DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5148.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Embrace of the Sun Skirt

Prjónað pils úr DROPS Muskat með gatamynstri, prjónað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 190-31
DROPS Design: Mynstur r-731
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokkur B)
450-500-550-600-650-700 g litur 07, ljós gulur

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 3,5 perluprjón – eða þá stærð sem þarf til að 22 lykkjur og 30 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

FYLGIHLUTIR: ca 70-120 cm teygja.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5148.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING-1:
Aukið út um 1 lykkju með því að taka upp lykkju frá fyrri umferð og prjóna nýju lykkjuna slétt. Þegar aukið er út á eftir 1. og 3. prjónamerki á að taka upp 1 lykkju í fyrsta lykkjuboga á eftir prjónamerki. Þegar aukið er út á undan 2. og 4. prjónamerki á að taka upp 1 lykkju í síðasta lykkjuboga á undan prjónamerki.

ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 336 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 16) = 21.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 21. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2).

PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: Sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur.
Endurtakið umferð 2.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PILS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður.

PILS:
Fitjið upp 152-168-184-208-232-256 lykkjur á hringprjón 4 með Muskat.
Prjónið sléttprjón í 2 cm fyrir fald. Prjónið 1 umferð brugðið (= uppábrot). Setjið 1 merkiþráð í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4-4-4-4-5-6 cm frá merkiþræði eru sett 4 prjónamerki í stykkið þannig. Fyrsta prjónamerki er sett á eftir fyrstu 17-20-23-28-33-38 lykkjur, 2. prjónamerkið er sett á eftir næstu 42-44-46-48-50-52 lykkjur, 3. prjónamerkið er sett á eftir næstu 34-40-46-56-66-76 lykkjur og 4. prjónamerkið er sett á eftir næstu 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Nú eru 17-20-23-28-33-38 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki.
Í næstu umferð er aukið út á eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki – lesið ÚTAUKNING-1 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 2½-2-2-2-2-2 cm millibili alls 10-12-14-14-14-14 sinnum = 192-216-240-264-288-312 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 29-31-33-33-35-37 cm frá merkiþræði. Prjónið nú A.1 hringinn (= 16-18-20-22-24-26 mynstureiningar með 12 lykkjum). Í hverri umferð með ör í A.1 færist byrjun á umferð til um 2 lykkjur til vinstri, þ.e.a.s. takið 2 fyrstu lykkjurnar yfir á hægir prjón án þess að prjóna þær, prjónið síðan A.1 hringinn. Þessar 2 lykkjur sem færðar voru yfir á hægri prjón koma til með að verða prjónaðar í síðustu endurtekningu með A.1. Í næstu umferð eru allar lykkjurnar prjónaðar slétt og í næstu umferð á eftir byrjar umferðin aftur eins og áður.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 256-288-320-352-384-416 lykkjur í umferð. Prjónið síðan A.2 hringinn (= 16-18-20-22-24-26 mynstureiningar með 16 lykkjum). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 336-378-420-440-480-520 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 16-18-20-22-24-26 lykkjur jafnt yfir = 352-396-440-462-504-546 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið perluprjón hringinn í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir sléttar lykkjur. Pilsið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá faldi með uppábroti í mitti og niður.

FRÁGANGUR:
Brjótið uppá faldinn að röngu og saumið fallega niður, en skiljið eftir smá op til að þræða teygjuna í gegn.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat
symbols = færið byrjun á umferð 2 lykkjur til vinstri eins og útskýrt er í uppskrift
symbols = færið byrjun á umferð 2 lykkjur til vinstri, síðan byrjar hver umferð hér

diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 190-31

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (9)

country flag Gill Mineur wrote:

Hej, första gången jag stickar mönster och är på första varvet i mönstret :) diagram A1 =mellan 2 maskor görs det 1 omslag om stickan. räknar man 5 räta och ett omslag eller 6 räta och ett omslag? tänker om det först är en maska och sen ett omslag och räta och sen ett omslag igen? Tack för Hjälpen :) Mvh Gill mineur

10.08.2021 - 09:11

DROPS Design answered:

