DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7480.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Advent Calendar Doors

Heklaðar stakar dagatals hurðir fyrir jólin með skrauti. Þema: Jól. Stykkið er heklað úr DROPS Safran.

DROPS Extra 0-1392
DROPS Design: Mynstur e-268
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

1 hurð (án skrauts) er ca 20 grömm.

Mál á hurð: Breidd: ca 13 cm. Hæð: ca 20 cm.

Efni:
Í 24 hurðir þá þarftu:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
500 g nr 19, rauður
50 g nr 18, natur
50 g nr 21, beige
50 g nr 22, ljós brúnn
50 g nr 04, grænn
50 g nr 07, milligrár
50 g nr 55, kirsuber
50 g nr 11, skærgulur

DROPS HEKLUNÁL NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 fastalykkjur og 26 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS STÁLTALA, HRINGLAGA (messing) NR 530: 1 st (á hverja hurð)

FYLGIHLUTIR: Þykkt efni ca 55 x 130 cm sem hægt er að hengja upp, til þess að sauma hurðirnar á í lokin - jafngildir 4 hurðum á breidd og 6 hurðum á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7480.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sexhyrndur gluggi: Sjá mynsturteikningu A.1.
Krans með bjöllu: Sjá mynsturteikningu A.2.
Hjarta: Sjá mynsturteikningu A.3.
Hyrndur, sporöskjulaga gluggi: Sjá mynsturteikningu A.4.
Sporöskjulaga gluggi: Sjá mynsturteikningu A.5.
Stjarna: Sjá mynsturteikningu A.6.
Krans: Sjá mynsturteikningu A.7.

KRABBAHEKL (á við um glugga með boga):
Heklið fastalykkjur, nema aftur á bak. Þ.e.a.s. heklið fastalykkjur frá vinstri til hægri.

HEKLLEIÐBEININGAR (á við um glugga með boga, jólatré og hreindýr):
Fyrsta fastalykkjan er skipt út fyrir 1 loftlykkju.

HEKLIÐ 2 FASTALYKKJUR SAMAN:
* Stingið heklunálinni í næstu lykkju, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 fastalykkja færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HURÐIR FYRIR JÓLADAGATAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Jóladagatalið samanstendur af 1 hurð með 16 mismunandi skrauti sem hægt er að skreyta með mismunandi hætti – sjá myndir að ofan. Mynd nr 1-4 sýnir hvernig samsetningin er eins og útskýrt er í uppskrift á HURÐ 1-4 að neðan.
Hver hurð er stök og 1 hurð er 13 x 20 cm. Þegar allar 24 hurðirnar hafa verið heklaðar eru þær saumaðar á efnisbút með 4 hurðir á breidd og 6 hurðir á hæð.

HURÐ:
Stykkið er fyrst heklað fram og til baka, síðan er heklaður kantur í kringum alla hurðina. Heklið 29 loftlykkjur með heklunál 3 með rauður. Snúið og heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af næstu 27 loftlykkjum = 28 fastalykkjur. Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Endurtakið síðustu umferð þar til stykkið mælist 18 cm, endið eftir eina umferð frá röngu. Heklið nú kant í kringum alla hurðina, snúið og byrjið í efsta horninu frá réttu: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkju í fyrstu fastalykkju, * 3 loftlykkjur, 1 stuðul í fyrstu loftlykkju, hoppið yfir ca 1½ cm, 1 fastalykkja í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn, stillið af þannig að það verði ein fastalykkja í hverju horni á hurð. Endið umferðina með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar. Klippið frá og festið enda. Saumið tölu á hurðina, ca fyrir miðju á vinstri hlið.
----------------------------------------------------------

HURÐ-1:
Heklið hurð eins og útskýrt er að ofan. Heklið síðan einn glugga með boga, einn sexhyrndan glugga, einn krans með bjöllu og eitt hjarta.

