DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4576.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 186-21
DROPS Design: Mynstur w-714
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Mál:
Ummál: ca 80 cm
Hæð: ca 38 cm (með botni)

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
150 g litur 27, ferskja
150 g litur 38, kórall
100 g litur 29, ljós ísblár
100 g litur 28, sæblár
50 g litur 10, dökk turkos
50 g litur 07, bleikvínrauður
50 g litur 37, rústrauður

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 18 stuðlar og 10,5 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

TRÉ PERLUR: 4 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4576.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Hver umferð með stuðlum byrjar með 3 loftlykkjur (koma í stað fyrsta stuðul) og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.
Hver umferð með fastalykkjum byrjar með 1 loftlykkju (koma ekki í stað fyrstu fastalykkju) og endar með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (þetta á ekki við mynsturteikningu A.5).
Hver umferð sem byrjar með að hekla 3 stuðla saman, byrjar með 3 loftlykkjum (kemur í stað fyrsta stuðul), hoppið yfir 1 stuðul frá fyrri umferð, heklið 1 stuðul í næsta stuðul, dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni, umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3 stuðlum sem heklaðir voru saman.
Smá hluti af mynstrinu kemur til með að færast aðeins til í byrjun á umferð og í lokin.
Nokkrar umferðir eru heklaðar í aftari lykkjubogana frá fyrri umferð, sjá stjörnu við mynsturteikningu.

LITAMYNSTUR:
Þegar skipt er um lit í byrjun á umferð er hekluð keðjulykkja í lok fyrri umferðar með nýja litnum.
Þegar heklað er með mörgum litum í umferð þá er heklað þannig:
Þegar skipt er um lit er heklað þannig: Heklið síðasta stuðul/fastalykkju með fyrsta litnum, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, skiptið yfir í nýja litin og dragið þráðinn í gegn í lokin, síðan er heklaður næsti stuðull/fastalykkja.
Þegar heklað er með tveimur litum, leggið þráðinn á þeim lit sem ekki er heklað með yfir lykkjur frá fyrri umferð og heklið utan um þráðinn þannig að það sjáist ekki innan í lykkjunum, þráðurinn fylgir þar með í stykkinu. Passið uppá að þræðirnir sem fylgja með strekki ekki á stykkinu og að þráðurinn verði ekki stífur þegar hann er tekinn upp frá fyrri umferð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TASKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring. Fyrst er botninn heklaður með mynstri og útaukningu. Síðan er heklað upp án útaukningar. Efst er hekluð gataumferð til að þræða snúru í. Axlarólin er hekluð sér og saumuð á töskuna. Snúra er tvinnuð og þrædd í gegnum gataumferð upp og niður efst á töskunni og skúfar festir á í lokin.

TASKA:
Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 3,5 með litnum kórall Paris og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið síðan A.1 alls 6 sinnum hringinn – lesið HEKLLEIÐBEININGAR og LITAMYNSTUR.
Þegar A.1 hefur verið heklað til loka eru 36 stuðlar í síðustu umferð.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Heklið A.2 alls 12 sinnum hringinn. Þegar A.2 hefur verið heklað til loka eru 144 fastalykkjur í síðustu umferð. Nú er öll útaukning lokið. Stykkið mælist 22 cm að þvermáli. Heklið A.3 alls 36 sinnum hringinn. Heklið síðan A.4 alls 12 sinnum hringinn. Klippið frá og festið enda þegar A.4 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina.

AXLARÓL:
Axlarólin er heklað í hring með litnum ferskja. Heklað er frá miðju á axlarólinni og út, þ.e.a.s. fyrst er hekluð loftlykkju umferð, síðan er heklað í hring á báðum hliðum við þessa umferð. A.5 og A.6 = endar á alxarólinni, þ.e.a.s. byrjað er og endað með A.5 og A.6 er heklað á öðrum enda á axlarólinni.
Heklið 93 loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með = 1 stuðull) með heklunál 3,5 með litnum ferskja.
UMFERÐ 1: Heklið A.5 þannig: Í 4. loftlykkju frá heklunálinni er heklað þannig: Heklið 1 stuðul (= 2 stuðlar), 1 loftlykkja, 2 stuðlar, heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju þar til eftir er 1 loftlykkja, í næstu loftlykkju er heklað A.6 þannig: Heklið 2 stuðla, 1 loftlykkja, 2 stuðlar, færið loftlykkjurnar þannig að heklað er í gagnstæðri hlið, heklið síðan í sömu loftlykkju: 2 stuðlar, 1 loftlykkja, 2 stuðlar, heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju þar til eftir eru 1 loftlykkja í gagnstæðir hlið (þ.e.a.s. sama loftlykkja og heklað var í byrjun á umferð), heklið A.5 þannig: 2 stuðlar, 1 loftlykkja og 2 stuðlar í síðustu loftlykkju = 104 stuðlar og 4 loftlykkjur.
UMFERÐ 2: Heklið A.5, 1 stuðull í hvern stuðul að A.6, heklið A.6, heklið 1 stuðul í hvern stuðul að síðasta hluta af A.5, heklið A.5 = 120 stuðlar og 4 loftlykkjur.
UMFERÐ 3: Heklið A.5, 1 fastalykkja í aftari lykkjubogann á hverjum stuðli að A.6, heklið A.6, 1 fastalykkja í aftari lykkjubogann á hverjum stuðli að síðasta hluta af A.5, heklið A.5 = 136 fastalykkjur og 4 loftlykkjur.
Klippið frá og festið enda. Festið axlarólina í hvora hlið innan í töskunni.

