DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4950.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 182-33
DROPS Design: Mynstur ee-617
Garnflokkur E eða C + C
-----------------------------------------------------------

Í allt settið þarf ca:
250 g litur 53, ljós grár.
200 g litur 46 milligrár.

HÚFA:
Stærð: S/M - M/L
Höfuðmál: 54/56 - 56/58 cm

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
100-100 g litur 53, ljós grár
50-50 g litur 46, milligrár

HÁLSSKJÓL:
Stærð: Ein stærð
Mál:
Ummál að neðan: 62 cm.
Ummál að ofan: 58 cm.
Hæð: 26 cm.

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
150 g litur 46, milligrár

VETTLINGAR:
Stærð: S/M - M/L

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
150-150 g litur 53, ljós grár
50-50 g litur 46, milligrár

DROPS HEKLUNÁL NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 9 stuðlar og 5 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS HEKLUNÁL NR 7 – eða þá stærð sem þarf til að 10 stuðlar og 6 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS HEKLUNÁL NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 12 stuðlar og 12 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4950.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er fyrstu fastalykkju skipt út fyrir 1 loftlykkju. Endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð í byrjun á umferð.

Í byrjun á hverri umferð með hálfum stuðlum er fyrsta hálfa stuðli skipt út fyrir 2 loftlykkjur. Endið umferð með 1 keðjulykkju í aðra loftlykkju sem var hekluð í byrjun á umferð.

Í byrjun á hverri umferð með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Endið umferð með 1 keðjulykkju í þriðju loftlykkju sem var hekluð í byrjun á umferð.

MYNSTUR:
UMFERÐ 1: 1 hálfur stuðull í aftari lykkjubogann á hverri fastalykkju.
UMFERÐ 2: 1 fastalykkja í aftari lykkjubogann á hverjum hálfa stuðli.
UMFERÐ 3: 1 stuðull í aftari lykkjubogann á hverri fastalykkju.
UMFERÐ 4: 1 fastalykkja í aftari lykkjubogann á hverjum stuðli.
Endurtakið umferð 1-4.

LITASKIPTI (á við um húfu):
Til þess að fá falleg litaskipti þegar skipt er um lit er keðjulykkjan í lok umferðar hekluð áður en byrjað er með nýja litnum þannig: Stingið heklunálinni í loftlykkjuna sem var hekluð í byrjun á umferð, sækið nýja þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina með nýja litnum og dragið þráðinn í gegnum lykkjurnar á heklunálinni.

HEKLIÐ 2 FASTALYKKJUR SAMAN:
* Stingið inn heklunálinni í næstu lykkju, sækið þráðinn (= 2 lykkjur á heklunálinni) *, heklið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni (= 1 fastalykkja færri).

HEKLLEIÐBEININGAR (á við um vettlinga):
Þegar fastalykkjur eru heklaðar í aftari lykkjubogann er auðvelt að herða á lykkjunum, vettlingurinn verður þá lítið teygjanlegur og of þröngur.
Passið uppá að fastalykkjurnar verði nægilega lausar þegar heklað er. Þ.e.a.s. þegar þræðinum er brugðið á heklunálina þegar heklaðar eru fastalykkjur, verður að draga þráðinn alveg í gegnum lykkjuna (og aðeins meira).

ÚTAUKNING (á við um húfu):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 40 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 10) = 4. í þessu dæmi er auki út um 1 lykkju á eftir 4. hverja lykkju.
Aukið er út um 1 lykkju með því að hekla 2 lykkjur í eina lykkju.

ÚRTAKA (á við um vettlinga):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 20 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 5.
Í þessu dæmi eru heklaðar 4. og 5. hver lykkja saman eins og útskýrt er að neðan.
Fækkið um 1 fastalykkju með því að hekla 2 fastalykkjur saman þannig: * Stingið heklunálninni í næstu lykkju, sækið þráðinn *, heklið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring ofan frá og niður.

