Gaetane wrote:
Bonjour! Comment ne pas faire de demarquation, lorsque rendu au rayures, en changeant de couleur en faisant des côtes ? Les m end ça va mais à l envers c est pas joli vu sur l endroit ! Alors comment on procède ? Merci 🙏
14.01.2024 - 01:14DROPS Design answered:
Bonjour Gaetane, vous pouvez serrer légèrement le fil à la transition des rangs, ou bien utiliser en partie cette technique. Bon tricot!
15.01.2024 - 09:22Annemarie wrote:
Hello I like to make this pattern a favorite but I don't understand how I must send this to bookmark first and then make it a favorite
19.02.2020 - 10:59DROPS Design answered:
Dear Annemarie, to bookmark a pattern as a favorite, click on the black heart (just after Need Help/Print buttons), and follow instructions. Happy knitting!
19.02.2020 - 11:54Wilmo wrote:
Hello, I do not understand how to work the heel stitches together - do you have a video please?
13.04.2019 - 00:00DROPS Design answered:
Hello Wilmo. The following video can help you. Happy knitting!
13.04.2019 - 09:12Semb wrote:
Et helt enkelt spørsmål : Når man strikker striper som på disse sokkene, kuttes tråden av for hver gang en skal begynne på ny farge??? Jeg syns det blir masse tråder å feste, men det er ikke alltid det blir like pent å la tråden følge nedover heller....jeg strikker en del for andre, og syns det er ok at vrangen også ser ok ut !!!
14.02.2019 - 17:04DROPS Design answered:
Hei Semb. Dette blir en smakssak, men det letteste er vel å la tråden følge med når det strikkes 3 små striper i samme farge (for eksempel blå) og når de 3 stripene er ferdig, kutt tråden. Det er kun 2 omganger mellom hver gang fargen brukes, så tråden trenger ikke følge med så langt mellom hver gang. Hvis du trenger tips til hvordan å tvinne tråden på baksiden slik at den ikke henger løst kan du se på denne videoen: . God fornøyelse
18.02.2019 - 12:11
Berry Waves |
|
|
|
Prjónaðir sokkar í stroffprjóni úr DROPS Karisma með klassískum hæl. Stærð 35-44.
DROPS 189-36 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- RENDUR: Prjónið rendur þannig: * 2 umferðir með litnum ljós gallabuxnablár, 2 umferðir með litnum ljós púðurbleikur *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum. * 2 umferðir með litnum kirsuber, 2 umferðir með litnum ljós púðurbleikur *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum. * 2 umferðir með litnum natur, 2 umferðir með litnum ljós púðurbleikur *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja, setjið þráðinn á vinstri prjón og prjónið hann snúið slétt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. STROFF / LEGGUR: Fitjið upp 44-48-52 lykkjur með litnum ljós púðurbleikur á sokkaprjón 3,5. Prjónið stroffprjón þannig: STÆRÐ 35/37 og 41/44: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* og endið með 1 lykkju slétt. STÆRÐ 38/40: Prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið umferðina hringinn. ALLAR STÆRÐIR: Prjónið 6 umferðir með litnum ljós púðurbleikur, haldið síðan áfram með stroffprjón og prjónið RENDUR – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar rendur hafa verið prjónaðar til loka er haldið áfram með litnum ljós púðurbleikur þar til stykkið mælist 17-18-19 cm. Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 24-26-28 lykkjur í umferð (= hællykkjur), prjónið stroffprjón eins og áður yfir næstu 20-22-24 lykkjur og setjið síðan þessar lykkjur á þráð (= ofan á fæti). HÆLL: Prjónið síðan sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur, í 1. umferð frá réttu eru lykkjur auknar út til að sokkurinn passi betur þannig: Prjónið 9-10-11 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju – lesið ÚTAUKNING, * prjónið 2 lykkjur, aukið út um 1 lykkju *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum og prjónið síðan út umferðina = 28-30-32 lykkjur á prjóni. Haldið áfram og prjónið til baka í sléttprjóni þar til hællinn mælist ca 5-5½-6 cm, setjið 1 prjónamerki mitt í umferð. Í næstu umferð frá réttu er prjónað þannig: Prjónið 10-11-12 lykkjur slétt, prjónið næstu 8 lykkjur slétt saman 2 og 2, prjónið síðustu 10-11-12 lykkjur slétt = 24-26-28 lykkjur. Snúið við og prjónið brugðið til baka. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu. Prjónið nú fram og til baka frá röngu til að prjóna saman hællykkjur. HÆLLYKKJUR PRJÓNAÐAR SAMAN: Allar umferðir eru prjónaðar frá röngu. Snúið við og prjónið fyrstu 12-13-14 lykkjur brugðið frá röngu. Passið uppá að þráðurinn liggi á bakhlið á stykki (= liggi að réttu á stykkinu) og prjónið þannig: VINSTRI PRJÓNN: Prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman, lyftið síðan til baka lykkjum sem prjónaðar voru saman yfir á vinstri prjón og herðið á þræði. Ekki snúa stykkinu. HÆGRI PRJÓNN: Stingið inn vinstri prjóni í 2 næstu lykkjur á hægri prjóni (stingið inn frá vinstri til hægri og passið uppá að prjóninn liggi aftan við hægri prjón), sækið þráðinn og leggið þráðinn utan um vinstri prjón, dragið síðan þráðinn í gegnum þessar 2 lykkjur (frá hægri til vinstri) og sleppið 2 lykkjum af hægri prjóni. Lyftið síðan til baka lykkjum sem prjónaðar voru saman yfir á hægri prjón og herðið á þræði. Ekki snúa stykkinu. Endurtakið VINSTRI og HÆGRI PRJÓNN þar til 2 lykkjur eru eftir. Nú hafa hællykkjur verið prjónaðar saman. Setjið 2 lykkjur sem eru eftir á hægri prjón og snúið stykkinu að réttu. FÓTUR: Prjónið upp 11-12-13 lykkjur meðfram fyrri hlið á hæl (innan við 1 lykkju), setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn og prjónið stroffprjón yfir þessar lykkjur eins og áður, prjónið upp 11-12-13 lykkjur meðfram hinni hlið á hæl (innan við 1 lykkju) = 44-48-52 lykkjur. Haldið áfram með stroffprjón yfir efri hlið og sléttprjón yfir neðri hlið / hlið á sokk – JAFNFRAMT eru prjónaðar RENDUR. Þegar rendurnar hafa verið prjónaðar er prjónað áfram með litnum ljós púðurbleikur. Prjónið þar til stykkið mælist 19-20-23 cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir 3-4-4 cm til loka). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fæti (þannig að það verða 22-24-26 lykkjur bæði ofan á fæti og undir fæti). Prjónið síðan áfram í sléttprjóni og fækkið lykkjum fyrir tá hvoru megin við hvort prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman, prjónið 2 lykkjur (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja) og prjónið 2 lykkjur slétt saman, endurtakið alveg eins við hitt prjónamerkið. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð þar til 8 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman í næstu umferð = 4 lykkjur. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum lykkjurnar nokkrum sinnum og festið vel. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |