DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
DROPS SS24

Wild Berries

Prjónuð peysa með laskalínu, ¾ langar ermar og klauf í hliðum, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr 1 þræði DROPS Big Delight og 1 þræði DROPS Melody.

DROPS 191-34
DROPS Design: Mynstur db-089
Garnflokkur C + D
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BIG DELIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
200-200-300-300-300-300 g litur 01, rósargarður
og notið:
DROPS MELODY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki D)
150-150-150-150-200-200 g litur 06, púðurbleikur

DROPS HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 12 – eða þá stærð sem þarf til að 8 lykkjur og 10 umferðir með sléttprjóni með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir) verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

LASKALÍNA:
Aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við hvert prjónamerki (= 8 lykkjur fleiri í umferð).
Prjónið fram að 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt – það á að myndast gat!

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 36 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 2) = 18.
Í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 18. hverja lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir.
Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið síðustu lykkju á prjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Fyrst er berustykkið prjónað í hring á hringprjón, síðan er fram- og bakstykki prjónað niður að klauf í hvorri hlið og að lokum er fram- og bakstykki prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 36-39-39-42-42-45 lykkjur á hringprjón 12 með 1 þræði Bid Delight og 1 þræði Melody (= 2 þræðir).
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-1-3-8-10-9 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir) = 38-40-42-50-52-54 lykkjur. Setjið 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna lykkjur þannig:
Setjið fyrsta prjónamerkið eftir 7-8-8-10-11-11 lykkjur (= hálft bakstykki), annað prjónamerki eftir 4 nýjar lykkjur (= ermi), þriðja prjónamerkið eftir 15-16-17-21-22-23 nýjar lykkjur (= framstykki), fjórða prjónamerkið eftir 4 nýjar lykkjur (= ermi) nú eru 8-8-9-11-11-12 lykkjur eftir fyrir hálft bakstykki.
Prjónið sléttprjón hringinn, JAFNFRAMT í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 10-11-11-12-13-14 sinnum = 118-128-130-146-156-166 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu er prjónuð 1 umferð slétt, síðan er prjónuð 1 umferð þar sem aukið er út fyrir laskalínu einungis á ermum (= 4 lykkjur fleiri í umferð) = 122-132-134-150-160-170 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Stykkið á nú að mælast 23-25-25-27-29-31 cm frá prjónamerki á eftir stroffi í hálsmáli við miðju að framan.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 17-19-19-22-24-25 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 26-28-28-30-32-34 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 4-4-6-6-6-6 lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 35-38-39-45-48-51 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 26-28-28-30-32-34 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 4-4-6-6-6-6 lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 18-19-20-23-24-26 lykkjur sem eftir eru á prjóni (= hálft bakstykki). Setjið eitt prjónamerki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 78-84-90-102-108-114 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir hvorri ermi (= 2-2-3-3-3-3 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 10 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING-2 = 82-88-94-106-112-118 lykkjur. Haldið síðan áfram hringinn þar til stykkið mælist 16-16-18-18-18-18 cm. Klippið frá.
Setjið 41-44-47-53-56-59 lykkjurnar á milli 2 prjónamerkja á framstykki á þráð og haldið áfram fram og til baka yfir 41-44-47-53-56-59 lykkjur á bakstykki þannig – frá réttu: 2 lykkjur garðaprjón, (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 10 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður.
Setjið til baka 41-44-47-53-56-59 lykkjur af þræði á hringprjón og prjónið stroff á framstykki á sama hátt og á bakstykki.

ERMI:
Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón og saumaðar saman í lokin.
Setjið til baka 26-28-28-30-32-34 lykkjur af þræði á hringprjón 12 og fitjið upp 2-2-3-3-3-3 nýjar lykkjur í hvorri hlið = 30-32-34-36-38-40 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 3-2-3-3-4 cm fækkið um 1 lykkju hvoru megin við stykki – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 4-3-3-2-2-1 cm millibili alls 5-6-6-7-7-8 sinnum = 20-20-22-22-24-24 lykkjur. Þegar ermin mælist 19-17-18-16-15-14 cm prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 1-1-2-2-0-0 lykkjur jafnt yfir = 21-21-24-24-24-24 lykkjur. Prjónið stroff þannig: 1 lykkja brugðið, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til eftir eru 2 lykkjur, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið. Haldið svona áfram með stroff með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þar til stroffið mælist 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Ermin mælist ca 27-25-26-24-23-22 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saum undir ermum í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 191-34

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag Daniela wrote:

Sono alla parte in cui si lasciano sui fermamaglie le maglie corrispondenti alle maniche

27.02.2020 - 00:06

DROPS Design answered:

Buongiorno Daniela. Nel video che alleghiamo, a partire dal minuto 7:00 , trova spiegato come mettere in attesa le maglie delle maniche e avviare le nuove maglie sotto le maniche. Buon lavoro!

