það eru nú 5 stuðlar eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Prjónamerkin fylgja með í stykkinu!
Haldið síðan áfram frá 2. umferð í röndum og 2. umferð í A.4a/A.4b, JAFNFRAMT er aukið út hvoru megin við prjónamerkin, í umferð með ör þannig:
ÖR-1 (5. umferð): Aukið út um 1 stuðul hvoru megin við prjónamerkin með því að hekla 1 auka stuðul um loftlykkjuboga (= 24 lykkjur fleiri) = 144 stuðlar.
ÖR-2 (7. umferð): Aukið út um 1 fastalykkju hvoru megin við prjónamerkin með því að hekla 2 fastalykkjur í sömu lykkju (= 24 lykkjur fleiri) = 168 fastalykkjur.
ÖR-3 (10. umferð): Aukið út um 1 stuðul hvoru megin við prjónamerkin með því að hekla 2 stuðla í eina lykkju (= 24 lykkjur fleiri) = 192 stuðlar.
ÖR-4 (12. umferð): Aukið út um 1 fastalykkju hvoru megin við prjónamerkin með því að hekla 2 fastalykkjur í eina lykkju (= 24 lykkjur fleiri) = 216 fastalykkjur.
ÖR-5 (16. umferð): Aukið út um 1 stuðul hvoru megin við prjónamerkin með því að hekla 2 stuðla í eina lykkju (= 24 lykkjur fleiri) = 240 stuðlar.
ÖR-6 (18. umferð): Aukið út um 1 fastalykkju hvoru megin við prjónamerkin með því að hekla 2 fastalykkjur í eina lykkju (= 24 lykkjur fleiri) = 264 fastalykkjur.
Heklið síðan afgang af umferð í mynsturteikningu A.4a/A.4b. Þegar 20.umferðin hefur verið hekluð til loka mælist stykkið ca 39 cm frá fyrsta loftlykkjuhring, mælt mitt í sjali.

Heklið síðan áfram í röndum og mynstri A.5b (A.5a sýnir hvernig hver umferð byrjar og er hekluð sem viðbót við lykkjur í A.5b).
ÖR-7 (= 24. umferð): Aukið út um 1 fastalykkju hvoru megin við prjónamerkin með því að hekla 1 auka fastalykkju um loftlykkjuboga (= 24 lykkjur fleiri) = 288 fastalykkjur.
ÖR-8 (= 26. umferð): Aukið út um 1 fastalykkju hvoru megin við prjónamerkin með því að hekla 2 fastalykkjur í eina lykkju (= 24 lykkjur fleiri) = 312 fastalykkjur.
ÖR-9 (= 28. umferð): Aukið út um 1 stuðul hvoru megin við prjónamerkin með því að hekla 2 stuðla í eina lykkju (= 24 lykkjur fleiri) = 336 stuðlar.
ÖR-10 (= 30. umferð): Aukið út um 1 stuðul hvoru megin við prjónamerkin með því að hekla 1 auka stuðul um loftlykkjuboga (= 24 lykkjur fleiri) = 360 stuðlar.
Heklið afgang af umferð í mynsturteikningu.
Þegar öll 35. umferð hefur verið hekluð til loka á hæðina mælist stykkið ca 55 cm frá fyrsta loftlykkjuhring, mælt mitt í sjali. Nú eru 60 sólfjaðrir (= 30 mynstureiningar A.5b) í umferð.