GLUGGI MEÐ BOGA:
Stykkið er heklað fyrst fram og til baka, síðan er heklaður kantur í kringum allan gluggann.
Heklið 18 loftlykkjur með heklunál 3 með litnum natur.
UMFERÐ 1: Snúið og heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá umferð, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 16 loftlykkjum = 17 fastalykkjur.
UMFERÐ 2-12: Lesið HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
UMFERÐ 13: Heklið 2 FASTALYKKJUR SAMAN – sjá útskýringu að ofan, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju þar til 2 fastalykkjur eru eftir, heklið 2 fastalykkjur saman (= 2 fastalykkjur færri).
UMFERÐ 14: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
Endurtakið umferð 13 og 14 1 sinni til viðbótar, síðan er endurtekin umferð 13 = 11 fastalykkjur í síðustu umferð. Klippið frá og festið enda.
Heklið kant í kringum allan gluggan þannig: Byrjið frá vinstra horni og niður. Heklið KRABBAHEKL – sjá útskýringu að ofan, meðfram neðsta kanti á hurð. Síðan er stykkinu snúið og heklað er í hring þannig: Heklið * 3 loftlykkjur, 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju, hoppið yfir 1 umferð/fastalykkju, heklið 1 fastalykkju í næstu umferð/fastalykkju *, endurtakið frá *-* til byrjunar á stykki, þ.e.a.s. hægra horn niðri. Klippið frá og festið enda.

SEXHYRNDUR GLUGGI:
Glugginn er heklaður í hring frá miðju og út.
Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 3 með litnum natur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið mynstur hringinn eftir mynsturteikningu A.1b alls 6 sinnum í umferð – A.1a sýnir hvernig umferðin byrjar og endar og er hekluð sem viðbót við A.1b. Haldið áfram hringinn þar til 1 umferð er eftir. Skiptið yfir í litinn beige og heklið síðustu umferð. Klippið frá og festið enda. Heklið keðjulykkjuumferð í útaukningum (= 6 rendur) með litnum beige.

KRANS MEÐ BJÖLLU:
Stykkið er heklað í hring með byrjun frá miðju á kransi og út.
Heklið 24 loftlykkjur með heklunál 3 með litnum grænn og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.2b alls 5 sinnum í umferð – A.2a sýnir hvernig umferðin byrjar og endar og er hekluð sem viðbót við A.2b. Haldið áfram þar til A.2a/A.2b er lokið, klippið frá og festið enda. Heklið nú eina umferð frá réttu í sömu fastalykkju eins og í fyrstu umferð. Festið þráðinn með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á þessari umferð, heklið síðan mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.2d alls 5 sinnum í umferð – A.2c sýnir hvernig umferðin byrjar og endar og er hekluð sem viðbót við A.2d. Haldið áfram þar til loka umferðar, klippið frá og festið enda.
Heklið bjöllu þannig: Heklið 3 loftlykkjur með heklunál 3 með litnum skærgulur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið 4 fastalykkjur um hringinn, heklið síðan 2 umferðir með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju, heklið síðan 1 umferð með 2 fastalykkjur í hverja af 4 fastalykkjum = 8 fastalykkjur. Klippið frá og festið enda. Saumið bjölluna á kransinn.

HJARTA:
Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 3 með litnum grænn og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið síðan mynstur hringinn eins og sýnt er í mynsturteikningu A.3. Þegar A.3 er lokið er klippt frá og endi festur.
----------------------------------------------------------

HURÐ-2:
Heklið hurð eins og útskýrt er að ofan. Heklið síðan hyrndan, sporöskjulaga glugga, eitt jólatré, eitt hreindýr og eitt hjarta.

HYRNDUR, SPORÖSKJULAGA GLUGGI:
Stykkið er heklað í hring, með byrjun frá miðju á glugga og út.
Heklið 11 loftlykkjur (meðtalin 1 loftlykkja til að snúa við með) með heklunál 3 með litnum natur.
Snúið og heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 8 loftlykkjum, 2 fastalykkjur í síðustu fastalykkju. Haldið áfram hringinn og heklið í gangstæðri hlið við loftlykkjuumferð þannig: 1 fastalykkja í hverja af 8 loftlykkjum, 1 fastalykkja í sömu loftlykkju eins og fyrsta fastalykkja. Heklið síðan mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.4 þannig: A.4a sýnir hvernig umferðin byrjar og endar, * A.4b, A.4c og A.4 d *, heklið *-* alls 2 sinnum í umferð. Haldið áfram hringinn þar til eftir er 1 umferð. Skiptið yfir í litinn milligrár og heklið síðustu umferð. Klippið frá og festið enda.

