DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2750.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 182-44
DROPS Design: Mynstur ee-615
Garnflokkur E eða C + C
----------------------------------------------------------

Stærð: 35/37 - 38/39 - 40/42
Lengd fótar: 22 - 24 - 26 cm

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
250-250-300 g litur 09, ljós vínrauður

DROPS HRINGPRJÓNN NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 13 lykkjur og 26 umferðir með garðaprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2750.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

PICOTKANTUR (prjónaður fram og til baka):
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur yfir allar lykkjur.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur yfir allar lykkjur.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir, þær eru prjónaðar þannig: 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, í hverja og eina af 2 síðustu lykkjunum eru prjónaðar 2 lykkjur = 2 nýjar lykkjur í umferð.
UMFERÐ 4 (= ranga): Takið 1. lykkjuna óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, 1 lykkja slétt og steypið öftustu lykkjunni yfir á hægri prjón yfir fremstu, nú hefur fækkað um 2 lykkjur – prjónið síðan sléttar lykkjur út umferðina.
Endurtakið umferð 1 til 4.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón.

KANTUR MEÐ UPPÁBROTI:
Fitjið upp 26-28-30 lykkjur á hringprjón 6 með Snow. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT er prjónaður PICOTKANTUR – sjá útskýringu að ofan, yfir síðustu 4 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar prjónaðar hafa verið alls 74-78-82 umferðir garðaprjón, stykkið mælist ca 28-30-32 cm fellið af.

FÓTUR:
Prjónið upp 1 lykkjur í hverja rönd í garðaprjóni meðfram langhlið án picotkants = 37-39-41 lykkjur. Prjónið 4 umferðir garðaprjón, prjónið síðan 1 umferð slétt frá réttu.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu – þannig: Prjónið fyrstu 14-14-15 lykkjur og setjið þær á þráð, aukið út um 1 lykkju, prjónið næstu 9-11-11 lykkjur, aukið út um 1 lykkju, prjónið síðustu 14-14-15 lykkjurnar og setjið 14-14-15 lykkjurnar á þráð. Klippið frá. Prjónið síðan garðaprjón yfir 11-13-13 miðjulykkjur. Þegar efri parturinn mælist 7-8½-10 cm fellið af 1 kantlykkju í hvorri hlið = 9-11-11 lykkjur, setjið lykkjur á þráð. Klippið frá.
Prjónið næstu umferð þannig (= frá réttu): Prjónið lykkjur af þráðum JAFNFRAMT eru prjónaðar upp 12-14-16 lykkjur hvoru megin við efri part innan við 1 kantlykkju = 61-67-73 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið 1 prjónamerki mitt framan á tá. Haldið áfram í garðaprjóni fram og til baka til loka. Þegar stykkið mælist 2 cm eru prjónaðar upp 2 lykkjur slétt saman hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4-4-5 cm prjónið 2 lykkjur slétt saman innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið á stykki, endurtakið úrtöku í hlið í annarri hverri umferð (= alls 4 lykkjur færri í annarri hverri umferð). Þegar stykkið mælist 5-5-6 cm setjið lykkjurnar á þráð.

Prjónið aðra tátilju á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Skiptið lykkjunum upp í 2 umferðir (= mitt undir fæti), leggið stykkið saman tvöfalt og saumið saman á lengdina með lykkjuspori.
Saumið tátiljuna saman við miðju að aftan og upp meðfram stroffi – saumið í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn sjáist ekki þegar efri parturinn er brotinn upp að réttu.

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 182-44

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (7)

country flag Gaby wrote:

Sehr schlechte Beschreibung. Ein paar mehr Bebilderungen würden schon helfen.

03.03.2024 - 21:23

country flag Carole wrote:

Je ne comprends pas du tout les écrits pour l'assemblage. Tout ce que je peux dire c'est que maintenant j'ai 51 mailles sur 1 aiguille. Je suis rendue à faire l'assemblage. Pouvez-vous m'expliquer avec plus d'informations svp? Merci beaucoup pour votre aide

24.12.2022 - 03:10

DROPS Design answered:

Bonjour Carole, glissez la moitié de vos mailles sur une autre aiguille (ou bien glissez la moitié de vos mailles sur l'autre extrémité de l'aiguille circulaire en faisant bien en sorte que votre fil de début des rangs se trouve toujours en début de rang, et pas au milieu du chausson) et assemblez les mailles ensemble en grafting, comme dans cette vidéo. Vous devez commencer par le côté talon et terminer par le côté pointe (la moitié de votre rang). Bon tricot!

02.01.2023 - 08:51

country flag Carole wrote:

Rebonjour, Désolée de vous déranger encore une fois mais je ne vois pas comment je peux faire ça. Y a-t-il une place où je pourrais vous envoyer une photo d'où je suis rendue? Peut-être que je n'ai pas fait le début comme il faut. Je suis vraiment mal prise et pourtant je tricote depuis un certain temps. J'espère que vous pourrez m’aider Merci

22.11.2022 - 21:50

DROPS Design answered:

Bonjour Carole, cette vidéo montre comment tricoter la partie "pied" d'autres chaussons mais on fera de la même façon ici, sauf que les mailles ne sont pas montées mais relevées dans les rangs (côtes mousse) de la bordure picot. En espérant que ceci puisse vous aider. Bon tricot!

23.11.2022 - 09:12

country flag Carole wrote:

Merci infiniment pour les explications. Votre réponse, c'est très apprécié.

22.11.2022 - 11:48

country flag Carole wrote:

Bonjour, Je ne comprends pas les explications après avoir fini le dessus mesure 7cm. Pouvez-vous peut-être me l'expliquer autrement? Merci beaucoup pour votre aide

21.11.2022 - 20:40

DROPS Design answered:

Bonjour Carole, lorsque le dessus du pied mesure 7 cm, tricotez 1 rang sur l'envers en rabattant 1 m de chaque côté = il reste 9 m, coupez le fil et mettez en attente. Vous allez maintenant tricoter toutes les mailles: reprenez les 14 m en attente, relevez 12 m le long du côté droit de la partie centrale, tricotez les 9 m, relevez 12 m le long du côté gauche de la partie centrale et reprenez les 14 m en attente = 61 m; tricotez maintenant au point mousse pendant 4 cm, mais après 2 cm, vous allez diminuer au milieu + de chaque côté. Bon tricot!

22.11.2022 - 10:02

country flag Carmela Squatrito Accetta wrote:

Ho lavorato questo modello con il bordo picot, ho riscontrato questa difficoltà:la parte della gamba risulta, larga rispetto al piede, forse per il bordo conviene lavorarla con i ferri più piccoli? Grazie, per le vostre spiegazioni molto chiare, e per i video .

29.01.2021 - 13:17

DROPS Design answered:

Buonasera Carmela, come può vedere anche dalla foto questo modello non è aderente: controlli di non aver modificato la sua tensione. Buon lavoro!

29.01.2021 - 19:38

country flag Debbie wrote:

What is your eskimo group E yarn comparable to in US weight yarns is it a bulky? Super bulky, chunky??

11.04.2018 - 18:05

DROPS Design answered:

Dear Debbie, the DROPS Eskimo yarn can be considered "super-bulky" in teh US yarn-weight system. There is 50 meters in a 50 gramm skein, and we suggest using about 8 mm thick needles. Don not forget however, that eveyone knits slightly difefrently, therefore it is very important to always knit a swatch, wash it and check your gauge, and change needle sizes if necessary. Happy Crafting!

12.04.2018 - 02:14