Heklið nú A.6b (A.6a sýnir hvernig umferð byrjar og er hekluð sem viðbót við A.6b):
Umferð 36 er hekluð frá röngu þannig: Leggið 35. umferð (umferð með kórall, sólfjöðrum) niður þannig að rétta liggi að réttu og heklið um 34. umferð (umferð með ísblár) frá bakhlið á sjali þannig:
4 loftlykkjur, 1 fastalykkja um fyrsta hálfa stuðul, (4 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta hálfa stuðul) heklið svona meðfram öllu sjalinu og endið með 1 fastalykkju um síðasta hálfa stuðul í umferð = 120 loftlykkjubogar.
Heklið umferð 37, setjið síðan prjónamerkin inn að nýju í stykkið, án þess að hekla þannig: Setjið fyrsta prjónamerki eftir 15 lykkjur, setjið næstu 11 prjónamerki með 30 lykkju millibili, það eru þá 15 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Haldið síðan áfram með umferð 38 og 39. Klippið frá og heklið umferð 40 frá réttu, þannig að báðar umferðir 39 og 40 eru heklaðar frá réttu. Byrjið á umferð 40 með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju frá fyrri umferð. Haldið síðan áfram eins og áður og aukið út í umferð með ör þannig:
ÖR 11 (= 41.umferð): Aukið út um 1 stuðul hvoru megin við prjónamerki með því að hekla 1 auka stuðul um loftlykkjuboga (= 24 lykkjur fleiri) = 384 lykkjur.
ÖR 12 (= 44.umferð): Aukið út um 1 stuðul hvoru megin við prjónamerki með því að hekla 1 auka stuðul um loftlykkjuboga (= 24 lykkjur fleiri) = 408 lykkjur.
Haldið áfram þar til umferð 48 hefur verið hekluð til loka. Klippið frá eftir umferð 48 og heklið umferð 49 frá réttu, þannig að báðar umferðir 48 og 49 eru heklaðar frá réttu. Byrjið umferð 49 með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju frá fyrri umferð. Þegar umferð 49 hefur verið hekluð til loka eru 68 sólfjaðrir (= 34 mynstureiningar A.6b) í umferð. Stykkið mælist ca 69 cm frá fyrsta loftlykkjuhring, mælt mitt í sjali.

Heklið nú A.7b (A.7a sýnir hvernig umferð byrjar og er hekluð sem viðbót við A.7b).
Umferð 50 er hekluð frá röngu þannig: Leggið 49. umferð (umferð með vínrauðum sólfjöðrum) niður þannig að rétta liggi að réttu og heklið um 48. umferð (gallabuxnablár) frá bakhlið á sjali þannig: (4 loftlykkjur, 1 fastalykkja um fyrsta/næsta hálfa stuðul) heklið svona meðfram öllu sjalinu og endið með 1 fastalykkju um síðasta hálfa stuðulinn í umferð = 136 loftlykkjubogar.
Ör 13 (51.umferð): Aukið út um 3 lykkjur (= 1 loftlykkja + 1 stuðull) um 2 loftlykkjuboga á undan hverju prjónamerki og aukið út um 2 lykkjur (= 1 loftlykkja + 1 stuðull) um hvern og einn af 2 loftlykkjubogum á eftir hverju prjónamerki (= 48 loftlykkjubogar fleiri) = 252 loftlykkjur + 252 stuðlar í umferð.
Þegar 52. og 53. umferð hefur verið hekluð til loka, klippið frá og 54. umferð er hekluð frá réttu, þannig að 53. umferð og 54. umferð verði báðar heklaðar frá réttu. Byrjið 54. umferð með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju frá fyrri umferð.
Þegar A.7a og A.7b hefur verið heklað til loka á hæðina er stykkið tilbúið. Klippið frá og festið enda. Sjalið mælist ca 76 cm frá byrjun.

