DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10120.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Le Conquet

Prjónuð peysa með laskalínu, perluprjóni og ¾ ermum, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr 1 þræði DROPS Alpaca og 2 þráðum DROPS Kid-Silk.

DROPS 191-8
DROPS Design: Mynstur z-817
Garnflokkur A + A + A eða D
-----------------------------------------------------------

Stærð: XS/S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-150-200-200-200-250 g litur 2110, ljós gulur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
125-125-125-150-150-175 g litur 01, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 7 – eða þá stærð sem þarf til að 13 lykkjur og 15 umferðir með perluprjóni með 3 þráðum verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 6 – fyrir stroff.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 522: 6-6-6-7-7-7 st

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10120.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING:
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 63 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 8 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 4,6.
Í þessu dæmi þá er aukið út til skiptis eftir 4. og 5. hverja lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 (perluprjón). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) þannig: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Aukið síðan út hvoru megin við 4 prjónamerkin.
Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður brugðið svo að það myndist gat. Prjónið síðan útauknnar lykkjur jafnóðum inn í mynstur. Þær 2 lykkjur í hverri laskalínu eru prjónaðar í sléttprjóni þar til berustykkið hefur verið prjónað til loka.

ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermum):
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan lykkju með prjónamerki í, takið 2 lykkjur af prjóni óprjónaðar eins og prjóna eigi þær slétt saman, prjónið næstu lykkju eins og útskýrt er í A.1 og steypið 2 óprjónuðu lykkjunum yfir. Með þessu þá kemur A.1 til með að halda fallega áfram yfir úrtökur í næstu umferð.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að ekki myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 7½-8-8-7-7½-8 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón ofan frá og niður, skipt er yfir á sokkaprjóna eftir þörf.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 63-63-69-75-78-81 lykkjur (meðtaldar 4 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 6 með 1 þræði Alpaca + 2 þráðum Kid-Silk (= 3 þræðir).
Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu: 4 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Eftir stroff er prjónuð 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 12-12-14-14-11-10 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 75-75-83-89-89-91 lykkjur.
Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið þannig (þetta er gert án þess að prjóna lykkjur): Fyrsta prjónamerki er sett á eftir fyrstu 16-16-18-20-20-20 lykkjur (= framstykki), 2. prjónamerki er sett á eftir næstu 9 lykkjur (= ermi), 3. prjónamerki er sett á eftir næstu 25-25-29-31-31-33 lykkjur (= bakstykki) og 4. prjónamerki er sett á eftir næstu 9 lykkjur (= ermi). Nú eru 16-16-18-20-20-20 prjónamerki á eftir síðasta prjónamerki á framstykki. Prjónið nú berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 7 og prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 yfir næstu 11-11-13-15-15-15 lykkjur (byrjið og endið með 1 lykkju slétt), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur sléttprjón (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 yfir næstu 7 lykkjur (byrjið og endið með 1 lykkju slétt), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 yfir næstu 23-23-27-29-29-31 lykkjur (byrjið og endið með 1 lykkju slétt), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 yfir næstu 7 lykkjur (byrjið og endið með 1 lykkju slétt), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 yfir næstu 11-11-13-15-15-15 lykkjur (byrjið og endið með 1 lykkju slétt) og endið með 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= 8 lykkjur fleiri). Haldið svona áfram með A.1 fram og til baka með 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan og 2 lykkjur í sléttprjóni meðfram hverri laskalínu. JAFNFRAMT heldur útaukning fyrir LASKALÍNA áfram hvoru megin við 4 prjónamerkin – sjá útskýringu að ofan, þar til aukið hefur verið út alls 11-15-16-16-19-20 sinnum meðfram hverri laskalínu (meðtaldar útaukningar í fyrstu umferð frá réttu á eftir kanti í hálsi). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Á eftir síðustu útaukningu eru 163-195-211-217-241-251 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur með 2 lykkjur sléttprjón meðfram hverri laskalínu þar til stykkið mælist 18-24-25-25-29-30 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið fyrstu 26-30-32-34-38-40 lykkjur eins og áður, setjið næstu 33-41-45-45-49-49 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5-5-5-7-7-11 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 45-53-57-59-67-73 lykkjur eins og áður, setjið næstu 33-41-45-45-49-49 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5-5-5-7-7-11 nýjar lykkjur á prjóninn og prjónið síðustu 26-30-32-34-38-40 lykkjur eins og áður. Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 107-123-131-141-157-175 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðju 5-5-5-7-7-11 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu.
Haldið áfram með A.1 fram og til baka með 4 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 6-4-4-8-8-8 cm millibili alls 3-3-3-2-2-2 sinnum í hvorri hlið = 95-111-119-133-149-167 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 19-15-16-18-16-17 cm frá skiptingu er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 13-12-13-17-19-19 lykkjur jafnt yfir = 108-123-132-150-168-186 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju brugðið og 4 kantlykkjur í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Skiptið til baka yfir á hringprjón 7 og fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Peysan mælist ca 44-46-48-50-52-54 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 33-41-45-45-49-49 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 7 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 5-5-5-7-7-11 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 38-46-50-52-56-60 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðju á 5-5-5-7-7-11 lykkjum undir ermi. Haldið áfram með A.1 hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 13-3½-3-3-2-1½ cm millibili alls 3-7-8-8-10-11 sinnum = 32-32-34-36-36-38 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 32-27-26-26-23-22 cm frá skiptingu (styttra máli í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis).
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-4-5-3-3-4 lykkjur jafnt yfir = 36-36-39-39-39-42 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjón 6 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði ekki stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 36-31-30-30-27-26 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 11.02.2019
Leiðrétting: FRAM- OG BAKSTYKKI: Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 4 kantlykkjur að framan með garðaprjóni, * 1 lykkja brugðin, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* ...

