DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 185-20
DROPS Design: Mynstur fa-394
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: 35/37 - 38/40 - 41/43 – 44/46
Lengd fótar: 22 - 24 - 27 - 30cm
Hæð á sokk: 12 - 14 - 16 -18 cm

Efni:
DROPS Fabel frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-100-100 g litur 114, ljós perlugrár

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

HÆLÚRTAKA:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-8-8-10 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var slétt, snúið stykkinu.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-8-8-10 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðna, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir brugðnu lykkjuna, snúið stykkinu.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-7-7-9 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eina og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var slétt, snúið stykkinu.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-7-7-9 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðna, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir brugðnu lykkjuna, snúið stykkinu.
Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að það fækki um 1 lykkju áður en 1 lykkju er steypt yfir þar til 14-16-16-20 lykkjur eru eftir á prjóni.

ÚRTAKA (á við um tá):
Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá.

SOKKAR:
Fitjið upp 68-76-76-84 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með Fabel. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar = miðja að aftan. Prjónið A.1 hringinn (= 17-19-19-21 mynstureiningar með 4 lykkjum). Þegar stykkið mælist 4 cm er næsta umferð prjónuð þannig: Haldið áfram með A.1 yfir fyrstu 12-16-16-20 lykkjur (= 3-4-4-5 mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið A.2 (= 3 lykkjur), A.3 (= 38 lykkjur sem fækkað er til 34 lykkjur), A.4 (= 3 lykkjur) og A.1 yfir síðustu 12-16-16-20 lykkjur (= 3-4-4-5 mynstureiningar með 4 lykkjum) = 64-72-72-80 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þannig: Haldið áfram með A.1 yfir fyrstu 12-16-16-20 lykkjur, A.2 (= 3 lykkjur), prjónið A.5 (= 34 lykkjur), haldið áfram með A.4 (= 3 lykkjur) og haldið áfram með A.1 yfir síðustu 12-16-16-20 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 12-14-16-18 cm haldið eftir fyrstu 13-15-15-19 lykkjum og síðustu 13-15-15-19 lykkjum á prjóni fyrir hæl, miðju 38-42-42-42 lykkjur eru settar á þráð (= mitt ofan á fæti).
Haldið áfram með A.1 fram og til baka yfir hællykkjur og fitjið jafnframt upp 1 kantlykkju hvoru megin í fyrstu umferð = 28-32-32-40 lykkjur. Þegar hællinn mælist 5-5½-6-6½ cm fellið af 1 kantlykkju í hvorri hlið = 26-30-30-38 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á prjóninn.
Prjónið nú HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan!
Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 13-14-16-17 lykkjur hvoru megin við hæl (prjónið upp lykkjur innan við 1 kantlykkju hvoru megin á hæl) og 38-42-42-42 lykkjur af þræði eru settar til baka á prjóninn = 78-86-90-96 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við miðju 38 lykkjur ofan á fæti (í öllum stærðum). Haldið áfram hringinn með A.5 eins og áður yfir miðju 34 lykkjur ofan á fæti og A.6 (= 2 lykkjur) hvoru megin við A.5, aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á undan fyrra prjónamerki ofan á fæti slétt saman og prjónið 2 fyrstu lykkjur á eftir seinna prjónamerki ofan á fæti snúnar slétt saman.
Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 8-10-10-11 sinnum = 62-66-70-74 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 18-19-21-23 cm frá prjónamerki á hæl (= 4-5-6-7 cm eftir til loka).
Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10 lykkjur jafnt yfir A.5 og A.6 = 52-56-60-64 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið þannig að það verða 26-28-30-32 lykkjur bæði ofan á fæti og undir fæti. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-7-9-11 sinnum og síðan í hverri umferð alls 6-3-2-0 sinnum = 12-16-16-20 lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 6-8-8-10 lykkjur.
Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel.

Prjónið annan sokk á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = setjið 1 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið lykkju af kaðlaprjóni slétt
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið lykkju af kaðlaprjóni brugðna
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðna, prjónið 2 lykkjur á kaðlaprjón slétt
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur af kaðlaprjóni slétt
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur af kaðlaprjóni slétt
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 185-20

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (9)

country flag Sandra wrote:

Hej! Tycker det här var väldigt roligt att sticka, jag bytte till drops alpacka för att jag ville ha ullgarn, men behöll stickorna 2,5. När vi använder strumporna blir de slappa och tappar spänsten, drar inte ihop sig igen. Vad har jag gjort fel?

23.03.2022 - 13:27

DROPS Design answered:

Hei Sandra. Usikker på hvorfor de ikke holder formen hos deg. Har du overholdt strikkefastheten. Prøv å vaske sokkene (etter vaskeanvisningen) og se om det hjelper. mvh DROPS Design

28.03.2022 - 11:22

country flag Marta wrote:

Hola! Cuando decís que hay que montar y rematar un punto de orillo al principio y al final del talón, os referís a añadir un punto a cada lado primero, luego tejer todo el borde en punto de orillo y al final disminuir ese punto o simplemente a aumentar y disminuir un punto a cada lado al principio y al final? No he hecho nunca puntos de orillo y estoy un poco confusa. Tenéis algún vídeo tutorial de cómo hacer esto? Gracias!