Mynstur

symbols = heklið 5 loftlykkjur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. Svartur punktur er byrjun á umferð
symbols = 1 loftlykkja
symbols = 3 loftlykkjur
symbols = 1 fastalykkja um loftlykkjuhring/loftlykkjuboga/loftlykkju. ATH: Í 36. og 50. umferð er heklað um hálfa stuðul – sjá útskýringu í uppskrift!
symbols = Frá réttu: 1 fastalykkja í aftari lykkjuboga. Frá röngu: 1 fastalykkja í fremri lykkjuboga
symbols = 1 hálfur stuðull um loftlykkjuboga
symbols = 1 stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = Frá réttu: 1 stuðull í aftari lykkjuboga. Frá röngu: 1 stuðull í fremri lykkjuboga
symbols = 1 tvíbrugðinn stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = heklið eina kúlu um loftlykkjuboga þannig: Heklið 1 stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 3 tvíbrugðna stuðla um sama loftlykkjuboga, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin á hverjum og einum af stuðlunum, heklið 1 stuðul um sama loftlykkjuboga, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar lykkjur á heklunálinni
symbols = um þennan loftlykkjuboga er aukið út um 1 loftlykkjuboga með því að hekla 2 loftlykkjuboga eins og útskýrt er í mynsturteikningu
symbols = frá réttu: (1 stuðull, 2 loftlykkjur, 1 stuðull) í aftari lykkjuboga í sömu lykkju. Frá röngu: (1 stuðull, 2 loftlykkjur, 1 stuðull) í fremri lykkjuboga í sömu lykkju
symbols = byrjið í þessari umferð, fyrri umferð hefur nú þegar verið hekluð
symbols = í umferð með ör er aukið út hvoru megin við prjónamerki þannig – sjá útskýringu í uppskrift
symbols = í byrjun á umferð eru heklaðar 3 loftlykkjur
symbols = í byrjun á umferð er hekluð 1 loftlykkja
symbols = í byrjun á umferð eru heklaðar 4 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 tvíbrugðnum stuðli í síðustu lykkju í umferð
symbols = í byrun á umferð eru heklaðar 2 loftlykkjur
symbols = 4 loftlykkjur
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 190-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (24)

country flag Nathalie Mariné wrote:

Hej. Jag har problem med att få rätt på rad 4 och 5. dvs första raden i senapsgul och sen rad fem mmed ökningen. Jag fårr 149 stopar på rad 5 och undrar nu om jag har för många "V" i det gula? Hur många skall det vara? Sen får jag inte heller markörerna som skall vara 12, jag får bara ihop det till 11 på markörer på 120 stolpar? 5 stolpar och sedan 10 stolpar mellan? Hoppas på hjälp, vill ju få ihop denna fina sjal...

27.05.2022 - 11:08

DROPS Design answered:

Hei Nathalie. Til dette sjalet har vi laget mange hjelpevideoer og leksjoner. Ta en titt på den videoen som viser rad 2-5 (Hvordan hekle 2.- 5.rad av 4. hint av Magic Summer DROPS -Along). Eller så kan du ta en titt på Leksjoene til Magic Summer Sjalet under Tips & Hjelp / DROPS-Along / Magic Summer og Hint #4 - Vi legger til litt farge. Her får du en utfyllende forklaring på alle radene. mvh DROPS Design

30.05.2022 - 08:31

country flag Rissa wrote:

Zweimal gehäkelt: einmal in uni (blau), einmal mit drei Farben. Auch bei den Wollarten habe ich varieert und das blaue Tuch mit der Drops Flora gehäkelt. Fazit: sehr schöne Ergebnisse!

01.10.2021 - 15:08

country flag Ester wrote:

Cómo empezar el chal punto por punto mandé la respuesta y medidas para empezar a tejer gracias por su colaboración

17.08.2021 - 20:13

DROPS Design answered:

Hola Ester, tienes bajo el patrón una serie de videos que explican paso a paso cómo realizar el chal.

20.08.2021 - 21:04

country flag Marijke De Smet wrote:

Na toer 1A4b heb ik 144 stokjes ipv 120 zoals aangegeven in de uitleg....48lossenlussen x3stokjes.Wat doe ik fout?

18.04.2021 - 11:49

DROPS Design answered:

Dag Marijke,

Na A.3 heb je 48 lossenlussen. In de eerste toer haak je 2 stokjes om de eerste lossenlus en 3 stokjes om de volgende lossenlus, dit herhaal je steeds. Hierdoor zou je op 120 stokjes moten komen. (3 stokjes om 24 lossenlussen en 2 stokjes om de 24 andere lossenlussen). Jammer dat ik hier vandaan niet mee kan kijken wat er mis is gegaan. Misschien toch even de lossenlussen en stokjes nakijken? Hem je misschien 3 stokjes in elke lossenlus gehaakt?

