DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8250.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Tangerine

Settið samanstendur af: Prjónuðum hálsklút, húfu og vettlingum með hálfu klukkuprjóns afbrigði og garðaprjóni. Settið er prjónað úr DROPS Snow.

DROPS 184-16
DROPS Design: Mynstur ee-601
Garnflokkur E eða C + C
-----------------------------------------------------------

HÁLSKLÚTUR:
Mál: 35 x 150 cm

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
450 g litur 07, appelsínugulur

HÚFA:
Stærð: S/M – M/L
Höfuðmál: 56/58 – 58/60 cm

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
150-150 g litur 07, appelsínugulur

VETTLINGAR:
Stærð: S/M – M/L

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
150-150 g litur 07, appelsínugulur

DROPS HRINGPRJÓNAR (40, 60 eða 80 cm) NR 9 – eða þá stærð sem þarf til að 10 lykkjur og 14 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 11 lykkjur og 15 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 14,5 lykkjur og 18 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8250.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. prjónað er í aftari lykkjubogann í stað fremri) til að koma í veg fyrir göt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÁLSKLÚTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.

HÁLSKLÚTUR:
Fitjið upp 35 lykkjur á hringprjón 9 með Snow.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið A.1 yfir fyrstu 30 lykkjur, endið umferð með fyrstu 5 lykkjur í A.1. Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist 150 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Fellið af.

KÖGUR:
Klippið 6 þræði ca 50 cm (= 1 kögur). Leggið þræðina saman tvöfalda, þræðið lykkjuna í frá réttu í gegnum hverja lykkju með hálfu klukkuprjóni neðst niðri á hálsklútnum. Dragið síðan endana í gegnum lykkjuna og herðið varlega að. Festið eitt kögur í ystu lykkju í hvorri hlið = 7 kögur. Endurakið hinum megin á hálsklútnum.

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á stuttan hringprjón. Skiptið yfir á sokkaprjón eftir þörf.

HÚFA:
Fitjið upp 54-60 lykkjur á stuttan hringprjón 8 með Snow.
Prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt) umferðina hringinn. Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 14 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið síðan eftir A.1 (= 9-10 mynstureiningar í umferð). Haldið áfram með A.1 þar til stykkið mælist 27-28 cm. Prjónið nú stroff (= 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt) yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 29-30 cm eru allar lykkjur prjónaðar 2 og 2 slétt saman = 27-30 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt, síðan eru allar lykkjur prjónaðar aftur slétt saman 2 og 2 = 14-15 lykkjur. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 32-33 cm alls.

-------------------------------------------------------

VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.

VINSTRI VETTLINGUR:
Fitjið upp 28-32 lykkjur á sokkaprjóna 5 með Snow. Prjónið * 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn. Haldið áfram með stroff í 6 cm. Prjónið síðan A.2 yfir allar lykkjur (= 7-8 mynstureiningar á breiddina). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12-13 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við fyrstu lykkju í umferð fyrir op fyrir þumal – LESIÐ ÚTAUKNING! Aukið svona út hvoru megin við útauknar lykkjur í hverri umferð alls 4-5 sinnum (útauknar lykkjur eru prjónaðar í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan) = 36-42 lykkjur. Setjið nú 9-11 þumallykkjur á þráð. Fitjið upp 1 nýja lykkju aftan við lykkjur á þræði = 28-32 lykkjur. Haldið áfram með A.2 þar til stykkið mælist ca 22-24 cm, stillið af að næsta umferð sé umferð með sléttum lykkjum. Prjónið 2 fyrstu lykkjur í hverri mynstureiningu af A.2 slétt saman = 21-24 lykkjur. Prjónið 3 umferðir, í næstu umferð eru 2 síðustu lykkjur í hverri mynstureiningu prjónaðar slétt saman = 14-16 lykkjur. Prjónið 3 umferðir, í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 7-8 lykkjur eftir. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel.

ÞUMALL:
Setjið til baka 9-11 þumallykkjur af þræði á sokkaprjón 5 og prjónið að auki upp 2 nýjar lykkjur aftan við lykkjur = 11-13 lykkjur deilt niður á sokkaprjóna. Haldið áfram hringinn í garðaprjóni þar til þumallinn mælist ca 5-6 cm (mælt frá þar sem lykkjur voru settar til baka á sokkaprjóninn). Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 6-7 lykkjur eftir á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið enda vel.

HÆGRI VETTLINGUR:
Prjónið eins og vinstri vettlingur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 08.02.2018
HÁLSKLÚTUR: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 35 lykkjur á hringprjón 9. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið A.1 yfir fyrstu 30 lykkjurnar, endið umferð með fyrstu 5 lykkjurnar í A.1. Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist 150 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Fellið af.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = stingið hægri prjón í gegnum lykkju frá fyrri umferð, prjónið 1 umferð slétt og sleppið lykkjunni af prjóni
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 184-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag Deborah wrote:

Hi! I just knitted the scarf as a beginner and it came out lovely so thank you for this pattern! I am just confused about the instructions for the hat. Firstly; is there a way I could adapt it to use straight needles instead of circular and then just sew it in the middle? Secondly; what does knitting 2 by 2 mean Thirdly; why do you knit the rib, then go to A.1. and then start knitting rib stitches again? doesn't the rib stay at the bottom? Thanks!