JÓLATRÉ:
Stykkið er fyrst heklað fram og til baka, síðan er heklaður kantur utan um allt jólatréð.
Heklið 8 loftlykkjur með heklunál 3 með litnum grænn.
UMFERÐ 1: Snúið og heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 6 loftlykkjum = 7 fastalykkjur.
UMFERÐ 2-3: Lesið HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
UMFERÐ 4: Heklið 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 5 fastalykkjum = 5 fastalykkjur.
UMFERÐ 5-6: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
UMFERÐ 7: Heklið 1 keðjulykkju í fyrstu fastaalykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 fastalykkjum = 3 fastalykkjur.
UMFERÐ 8-11: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. Klippið frá og festið enda.
KANTUR: Byrjið með 1 fastalykkju með litnum grænn um fyrstu umferð á hægra horni neðst niðri, * hoppið yfir 1 umferð, heklið 6 stuðla um næstu umferð, hoppið yfir 1 umferð, 1 fastalykkja um næstu umferð *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, hoppið yfir 1 umferð, um miðju á næstu umferð er heklað þannig: Heklið 3 stuðla, 2 tvíbrugðna stuðla, 3 loftlykkjur, 1 keðjulykkja í fyrstu loftlykkju, 2 tvíbrugðnir stuðlar og 3 stuðlar, * hoppið yfir 1 umferð, heklið 1 fastalykkju um næstu umferð, hoppið yfir 1 umferð, heklið 6 stuðla um næstu umferð *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, hoppið yfir 1 umferð og endið með 1 fastalykkju um síðustu umferð. Klippið frá og festið enda.
Saumið ljós með litnum skærgulur í kringum loftlykkjur efst á jólatré. Saumið ljós á jólatréð með því að sauma nokkur spor upp og niður yfir allt jólatréð með litnum skærgulur og llitnum kirsuber.

HREINDÝR:
Stykkið er heklað fram og til baka.
Heklið 3 loftlykkjur með heklunál 3 með litnum ljós brúnn og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.
UMFERÐ 1 – Lesið HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 6 fastalykkjur um loftlykkjuhringinn.
UMFERÐ 2-7: Snúið. Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
UMFERÐ 8 (eyra): Heklið 2 loftlykkjur, 1 stuðul í fyrstu fastalykkju – en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul í næstu fastalykkju og dragið þráðinn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni. Klippið frá og festið enda.
Heklið hitt eyrað alveg eins í gagnstæðri hlið, byrjið með 1 keðjulykkju.
Klippið frá og festið enda.

HORN: Hekli 15 lausar loftlykkjur með heklunál 3 með litnum beige, heklið 1 fastalykkju í hvora af miðju 2 fastalykkjunm í umferð 7, heklið síðan 15 lausar loftlykkjur. Klippið frá.
Heklið nú stuttar loftlykkjuumferðir út hvoru megin við báðar þessar 15 loftlykkjur. Heklið 1 hluta þannig: Festið með 1 keðjulykkju í loftlykkjuumferðina og heklið 4 loftlykkjur. Klippið frá og festið. Heklið 2 svona alveg eins hluta í hvora 15 loftlykkjuumferðirnar.
Saumið nokkur spor fyrir augu með litnum natur.

HJARTA:
Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 3 með litnum grænn og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Haldið áfram að hekla mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.3. Þegar A.3 er lokið er klippt frá og endi festur.
----------------------------------------------------------

HURÐ-3:
Heklið hurð eins og útskýrt er að ofan. Heklið síðan sporöskjulaga glugga, eitt hjarta og eina stjörnu.

SPORÖSKJULAGA GLUGGI:
Stykkið er heklað í hring, með byrjun frá miðju á glugga og út.
Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 3 með litnum natur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.5b alls 2 sinnum í umferð – A.5a sýnir hvernig umferðin byrjar og endar og er hekluð sem viðbót við A.5b. Haldið áfram hringinn þar til 1 umferð er eftir. Skiptið yfir í litinn beige og heklið síðustu umferðina. Klippið frá og festið enda.

HJARTA:
Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 3 með litnum grænn og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Haldið áfram að hekla mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.3. Þegar A.3 er lokið er klippt frá og endi festur.

STJARNA:
Stykkið er heklað í hring með byrjun frá miðju á stjörnu og út.
Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 3 með litnum natur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið síðan mynstur í kringum hringinn eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.6. Þegar A.6 er lokið er klippt frá og endi festur.
----------------------------------------------------------

HURÐ-4:
Heklið eina hurð eins og útskýrt er að ofan. Heklið síðan lítinn ferhyrndan glugga, einn krans með berjum, einn lítinn pakka, einn stóran pakka og eina sykurstöng.