19.04.2021 - 19:56

country flag Lee FRAZIER wrote:

Magic Shawl 190/1 If I want to create a larger shawl which sections are the best to repeat to make it longer?

10.03.2021 - 01:29

DROPS Design answered:

Dear Mrs Frazier, we are unfortunately not able to adjust every pattern to every single request - this shawl has been worked through a DROPS Along - see here. Maybe that can inspire you. Happy crocheting!

10.03.2021 - 07:50

country flag Agnieszka wrote:

Witam. Uważam, że polskie tłumaczenie symboli jest nieprecyzyjne. Symbole "T" oraz "x " oznaczają (zgodnie z video) "półsłupek". Symbol użyty w rzędach 34 i 48 to "półsłupek nawijany".

03.02.2021 - 07:36

DROPS Design answered:

Witaj Agnieszko, zdarzają się takie głosy jak twój, faktycznie te oczka są dwojako nazywane w polskiej terminologii szydełkowej. Przy tłumaczeniu musieliśmy się trzymać jednej z nich. Rozumiemy, że może to być pewne utrudnienie, dlatego poza opisem proponujemy graficzne schematy oraz video. Dziękujemy za zainteresowanie naszymi wzorami i pozdrawiamy!

03.02.2021 - 13:08

country flag Esther wrote:

Hvor meget garn (cotton merino) skal man bruge, hvis man vil lave sjalet ensfarvet? (Eller hvor meget vejer det færdige sjal?)

16.01.2020 - 23:48

DROPS Design answered:

Hei Ester. Du vil trenge 700 gram om du ønsker å hekle et ensfarget sjal i Cotton Merion. God Fornøyelse!

27.01.2020 - 13:02

country flag Lillian Tang-Petersen wrote:

Kan ikke få opskriften til at passe. Når jeg har hæklet 10 rækker = ca de første 3 diagrammer, har jeg 21 buer, der står at når alle 4 diagrammer, er hæklet, skal der være 17 buer, hvad gør jeg forkert? Hilsen Lillian Tang-Petersen

06.01.2020 - 20:43

DROPS Design answered:

Hei Lillian. Usikker på hva du gjør galt, men på dette sjalet har vi en step-by-step beskrivelse som du kan finne under Gratis oppskrifter / DROPS -Along - scroll ned til Magic Summer og klikk på hintene. Du kan også ta en titt på alle hjelpevideoene til dette sjalet. De finner du nederst på oppskriften. God Fornøyelse!

03.02.2020 - 14:32

country flag Kasia wrote:

Czy w schemacie A4a w rzędzie 2,3,4 nie dodaje się oczek? Bo gdy dodaje dopiero w rzędzie 5 ze strzałką to zawija się i rogi lecą w dół.

09.11.2019 - 00:02

DROPS Design answered:

Witaj Kasiu! Być może przerabiasz zbyt ścisło. Pamiętaj też, że schemat A.4a pokazuje jak zaczynać każdy rząd i jest wykonywany dodatkowo poza oczkami schematu A.4b. Koniecznie zobacz szczegółową wskazówkę jak wykonać tą część szala TUTAJ. Znajdziesz tam nie tylko opis i zdjęcia poszczególnych etapów (rzędów), ale również instrukcje video. Miłej pracy!

09.11.2019 - 08:22

country flag Jessika Anderberg wrote:

Hej Har fastnat på varv 24 av ränderna. Jag har 88 st bågar att virka i. Hur jag än räknar så får jag inte rätt antal fm (det ska ju bli 288) Vad var jag gjort för del?

09.04.2019 - 15:09

DROPS Design answered:

Hei Jessika. Du har 88 luftmaskebuer. På rad 24 i diagram A.5b skal du hekle 3 fastmasker i hver luftmaskebue. 88 x 3 = 264 fastmasker. I tillegg skal du øke 24 fastmasker på raden (ved å hekle 4 fastmasker, isteden for 3, på hver side av merkene). 264 + 24 = 288. God fornøyelse

10.04.2019 - 14:51