HÚFA:
Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 7 með litnum ljós grár Snow og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR!
UMFERÐ 1: Heklið 12-12 hálfa stuðla um hringinn. Heklið síðan í hverri umferð í aftari lykkjubogann.
UMFERÐ 2: * Heklið 1 fastalykkju í fyrsta hálfa stuðul, 2 fastalykkjur í næsta hálfa stuðul *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 18-18 fastalykkjur í umferð.
UMFERÐ 3: * Heklið 1 stuðul í fyrstu fastalykkju, 2 stuðlar í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 27-27 stuðlar í umferð.
UMFERÐ 4: * Heklið 1 fastalykkju í fyrsta stuðul, 2 fastalykkjur í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 40-40 fastalykkjur í umferð.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Eftir hringinn er heklað áfram með MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT er aukið út um 10-13 hálfa stuðla jafnt yfir í fyrstu umferð – lesið ÚTAUKNING = 50-53 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist ca 19-20 cm er skipt yfir í litinn milligrár – lesið LITASKIPTI. Heklið 4 umferðir með fastalykkjum (heklið í aftari lykkjubogann).
Klippið frá og festið enda. Húfan mælist ca 23-24 cm ofan frá og niður.
Gerið einn stóran dúsk ca 9 cm með báðum litum og festið efst á húfuna.

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring.

HÁLSSKJÓL:
Heklið 56 loftlykkjur laust með heklunál 8 með litnum milligrár Snow og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 1 umferð með 1 hálfan stuðul í hverja loftlykkju. Heklið MYNSTUR hringinn með byrjun frá 2. umferð í mynstri – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT í 6. umferð er fækkað um 4 fastalykkjur jafnt yfir í umferð með því að hekla 13. og 14. fastalykkju saman – lesið HEKLIÐ 2 FASTALYKKJUR SAMAN = 52 fastalykkjur.
Haldið áfram með mynstur hringinn þar til stykkið mælist ca 26 cm á hæð – endið eftir eina umferð með fastalykkjum. Klippið frá og festið enda.

-------------------------------------------------------

VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring. Fyrst er heklað stroff með mynstri, síðan er afgangur af vettlingi heklaður með fastalykkjum í aftari lykkjubogann.

VINSTRI VETTLINGUR STROFF:
Heklið 21-23 aðeins lausar loftlykkjur með heklunál 6 með litnum ljós grár Snow og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í umferð. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 1 umferð með 1 hálfan stuðul í hverja loftlykkju. Heklið MYNSTUR í hring með byrjun frá 2. umferð í mynstri – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist ca 5 cm er stroffið klárt – endið eftir eina umferð með fastalykkjum. Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

VETTLINGUR:
Heklið í hring með 1 fastalykkju í hverja fastaalykkju – lesið HEKLLEIÐBEININGAR og heklið í aftari lykkjubogann (þetta á síðan við allan vettlinginn). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar hekluð hefur verið 1 umferð með fastalykkjum á eftir prjónamerki er aukið út um 1 fastalykkju fyrir þumal hvoru megin við fyrstu fastalykkju í byrjun umferðar – aukið er út um 1 fastalykkju með því að hekla 2 fastalykkjur í sömu fastalykkju. Aukið svona út hvoru megin við þessa fyrstu lykkju í annarri hverri umferð alls 3-4 sinnum = 27-31 fastalykkjur í umferð (7-9 af þessum lykkjum eru þumallykkjur). Klippið frá.
Næsta umferð er hekluð þannig: Hoppið yfir fyrstu 4-5 fastalykkjur í umferð, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 20-22 fastalykkjum (heklið í aftari lykkjubogann) = 3-4 fastalykkjur eftir í umferð. Haldið nú áfram að næstu umferð án þess að hekla yfir 3-4 síðustu fastalykkjur í umferð. ATH: Merkið byrjun á umferð með prjónamerki á milli síðustu lykkju í umferð og fyrstu lykkju í næstu umferð, látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu.
Heklið 1 fastalykkju í hverja af 20-22 fastalykkjum (heklið í aftari lykkjubogann) þar til stykkið mælist 18-20 cm frá prjónamerki. Fækkið nú lykkjum þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju (í aftari lykkjubogann) og fækkið JAFNFRAMT um 4-5 fastalykkjur jafnt yfir - lesið LEIÐBEININGAR = 16-17 fastalykkjur í umferð.
UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju og fækkið JAFNFRAMT um 4-5 fastalykkjur jafnt yfir = 12 fastalykkjur.
UMFERÐ 3: Heklið 2 og 2 fastalykkjur saman = 6 fastalykkjur eftir í umferð. Klippið frá, þræðið upp og niður í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel.