LÍTILL FERHYRNDUR GLUGGI:
Stykkið er heklað fram og til baka, síðan er heklaður kantur í kringum allan gluggann.
Heklið 13 loftlykkjur (meðtalin 1 loftlykkja til að snúa við með) með heklunál 3 með litnum natur. Snúið og heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 11 loftlykkjum = 12 fastalykkjur.
Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
Endurtakið síðustu umferð þar til heklaðar hafa verið alls 11 umferðir.
Heklið nú kant í kringum allan gluggann, snúið og byrjið í efsta horninu þannig:
Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkju í fyrstu fastalykkju, * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu loftlykkju, hoppið yfir ca 1½ cm, 1 fastalykkja í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn, stillið af að það komi ein fastalykkja í hvert horn á glugga. Endið umferð með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun á umferð. Klippið frá og festið enda.

KRANS MEÐ BERJUM:
Stykkið er heklað í hring, með byrjun frá miðju á kransi og út.
Heklið 24 loftlykkjur með heklunál 3 með litnum grænn og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.7b alls 6 sinnum í umferð – A.7a sýnir hvernig umferðin byrjar og endar og er hekluð sem viðbót við A.7b. Haldið áfram þar til A.7 er lokið. Klippið frá og festið enda.

BER: Heklið 1 ber þannig: Heklið 3 loftlykkjur með heklunál 3 með litnum rauður, heklið 3 stuðla í fyrstu af 3 loftlykkjunum, takið heklunálina út og stingið henni í 3. loftlykkju, sækið lykkjuna frá síðasta stuðli og dragið síðan lykkjuna í gegnum 3. loftlykkju. Klippið frá og festið enda. Heklið 2 ber til viðbótar alveg eins og saumið niður efst á kransinn.

LÍTILL PAKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka.
Heklið 10 loftlykkjur (meðtalin 1 loftlykkja til að snúa við með) með heklunál 3 með litnum kirsuberjar. Snúið og heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinn, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 8 loftlykkjum = 9 fastalykkjur. Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju. Endurtakið síðustu umferð þar til heklaðar hafa verið alls 7 umferðir. Klippið frá og festið enda.
Heklið 1 loftlykkjuumferð með litnum skærgulur ca 6 cm, hnýtið fastan hnút í hvorn enda og klippið frá. Saumið niður á breiddina yfir pakkann.
Heklið 1 loftlykkjuumferð með litnum kirsuber ca 15 cm, hnýtið fastan hnút á hvorn enda. Hnýtið utan um pakkann á hæðina og hnýtið slaufu á toppnum.

STÓR PAKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka.
Heklið 10 loftlykkjur (meðtalin 1 loftlykkja til að snúa við með) með heklunál 3 með litnum milligrár. Snúið og heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinn, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 11 loftlykkjum = 12 fastalykkjur. Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju. Endurtakið síðustu umferð þar til heklaðar hafa verið alls 10 umferðir. Klippið frá og festið enda.
Heklið 1 loftlykkjuumferð með litnum kirsuber ca 8 cm, hnýtið fastan hnút á hvorn enda og klippið frá. Saumið niður á breiddina yfir pakkann.
Heklið 1 loftlykkjuumferð með litnum kirsuber ca 20 cm, hnýtið fastan hnút á hvorn enda. Hnýtið utan um pakkann á hæðina og hnýtið slaufu á toppnum.

SYKURSTÖNG:
Stykkið er heklað fram og til baka.
Heklið 4 loftlykkjur (meðtalin 1 loftlykkja til að snúa við með) með heklunál 3 með litnum natur. Snúið og heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, heklið 1 fastalykkju í hvora af næstu 2 loftlykkjum = 3 fastalykkjur. Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. Endurtakið síðustu umferð þar til heklaðar hafa verið alls 12 umferðir, endið með 6 loftlykkjur í síðustu umferð. Snúið, heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 loftlykkjum, 1 fastalykkja í hverja og eina af næstu 3 fastalykkjum = 8 fastalykkjur. Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju. Endurtakið síðustu umferð 1 sinni til viðbótar. Klippið frá og festið enda.
Heklið 1 loftlykkju umferð með litnum rauður ca 60 loftlykkjur, hnýtið fastan hnút á hvorn enda og klippið frá. Vefjið utan um sykurstöngina og saumið niður á bakhlið.