27.02.2020 - 09:18

country flag Daniela wrote:

Salve, come e su quale ferro si aggiungono le quattro maglie per la manica? Grazie

26.02.2020 - 18:04

DROPS Design answered:

Buonasera Daniela, può spiegarci meglio a quale parte del modello sta facendo riferimento? Grazie, buon lavoro!

26.02.2020 - 21:14

country flag Geraldine wrote:

Como aumento los 4 puntos de las mangas? Dice que tejas una vuelta de derecho y solo se aumenta en las mangas. No entiendo

22.12.2018 - 02:45

DROPS Design answered:

Hola Geraldine. Se trabajan los aumentos después del marcapuntos entre el cuerpo y la manga y antes del marcapuntos entre la manga y el cuerpo.

30.12.2018 - 15:34

country flag Melinda Fülöp wrote:

Hej Ska göra resåret nere på tröjan. Ska man sticka 2 maskor räta och sen fortsätta med 1 rät och 2 aviga? Eller hur menar ni?

25.09.2018 - 14:08

DROPS Design answered:

Jo, det blir precis så, först 2 rätstickade maskor, sedan 1 rät, 2 aviga, 1 rät, 2 aviga, osv.

26.09.2018 - 14:21

country flag Melinda Fülöp wrote:

Hej Har stickat raglanökningen. Har 132 maskor. Ska arbetet mäta 25 cm direkt efter det eller ska man fortsätta sticka tills arbetet mäter det och sen dela av för ärmarna?

12.09.2018 - 18:31

DROPS Design answered:

Hei Melinda. Arbeidet skal måle 25 cm når alle økninger til raglan er ferdig. Om ikke det gjør det skyldes nok dette en litt stram strikkefasthet. Litt avhengig av hvor mye kortere bærestykket ditt er kan du strikke videre (uten økning til raglan) til arbeidet måler 25 cm. Du kan eventuelt prøve plagget på for å se hvordan det blir. Om du setter av til ermer før arbeidet måler 25 cm blir bærestykket for kort. God fornøyelse

13.09.2018 - 08:08

country flag J De Weme wrote:

Kan ik de mouwen ook gewoon rondbreien?

27.08.2018 - 14:08

DROPS Design answered:

Dag J De Weme, Ja, dat kan. Je hoeft dan geen steken op te zetten aan beide kant van de mouwen, maar in plaats daarvan plaats je een hulpdraad midden onder de mouw en minder je aan beide kanten van de hulpdraad (ipv naast de kantsteken)

27.08.2018 - 21:23

country flag Rita wrote:

Cosa significa: 1 giro in cui aumentare solo per il raglan delle maiche (= 4 aumenti sul giro)? grazie rira

05.07.2018 - 21:59

DROPS Design answered:

Buonasera Rita. Deve lavorare un giro e durante questo giro aumenta per il raglan come fatto in precedenza, ma aumenta solo sulle maglie delle maniche e non aumenta sul davanti e sul dietro. Quindi aumenta dopo il 1° segnapunti e prima del secondo (tra questi segnapunti ci sono le m della manica) e dopo il 3° segnapunti e prima del 4°. Gli aumenti non sono 8, ma solo 4. Buon lavoro!

05.07.2018 - 22:13

country flag Marithé wrote:

Comment tricoter ce pull avec des aiguilles droites ?? merci -

20.05.2018 - 06:22

DROPS Design answered:

Bonjour Marithé, vous trouverez ici quelques indications vous permettant d'adapter un modèle sur aiguilles droites. Il est parfois plus simple de tricoter en rond, n'hésitez pas à essayer à l'aide de nos vidéos, beaucoup ont réussi à les "dompter" en essayant et ne les lâchent plus. Bon tricot!

22.05.2018 - 08:28

country flag Karin Knöbel wrote:

Aus der Anleitung geht nicht hervor wofür die Rundnadel Nr 12 40cm gebraucht wird.Gibt es eine 40cm lange Rundnadel überhaupt in 12mm??

13.05.2018 - 11:03

DROPS Design answered:

Liebe Frau Knöbel, die 40 cm Rundnadel wird am Anfang (Halsausschnitt) gebraucht, dh wenn es zu wenig Maschen für die 80 cm Nadel gibt - Diese Nadel können Sie mit dem Set und austauchbare Spitze haben. Gerne können Sie auch mit dem Magic-Loop technik stricken. Viel Spaß beim stricken!

14.05.2018 - 10:49

country flag Aleksandra Karolina Strugacz wrote:

Den har jeg lyst å strikke :-)

01.01.2018 - 21:47