ÞUMALL:
= 7-9 lykkjur. Fyrsta umferð er hekluð þannig: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju (heklið í aftari lykkjubogann), að auki eru heklaðar 2 fastalykkjur nákvæmlega í skiptingunni á milli þumals og vettlings = 9-11 fastalykkjur í umferð. Heklið 4-5 umferðir til og með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. Í næstu umferð eru heklaðar 2 og 2 fastalykkjur saman þar til 1 fastalykkja er eftir í umferð, heklið síðustu fastalykkjuna = 5-6 fastalykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn upp og niður í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel.

SNÚRA:
Klippið 2 þræði í litnum milligrár ca 120 cm. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á hvorn enda.
Gerið 2 litla dúskar ca 2-3 cm að þvermáli. Saumið 1 dúsk á annan endann á snúrunni. Þræðið snúruna upp og niður í á milli lykkja í skiptingunni á milli stroffs og vettlings (snúran á að byrja og enda á ytri hlið á vettling þannig að dúskarnir komi ekki inn í lófann). Saumið niður hinn dúskinn í hinn endann á snúrunni.

HÆGRI VETTLINGUR:
Heklið stroff og vettling alveg eins og vinstri vettlingur, en þegar auka á út fyrir þumal er aukið út hvoru megin við síðustu lykkju í lok umferðar (í stað hvoru megin við fyrstu lykkju í byrjun á umferð). Afgangur af vettling og þumal er heklað eins og vinstri vettlingur.
Gerið snúru með dúskum alveg eins og á vinstri vettlingi.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 182-33

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (4)

country flag Agnethe Markussen wrote:

Hei, hvordan skal jeg klare å få det til å se ut som en vitt, sto veldig vanskelig i oppskriften, er på den omg hvor man skal hoppe over masker (til tommel’n). Og ikke hekle de siste 4 maskene, men hvordan skal jeg klare å få den overgangen som skiller tommel til hånda?

08.11.2021 - 10:36

DROPS Design answered:

Hei Agnethe. Når du har økt alle maskene til tommelen og har 27 eller 31 fastmasker (avhengig av hvilken str. du hekler), skal du klippe tråden. Hopp over de første 4 eller 5 fastmaskene på omgangen (merketråden sitter i 1. maske). start med ny tråd. Hekle 1 fastmaske i hver av de neste 20-22 fastmaskene = 3 eller 4 fastmasker tilbake på omgangen. Nå hekler du i den første masken du startet i, på denne omgangen, altså det er 7 eller 9 masker det ikke hekles over. mvh DROPS Design

15.11.2021 - 08:37

country flag Tania wrote:

El patrón dice vuelta 1 punto medio, vuelta 2 punto bajo y vuelta 3 punto alto, y repetir las vueltas 1-4. pero el patrón sólo habla de 3 vueltas. me puedes explicar?

27.10.2020 - 18:55

DROPS Design answered:

Hola Tania. Tienes razón. Ha sidp una errata al publicar el patrón. VUELTA 4: Trabajar 1 punto bajo en el bucle posterior de cada punto alto.

01.11.2020 - 13:03

country flag Francesca wrote:

Grazie molto chiara mi ero persa in un bicchiere d'acqua ora mi sento più sicura...

06.01.2019 - 16:52

country flag Francesca wrote:

Ho comprato la lana e vorrei iniziare il berretto ma non ho capito al primo giro cosa significa 12/12 mezze maglie? Poi dice 18/18 maglie basse al secondo giro? Potete darmi dei chiarimenti vi ringrazio

06.01.2019 - 16:39

DROPS Design answered:

Buongiorno Francesca. I numeri fanno riferimento alle maglie da lavorare a seconda della taglia. Per la taglia S/M deve considerare il primo numero , per la M/L il secondo numero. Quindi se la sua taglia è la S/M, al primo giro lavora 12 mezze maglie alte e alla fine del secondo giro deve avere 18 maglie basse. Buon lavoro!

06.01.2019 - 16:49