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Le Conquet

Kristine, Denmark

Gul sommarkofta

Susanne, Sweden

Skrifaðu athugasemd um DROPS 191-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (73)

country flag Jenny wrote:

Hej, jag tror det står fel cm-mått angivet på minskningarna på ärmen i storlek small. Det står att man ska minska var 13:e cm, tre gånger. Men då blir ju ärmen 42 cm från delningen, inte 32.

18.03.2024 - 17:35

country flag Lucia Bandirali wrote:

Bellissimo, vorrei sapere, la prima è l'ultima maglia a legaccio come viene lavorata x avere una bella cimosa? Noto che nei Vs modelli non la menzionate mai. Grazie mille

16.01.2024 - 09:50

DROPS Design answered:

Buonasera Lucia, in tantissimi modelli DROPS è indicato come si lavorano le maglie di vivagno: se non è riportato, si lavorano come le altre maglie. Buon lavoro!

17.01.2024 - 16:50

country flag Marie Winberg wrote:

Jag stickar en kofta med raglan. Nu ska jag sätta ärmarnas m på en tråd. Hur gör jag med resten? Behöver väl fler stickor än två då. Garnet måste väl också tas av?

01.09.2023 - 13:57

country flag Annie wrote:

Bonjour, les augmentations de l´empiecement se font elles sur tous les rangs ou uniquement sur les rangs endroits ? je vous remercie pour votre réponse.

26.03.2023 - 08:54

DROPS Design answered:

Bonjour Annie, les augmentations des raglans se font tous les rangs sur l'endroit (= tous les 2 rangs). Bon tricot!

27.03.2023 - 09:19

country flag Merry wrote:

Jeg skal foretage indtagning på ryg/forstykke. Jeg syntes ikke teksten i opskriften passer med Indtagningstip. Ska der tages ind efter 4 cm eller for hver 8 cm? Og skal man ikke strikke til der er 3 masker tilbage før masken med mærketråd? Vh

04.05.2022 - 14:35

country flag Elizabeth wrote:

Bonjour,serait-il possible de traduire les explications pour tricoter ce modèle avec deux aiguilles et de bas en haut. Je ne sais pas utiliser l’aiguille Circulaire ni tricoter de haut en bas.vous me rendriez un immense service car ce chandail est magnifique. Mille fois merci d’avance

13.04.2022 - 14:37

DROPS Design answered:

Bonjour Elizabeth, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir ajuster chacun de nos modèles à chaque demande individuelle. Pour toute assistance complémentaire, vous pouvez vous adresser à votre magasin DROPS qui saura vous conseiller et vous renseigner. Regardez aussi le video sur ce sujet ICI. Bon tricot!

15.04.2022 - 10:25

country flag Amanda Nygren wrote:

Hej! Ska man blocka tröjan efter stickningen? Stickar storlek M och den ser ut att bli väldigt liten.

12.04.2022 - 11:45

DROPS Design answered:

Hei Amanda. Stemmer strikkefastheten din skal de mål du ser på målskissen stemme. mvh DROPS Design

19.04.2022 - 11:10

country flag Elisabeth Rosén Fång wrote:

Jag undrar om jag ska öka för raglan på oket varje varv, eller varannat var bara från rätsidan?

26.01.2022 - 22:34

DROPS Design answered:

Hej Elisabeth, se information till mönster: RAGLAN: Alla ökningar görs från rätsidan! Öka till raglan på vartannat varv (dvs på varje varv från rätsidan) så här: Börja 1 maska före markören, gör 1 omslag om stickan, sticka 2 maskor i slätstickning (markören sitter mitt emellan dessa två maskorna), gör 1 omslag om stickan (= 2 maskor ökade). Öka så på varje sida av de 4 markörerna.

27.01.2022 - 10:47

country flag Esther Deppendorf wrote:

Hallo liebes Team, ich möchte diese Jacke gerne in einem Faden drops Melody stricken. Wie viel Gramm brauche ich? Leider komme ich irgendwie nicht zurecht mit dem Garnumrechner. Vielen lieben Dank für Ihre Antwort!

11.01.2022 - 22:06

DROPS Design answered:

Liebe Frau Deppendorf, hier wird es erklärt, wie man die neue Garnmenge kalkuliert; gerne wird Ihnen Ihr DROPS Laden noch damit - auch telefonisch oder per E-Mail helfen. Viel Spaß beim stricken!

12.01.2022 - 07:37

country flag Veronique FERRON wrote:

Et bien je l ai fait en baby mérinos.

24.08.2021 - 18:51