Hej Gill. Första varvet i A.1 stickar du såhär: 6 räta, 1 omslag, 1 rät, 1 omslag, 5 räta. Mvh DROPS Design

17.08.2021 - 14:04

country flag Verena wrote:

Hallo, nach A2 wird 1 Runde rechts gestrickt und mittels Umschlag zugenommen. Wird die nächste Runde bereits mit 3,5Nadeln im Perlmuster gearbeitet und dabei den Umschlag verschränkt gestrickt? Oder folgt erneut eine Runde rechte Maschen, um den Umschlag zu verarbeiten? Nadel 4 oder 3,5? Danke :)

17.11.2020 - 20:34

DROPS Design answered:

Liebe Verena, nach A.2 stricken Sie eine Runde mit Zunahmen regelmäßig verteilt, dann stricken Sie mit Nadeln Nr 3,5 im Perlmuster, dh sofort nach der Zunahmenrunde - die Umschläge stricken Sie verschränkt um Löcher zu vermeiden. Viel Spaß beim stricken!

18.11.2020 - 07:49

country flag Woo wrote:

Should I start the diagrams from the bottom or from the top? Rows numbering would be really helpful.

09.04.2020 - 21:43

DROPS Design answered:

Dear Woo, the diagram is read from the bottom and right to left (from the right side) or left to right (from the wrong side). You can see the lesson to read charts below: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=68&cid=19

12.04.2020 - 19:31

country flag Terry L Tucker wrote:

What does it mean to "displace the beginning of round 2 stitches to the left." Do you slip these stitches or just move the marker? There will be a carried thread on the wrong side if they are slipped and 'not worked,' so I need to understand. thank you.

27.05.2019 - 19:04

DROPS Design answered:

Dear Terry, it means you should pass the first 2 stitch on to right needle without working them, then work A.1 in the round. Work the 2 stitches passed on to right needle in last repetition of A.. Happy Knitting!

27.05.2019 - 22:07

country flag Christiane wrote:

Bonjour, Je souhaite faire une jupe plus longue, à quel moment dois-je rajouter des rangs ? Merci

03.04.2019 - 11:06

DROPS Design answered:

Bonjour Christiane, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir ajuster chaque modèle à chaque demande, vous pourrez recevoir toute l'assistance individuelle complémentaire auprès de votre magasin DROPS, même par mail ou téléphone. Bon tricot!

03.04.2019 - 13:47

country flag Kristi wrote:

Järgmisel ringil kahanda pärast 1. ja 3. silmusemärkijat, ning enne 2. ja 4. silmusemärkijat – loe KASVATAMISE NIPPI 1 (= 4 silmust kasvatatud). Kas ei peks olema: järgmisel ringil kasvata pärast 1. ja . silmusemärkijat

04.09.2018 - 16:39

country flag Mariarita wrote:

Gentilissimo Staff,buongiorno.Grazie per la solerte risposta (comunque non ho risolto la mia problematica:forse dipende dalla stampante).Auguro buon 1° maggio.Rita

01.05.2018 - 09:30

country flag Mariarita wrote:

Buongiorno.Sto riscontrando dei problemi a stampare le spiegazioni dei Vostri modelli.Vi risultano altre segnalazioni in merito,oppure è una mia inettitudine?Grazie della cortese risposta.Complimenti e buon lavoro.Rita

01.05.2018 - 08:14

DROPS Design answered:

Buongiorno Mariarita. Dopo aver cliccato per stampare il modello, si apre la pagina con l'offerta sconto attualmente in essere. In alto a destra, trova la scritta: Stampare il modello e da lì si completa la procedura di stampa. Buon lavoro!

01.05.2018 - 08:38

country flag Monica Lovino wrote:

Buongiorno, ma se volessi fare la gonna un po' più lunga, diciamo 10/15 cm in più, come dovrei fare? Grazie

19.04.2018 - 17:11

DROPS Design answered:

Buongiorno Monica. Per allungare la gonna, può lavorare10/15 cm in più a maglia rasata prima di lavorare il diagramma A.1. Buon lavoro!

20.04.2018 - 08:35