TVINNUÐ SNÚRA:
Klippið 2 þræði með litnum sæblár ca 2 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á þann enda sem ekki hangir saman, festið þræðina á þeim enda upp í tvinnuðu snúruna. Þræðið snúruna upp og niður í götin á töskunni.

SKÚFAR:
Gerið 1 stóran skúf og 3 litla skúfa sem festir eru á endana á tvinnuðu snúruna þannig:
1 STÓR SKÚFUR: Gerið skúf ca 12 cm með litnum sæblár, þræðið 1 tré perlu á endann á skúfnum og festið saman við toppinn og festið skúfinn á annan enda á snúruna.
3 LITLIR SKÚFAR: Gerið 1 skúf ca 7 cm úr hverjum af litunum: rústrauður, bleikvínrauður og kórall. Þræðið 1 tré perlu í endann sem skúfarnir eru festir saman við á toppinn og festið skúfana í annan enda á snúru.

Mynstur

symbols = heklið 4 loftlykkjur með litnum kórall og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju
symbols = þessi umferð er hekluð í aftari lykkjubogann á lykkjum frá fyrri umferð

symbols = síðasta umferð frá fyrri mynsturteikningu, þessi umferð sýnir bara hvernig næsta umferð er hekluð í lykkjurnar frá fyrri umferð – byrjið í næstu umferð
symbols = stuðull í lykkju og um loftlykkjuhring með litnum kórall
symbols = stuðull í lykkju með litnum dökk turkos
symbols = stuðull í lykkju með litnum ljós ísblár
symbols = stuðull í lykkju með litnum bleikvínrauður
symbols = stuðull í lykkju með litnum ferskja
symbols = stuðull í lykkju með litnum sæblár
symbols = stuðull í lykkju með litnum rústrauður
symbols = fastalykkja í lykkju með litnum sæblár
symbols = fastalykkja í lykkju með litnum kórall
symbols = fastalykkja í lykkju með litnum rústrauður
symbols = fastalykkja í aftari lykkjuboga á lykkju með litnum ferskja
symbols = fastalykkja um loftlykkju með litnum ferskja
symbols = loftlykkja með litnum ferskja
symbols = heklið 2 stuðla saman með litnum ferskja þannig: Heklið 1 stuðul í fyrstu lykkju, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul í næstu lykkju, dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = heklið 2 stuðla saman með litnum ljós ísblár
symbols = heklið 3 stuðla saman með litnum ferskja þannig: Heklið 1 suðul í fyrstu lykkju, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 suðul til viðbótar í hvora af 2 næstu lykkjum, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, dragið þráðinn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = heklið 3 stuðla saman með litnum sæblár
symbols = heklið 3 stuðla saman með litnum rústrauður

symbols = heklið 3 stuðla saman með litnum ljós ísblár
symbols = heklið með litnum ferskja: Umferðin byrjar með 3 loftlykkjum, heklið 1 stuðul (= 2 stuðlar), umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju
symbols = heklið 2 stuðla um loftlykkju
symbols = heklið með litnum ferskja: Umferðin byrjar með 3 loftlykkjum (kemur í stað fyrsta stuðul) og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð
symbols = heklið með litnum ferskja: Umferðin byrjar með 1 loftlykkju (kemur í stað fyrstu fastalykkju) og endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á umferð
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Bazar

Ola, Poland

Bazar

Marie Hézard, France

Skrifaðu athugasemd um DROPS 186-21

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (19)

country flag Sylviane Gaspard wrote:

Voici le resultat de mon travail ! Je suis ravie. Vos explications sont trés complètes et merci pour vos réponses rapides. Juste une remarque, les diagrammes A5 et A6 sont difficiles à comprendre, il faudrait rajouter le sens de lecture de ces schémas car on ne sait pas trop dans quel sens les lire et oû ils commencent. Encore merci

12.07.2022 - 10:26

country flag Sylviane wrote:

Lorsqué je dois compter mes mailles (par exemple on me dit que je dois avoir 36 mailles a la fin du tour,) est ce que je dois compter la maille que j'ai sur mon crochet comme 1 maille ou bien je compte uniquement les mailles tricotées ?