21.12.2020 - 13:02

DROPS Design answered:

Hola Marta! Cómo hacer disminuciones estándar del talón para una calceta esta aqui. Buen trabajo!

21.12.2020 - 13:53

country flag Lise wrote:

Hej - jeg forstår ikke, hvordan diagram A5 skal gentages? Har læst den tyske kommentar om det samme, men svaret gav ikke særlig god mening for mig - for hvordan skal de øverste fire rækker (der kun vises med retmasker over de to andre snoninger) egentlig strikkes, før man starter fra række 1 igen?

20.06.2020 - 17:49

DROPS Design answered:

Hei Lise. Når du har strikket A.5 1 gang i høyden fortsetter du på rad 1 igjen, men flettene ytterst i diagrammet skal ha 5 omganger med glattstrikk mellom hver flette, så da må de 4 øverst rekkene strikkes samtidig som du begynner på 1. omgang. Slik at 1. rad strikkes slik: 2 vrang, 4 rett, 2 vrang, sett 1 maske på flettepinne bak arbeidet, strikk 1 rett, strikk masken på flettepinnen rett, 5 vrang, sett 2 masker på flettepinne bak arbeidet, strikk 2 rett, strikk de 2 maskene fra flettepinnen rett , 5 vrang, sett 1 maske på flettepinne bak arbeidet, strikk 1 rett, strikk masken på flettepinnen rett, 2 vrang, 4 rett og 2 vrang. mvh DROPS design

22.06.2020 - 13:36

country flag Anita wrote:

Ja, A3 passar över A1, men A5 passar inte över A3. Det är andra varvet i A3 jag avser.

21.02.2019 - 09:38

DROPS Design answered:

Hei Anita. Det har du rett i, A.5 passer ikke like godt over A.3. Jeg så på A.1, beklager det. Det blir riktig som du sier: å strikke 4 rettmasker innenfor de ytterste vrangmaskene i hver side, og videre annenhver 2 vrang og 2 rett. Vi skal få oppdatert diagrammet snarest. God fornøyelse

11.03.2019 - 09:01

country flag Anita wrote:

När man kommer till hälen är det onödigt komplicerat om man ska ha varvbyte mitt bak. Man får då göra överföringen av maskan på avigsidan på halva varvet. Vore enklare att ha varvbyte precis före eller efter hälmaskorna. Detta kan ni väl enkelt rätta till? Mycket snygga sockar annars.

19.02.2019 - 12:26

DROPS Design answered:

Hei Anita. Omgangen starter midt bak da vi vil den skal starte midt under foten senere. Du kan enten klippe tråden og starte i den ene siden av hælmaskene når du begynner på hælen, eller du kan helt enkelt strikke 1 omgang mer over halve hælen. Det kommer ikke til å vises om du gjøre det slik, men du må selvfølgelig gjerne klippe tråden slik at alle masker strikkes like mange ganger. God fornøyelse

11.03.2019 - 09:05

country flag Anita wrote:

Det måste vara fel i diagram A3. Borde vara 2 aviga och sen 4 räta.

17.02.2019 - 11:35

DROPS Design answered:

hei Anita. A.3 er korrekt, flettene og vrangmaskene passer fint over flettene og vrangmaskene i A.1. Videre skal det strikkes A.5 over A.3. God fornøyelse

21.02.2019 - 08:25

country flag BROUX wrote:

Bonjour je tricote ce modèle.Quand l'ouvrage mesure 16cm on commence le talon. On prend les 15 premières et les 15 dernières mailles Comment tricoter A1 en aller retour alors que le début du rang est au milieu de ces 30 mailles?

15.01.2018 - 14:39

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Broux, vous pouvez couper le fil et continuer le rang suivant soit sur l'endroit soit sur l'envers (ajustez en fonction de A.1 pour que les torsades soient sur l'endroit). Bon tricot!

15.01.2018 - 15:50

country flag Angelika Weißenbach wrote:

Hallo, ich habe den Mustersatz A.5 jetzt einmal gestrickt aber wie geht es weiter? Ich kann nicht einfach unten anfangen, da sonst der Zopf an der Seite nicht stimmt.

28.11.2017 - 16:56

DROPS Design answered:

Liebe Frau Weißenbach, nach 20. Reihen in A.5 ist das mittlere Muster fertig, von Reihe 1 wiederholen, bei den 2 Zöpfen sollen Sie noch 4 Reihen stricken, dann von Reihe 1 wiederholen. Viel Spaß beim stricken!

29.11.2017 - 08:23

country flag Miriam wrote:

Wo finde ich die Diagramme A1 bis A4 und A6 ?

09.10.2017 - 21:24

DROPS Design answered:

Liebe Miriam, Diagramme sind jetzt online, danke für Ihre Rückmeldung. Viel Spaß beim stricken!

13.10.2017 - 15:06