12.09.2019 - 12:19

DROPS Design answered:

Dear Deborah, you will find how to adapt a pattern into straight needles here - knit the stitches 2 by 2 together means you work K2 tog across. At the top of hat, before starting to decrease, you don't work pattern A.1 anymore but rib K1/P1 then start to decrease. Happy knitting!

12.09.2019 - 13:20

country flag Helena Maine wrote:

Hello This is a lovely pattern, however, in the photo it looks like the scarf has been knitted with the salvage stitch at the beginning of each row, I.e. the side edges of the scarf are very neat. It would have been good if you incorporated that technique in your demo of the pattern video.

09.08.2019 - 16:51

country flag Jennie wrote:

Var är a1 och a2? bild saknas

24.03.2019 - 05:47

DROPS Design answered:

Hej. Nu finns diagrammen längst ner på mönstret även på den svenska översättningen. Lycka till!

25.03.2019 - 11:30

country flag Bereaux wrote:

Bonjour, les explications du diagramme modèle 184-16 pour l'écharpe ne correspondent pas pour des rangs aller retour. Il me semble que tout se tricote à l'endroit sauf la maille double qui elle se tricote à l'envers lorsque l'on a fait un premier rang à l'endroit. Est-ce bien cela ?

31.01.2019 - 11:50

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bereaux, les diagrammes montrent les motifs, vus sur l'endroit, pour tricoter A.1 en rangs, on tricote sur l'endroit (rang1): 5 m end, 1 m double et sur l'envers: (on lit de gauche à droite: 1 m env, 5 m end. Bon tricot!

31.01.2019 - 13:21

country flag Marion Böhm wrote:

Wenn ich den Schal nach Anleitung und Diagramm A.1 stricke, entsteht kein Bild, das krausrechts ist. Die Hinreihen werden rechts, die Rückreihen links gestrickt. Das geht zumindest aus der Anleitung so hervor. So entsteht das Bild glattrechts. Ist das Diagramm falsch?

29.01.2019 - 14:08

DROPS Design answered:

Liebe Frau Böhm, die Diagramme zeigen alle Reihen, wie sie von der Vorderseite aussehen, wenn Sie in Reihen stricken, stricken Sie die 5 ersten Maschen in A.1 rechts (sie sehen wie links von der Vorderseite aus), diese 5 ersten Maschen in A.1 werden links in der Runde gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

29.01.2019 - 16:31

country flag Josefine wrote:

Hej gør man det samme med at stikke højre pind igennem masken fra forrige omgang, når man strikker vanter?

09.10.2018 - 10:06

DROPS Design answered:

Hei Josefine. Ja, du strikker A.2 som anvist også på vottene. God fornøyelse.

16.10.2018 - 13:16

country flag Anita Heimpel wrote:

Vielen lieben dank

05.10.2018 - 12:02

country flag Anita Heimpel wrote:

Irgendwas mache ich beim Schal fals die Seiten rollen sich bei mir ein Danke für die hilfe

05.10.2018 - 11:03

DROPS Design answered:

Liebe Frau Heimpel, beim Schal stricken Sie die ersten 5 Maschen krausrechts (= immer rechts stricken) und die 5. Masche in A.1 soll bei der Hinreihe 1 Masche tiefer rechts gestrickt, und bei der Rückreihe links gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

05.10.2018 - 11:54

country flag Anne wrote:

Forstår ikke: stik højre pind gennem masken fra forrige omgang----

06.03.2018 - 08:52

DROPS Design answered:

Hej Anne, se her:

How to knit a double stitch from Garnstudio Drops design on Vimeo.

06.03.2018 - 16:25

country flag Joanna wrote:

Witam, Nie jestem pewna, czy dobrze rozumiem wzór na szalik. Jeśli na końcu rzędu nieparzystego przerobię 5 oczek z sześciooczkowego okresu wzoru A1, to przy przerabianiu parzystego rzędu będę trafiać podwójnym oczkiem na jedno z oczek lewych, a oczka przerabiane na prawo w rzędach nieparzystych będą tworzyć jakieś niezależne paski. Czy to tak ma być? Nie widzę takich dodatkowych pasków na zdjęciu szalika.

03.01.2018 - 14:11

DROPS Design answered:

Witaj Joanno, w rzędzie parzystym przerabiasz schemat od lewej do prawej strony, tzn. zaczynasz od 5 pierwszych oczek schematu A.1 i dalej powtarzasz już cały 6-oczkowy schemat A.1. Pozdrawiam

04.01.2018 - 09:41