07.07.2022 - 00:09

DROPS Design answered:

Bonjour Sylviane, la boucle sur le crochet compte rarement comme une maille, ce qui compte c'est le nombre de brides que vous avez réellement réalisé (comptez les "pieds" des brides par exemple), mais sinon, effectivement la boucle sur le crochet est la fin de la dernière bride, mais ne la comptez pas 2 fois. Bon crochet!

07.07.2022 - 08:57

country flag Sylviane wrote:

Bonjour, doit-on compter la maille que l'on a sur le crochet comme 1 maille ? Merci.

29.06.2022 - 21:51

DROPS Design answered:

Bonjour Sylviane, je suis désolée, je ne suis pas sûre de bien comprendre votre question, dans quel contexte souhaitez-vous savoir cela? À quel niveau du modèle/motif/diagramme?

30.06.2022 - 09:23

country flag Sylviane Gaspard wrote:

Bonjour, pouvez vous me confirmer que l'on crochète donc en regardant l'envers du travail . L'endroit du travail est derrière puisque les changements de couleur se font fil devant. C'est bien cela ?

23.06.2022 - 23:16

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gaspard, on crochète tous les tours sur l'endroit - cette vidéo montre comment crocheter un jacquard en rond, en faisant suivre la couleur non crochetée. Bon crochet!

24.06.2022 - 08:55

country flag Evelyne wrote:

Je suis arrivée au crochet de la poignée. pas de souci pour le 1er rang Pourriez vous m expliquer pour les 2eme et 3eme rangs? Je ne comprends pas les diagrammes 5et6 merci beaucoup

13.04.2020 - 16:20

DROPS Design answered:

Bonjour Evelyne, croch. le tour 2 de A.5 ainsi: 3 ml en pêche, puis 2 b, 1 ml, 2 b autour de la ml suivante, 1 b dans chacune des 2 b suivantes (A.5 est fini, continuez en b) et crochetez ensuite A.6 de droite à gauche: 1 b dans les 2 premières b , 2 b, 1 ml, 2 b dans la ml, 1 b dans les 4 b suivantes, 2 b, 1 ml, 2 b dans la ml, 1 b dans les 2 b suivantes.... puis A.5 de nouveau: 1 b dans les 2 premières b, 2 b, 1 ml, 2 b dans la ml, 1 b dans les 2 premières b et 1 mc dans la 3ème ml. Lisez le dernier rang de la même façon de gauche à droite: la fin de A.5, puis A.6 en entier et terminez A.5 en lisant de bas en haut en remontant sur la ml du début du tour. Bon crochet!

14.04.2020 - 13:03

country flag Vivian Walmsley wrote:

I love this bag but I need a written pattern , is there one available , thanks for your time

22.03.2020 - 15:41

DROPS Design answered:

Dear Vivian we are sorry, but there is no written out pattern for this piece. However it is well worth the effort to learn how to make sense of diagrams, as they not only show you the very next step, but also that how the other stitches and rows relate to each other. we do have a lesson on how to read crochet patterns here, and don't forget, you can always ask for help either in person or over the phone in teh store where you bought your DROPS yarn from. Happy Knitting!

22.03.2020 - 18:33

country flag Evelyne wrote:

Bonsoir, pourriez vous m indiquer comment on crochète le rang 2 de A3 ?

17.03.2020 - 23:53

DROPS Design answered:

Bonjour Evelyne, bien sûr, crochetez: *en pêche, crocheter 3 brides ensemble ainsi: Crocheter 1 bride dans la première maille, mais ne pas faire le dernier jeté, crocheter 1 bride dans chacune des 2 mailles suivantes, mais ne pas faire le dernier jeté, écouler les 4 boucles sur le crochet. (= 19ème symbole) puis en bleu marine : écouler 3 brides ensemble (= 20ème symbole)*, Répétez de *-* tout le tour 36 fois au total. Bon crochet!

18.03.2020 - 08:34

country flag Silvia wrote:

Hallo, ich würde gerne die Wolle für diese Tasche bestellen, kann aber die Farben Koralle und Erika nicht finden. LG

03.04.2019 - 21:30

DROPS Design answered:

Liebe Silvia, alle Farben sind immer noch lieferbach, nur die Namen wurde angepasst, schauen Sie mal nach der Farbennumer, bzw Farbe 38 und 07. Viel Spaß beim häkeln!

04.04.2019 - 09:25

country flag Elena wrote:

Como puedo conseguir el patrón del bolso. Me gustaría tener el gráfico. Gracias

13.03.2019 - 12:22

DROPS Design answered:

Hola Elena. Tienes el diagrama del bolso con todas las abreviaturas bajo el patrón.

16.03.2019 - 16:06

country flag Jette Lund wrote:

Hej med jer Jeg er nu kommet i gang og r nået til A3. Jeg har for mange masker, men det betyder vel bare, at tasken bliver større: Det er en meget forvirrende opskrift. F.eks. at A3 skal hækles rundt 36 gange?, men på fotoet er det a kun en gang, at mønsteret er?

28.06.2018 - 18:38