Mynstur

symbols = keðjulykkja um loftlykkjuhring
symbols = loftlykkja
symbols = 3 loftlykkjur
symbols = 8 loftlykkjur, 1 keðjulykkja um loftlykkjuhringinn
symbols = fastalykkja um loftlykkjuhringinn
symbols = fastalykkja í lykkju
symbols = 2 fastalykkjur í sömu lykkju
symbols = hálfur stuðull í lykkju
symbols = stuðull í lykkju
symbols = tvíbrugðinn stuðull í lykkju
symbols = * 3 loftlykkjur, 1 keðjulykkja í fyrstu loftlykkju *, heklið frá *-* alls 3 sinnum, festið með 1 keðjulykkju efst á stuðli
symbols = umferðin byrjar með 1 loftlykkju og endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á umferð
symbols = umferðin byrjar með 2 loftlykkjum og endar með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju í byrjun umferðar
symbols = loftlykkjuhringurinn er útskýrður í uppskrift – sjá punkt í hring, umferðin byrjar og endar hér

symbols = loftlykkjuhringurinn er útskýrður í uppskrift – sjá punkt í hring, umferðin byrjar og endar hér

diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1392

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (5)

country flag Angels wrote:

Hay alguna forma de comprar todo el material q necesito?

04.09.2023 - 18:54

DROPS Design answered:

Hola Angels, puedes encontrar las tiendas es España/ que venden a España en el siguiente enlace: https://www.garnstudio.com/findastore.php?id=23&cid=23. En las propias tiendas puedes seleccionar los ovillos que necesites o contactar con ellos para obtener información sobre el stock.

10.09.2023 - 19:02

country flag Marja Van Bruggen wrote:

Ik kom niet uit het patroon van de krans met bel. Is hier een geschreven patroon van? Of anders, hoeveel toeren zijn het in totaal?

19.07.2019 - 19:59

DROPS Design answered:

Dag Marja,

Het geschreven patroon staat bij 'KRANS MET BEL'. Je haakt eerst 24 lossen die je sluit met een ring. Dan haak je de eerste toer van A.2 (vasten, beginnend met 1 lossen) Op de volgende toer begin met het eerste symbool in A.2a (= de toer begint met 2 lossen ) dan haak je een half stokje in de eerste vaste van de vorige toer. Dan haak je 4 lossen, dan 1 stokje in de 2e losse van die vier lossen en 1 dubbel stokje in de 1e losse van die vier lossen, sla 2 stokjes over en haak dan weer een half stokje in de volgende vaste, herhaal op deze manier (kijk ook naar het telpatroon).

23.07.2019 - 11:50

country flag Anneke Maaskant wrote:

-Ik ga geen suikerwater gebruiken: dit trekt ongedierte aan. Ik naai de lapjes L-vormig vast+ een stukje rechtsonder en een haakje rechtsboven. -De koordjes met strik om de pakjes zijn te kort: ik heb resp. 30 en 40cm gemaakt. -Ik werk de draadjes in eerste instantie niet weg maar gebruik ze voor het bevestigen op de ondergrond.

28.01.2019 - 11:53

country flag Anneke Maaskant wrote:

-Ik ga geen suikerwater gebruiken, dit trekt ongedierte aan. ik naai de lapjes L-vormig vast+ een stukje rechtsonder. Haakje rechtsboven.\r\n-De koordjes met strik om de pakjes zijn te kort: ik heb resp. 30 en 40cm gemaakt.\r\n-draadjes werk ik in eerste instantie niet weg: veel er van zijn te gebruiken voor bevestigen aan de ondergrond.\r\n-Veel maar leuk werk!

28.01.2019 - 11:49

country flag Anneke wrote:

Als de deurtjes aan de linkerkant worden vastgenaaid en aan de rechterkant een knoop zit is de rest los en kunnen er geen kleinigheidjes in verstopt. Dat is toch de bedoeling van een Adventkalender? Bovendien: als je het deurtje openmaakt zakt het dan niet slap uit?

14.10.2018 - 18:45

DROPS Design answered:

Dag Anneke, Daar heb je inderdaad wel gelijk aan. Dit zou je op kunnen lossen door de deurtjes op te stijven door ze in suikerwater te leggen en dan plat te laten drogen. Door het opgedroogde suiker worden de lapjes stijf en krullen ze niet om.

15.10.2018 - 21:44